NT - 30.08.1984, Blaðsíða 1
Ung stúlka
hand-
tekin með
fíkniefni:
■ Rúmlega tvítug stúlka,
sem fíkniefnalögreglan hand-
tók á Keflavíkurflugvelli síð-
degis í fyrradag, reyndist hafa
100 grömm af amfetamíni falin
innvurtis. Samferðastúlku
hennar var sleppt fljótlega eftir
handtöku, þar sem grunur um
að hún væri einnig með fíkni-
efni reyndist ekki á rökum
reistur. Stúlkurnar voru að
koma frá Amsterdam, þar sem
Faldi amfetamín
í f imm blöðrum
í endaþarminum!
þær höfðu verið í flmm daga.
Verðmæti amfetamínsins í
götusölu er um 750 þúsund
krónur.
Stúlkan hafði dreift fíkniefn-
inu í fimm blöðrur, sem hún
faldi upp í endaþarmi sér. Við
handtökuna neitaði hún að
fara í röntgenmyndatöku til að
sannreyna það, að hún hefði
falið efnið inni í líkama sínum,
en í gærmorgun var kveðinn
upp dómsúrskurður um að hún
skyldi fara í myndatökuna.
Stúlkan hefur ekki áður komið
við sögu hjá fíkniefnalögregl-
unni, en grunur féll á hana, þar
sem hún hefur átt samneyti við
menn, sem þekktir eru hjá
lögreglunni fyrir fíkniefnamis-
ferli.
Að sögn fíkniefnalögregl-
unnar er rannsókn málsins á
frumstigi og ekki vitað hvort
fleiri tengjast því. í gærkvöldi
höfðu aðrir ekki verið kallaðir
til yfirheyrslu vegna þess. Ekki
hefur jafn mikið magn af am-
fetamíni verið gert upptækt
síðan í júní, er 750 grömm
voru tekin um borð f Eyrar-
fossi. Alls hefur verið lagt hald
á um eitt kíló af þessu fíkniefni
á þessu ári.
Stjórn Framkvæmdastofnunar:
Albert fékk syniun!
- um 8 milljóna rekstrarlán til Jökuls á Raufarhöfn
■ „Ég á erfítt með að trúa að
þetta sé endanleg afgreiðsla á
malinu" sagði Gunnar Hilm-
arsson, sveitarstjóri á Raufar-
höfn, en Raufarhafnarhreppur
á 95 prósent hlutafjár í Jökli hf.
„Það fer að verða sjálfsagt að
stoppa útgerðina“ sagði
Gunnar.
Stjórn Framkvæmdastofnun-
ar ríkisins hafnaði í gær erindi
Alberts Guðmundssonar,
fjármálaráðherra, um átta mill-
jóna króna rekstrarlán til út-
gerðarfélagsins Jökuls á Raufar-
höfn.
Með erindi Alberts til stjórn-
arinnar fylgdi boð um að átta
milljónir króna af framlagi
ríkissjóðs til Byggðasjóðs yrðu
greiddar strax.
Af hálfu Alberts mun lán
þetta verða hluti af skuldbreyt-
ingaláni sem ákveðið var fyrr á
árinu að veita til útgerðar.
Staða Jökuls er slæm, og var
nýlega frestað nauðungarupp-
boði vegna 5-6 milljóna króna
skuldar fyrirtækisins.
Stefán Guðmundsson, stjórn-
arformaður Framkvæmdastofn-
unar sagði NT í gærkvöld, að
forsætisráðherra hefði beðið
stofnunina um að gera úttekt á
fyrirtækinu, og hefðu tækni-
menn Framkvæmdastofnunar
farið austur. Stefán sagði að
forsætisráðherra yrðu kynntar
hugmyndir Framkvæmdastofn-
unar á rekstri fyrirtækisins fljót-
lega.
Stjórnarfundi Framkvæmda-
stofnunar á Sauðárkróki lauk í
gær. Á fundinum var m.a. rætt
við forystumenn sveitarfélaga í
Norðurlandskjördæmi vestra og
tókust þær umræður vel að sögn
Stefáns.
Prentararí
verkfall?
■ Almennur félagsfund-
ur í Félagi bókagerðar-
manna mun í dag taka
afstöðu til þess hvort
stjórn og trúnaðar-
mannaráði verði heimilað
að boða til verkfalls. Á
fundi stjórnar og trúnað-
armannaráðs í gær var
samþykkt með yfírgnæf-
andi meirihluta atkvæða
að falast eftir umboði fé-
lagsmanna til verkfalls-
boðunar.
Að sögn Magnúsar E.
Sigurðssonar, formanns
félagsins hefur engin dag-
setning verið ákveðin.
Kunnugir segja þó, að
verkfall verði boðað eftir
2. sunnudag ef af því
verður.
Vinnumálasambandið sýnir annað andlit en VSÍ:
Þrjú prósent-
in greidd út
■ Vinnumálasamband sam-
vinnufélaganna hefur gefíð út
þá línu að 3% kauphækkun
skuli greidd út 1. september,
eins og kjarasamningar frá því í
febrúar sl. gera ráð fyrir. Vinnu-
veitendasamband Islands tók
hins vegar fyrir nokkru þá
ákvörðun að greiða ekki 3% til
þeirra verkalýðsfélaga sem
sögðu upp launalið samninga.
I ályktun Vinnumálasam-
bandsins, sem er samband
u.þ.b. 50 atvinnurekenda með
Sambandið, KEA og Esso í
fararbroddi segir: „VMS skrif-
aði á liðnum vetri ásamt öðrum
vinnuveitendum undir 3%
launahækkun þann 1. septem-
ber 1984. Augljóst er að í
komandi kjarasamningum verð-
ur þessi greiðsla ekki felld
niður. VMS telur hins vegar
eðlilegt að félagar þess taki
ákvörðun um það hver á sínum
stað hvort greiðslur þessar fari
fram frá 1. september eða síðar,
enda eru aðstæður misjafnar á
hinum ýmsu stöðum á landinu.“
Gámaflutn-
ingar á
ferskfiski:
Yfir 50% aukning
- og bátar hætta að sigla!
Fuglager og
flugvellir
■ Meira en helmingsaukn-
ing hefur orðið á gámaflutn-
ingum ferskfísks á erlendar
hafnir samhliða því að sigl-
ingar fískiskipa hafa dregist
saman síðastliðið ár. Fyrstu
sjö mánuði ársins fóru tæp
7400 tonn á erlenda markaði
með þessu móti. Samanborið
við sama tíma í fyrra er hér
um 53% aukningu að ræða
en þá voru tonnin 4800.
Margt bendir nú til að
útflutningur óunnins afla sé í
örum vexti síðustu vikur en
til júlíloka var útflutningur-
inn svipaður og fyrir sama
tíma og í fyrra, og nemur um
20 þúsund tonnum. Það eru
tæp 6%. af fiskafla lands-
manna.
Að sögn Jóns Ásbjörns-
sonar heildsala sem haft hef-
ur með þennan útflutning að
gera hefur gámaflutningur-
inn gefist mjög vel. Með
þessari aðferð má flokka úr
þær fisktegundir sem unnt er
að selja á mörkuðum erlend-
is en setja aðrar í vinnslu hér
heima. Fiskurinn er tekinn
beint úr fiskiskipunum og
raðað í fiskikössunum inn í
gáminn. HefurEimskip mest
haft vanda að þessum flutn-
ingum sem að langmestu
leyti eru á Bretlandsmarkað.
■ Fuglager á flugvöUum er stórhættulegt
og hefur valdið alvarlegum flugslysum.
Ýmislegt er gert til að halda fuglum burt frá
flugvöllunum. Þeir eru skotnir og það er
eitrað fyrir þeim en árangurinn er ekki aUtaf
mildll eins og þessi mynd frá Frankfurt í gær
ber með Sér. Simuuynd-POLFOTO