NT - 30.08.1984, Blaðsíða 31
Fimmtudagur 30. ágúst 1984 31
Iþróttir
Íslandsmeistaratitillinn
ekki enn kominn á Skagann
. ... A ■ r _' __- VT Á tlAll* . MI ■ ■ r aI aA (•■Ai.iniim
Frá Andrési Ólafssyni fréttamanni NT á
Akranesi:
■ Víkingar tryggðu sennilega
veru sína í 1. deild með sigri á
Akranesi í gærkvöldi. Leiknum
lauk með 3-2 sigri Víkinga.
HNOT-
SKURN
■ Skemmtilegur og opinn
leikur og sigur Víkinga
sanngjarn. Mörk Víkinga
skoruöu Kristinn Guð-
mundsson á 30. mín og 69.
mín. og Ómar Torfason á 55.
min. Fyrir Skagamenn
skoruðu Árni Sveinsson á
60. mín. og Hörður Jóhann-
esson á 77. mín.
Áhorfendur voru 959 og
sáu íslandsmeistaratitilinn
ekki í gærkvöldi.
Þeir voru vel að sígrinum
komnir, því þeir voru fyrr í
gang heldur en Skagamenn og
börðust betur. Skagamenn
virkuðu dálítið þungir og kom-
ust ekki vel af stað fyrr en of
seint.
Strax á fyrstu mínútu leiksins
fengu Víkingar aukaspyrnu og
uppúr henni átti Magnús Jóns-
son skot í stöng. Stuttu seinna
fékk Heimir dauðafæri og var
greinilegt að Víkingar ætluðu
að selja sig dýrt. Leikurinn var
opinn og skemmtilegur strax í
upphafi.
Skagamenn fóru að koma
meir við sögu um miðbik fyrri
hálfleiks og var leikurinn að
jafnast en þá skoruðu Víkingar
fyrsta markið. Það var á 30.
mínútu að Ámundi átti góða
fyrirgjöf sem fór yfir alla Skaga-
vörnina og á fjær stöng. Það
var mættur Kristinn Guð-
mundsson og hann var aleinn
og bombaði viðstöðulaust í
netið, 1-0 fyrir Víking. Rétt
fyrir leikhlé þá átti Sigþór
skalla rétt framhjá.
Enskir punktar:
Æviráða
Woodcock
■ Breska tímaritið Sboot
segir í fyrirsögn í síðasta
tölublaði sínu að Arsenal
vilji æviráða Tony Woo.l-
cock, enska landsliðsmank'-
inn sem liðið keypti frá FC
Köln í V-Þýskalandi fyr!r
rúmum tveimur árum.
Tímaritið greinir síðan frá
því að Don Howe fram-
kvæmdstjóri Arsenal sé svo
hrifinn af Woodcock og sam-
vinnu hans og Paul Mariner,
að hann vilji að Woodcock
skrifi undir nýjan 5 ára samn-
ing við liðið, jafnvel þó eitt
ár sé eftir af samningi hans
við Arsenal. Woodcock er
28 ára, svo að sá samningur
mun gilda til þess tíma að
Woodcock verði 33 ára.
Varla er það nú æviráðning,
en hins vegar er víst að
Woodcock fær vel í vasann
ef samningar nást.
Celtic
móðgað
■ Mikillhávaðihefurorðið
á Bretlandi vegna þess að
enska fyrstudeildarliðið
Chelsea bauð skoska úrvals-
deildarfélaginu Glasgow
Celtic 125 þúsund pund (5
milljónir ísl. króna) fyrir
miðvallarleikmanninn
Tommy Burns. Davie Hay,
„stjóri“ hjá Celtic, segir að
þetta tilboð sé móðgun við
félag sitt, Burns eigi eftir tvö
ár af samningi sínum við
Celtic og hann muni sjá til
þess að Burns standi við
þann samning
Ian McNeill aðstoð-
ar„stjóri“ Chelsea svarar
því til að þeir hjá Chelsea
hafi engum sagt frá því að
þeir hafi boðið í Burns, né
heldur hversu mikið: „Ef
Davie Hay ersvona móðgað-
ur, hvers vegna þurfti hann
þá að segja öllum heiminum
frá því?“
Saunders
refsar
■ Framkvæmdastjóri
Birmingham á Englandi hef-
ur nú misst þolinmæðina við
tvo óþæga stráka í liðinu
sínu. Þeir Robert Hopkins
og Tony Coton eru víst
nokkuð léttir á bárunni og í
síðustu viku sektaði Saund-
ers þá um upphæð sem nem-
ur tveggja vikna launum
þeirra. Astæðan er að pilt-
arnir gerðu sig seka um
„óviðurkvæmilegt atferli“ í
fríi á Ibiza-eyju í Miðjarðar-
hafinu.
Hægt að
kenna..
■ Hver segir að ekki sé
hægt að kenna gömlum
hundi að sitja? Malcolm
Poskett, 31 árs gamall mið-
herji hjá Carlisle í 2. deild-
inni ensku hefur verið að
dást að hinum 38 ára gamla
Pop Robson sem nú æfir
með Carlisle á Brunton
Park. Pop var gefin frjáls
burtför frá Sunderland síð-
astliðið vor i ’ enda talinn
verðlaus.
Poskett segir: „Hann er
undraverður, ég var að spá í
að leggja skóna á hilluna fvrir
tveimur árum, en Pop hefur
sannað það fyrir mér að með
réttu viðhorfi geti ég haldið
áfram í mörg ár í viðbót.“
Fleiri gamla refi mætti svo
sem tína til, Mick Channon
hjá Norwich er orðinn 38
ára, og er enn á fullri ferð í
fremstu víglínu í 1. deild á
Englandi. „Channon er
frábær, hann er 38 ára og
hefur ákefð 18 ára pilts á
vellinum. Reynslu hans er
ekki hægt að koma fyrir í
ungum leikmönnum. Það er
ekki hægt að fara fram á
meira frá leikmanni en það
sem Mick gerir,“ segir Ken
Brown, „stjóri“ hjá
Norwich.
■ Kristinn Guðmundsson Víkingur sem er að falla hér á
myndinni að ofan, bægði falldraugnum frá Víkingum í gærkvöldi,
með því að skora tvívegis hjá Skagamönnum.
Rush f rá í
10 vikur?
■ Leikmaðurinn marksækni
hjá Liverpool, Ian Rush verður
að gangast undir uppskurð á
hné, til þess að læknar átti sig
á því hvað sé nákvæmlega að
hné kappans. Ef fjarlægja verð-
ur liðþófa úr hnénu, þýðir það
að Rush verður frá keppni í að
minnsta kosti 10 vikur í viðbót.
Eins og kunnugt er þá gat
Rush ekki leikið með Liverpoo!
í fyrstu tveimur leikjum keppn-
4. deild:
„Hat-trick“ Friðriks
Frá Hafliða Jósteinssyni á Húsavík:
■ Tveir leikir voru í úrslitum
4. deildar í gærkvöldi. Á Húsa-
vík sigruðu Tjörnesingar Reyni
Árskógsströnd í miklum hasar-
leik með 4 mörkum gegn 1. Það
var Friðrik Jónasson sem gerði
þrjú marka Tjörness en Guð-
mundur Jónsson eitt. Tveir
leikmenn fengu að líta rauða
spjaldið og fjórir það gula í
leiknum. Leikurinn var hinn
hressilegasti þó stundum hlypi
kappið með menn.
Þá sigruðu ÍR-ingar Létti
heldur auðveldlega með 8
mörkum gegn einu. Gústaf
þjálfari gerði 2, Tryggvi og
Hallur einnig 2 og þeir Guð-
mundur og Hlynur eitt hvor.
Fyrir Létti skoraði Sigurður
Sigurðsson.
Belgía
■ Úrslit í Bclgíu gær-
kvöldi:
Waregem-Beveren 0-3
Club Bruges-Anlwerp 0-0
Ghent-Racing Jcl 4-1
Beerschol-Cercle Brugge 2-2
Saint Niklaas-Courtrai 3-0
Walerschei-Seraing 1-1
Mechelen-Standard Liege 1-1
j F.C. Liege-I.ierse 3-1
Þýskaland:
Bayern
sigraði
■ Nokkrir leikir voru í
Búndeslígunni í gærkvöld og
urðu úrslit þessi:
Mannhcim
Hamburg
Diisscldurf
Schalke
Bayern
Staða efstu liða:
Bayern
Eintracht Frankfurt
Gladbach
Bochum
Karlsruhe
Hamborg
Kaiserlautern
Köln
Stuttgart
Bayer Uerdigen
Bayer Leverkusen
Werder Bremen
Kaiserslautern
Gladbach
Karlsruhe
Bochum
WcrderBremen 2
í síðari hálfleik byrja Víking-
ar með með sókn eins og í fyrri
hálfleik og Einar Einarsson
kemst í færi en hitti boltann illa
og ekkert varð úr. Á 55,mínútu
átti Andri fyrirgjöf sem Bjarni
sló frá en hann lenti í samstuði
við Heimi um leið og boltinn
fór stutt út þar sem Ömar
T'orfason tók við honum og
sendi hann rakleiðis í netið,
2-0. Stuttu seinna skorar Árni
Sveinsson mark eftir að Ög-
mundur hafði slegið fyrirgjöf
Karls til hans, 2-1.
Um tíu mínútum seinna þá
skora Víkingar aftur og settu
Skagamenn t vanda. Einar átti
fyrirgjöf sem Heimir hleypti á
Kristin sem skoraði auðveld-
lega. Eftir þetta mark þá fara
Skagamenn að sækja í sig veðr-
ið og reyna hvað mest þeir
mega að jafna metin. Þegar
rúmar 10 mínútur voru til leiks-
Ioka þá skallaði Hörður Jó-
hannesson í netið eftir að Sig-
urður Lárusson hafði fleytt
boltanum til hans eftir fyrirgjöf
Karls.
Það sem eftir lifði leiksins þá
sóttu Skagamenn stíft en Vík-
ingar vörðust öllum sóknar-
lotum þeirra.
Hjá Víkingum var Heimir
mjög góður svo og bæði Ómar
og Kristinn. Bjarni í Skaga-
markinu stóð sig einna best
sinna manna ásamt Karli.
Dómari var Þorvarður
Björnsson og var ágætur.
Einkunnagjöf NT:
istímabilsins, sem hófst um síð-
ustu helgi, vegna meiðsla er
hann hlaut í æfingaleik á ír-
landi. Rush hefur stundað
æfingar undanfarna daga en í
gær var honum sagt af sérfræð-
ingi í íþróttameiðslum, að upp-
skurðar væri þörf til þess að
hægt væri að kanna meiðslin
nánar. Rush hefur kvartað yfir
að hnéð yrði stíft eftir æfingar
að undanförnu, en brátt kemur
í ljós hve meiðslin eru alvarleg.
Akranes
Bjarni Sigurðsson .....2
Jón Askelsson ..........3
Guðjón Þórðarson .......4
Sigurður Lárusson......4
Sigurður Halldórsson .... 3
Arni Sveinsson..........3
Guðbjörn Tryggvason ... 3
Sveinbjörn Hákonarson .. 3
Hörður Jóhannesson .... 3
Sigþór Ómarsson........4
Karl Þórðarson..........2
Jón Leó Ríkharðsson .... 4
Víkingur
Ögmundur Kristinsson .. 3
Gylfi Rútsson ..........3
Ragnar Gíslason.........3
Örnólfur Oddsson .......3
Magnús Jónsson .........3
ÓmarTorfason............2
Andri Marteinsson ......3
Kristinn Guðmundsson .. 2
Heimir Karlsson ........2
Ámundi Sigmundsson ... 3
Einar Einarsson ...........3
England:
Forestvann
■ Nottingham Forest lagði
Arsenal að velli í 1. deild ensku
knattspyrnunnar í gærkvöldi
með tveimur mörkum gegn
engu, 2-0.
Þá voru nokkrir leikir í
Deildarbikarnum og í skoska
Deildarbikarnum. Hér eru úr-
slitin:
Bradford-Middlesbrough 2-0
Dcrby-Harllepool 5-1
Exeter-Cardiff 1-0
Hereford-Oxford 2-2
Lincoln-Hull 0-2
Reading-Millwall 1-1
Skotland:
Airdrieonians-Celtic 0-4
Brechin-St. Johnstone 2-4
Cowdenbcath-St. Mirren 2-0
Dumbarton-Dundee United 0-4
Hearts-Ayr 1-0
Rangers-Raith 4-0
Dundee-Kilmarnock 3-2
Hibernian-Meadowbank 1-2
■ Það var nýi leikmaðurinn
Johnny Metgot sem skoraði
annað markið fyrir Forest gegn
Arsenal í gærkvöld. PeterDav-
enport gerði hitt. Charlie Nic-
holas brenndi af vítaspyrnu fyr-
ir Arsenal. Markið sem Metgot
gerði var hálfgerð heppni því
að leikmaður Arsenal ætlaði að
hreinsa frá marki, boltinn lenti
i' dómaranum og þaðan til Met-
got sem þakkaði fyrir sig og
skoraði. Áðeins fjórum mínút-
um seinna kom mark Daven-
ports og tveimur mínútum
seinna „klikkaði" Nicholas á
vítinu.
Forest sem tapaði fyrirSheff-
ield á laugardaginn virkaði
heldur sterkara nú á vellinum.
En Arsenal virðist eiga í vand-
ræðum þessa stundina. Hvort
þeir eigi eftir að taka sig saman
í andlitinu er ekki gott að segja
en flestir höfðu spáð Arsenal
góðu gengi í vetur.
Þorvaldur
þjálfar Fram
■ Þorvaldur Geirsson,
körfuknattleiksmaöur úr
Fram, mun hafa nóg að
gera í vetur, því hann
hefur verið ráðinn þjálf-
ari liðsins. Þorvaldursem
á undanförnum árum hef-
ur verið ein styrkasta stoð
Fram liðsins, mun eftir
sem áður leika með lið-
inu. Það færist nú í vöxt
að leikmenn taki að sér
að þjálfa auk þess að
leika sjálfir með, þannig
verða fjórir af sex þjálfur-
um úrvaldsdeildarlið-
anna, einnig lcikmenn
með liðunt sínum.