NT - 27.11.1984, Blaðsíða 6

NT - 27.11.1984, Blaðsíða 6
Þriðjudagur 27. nóvember 1984 6 Dálítið sem ég gleymdi að segja þér Kunning jabréf til Árna í Verslunarráðinu frá Páli í Sandvík Litlu-Sandvík, 22. nóv. 1984 Kæri vinur ■ Nokkuð er nú um liðið síðan þú komst hingað síðast og alltaf hefur verið gaman að sjá þig. Þó er ekki þar með sagt að við höfum misst sjónar af þér. Það er heiimikið að gerast í kringum þig eins og marga aðra góða drengi sem hér voru í sveit. Og nú er ég farinn að lesa sitthvað eftir þig um land- búnaðarmál og að síðustu las ég grein þína, Ný landbúnað- arstefna í NT á föstudaginn var. Ég minnist áranna þinna hjá okkur feðgum kringum 1960 . Þú komst til foreldra minna 9 ára gamall og varst hjá okkur fram undir fermingu. Þá var ég nýfarinn að búa og hafði þig með mér í mörgu nytsömu verki. Ég minnist þín með hlýhug. Þú varst strax tápmikill og iðinn og það var vel hægt að treysta þér fyrir verkum. Mér er einnig minnisstæð prúð- mennska þín sem bæði var þér meðfædd og einnig liður í ágætu uppeldi. Ég sá í þér námsgáfur og þrautseigju og allt hefur þetta gengið eftir. Þú hefur ratað á rétta hillu í lífinu og það á eftir að kveða meira að þér. Satt best að segja sá ég þessa eiginleika þína flesta endurspeglast í greininni þinni í NT. Hún var að mörgu leyti prúðmannlega rituð í garð okkar bænda og virtist við fyrsta yfirlestur á ntargan hátt illhrekjanleg. Tölurnar sem þú ferð með eru rétt aðfengnar - þó ég sé ekki sammála þér um það hvernig beri að leggja út af þeim. Þú ert ekki með neitt leiðindahnjóð í garð okkar bændanna. Að yfirbragði er þetta því vönduð grein þótt mér þyki niðurstöður hennar ósanngjarnar. Ályktun mín er því sú að mér þykir greinin þín bæði erfiðari átöku og rökvís- ari en flestar aðrar. Og vildi ég heldur svara tuttugu greinum eftir Jónas Guðmundsson stýr- imann en þessari cinni. Bændur takmarka fram- leiðsluna með eigin ráðum. Þetta verður því varla verð- ugt svar, en ég mátti til með að senda þér línu og biðja þig um að tala við mig í næði. Áður en þú skrifar næstu grein. Mér finnst ég hafa vanrækt hér á árum áður að tala nokkuð við þig um landbúnaðarmál. Kannski varstu of ungur - kannski var ég of reynslulítill. Ég var að segja þér allt annað og flest er nú báðum gleymt. Við erum hins vegar núna í hita barátturnnar um landbún- aðarmál. Og því langar mig til að segja þér dálítið sem ég gleymdi að segja þér hér áður. Þú tekur fram tvo lykilþætti í | nýrri stefnu í landbúnaðarmál- um: 1. Takmörkun landbúnaðar- framleiðslunnar við innan- landsþarfir með samræmd- um aðgerðum þannig að ekki komi til úrflutnings á landbúnaðarafurðum, en eftirspurn verði mætt með nokkrum innilutningi í slæmu árferði. (Leturbreyt- ing mín). 2. Breytt verðmyndunarkerfi sem eykur aðhald og hag- kvæmni í dreifingu og vinnslu landbúnaðar- afurða og dregur úr óvissu meðal bænda hverjar tekjur þeirra verða (Undirstrikun mín). Ég skal játa fyrir þér að ég er nokkuð samþykkur megin- hluta beggja þessara kenni- setninga þinna. Bændur hafa gert mörg þessi orð að sínum. Frá árinu 1980 hafa þeir sann- að að þeir geta takmarkað land- búnaðarframleiðsluna og beita til þess eigin ráðum. Þeir hafa líka hvað eftir annað breytt verðmyndunarkerfinu ef sjónar- mið þeirra og fulltrúa neytenda í sexmannanefnd hafa farið saman. En þar er það eins og víða: Það þarf samþykki beggja til og neytendur hafa jafnt vald á öllum verðmynd- unarbreytingum. Vafasamt að eiga mikið undir innflutningi búvara. Hins vegar ætla ég að gagn- rýna atriði kenninga þinna sem ég hefi feitletrað. Eg tel að eftirspurn borgi sig ekki að mæta með innflutningi nema í afburða slæmu árferði. Það er háskalega dýrt fyrir þjóðfélag- ið að flytja inn, þótt á lágprísum sé, og leggja þar með í auðn og rúst tiltölulega ný framleiðslu- tæki. Örlítil umframfram- leiðsla er okkur bændum nauð- synlegur hvati til þess að vera alltaf viðbúnir meo þá búvöru tryggíngu sem hvert þjóðfélag þarf að hafa, einkum vegna almannavarna og ef til stríðsátaka kænti. Ef hins vegar yrði treyst á innflutning hluta búvaranna gæti hvort tveggja gerst: Þær yrðu á háu verðlagi - eða lágu. Verðlag cr lágt þessa stundina. Hins vegar gæti erfitt sumarár- ferði í nágrannnalöndum okk- ar raskað allri verðmyndun þar. Og þá er það ótalið sem vitað er að kemur. „Breytt verð- myndunarkerfi" Éfnahags- bandalagslanda þar sem horfið verður frá niðurgreiðslu bú- vara til útflutnings. Þá yrði ekki gott að vera háður mikl- um innflutningi búvara! Og þá ætla ég að benda þér á dæmi sem við könnumst mæta vel við báðir. Misheppn- aðan innflutning á kartöflum í fyrravetur. Það var slys. Ekki einungis hjá Grænmetisversl- un landbúnaðarins - heldur einnig hjá síðari innflytjend- um, og varð þó ekki eins mikið blaðamál hjá þeim. Reynslan af þessum innflutningi sýnir að við íslendingar höfum yfirleitt sjálfir verið með vandaða vöru - og fyrir okkar smekk - en við vitum aldrei fyrirfram hvað við erum að kaupa né hvert geymslu- þol erlendu vörunnar verður. Upphafsstærðin og afgangsstærðin Nú langar mig að tala við þig um síðari kennisetninguna: Að breytt verðmyndunarkerfi dragi úr óvissu meðal bænda hverjar tekjur þeirra verða. Þú telur störf sexmannanefnd- arinnar byggjast á merkingar- litlum stjórnmálaslagorðum og þér finnst rétt að „auka á viðskiptafrelsi í landbúnaðin- um.“ Ég er sammála forsendu þinni sem er ágætlega orðuð:... „í áætluninni eru laun bænda upphafsstærðin en í raunveru- leikanum afgangsstærðin, þar sem laun bænda koma ekki í Ijós fyrr en vinnslu og sölu afurða er lokið.“ Þetta atriði tel ég vera ein- hverja þá mestu ólánsgötu sem bændastéttin hefur verið rekin út í. En ég held að ég sé dálítið kunnugur „upphafsstærðinnni“ og „afgangstærðinni" með því að fylgjast með rekstri tveggja stórra afurðasölufyrirtækja okkar, Mjólkurbúi Flóamanna og Sláturfélagi Suðurlands. Þegar þessi fyrirtæki hafa ekki skilað grundvelli og við bænd- ur. lent í „afgangsstærðinni“ hefur alltaf verið hægt að rekja þau slys til samninga í sex- mannanefnd. Ekki hefur þar náðst samkomulag um þann vinnslukostnað sem Framleiðslu- ráð landbúnaðarins hefur talið sig geta sannað. Um þetta á ég nóg gögn hérna heima og ætla að sýna þér þau næst þegar þú kemur. En nú ætla ég að víkja aðeins að búskapnum hér í Litlu- Sandvík út af nýjum verðhug- myndum þínum;„Þar semjafn- framt þessu verði síðan séð til þess að samkeppni sé næg.“ Mesta frjálshyggju- búgreinin Líklega vorum við feðgar farnir að rækta gulrófur þegar þú varst hérna síðast í sveit. Gulrófnarækt er spennandi at- Páll Lýðsson vinnugrein. Hún er líka óviss- asta búgreinin sem ég þekki til. Hún fer eftir árferði - hún fer eftir markaði. Stundum sprettur illa - þá finnst mér gaman að selja, einkum ef sprettur skár hjá mér en öðrum. Stundum frýs í görð unum. Þá er gott að selja það' sem náðist upp. Stundum sprettur vel - þá er það vonin að fáir hafi sáð um vorið - annars fer illa hjá öllum.. Við komumst ekki strax inn á aðalmarkaðinn. Fyrstu árin spratt vel og gekk því illa að selja. En 1963 var þetta komið það vel áleiðis að okkur tókst að selja 4,5 tonn það haustið. Ég sé í mínurn dagbókum að í september og október höfum við selt til 12 eða 13 aðilja.. Þetta kostaði margar höfuð- borgarferðir sem faðir minn tók að sér. Og hann hafði reyndar lúmskt gaman af þess- ari verslun. Árin liðu. Smátt og smátt varð einn kaupandinn eftir, Grænmetisverslun landbúnað- arins. í fyrra seldi ég henni einni 4,7 tonn og öðrum ekki, nema örfáir pokar fóru til frændfólks og vina. Ég fór aldrei til Reykjavíkur vegna þessa. Símtöl nægðu. Greiðsl- ur komu inn á bankareikning minn á Selfossi 20. dag næsta mánaðar eftir afhendingu. Ég vil að þú og aðrir lesend- ur mínir dæmi um þennan mismun áður en við afgreið- um allar þessar „einkasölur". Og nú vil ég halda sögunni áfram. í sumar spruttu rófur betur en mörg síðustu árin. Margir nýir aðilar voru komnir með garða og við því er ekkert að segja. Grænmetis „einka- salan“ mín var hins vegar í lamasessi eftir finnska ævintýr- ið. Ég fór hins vegar ekki út í það ævintýri að falbjóða rófur í búðum um alla borgina. Ég er því aðeins búinn að selja 1,5 tonn og verðið er nú 8 kr. pr. kg. en var 28 kr. á sama tíma í fyrra. Íæja Árni. Þettaerfrjálsasta búgreinin sem ég þekki. Allir geta byrjað ef þeir geta náð sér íland. Hvorki erstofnkostnað- ur mikill né rekstrarkostnaður hár en vinnan á haustin ómæld. En þrátt fyrir þetta mikla við- skiptafrelsi er hvergi meiri „óvissa meðal bænda hverjar tekjur þeirra verða.“ Ég hefi stundað gulrófnarækt í 24 ár og held því eitthvað áfram. En markaðs- og verðmyndunar- kerfið í þeirri grein sannar mér að við höfum náð býsna langt , mjög víða annars staðar. Kjarnfóðurgjald og kvótakerfi Nú komum við að kjarnfóð- urgjaldinu og þar langar mig að gefa þér „gott“ fyrir skynsamlegar skoðanir. Þegar við bændur ræddum fram- leiðslumál okkar 1977-1979 vildi ég fara skömmtunarleið- ina. Aætla skattlaust visst magn á grip en skattleggja svo óhófið eða það kjarnfóður- magn sem bar uppi offramleið- sluna. Þessu er ekki sinnt núna í haust, heldur er verið að burðast með fullan kj arnfóður- skatt á okkur þegar heygæði hér sunnanlands eru í lágmarki eftir minnisvert rosasumar. Ég var hins vegar fylgjandi kvótakerfinu sem leiðbeinandi þætti í framleiðslunni. Ekki veit ég hvort það eitt hefur haldið mjólkurframleiðslu í hófi um þriggja ára skeið. En full þörf er á því að fá sem fyrst hlutlausa rannsókn á þessum tveimur áhrifaþáttum fram- leiðslunnar þegar reynsla er nú komin á báða. Ekki geta bædur tekið undir fullyrðingu þína um að útlán Stofnlánadeildar og stuðningur við stofnun nýbýla hafa „gengið þvert á þessi markmið" þ.e. framleiðslutak- mörkun. Landnám ríkisins er nú hér um bil búið að leggja niður og útlán Stofnlanadeild- ar eru nú allt eins mikil til eðlilegrar endurbyggingar peningshúsa bænda og úr- vinnslustöðva þeirra. Verðjöfnunarkerfið er alls staðar Nú er mál að linni en áður en ég hætti vil ég biðja þig að athuga betur hugmyndir þínar um verðjöfnunarícerfið þar sem þú segir að þeim „sé íviln- að sem búa afskekkt á kostnað þeirra sem búa nærri þéttbýli." Við skulum líta okkur nær. Verðjöfnunarkerfi er alls stað- ar í kringum okkur. Bensín, olíur, brennivín, tóbak, tilbú- inn áburður (sama verð á öll- um höfnum). Eða eigum við að útfæra þetta nánar með mjólkina? Á hún að vera dýr- ari í Keflavík en á Selfossi? Þannig mætti lengi spyrja. Ein mesta ósvffnin teldist kannski verðjöfnun flutningskostnaðar á mjólk og sláturfé. Ég greiði sama flutningskostnað á mjólkurlítra og bændur aust- ur í Alftaveri. En mér finnst það fyrir sig vegna þess að þar á líka að vera byggð. Já, við þurfum endilega að ná samkomulagi um það hvar ísland á að vera byggt. Reynd- ar er það aftur orðið brennandi spurning fyrir þjóðina alla. Ég vil a.m.k. að byggðin nái lengra en upp í Reykholtsdal eða austur í Élóa. „Átthagafjötrar" eða eyðibýlasveitir Og þá er það aðeins eitt eftir sem við erum ekki ennþá sam- mála um. Það eru þeir „átthaga- fjötrar sem bændum eru búnir vegna óeðlilegra skilyrða við sölu á jörðum sínum.“ Ég geri ráð fyrir að þú eigir þama við þann rétt sem sveitar- stjórnir hafa til að láta meta upp jarðir sem þeim finnst of háar í sölu. Á öðru leitinu nefnist þetta víst ófrelsi. Gam- all bóndi og lúinn vill burtu af jörð sinni og vel stætt launþega- félag vill kaupa jörðina undir sumarbústaðahverfi.Þá kemur harðskeytt hreppsnefnd með undirstungin af búglöðum ang- urgapa og lætur meta upp jörð- ina sem hinn síðastnefndi fær svo í hendur á minna verði. Ef til vill er þetta falsað dæmi hjá mér. En öðruvísi gat ég ekki fundið hina svonefndu „átt- hagafjötra". I sannleika sagt veit ég ekki um mörg slík dæmi. Ef til vill fellur hið sérstæða Ásgarðsmál þarna undir, en þó getur þú varla haft það í huga a.m.k. var þar enginn gamall bóndi að selja. Én það er önnur áleitin hugsun á bak við þessa laga- hugmynd sem ég ætla að biðja þig að hugsa betur um. Setjum svo að bæði hjónin séu faliin frá og eitt barna þeirra eða fleiri vilji taka við. En systkina- hópurinn er stór og jörðin mikil og verðmæt. Og þýðing- arlaust að láta venjulegan bú- skap bera uppi jarðakaupa- kostnað á frjálsum markaði. Hvað þá? Auðvitað það að sveitungar og hreppsnefnd koma þeim til aðstoðar sem vilja búa - svo jörðin haldist áfram í byggð - svo samfélagið minnki ekki meira en það er orðið. Kæri Árni. Þetta er nú orðið lengra mál en ég ætlaðist til að yrði. Kannski var greinin þín svona mögnuð eftir allt saman. Ekki fór ég að skrifa þér vegna þess að mér þætti þú vera kominn of langt frá þessum raunveruleika sem ég lifi og hrærist í. Mig langaði til að þú litir inn hjá mér áður en þú skrifaðir næstu grein um land- búnaðarstefnuna og fræddist þá betur um hin almennu við- horf bóndans. Ef við fáumst til að miðla hvor öðrum held ég að það hljóti að gera bænda- stéttinni gott. Og mér synist á heildarsvip greinar þinnar að þarna hafi þó andstæðingur núverandi landbúnaðarstefnu skrifað af meira viti en oft áður. Blessaður líttu svo inn. Þinn einlægur Páll Lýðsson Heyskapur í Litlu-Sandvík. Eitthvað hefur landbúnaðinum farið fram frá því Árni dvaldi þar.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.