NT


NT - 15.08.1984, Side 28

NT - 15.08.1984, Side 28
„Ég er íslenskur ríkisborg- ari og mun alltaf vera það“ segir Sigurlaug Rósinkranz sópransöngkona í samtali við NT ■ Sigurlaug Rósinkranz, söngkona, er komin til íslands í stutta heimsókn en hún hefur búið erlendis í 12 ár, lengst af í Svíþjóð, auk þess hafði hún heimili í Þýskalandi og Ítalíu í mörg ár, og síðastliðið ár við nám í Bandaríkjunum. NT-mynd: Róbert ■ „Það er alltaf jafn ánægju- legt að koma heim og sjá þetta unga fólk í nýrri og nýrri hnotskurn. Þetta er stórkostleg kynslóð. Kynslóðin á undan mér var hörð af erfiðri lífsbar- áttu, mín kynslóð þroskaðri þar sem hún hafði meiri möguleika, en yngsta fólkið í dag hefur hlotið betri aðbúnað en aðrar kynslóðir á undan henni, og er því mýkri og víðsýnni. Hörð náttúra, óblíð veðrátta og erfið lífskjör gera fólk hart í lund. Það er rétt að koma auga á þetta, það hefur með þróun að gera. Tréð vex og sveigist eftir því hvernig stormurinn liggur á því. Því lengur sem vindurinn stendur á því, því meir bognar það, og vöxtur þess fer eftir því. í veðurblíðu-löndunum, vaxa trén beint upp. Þannig er mann- fólkið. Sjáum suðurlandabúana og berum þá saman við íslensku aldamótakynslóðina. Þetta er annar heimur. Aldamótakyn- slóðin er einnig mitt fólk sem ég ber virðingu fyrir en við eigum að geta talað um sem flest,“ Sigurlaug Rósinkranz. sópran söngkona, er komin til Islands í stutta heimsókn en hún hefur búið erlendis í 12 ár, lengst af í Svíþjóð, auk þess hafði hún heimili í Þýskalandi og Ítalíu í mörg ár, og síðastliðið ár við nám í Bandaríkjunum. Nú sem stendur er heimili hennar í N. Hollywood. „Mikið hefur breyst...“ - Við byrjum á því að spyrja Sigurlaugu hvers vegna hún hafi flust frá Svíþjóð. Það er stutt saga að segja frá því. „Það hefur mikið breyst á þessum árum. Kerfið í Svíþjóð er þungt í vöfum, og ég vildi breyta til um tíma. Skatturinn getur farið þar í 80% ef tekjur eru góðar. Það eru ekki margir sem eru ánægðir að greiða slíkt. Annars er landið fagurt og mér þykir vænt um það. Þar á ég einnig marga góða vini og börn- in einnig. Þau hafa slitið barns- skónum í Svíþjóð, fengið afar skemmtilega lífsbyrjun, alist upp með sinfóníuhljómsveit frá 6 ára aldri, komið fram af og til öll þessi ár sem einleikarar með henni og hljómsveitarmeðlimir, verið þar í barnaseríu í sjón- varpinu og í útvarpinu og Ragn- ar söng með inn á plötu bara 11 ára gamall árið áður en við fórum til Bandaríkjanna, og svo má lengi telja. Af þessu öllu leiðir að Svíþjóð skilur eftir sín sænsku spor í þeim, og í mér að sjálfsögðu líka. í Los Angeles, hafa þau spilað allt síðastliðið ár í stórri sinfóníuhljómsveit, í henni var aðallega fólk á aldrin- um 15 til 38 ára, þau voru yngst eða 11 og 12 ára. Nú hafa þau óskað eftir að fá að læra að spila léttari músik (ef létta skyldi kalla) og hafa fengið saxafón og rafmagnsbassa, einnig ég gaf sjálfri mér tenórsaxafón (ætla að læra á hann.)“ „Heimurinn er okkar ■■■ - Mundir þú vilja flytja heim til íslands? „Heimurinn er okkar. Ég er íslenskur ríkisborgari og mun alltaf vera það. Eg hef ávallt ferðast mikið og dvalist lang- dvölum í öðrum löndum og er það einnig söngferðalögum mínum að þakka, þó að síðastl. 3 ár hafi ég ekki starfað mikið. Ég dvaldist áður talsvert á Ítalíu og hlaut styrk til að lesa þar við háskóla. Börnin mín tala 4 tungumál, þótt ítalskan sé á undanhaldi. Það er eðlileg af- leiðing út af dvöl minni í ýmsum löndum." - Er ekki mesti glansinn far- inn af Hollywood? „Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla. Heimafólk þar verður ekki vart við glansinn sem Evrópa kom sér upp úr fjarlægð. Annars er Hollywood eins og hver önnur borg sem hefur sína kosti og galla.“ - Hvað gerir þú næsta vetur? „Ég er innrituð í skóla þar sem ég læri tónsmíðar. Mig hefur lengi langað til þess en ekki unnist tími til slíks fyrr en nú. Einnig á ég að geta eitthvað starfað við söng næsta vetur." „Kannski gæti ég samið tónverk við Ijóð föður míns...“ - Hefur þig stundum langað að gera eitthvað annað en þetta? „Mig hefur oft langað til að verða rithöfundur og skrifa bækur, eins og faðir minn. Þeg- ar ég var yngri, hafði ég sterka þrá í mér til þess. Af því varð þó ekki, það var alltaf svo mikið annað að gera, sem varð að koma fyrst.“ - Og þú ætlar að semja tónverk? Hvers konar tónverk? Sigurlaug hugsar sig vel um og segir: „Öll form tónlistar hafa rétt á sér, en fyrir mér vakir aðallega að skrifa mód- erna eða hálfmóderna tónverk við texta eða Ijóð. Kannski gæti ég samið tónverk við ljóð föður míns, Guðm. L. Friðfinnssonar, eða við texta sem ég hef þýtt sjálf, svo eitthvað sé nefnt." Og þar með kveðjum við Sigurlaugu Rósinkranz og þökkum henni skemmtilegt spjall og óskum henni gæfu vestur í Ameríku.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.