NT - 27.11.1984, Blaðsíða 2
Leitin að ungmennunum:
Þriðjudagur 27. nóvember 1984 2
Gjörningaveður torveldar leit
■ í nótt stóð enn yfír umfangs-
mikil leit að ungmennunum
þremur sem týndust á Laug-
dælaafrétt í fyrradag. Allur
varaliðsafíi björgunarsveita
sunnan og suðvestanlands hefur
verið kvaddur út í dag en um
200 manns leituðu í gær, gang-
andi.á skíðum.sleðum.í snjóbíl
og jarðýta ruddi brautina. Afar
slæm skilyrði voru til leitai;
botnlaust úrhelli, myrkur.krap
og drulla á jörð, en klaki undir.
Snjósleðar sátu hvað eftir annað
fastir og jarðýtan sem ruddi
fjallveginn átti í erfíðleikum.
Ungmennin eru þrjú, á aldr-
inum 18 til tvítugs. Piltur og
stúlka úr Reykjavík og piltur úr
Hafnarfirði. Pau voru á Bronco
jeppa, talstöðvarlausum, árgerð
1972
Síðast spurðist til þeirra
um þrjú leytið á sunnudag en þá
hittu þau rjúpnaskyttur sunnan
undir Skjaldbreið. Einhverjar
bilanir höfðu þá verið á bifreið-
inni, í rafmagnskerfi að talið
var. Staðurinn þar sem bíllinn
fannst síðan er talinn vera
tveggja stunda akstur frá því
þau hittu rjúpnaskytturnar,
miðað við það færi sem var þá.
Það var um klukkan tvö að-
faranótt mánudags að aðstand-
endur ferðalanganna tilkynntu til
lögreglu að þeirra væri saknað.
Þau höfðu þá farið úr Reykjavík
um morguninn að Þingvöllum
um Kaldadal og beygt af veginum
inná fjallveg sunnan við Skjald-
breið. Þaðan var ferðinni heitið
að Laugarvatni. Leit hófst þegar
um nóttina.
Á hádegi í gær fannst bifreið
þeirra svo þversum á fjallvegin-
um vestan í Rauðafelli, mann-
laus. Er talið að þau hafi þá
ætlað að snúa við vegna ófærðar
en annaðhvort fest bifreiðina
eða að hún hefur bilað. Engin
skilaboð voru í bílnum og spor
umhverfis bílinn gefa enga vís-
bendingu um hvert þau hafa
farið.
Frá þeim stað þar sem bíllinn
staðnæmdist er röskur þriggja
tíma gangur í góðu færi að
sæluhúsinu við Hlöðufell. Lítið
eitt styttra er svo að bænum
Miðdal þar sem vegurinn kemur
niður í byggð. Um það leyti sem
þau yfirgáfu bifreiðina hefur
myrkur verið að detta á og tekið
að snjóa. Fljótlega skall á ill-
viðri og um nóttina var komið
fárviðri. Næsta látlaust vatns-
veður var svo í allan gærdag og
enn þegar NT fór í prentun í
nótt.
■ Snjóbíllinn frá björgunarsveitinni Ingólfí að brjóta sér leið í átt
að kofanum undir Hlöðufelli, nokkru ofan við þann stað sem
Bronco-jcppinn fannst. Færð var þar svo erfíð að ekki varð komist
áfram nema með jarðýtu í fararbroddi. NT-mynd: Ámí Bjarna
■ Kortið sýnir leitarsvæðið og leiðina sem ungmennin fóru. Rétt fyrir kl. 14 í gær fannst bíllinn á
veginum vestur af Rauðafeili.
Kjaraskerðingin er
ekki allsherjarlausn
- sagði Ásmundur Stefánsson í skýrslu sinni
■ „Andfélagsieg öfl í þessu
þjóðfélagi stefna markvisst að
því að veikja verkalýðshreyfing-
una og gera ailt starf hennar og
stefnumál tortryggileg. Allir,
Uppsagnirnar eru dagsettar
1. desember, og miða við að
taka gildi frá og með 1. mars.
Langflestir þeirra er sendu upp-
sagnir lýstu því einnig yfir að
þeir myndu ekki virða framleng-
ingu uppsagnarfrests, sem
menntamálaráðuneytinu væri
heimilt að krefjast, samkvæmt
lögum.
Að sögn Gunnlaugs Ástgeirs-
sonar, varaformanns félagsins,
eru uppsagnirnar nauðvörn
kennara sem dregist hafi stór-
sem bæta vilja þjóðfélagið,
verða að snúast gegn þeim
áróðri. Allt félagshyggjufólk
lega aftur úr í launum. Gunn-
laugur nefndi sem dæmi að
hæstu laun sem menntaskóla-
kennari gæti fengið væru 25.000
krónur, en það væri ef kennar-
inn hefði doktorsgráðu og hefði
kennt í yfir 20 ár.
Hið íslenska kennarafélag er
aðili að BHM, en BHM á nú í
viðræðum um nýjan aðalkjara-
samning, þar sem þeir tóku ekki
þátt í kjaradeilunum í haust.
Bandalag háskólamanna hefur
ekki verkfallsrétt.
verður að snúast gegn þeirri
mannfyrirlitningu, sem nú sækir
fram. Það hefur enginn rétt til
HÍK hefur ekki lagt fram
kröfugerð sína enn, en Gunn-
laugur sagði að meginkrafa
þeirra væri að meðallaun
kennara yrðu ekki lægri en sem
svaraði 80% af hæsta taxta
BHM.
Gunnlaugur sagði að á liðn-
um árum hefðu kennarar beitt
öllum ráðum sem þeim væru
tiltæk í kjarabaráttu sinni, en
þeir hefðu dregist aftur úr í
launum, og það umfram aðra
opinbera starfsmenn: „Aðrar
leiðir eru fullreyndar; þetta er
nauðvörn."
Uppsögnunum var safnað á
síðastliðnum hálfum mánuði,
og sagði Gunnlaugur að mun
fleiri uppsagnir hefðu safnast,
en yfirlýsingar um uppsagnir,
sem safnað var í fyrra, til að
kanna vilja félagsmanna til að-
gerða sem þessara.
Komi uppsagnirnar til fram-
kvæmda má búast við að allir
framhaldsskólar landsins lokist.
tillitsleysis og yfírgangs gagn-
vart öðrum. Hver og einn á rétt
til Iífsviðurværis, rétt til þess að
■ Ásmundur Stefánsson, for-
seti ASÍ, flytur setningarræðu
35. þings samtakanna í gær-
morgun. NT-mynd: Róbert
komast til þroska, rétt til félags-
legra samskipta, rétt til áhrifa á
þær ákvarðanir sem teknar eru
í þjóðfélaginu, rétt til að líta
áhyggjulaust til ellinnar og rétt
til að búa börnum sínum réttláta
framtíð. Um þau baráttumál
verður verkalýðshreyfíngin að
sameinast.“
Þetta voru lokaorð skýrslu
Ásmundar Stefánssonar, for-
seta ASÍ, á 35. þingi samtak-
anna, sem hófst í Reykjavík í
gær. Þingið sækja 456 fulltrúar
frá 8 landssamböndum, auk full-
trúa félaga með beina aðild að
ASÍ. Þau félög eru alls 33.
Ásmundur Stefánsson sagði í
skýrslu forseta, að verkalýðs-
hreyfingin yrði að snúast gegn
þeim einfalda kredduhugsunar-
hætti, sem nú ríkti hjá valdhöf-
um. Það væri ekki rétt, að
kjaraskerðing væri allsherjar-
lausn á öllum vanda. Síðan
sagði hann, að verkalýðshreyf-
ingin hefði ekki lagt nægilega
vinnu í að skilgreina vandamál-
in og sundurgreina hvernig hægt
væri að framkvæma hennar
lausnir.
í skýrslu sinni kom Ásmund-
ur Stefánsson inn á hlut kvenna
í verkalýðshreyfingunni og
sagði m.a.: „Konur hafa haslað
sér völl á vinnumarkaðinum og
gera nú eðlilega kröfu til félags-
legra áhrifa á okkar vettvangi. í
blönduðum félögum innan ASÍ
hafa konur sótt verulega á í
stjórnum félaganna. Á sama
hátt er ljóst, að þeim verður á
þessu þingi að ætla aukinn hlut
í stjórn heildarsamtakanna."
Asmundur rakti starfsemi
ASÍ frá því að síðasta þing var
haldið fyrir fjórum árum og þar
kom m.a. fram að endanlega
hefur verið gengið frá reglugerð
sérstaks sjóðs, sem stofnaður
var í fyrra til minningar um
Eðvarð Sigurðsson. Tilgangur
sjóðsins er m.a. að styrkja
verkafólk til að afla sér fræðslu
um málefni og starf verkalýðs-
hreyfingarinnar. Þá kom fram,
að í næsta mánuði verður hald-
inn formlegur stofnfundur fé-
lags um tölvukaup og að því
standa, auk ASÍ, Samband al-
mennra lífeyrissjóða, nokkrir líf-
eyriðssjóðir, verkalýðsfélög,
svo og Alþýðubankinn. Mark-
miðið er að veita víðtækari tölvu-
þjónustu en reiknistofa ASI hef-
ur getað veitt fram að þessu.
Björgunar-
netahönn-
uður látinn
■ Markús B. Þorgeirs-
son, björgunarnetahönn-
uður, varð bráðkvaddur á
laugardagskvöld.
Markús var fæddur 14.
ágúst 1924. og því sextug-
ur þegar hann lést.
Hann var sjómaður
lengst af og skipstjóri. Frá
1947, er tveir skipsfélagar
hans drukknuðu, vann
hann ötullega að öryggis-
málum sjómanna, og má
þar nefna baráttu hans
fyrir að skipum og bátum
væri skylt að hafa ljóskast-
ara til björgunar manna er
féllu í sjóinn þegar dimmt
er.
Hann safnaði einnig
flestum undirskriftanna
þegar farið var fram á 6
tíma vaktakerfi um borð í
togurum.
Nú síðustu ár rak hann
Sjóbúð Markúsar í Hafn-
arfirði, þarsem hann próf-
aði björgunarnet sitt og
önnur öryggistæki fyrir
sjómenn.
HÍK:
Leggur fram upp-
sagnir 70% fram-
haldsskólakennara
■ Hið íslcnska kennarafélag mun nú um mánaðamótin
leggja fram uppsagnir tæplega 500 framhaldsskóla-
kennara.
Um 70% félagsmanna félagsins aihentu félaginu upp-
sagnir sínar, til að knýja á um bætt kjör. Innan félagsins
eru einnig grunnskólakennarar, og sendu um 70% þeirra
uppsagnir, en ekki hefur enn veriö tekin ákvörðun um
hvort þær verða afhentar þar sem Kennarasamband
íslands féll frá áformum um hópuppsagnir, en í samband-
inu eru flestir grunnskólakennarar landsins.