NT - 30.08.1984, Blaðsíða 12
■ Hvernig líst þér á þennan
bíl? Rennilegur, framúrstefnu-
legur, glæsilegur en alveg örugg-
lega vel gerður og óvenjulegur
Ef þig fýsir að vita frá hvaða
verksmiðju bíllinn er er svarið:
Engri.
Pessi bíll er heimasmíðaður.
Draumur eins manns, komið í fram-
kvæmd af honum sjálfum og einum
aðstoðarmanni, nær draumabíl er
erfitt að komast.
Það var frítími þriggja ára sem fór
í hönnun og smíði Mirella og var
hann skapaður í húsnæði á stærð við
tvöfaldan bílskúr. Austin Tasman
sem er ástralskt afbrigði Austin Maxi
fórnaði vél og kassa sem situr þvers-
um afturí bílnum þar sem hestöflin
200 fara niður á ástralskt malbik.
Austin Tasman var búinn sex
strokka 2.3ja lítra vél sem læknirinn
Michael Clancy bætti á forþjöppu til
að tvöfalda orkuframleiðsluna. Pað
var þó minnsta verkið. Grindin var
smíðuð frá grunni úr stál prófílum og
soðnar í hana festingar fyrir alla
vélarhluta og hjólastell sem fengin
eru úr Toyota Corona að framan og
Datsun 240Z að aftan.
Grindin er afar voldug enda hafði
Mike í huga öryggi sitt og síns eina
farþega þegar hún var hönnuð og
smíðuð sem fór fram nær jafnhliða.
VOLVO N 1025 ÁRGERÐ 1980
Ekinn aöeins 80 þús. km. 6 m. Focco pallur og sturtur. Góö dekk.
VOLVO N 725 ÁRGERÐ 1974
Ekinn 250 þús. km. (60 þús. á véi)
Nýr Sindrapallur 5.35 m. Krani
3.25 t.
BENZ 1519 ÁRGERÐ 1970
llur 4,9 m, veltisturtur.
SCANIA 141 ÁRGERÐ 1978
Ekinn 250 þús. km.
Sindra pallur 5.5 m.
SCANIA 110 ÁRGERÐ 1974
Pallur 5.0 m. Sturtur St. Paul.
Kranapláss.
SCANIA III ÁRGERÐ 1976
Ekinn 200 þús. km. Nýlegur pallur
4.9 m. Krani 3.25 t. Krabbi 350 I.
'•If.
SCANIA 140 ÁRGERÐ 1972
Nýlegur pallur 5.6 m.
St. Paul sturtur.
Utan um stálröragrindina er gler-
trefjastyrkt plast, steypt í mótum sem
Mike bjó til sjálfur úr trefjaplasti í
samvinnu við svila sinn sem hafði
stúderað við Royal College of Art í
London.
Þegar það var tilbúið var farið á
næsta sprautuverkstæði og bíllinn
vandlega lakkaður í rauðu ofan og
dökkgráu neðan. Engir stuðarar eru
bak við svunturnar aftan og framan.
Það er ekki auðvelt að sjá af
rennilegum línum þessa einstaka bíls
að framrúðan er frá Citroén CX og
afturrúðan frá Alfa Romeo GTV, svo
vel falla þær inn í útlit bílsins. Innrétt-
ingin og mælaborðið er allt utan sætin
eigin smíð Mike Clancy og fallegri en
flest sem sést hefur frá nokkrum
fjöldaframleiðanda og í þokkabót
hannaði Mike eigin mælatöflu sem á
engan sinn líka í víðri veröld. í það
notaði hann 12 aðvörunarljós og
meira en 100 LED (lýsandi díóður)
auk Ijósþráða og vökvaskristalstafa
til að sýna hraða, vélarsnúning og
ekna vegalengd.
Bílinn smíðaði Mike fyrir sjálfan
sig og er sama hve mikið honum er
boðið, hann vill ekki selja og heldur
ekki smíða annað eintak. Mirella
heitir eftir konunni hans og á að
þjóna sem farartæki Mikes í vinnuna
og annað sem menn kaupa bíla yfir-
leitt til.
Atvinnuhönnuðir sem séð hafa bíl-
inn hafa verið dolfallnir yfir þessu
afreki hins ástralska læknis og dást
bæði að stórkostlegu, frumlegu útlit-
inu og frábærlega vandaðri smíði.
Mirella er heldur ekki fyrsti bíllinn
sem Mike Clancy smíðar sjálfur, áður
hafði hann smíðað tvo sérstæða bíla í
allt öðrum stíl en þessum allt að því
vísindaskáldsagnastíl.
Þá bfla notaði hann líka til almennra
ferðalaga með fjölskylduna og á þá
enn þótt hann sé að mestu hættur að
nota þá.
Mirella verður vonandi ekki síðasta
hugafóstrur þessa dverghaga Astrala,
hann hefur greinilega meiri hæfileika
til bílahönnunar en margir starfandi
bílahönnuðir. AA
■ Einn fallegasti bOl seinni ára (ára-
tuga?) er þessi hér. Það ótrúlegasta
við hann er að höfundur og smiður
hans er ekki í neinu tengdur list eða
bðum, heldur er það ástralskur
læknir!
■ Undir glxsilegu ytra byrðinu er
þessi geysisterka grind úr stálprófð-
um.