NT - 27.11.1984, Síða 20
Belgar tvístígandi vegna
meðaldrægra kjarnaflauga
Stjórnarflokkur vill fresta uppsetningu
Brussel-Reuter
■ Flokkur Wilfried Martens,
forsætisráöherra Belgíu, CUP,
sem er stærstur fjögurra flokka
í stjórn hægri- og miðflokka
hvatti í gær til þess að frestað
yrði um hríð að setja upp meðal-
drægar kjarnaflaugar í Belgíu.
Samkvæmt áætlun eiga þær að
vera komnar upp í mars.
Formaður flokksins, Frank
Swaelen, sagði að ástæðan fyrir
frestuninni væri ný staða í við-
ræðum stórveldanna um víg-
búnaðartakmörkun. Rétt væri
að bíða átekta eftir fundi Grom-
ykos og George Shultz í janúar
næstkomandi.
Fjöldi bandarískra hermanna
vinnur nú að því að reisa skot-
palla undir meðaldrægu flaug-
arnar um 80 km suður af
Brussel. Heimildir innan
NATO herma að Belgar hafi
áður lofað að fylgja áætlunum
um staðsetningu kjarnaflaug-
anna og er jafnvel talið hugsan-
legt að Martens forsætisráð-
herra hunsi vilja flokks síns í
þessu máli.
Kosnjngar eru í Belgíu eftir
rúmt ár og hefur flokkur
flæmskra sósíalista fengið mjög
góða útkomu í skoðanakönn-
unum. Hann er mótfallinn
kjarnavopnum, en hægrisinn-
aðri samstarfsflokkar CUP vilja
eindregið að meðaldrægu flaug-
unum verði komið upp í mars.
Meðaldrægum kjarnaflaugum
var komiö upp í Vestur-Þýska-
landi og Bretlandi í fyrra þrátt
fyrir mikla andstöðu friðar-
hópa. Ítalía fylgdi síðar í kjöl-
farið. Hollendingar hafa frestað
því að taka ákvörðun um með-
aldrægu flaugarnar þar til á
næsta ári.
Robert McFarlane, ráðgjafi
Reagans forseta í öryggismál-
um, sagði í sjónvarpsviðtali á
sunnudag að ekki kæmi til
greina að Bandaríkin breyttu
einhliða áætlunum sínum um
meðaldrægar kjarnaflaugar til
að greiða fyrir samningavið-
ræðum við Sovétríkin.
Þriðjudagur 27. nóvember 1984 20
■ Boy George er eitt þeirra stórstirna sem syngja til að afla fjár
fyrir hungrað fólk í Eþíópíu.
Kínverskur
katta-
búgarður
■ Fyrrverandi kennari, Liu
Guocheng, sagði skilið við
kennslustörfin og stofnaði
kattabúgarð í fyrra í Jilin-héraði
í Kína. Síðan hefur hann selt
2.400 ketti til ýmissa staða þar
sem þeir verða notaðir til rottu-
veiða.
Kínverjar telja að fjölgun
músa og rotta frá því á sjöunda
áratugnum stafi m.a. af því að
þá fækkaði heimilisköttum mikið
Þeir voru taldir merki um borg-
aralegt óhófslíf í menningar-
byltingunni eins og önnur gælu-
dýr. Nú hefur hins vegar verið
ákveðið að gera ketti aftur að
„hermönnum" í stríðinu gegn
rottum.
Það er talið að áríð 1982 hafi
kínverskar rottur skemmt hluta
uppskeru á 20 milljónum hekt-
ara akuryrkjulands, og rottur
og mýs voru einnig algengar á
um 33 milljónum hektara af
graslendi og 200 þúsundum
hektara af skóglendi.
Kattabúið í Jilin-héraði er
fyrsta kattabúið í Kína en eig-
andi þess, Liu Guocheng, hefur
boðist til að veita tilvonandi
kattabændum á öðrum stöðum
í Kína aðstoð við að hefja
kattarækt.
Regnstormar
kynörfandi
- fyrir krókodíla
Augsburg-Reuter
■ Starfsmaður dýra-
garðsins í Augsburg í
Vestur-Þýskalandi segir
að regnstormar hafi mjög
kynörfandi áhrif á krók-
odíla.
Allar tilraunir til að fá
krókodílana til að eðla sig
og geta af sér afkvæmi
höfðu misheppnast þang-
að til honum datt það
snjallræði í hug að spila
fyrir þá hljóð úr regn-
stormi sem höfðu verið
tekin upp á segulband.
Krókodílarnir hafa ver-
ið látnir hlusta á regn-
storminn í 10 til 15 mínút-
ur í hvert skipti. Hávaðinn
jók greinilega kynferðis-
íegan áhuga krókodílanna
og vonast menn til að
karlkrókodíl dýragarðsins
takist að geta afkvæmi
með kvenkrókodílunum
þrem sem þar eru.
Næsti forseti Uruguay?
U Kosningar fóru fram í Uruguay um helgina,hinar fyrstu eftir ellefu ára stjómartíð hersins.
Herinn hyggst afsala sér völdum 1. mars á næsta ári, en hann þykir hafa leyst efnahagsstjórn
landsins illa af hendi. Seinlegt er að telja öll atkvæði í Uruguay, en tölur benda ti! þess að
miðflokkurinn, Colorado, muni sigra, en Blanco-flokkurinn, sem er vinstrisinnaðri, muni fylgja
skammt á eftir. Myndin er tekin þegar Julio Maria Sanguinetti, forsetaframbjóðandi Colorado,
kaus í Montevideo. Hann hefur líklega unnið nauman sigur yfír frambjóðanda Blanco, Alberto
Zumaran, en leiðtogi þess flokks Wilson Ferreira Aldunate situr í fangelsi.
Símamynd-Polfoto
Stórstjörnur syngja
fyrir sveltandi fólk
London-Reuter.
■ „Do They Know it’s
Christnias" heitir nýtt lag, sem
nokkuð víst er að á eftir að
hljóma ótæpilega í eyrum
heimsbyggðarinnar núna fyrir
jólin. Lagið var hljóðritað í
London um helgina af meira en
tuttugu breskum poppstjörn-
um, en allur ágóðinn af sölu
plötunnar á að renna til nauð-
staddra á hungursvæðum í Eþí-
7000 km
grænn
Kínamúr
■ Kínverjar leggja nú mikið
kapp á að rækta upp mikið
skógarbelti í Norður-Kína sem
á að verða 7000 kílómetra langt.
Það á að mynda grænan múr
sem vernda á ræktað land fyrir
ásókn eyðimarkanna í norðan-
verðu Kína.
Þessum græna Kínamúr hefur
verið líkt við Kínamúrinn gamla
sem verndaði Kínverja fyrir ár-
ásum „barbara" sem bjuggu fyr-
ir norðan Kína. Nú er óvinurinn
eyðimörkin sem hefur stöðugt
sótt lengra til suðurs.
Á síðastliðnum sex árum hafa
Kínverjar gróðursett tré á 4,4
milljónum hektara lands
Norður-Kína og á næsta ár
verður það svæði aukið upp
5,94 milljónir hektara. Þar með
lýkur fyrsta áfanganum við gerð
græna múrsins. Það er gert ráð
fyrir að honum verði síðan
endanlega lokið um næstu alda-
mót. Landeyðing verði þannig
stöðvuð í Norður-Kína og sókn
hafin til að vinna aftur land frá
eyðimörkunum.
Þessi græni múr er ekki ein-
göngu samfellt skógarsvæði
heldur er einnig mikil áhersla
lögð á gróðursetningu trjáa í
kringum akra alls staðar í Kína.
Kínverskir landbúnaðarsér-
fræðingar telja að skógrækt
undanfarinna ára hafa leitt til
aukinnar uppskeru af 6,67 millj-
ónum hektara lands í Norður-
Kína.
Jöfn skipti á Hinckley og Sakharov
opiu.
„Do They Know it’s
Christmas" er samið af þeim
Bob Geldorf úr Boomtown Rats
og Midge Ure úr Ultravox.
Meðal þeirra sem léku með eða
sungu voru stórstjörnur á borð
við Boy George og Culture
Club, Duran Duran, Phil
Collins, Sting, U2, Wham og
Paul Young.
New York-Reuter.
■ John Hinckley, sem reyndi
að ráða Reagan Bandaríkja-
forseta af dögum árið 1981, vill
nú að Bandaríkin komist að
samkomulagi við Sovétríkin um
að skiptast á sjálfum sér og
andófsmanninum Andrei Sak-
harov.
Hinckley segir í bréfi til
Newsweek að bæði hann og
Sakharov séu pólitískir fangar
og segist ekki efast um að hann
verði mun hamingjusamari í
Sovétríkjunum. Hann segist
álíta að þetta myndu verða
„jöfn skipti."
Hinckley, sem vegna geð-
heilsu sinnar var ekki talinn
sakhæfur, dvelur nú á geðsjúkra-
húsi.
Bílaþjófnaður
stórbisness í
Bandaríkjunum
Washington-Reuter
■ Bandarískir atvinnu-
glæpamenn hafa gert
bílaþjófnað að einhverri
gróðavænlegustu at-
vinnugreininni í Banda-
ríkjunum. Samkvæmt
skýrslu frá bandaríska
dómsmálaráðuneytinu er
árlega stolið meira en
einni milljón bíla í
Bandaríkjunum að verð-
mæti um 3,4 milljarðar
dollara (meira en 130
milljarðar ísl. kr.),
Umsvif bílaþjófanna
eru orðin svo mikil að
þeir eru farnir að sérhæfa
sig. Sumir hafa það sem
aðalstarf að breyta stoln-
um bílum og endurselja
þá í Bandaríkjunum eða
erlendis en aðrir taka bíl-
ana í sundur og selja þá
sem varahluti. Sumir bíla-
þjófarnir hafa samvinnu
við bílaeigendur um að
svíkja fé út úr trygginga-
félögum sem árlega
verða að greiða háar
fjárfúlgur vegna bíla-
þjófnaðanna.
Bílaþjófarnir láta sér
ekki lengur nægja að taka
litla einkabíla heldur
stela þeir nú líka gjarnan
stærri farartækjum eins
og vörubílum, langferða-
bílum og jafnvel land-
búnaðarvélum.
Bandaríska domsmála-
ráðuneytið leggur til að
bílar og bílhlutar verði
merkt betur, skrásetning
bifreiða bætt og reglur
um tryggingargreiðslur
gerðar strangari. Þannig
vonast það til að hægt
verði að þrengja eitthvað
að bílaþjófunum.