NT - 27.11.1984, Blaðsíða 12

NT - 27.11.1984, Blaðsíða 12
Tískudrottn- ingin Jil Sander í Þýskalandi Hefur mörg jární eldinum ■ Hér áður fyrr þótti það alveg sjálfsagt, að tískan kæmi frá Frakklandi. Frönsk varð tískan að vera. Síðar eða um 1970, komu ítalskir hönnuðir til sögunnar og þóttu ítölsk föt vera m jög glæsileg, en ítalirnir gerðu sömu skyssuna og frönsku tískumeistararnir höfðu fyrr gert. Fatatískan frá þeim þótti mjög dýr og ekki höfða til almennings, og lítið var gert til að örva sölu á tísku- fatnaðinum. , Þá fór að bera á þýskum tískuhönnuðum og þeir fóru að sýna getu sína. í nýlegu blaði af International Herald Tribune er farið lofsamlegum orðum um þýska tísku og sagt að hún sé að slá í gegn. Fram- leiðendur tískufatnaðar í Þýskalandi hafi líka staðið vel í stykkinu með að kynna og selja framleiðsluna, svo nú séu ■ Fötin eiga að vera úr vönduðum efnum með sígildu sniði, þá geta þau gengiö hvar og hvenær sem er, segir Jil Sander. — Hér sjáum við sýnishorn af þýsku vetrartískunni. Slétti frakkinn er teiknaður af Sander. ■ Jil Sander er fædd 1943, svo hún er komin yfir fertugt, en hún er þó oft sjálf á myndunum í auglýsingum fyrirtækisins um snyrtivörur, og er þá greinilega lýsandi dæmi um gæði snyrtivar- anna. þýsk föt vinsæl víða um heim- inn. í blaðinu eru nefnd 6 nöfn þeirra, sem séu fremstir í flokki. þýskra tískumeistara og birtir myndir af þeim. Stærsta myndin er af Jil Sander, en hún er kona um fertugt, sem lærði í Bandaríkj- unum í sex ár. Hún lagði fyrir sig bandaríska sögu og stúder- aði list og listasögu við háskóla í Kaliforníu. Síðar sneri hún sér að tískuteiknun og hönnun fata, og aðeins 23 ára gömul réðst hún í það stórvirki að stofna eigin verslun í Hamborg. Henni hefur svo sannarlega vegnað vel, því að í dag er hún orðin þekkt víða um heim sem fatahönnuður. Pessi atorkukona hefur ýmis- legt fleira á prjónunum en fatahönnun. Árið 1978 stofn- aði hún fyrirtækið Jil Sander-' snyrtivörur í sambandi við tískufyrirtæki sitt. Hún hefur samvinnu í framleiðslu og markaðsmálum við Lancaster- fyrirtækið í Þýskalandi og gengur fyrirtækið eins og í sögu og söluaukning hefur orð- ið gífurleg. Jil Sander segir sjálf, að sjálfstraust sitt og sjálfsagi sé það sem hafi drifið hana áfram á framabrautinni og lyft fyrir- tækinu. Stundum er Jil spurð hvort hún ætli ekki að fara að hægja svolítið á vinnunni, þeg- ar hún sér nú komin á fimm- tugsaldurinn, en hún kveður nei við því. Það sé svo margt sem hún hafi á prjónunum. Til dæmis ný ilmvötn, hún sé líka byrjuð að kynna eigin fram- leiðslu á loðkápum í þýskum tískublöðum, og hún hafi gert áætlun um nýjungar í fram- leiðslu á handklæðum, glösum, leðurvörum og skartgripum. ■ Diana Dors, kynbomba, reyndist mikil og sterk kona. ■m- 'í x: 'X-.X ■ Alan Lake vildi ekki lifa lengur eftir að Diana var farin. Eiginmaður inn fylgdi Diönu Dors ■ Diana Dors var helsta kynbomba Breta á árunum á milli 1950-1960 og sem slík var hún stimpluð sem heimsk og fánýt til annarra hluta en að sýna sig. Annað átti þó eftir að koma í Ijós. Lífiðfórekki mjúkum hönd- um um Diönu. Með aldrinum sóttu á hana sjúkdómar og það, sem álitið var næstum dauðasynd í hennar starfi, aukakíló í stórum stíl. Einka- lífið var ekki alltaf í lygnum sjó heldur. En Diana sýndi hvað í henni bjó. Á hverju sem gekk hélt hún sínu góða skapi og sterka vilja, enda fór svo að hún hélt reisn sinni og vinsæid- um í augum landa sinna fram á síðustu stund. Jafnvel á dánarbeði, eftir að hafa barist hetjulegri baráttu við krabbamein um nokkurt skeið, hélt Diana sálarró sinni og hafi henni fundist hún eiga eitthvað ógert, var það helsta að vera manni sínum og fjöl- skyldu áfram sá styrkur, sem hún hafði verið. Síðasti eiginmaður Diönu Dorsvar Alan Lake. Hann átti í erfiðleikum með sjálfan sig lengst af, var drykkfelldur og sat um tíma inni, kærður fyrir niorð. í gegnum þykkt og þunnt stóð Diana með manni sínum, enda voru þau hvort öðru háð og samband þeirra mjög náið. Alan Lake ver að vonum niðúrbrotinn maður eftir lát konu sinnar, og svo fór að lokurn, 5 mánuðum eftir lát hennar að hann stóðst ekki mátið og skaut sig. Sama dag var 15 ára sonur þeirra að gangast undir inntökupróf í leiklistarskóia.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.