NT - 19.12.1984, Blaðsíða 10

NT - 19.12.1984, Blaðsíða 10
 Miðvikudagur 19. desember 1984 10 ■ Valdimar Jóhannsson eigandi Iðunnar ásamt dóttur sinni Önnu Valdimarsdóttur. Bókaforlagið Iðunn: Óbreytt stef na Agatha Christie ...og ekkert nema sannleikann ut ■ Bókaforlagið Iðunn hélt ný- verið hlaðamannafund til að kynna útgáfustarfsemi fyrir- tækisins og voru sjö rithöfundar mættir á fundinn. Þeir voru Gils Guðntundsson, Hannes Péturs- son, Jakob E. Ásgeirsson, Sig- fús Briem, Sigrún Eldjárn, Þorgeir Þorgeirsson og Þor- steinn frá Hamri. Þar vareinnig mætt ekkja Jóns Helgasonar ritstjóra, Margrét Pétursdóttir, en Iðunn ætlar að gefa út aftur íslenskt mannlíf I-IV, sem kom fyrst út á árunum I958-62 og seldist algjörlega upp. Endur- minningar og ýmiss konar þjóð- legur fróðleikur ber hátt í bók- um Iðunnar í ár. Þar má nefna annað bindi heimildaþátta Hannesar Péturssonar Misskipt er manna láni en það er annað bindi af mannlífs-ogörlagaþátt- um úr Skagafirðinum. Gils Guðntundsson, sem hefur átt samstarf við Iðunni síðan 1947 á bókina Gestur, sem er fyrsta bindi safnrits, sem flytur þjóð- legan fróðleik gamlan og nýjan. Þorgeir Þorgeirsson skráir endurminningar Péturs Karls- sonar Kidson, sem ber nafnið „Ja, þessi heimur". Pétur er breskur að uppruna en er nú íslenskur ríkisborgari. Hann var leyniþjónustumaður og var sendur hingað til lands á örlaga- tímum. í fyrra sinnið á vegum breska setuliðsins og í annað sinn þegar fyrra þorskastríðið stóð sem hæst. Ungur höfundur Jakob F. Ásgeirsson skráir persónulegar endurminningar Alfreðs Elíassonar og greinir frá tilurð Loftleiða, hvernig fyrirtækið óx úr nánast engu upp í að verða stórveldi á íslenskan mæli- kvarða. Ljóðasafn Þorsteins t'rá Hamri er eina ljóðabókin, sent kemur frá Iðunni í ár, en í safninu er að finna allar ljóða bækur Þorsteins, átta að tölu. Bókina myndskreytti Guðrún Svava Svavarsdóttir. Ein tslensk skáldsaga kemur frá Iðunni í ár. Er það bókin Lykkjufall eftir Agnesjónu Maitslund Þetta er fyrsta bók höfundar og er raunsæ nútíma- saga um unga sjómannskonu sem fellir sig illa við hversdags- lífið og fellur í ýmsar freistingar í fjarveru mannssín. Agnesjóna er búsett í Danmörku og er gift Róbert Maitsland sem var á- standsbarn og er höfundur bókarinnar Höggormur í Para- dís sem Iðunn gaf út. Fjórar frumsamdar íslenskar barnabækur koma út í ár, Lang- afi Prakkari eftir Sigrúnu Eldjárn, Haftur og Fattur eftir Ólaf Hauk Símonarson og myndskreytt af Sigrúnu Eldjárn, Elías í Kanada eftir Auði Haralds og Dagur úr lífi drengs eftir Jóhönnu Álfheiöi Steingrímsdóttur Nesi í Aðal- dal. Að lokum ber svo að nefna kennslubókina Gagnavinnsla og tölvukynni eftir Stefán Briern menntaskólakennara. Er þetta fyrsta kennslubókin á íslensku sem fjallar um tölvuna sjálfa, en ekki bara um tölvumál. Vegna prentaraverkfalls og samdráttar á bókamarkaðnum koma færri bækur frá Iðunni í ár en vcnja er. Forráðamenn Ið- unnar trúa því þó að bókin eigi eftir að lifa og lögðu þeir einnig áherslu á að þó breytingar hefðu orðið á yfirstjórn fyrirtækisins væri stefna Iðunnar óbreytt. ■ Bókhlaðan hefur gefið bókina ....og ekkert ncnia sannleikann “ eftir Agöthu Christie, en bókin heitir á fruni- málinu „The Murder of Roger Acroyd." Þetta er ein fyrsta bók Agöthu og sú sem fyrst aflaði henni verulegra vinsælda og viöurkenningar sem leynilög- reglusöguhöfundar. I bókinni leysir Hercule Poir- ot dularfulla morðgátu með að- stoð sögumanns bókarinnar. Eins og í öðrum morðsögum höfundarins fá lesendur í raun nægar upplýsingar til að leysa gátuna á rökréttan hátt en fæst- unt tekst það og verða því að bíða söguloka þegar Poirot lcys- ir loks frá skjóðunni. Eyfirskar ættir komnar út ■ Sögusteinn-bókaforlag hef- ur gefið út Eyfirskar ættir, 7 binda ritsafn Hólmgeirs Þor- steinssonar, fyrrum bónda á Hrafnagili í Eyjafirði. Ritsafnið er gefið út í tilefni 100 ára fæðingarafmælis Hólmgeirs, sem var 3. des. sl. og er verkið aðeins gefið út í 250 tölusettum eintökum. Verkið er Ijósprent- að eftir handritum Hólmgeirs, sem var mikill listaskrifari, og er verkiö tæpar 2100 bls. í góöum bókbandsfrágangi. I ritsafninu eru eftirtaldar bækur: Hvassafellsætt Randversætt. Hólsætt og Göngustaðaætt Svarfdælskar ættir Eyfirðingaþættir I. Eyfirðingaþættir II. Molar og mylsna. Ættartölur. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. ■ Útvarpserindi Bjargar Einarsdóttur eru komin út í bók og var formanni Kvenfélagasambands íslands afhent fyrsta eintakið. Frá K.I. barst eindregin áskorun um útgáfu erindanna. Myndin er tekin við Hallveigarstaði á Túngötu 14 þar sem afhending fór fram. Talið frá hægri eru María Pétursdóttir formaður K.I., Sólveig Alda Pétursdóttir ritari, Stefanía María Pétursdóttir varaformaður og Björg Einarsdóttir höfundur bókarinnar. Úr ævi og starf i íslenskra kvenna ■ Hjá forlaginu Bókrún í Reykjavík er komið út ritverkið „Úr ævi og starfi íslenskra kvenna" eftir Björgu Einars- dóttur. Er það fyrsti hluti er- indaflokks sem höfundur hefur flutt í Ríkisútvarpið frá haust- inu 1983. Bókin er yfir 400 síður og prýdd rúmlega 200 myndum, sumum sjaldséðum og töluvert af myndum var sérstaklega tek- ið vegna þessarar útgáfu. í bók- inni, sem er hin vandaðasta að allri gerð, er sagt frá 21 konu sem uppi voru á tímabilinu frá 1770 til 1982 og margar braut- ryðjendur á sínu sviði í þjóðfé- laginu. Setning og umbrot er unnið í Leturval. filmun og prentun í Grafik og Bókfell annaðist band. Elísabet Cochran liann- aði útlit bókarinnar og Jóhannes Long tók ljósmyndir. V’egna verkfalla síðastliðið haust varð nokkur seinkun á vinnu við bókina en hún er nú komin í bókaverslanir og hefur verið send út um land. WH.LIAM GOI.DING ERFINGJARNIR William Golding Erfingjarnir ■ Bókhlaðan - Ægisútgáfan hefur gefið út bókina Erfingj- arnir eftir nóbelsskáldið William Goiding í íslenskri þýðingu Garðars Baldvinssonar. Bók þessi heitir á frummálinu „The Inheritors. Erfingjarnir kom út fyrir rúm- urn 20 árum og er hún önnur skáldsaga höfundarins og jafn- framt önnur bók hans sem kem- ur út á íslensku. Bókin fjallar um Neanderdalsmenn og fékk mikið lof þegar hún kom út. ■ Gunnar Dal. Ljóð sem eiga erindi við samtímann ■ Nýútkomin ljóðabók eftir Gunnar Dal ber heitið „Orð millivina”. í kverinueraðfinna 45 Ijóð, flest stutt og hnitmiðuð, en íengsta Ijóðið er um móður Teresu. Ljóðin í þessari bók fjalia flest um atburði sem standa okkur nærri í tíðinni og þær hugmyndir og hugsjónir sem ntenn keppast við að berjast ýmist fyrir eða á rnóti. En skáldið tekur afstöðu. Gunnar Dal er ómyrkur í máli og tekst oft í örfáum Ijóðlínum að koma því til skila sem öðrum tekst ekki í hcilum doðröntum eða löngum ræðum og blaðagrein- um. Ljóðin eru ekki torráðin, en eru samt ekki öll þar sem þau eru séð og búa yfir innsæi sem aðeins skáldum er gefið. Amensty Inter- national: Fangar mánaðar- ins, des- ember1984 ■ Mannréttindasamtök- in AMNEESTY Internat- ional vilja vekja athygli almennings á ntálum eftir- talinna Samviskufanga nú í desember. Jafnframt vonast samtökin til þess að fólk sjái sér fært að skrifa bréf til hjálpar þess- umföngum, og sýna þann- ig í verki andstöðu við að slík mannréttindabrot eru framin. Rúmenía. Radu FILIP- ESCU er 28 ára raffeinda- verkfræðingur frá Búka- rest. Hann afplánar nú 10 ára fangelsisvist sakaður um að hafa prcntað og dreift áróðursbæklingum. Lögreglan handtók hann í maí 1983 er hann var að dreifa þessum bæklingum í hús í borginnni. í bækl- ingi þessum fór hann þess á leit við íbúa Búkarest að þeir söfnuðust saman ák- veðinn dag á „Palace Squ- ire“ og krefjast þess að Nicolae Ceausescu fái aft- ur völdin sem forseti Rúm- eníu og leiðtogi Kommún- istaflokks Rúmeníu. Eftir því sern Amnesty samtökin komast næst þá var ekkert það í þessum bæklingum sem hvatti til átaka eða ofbeldis. Sam- tökin telja að Radu FILIP- ESCU hafi verið handtek- inn og dæmdur fyrir það eitt að láta í ljós skoðanir sínar. SÓMALÍA. Mohamed Aden SHEIKH er einn af sjö meðlimum þingsins og miðstjórnar eina stjórn- málaflokks landsins - The Somali Revolutionary Socialist Party - sem voru handteknir 9. júní 1982. Ástæðan fyrir handtök- unni var sögð sú að þeir höfðu látið í Ijósi gagnrýni á Mohamed Siyad Barre, forseta landsins og sýnt því andstööu að hann yrði endurkjörinn. Mohamed Aden hefur verið í haldi síðan hann var handtek- inn, án þess að mál hans hafi komið fyrir rétt. Síð- ari hluta árs í983 gaf ríkis- saksóknari Sómalíu út þá yfirlýsingu að rannsókn á máli þessara manna væri lokið, og mál þeirra kæmi fljótleua fyrir rétt. PARAGUAY.Hér er um að ræða fjóra fanga. Þeir heita Roque RUIZ Díaz.rúmlega sextugur verkamaður; Antonio GONZALEZ Arce, 33 ára sölumaður trygginga; Maria Margarita BAEZ, 36 ára snyrtisérfræðingur og Emilio Asterio LUGO Valenzuela,29 ára smá- bóndi. Þau hafa verið í haldi síðan í byrjun árs 1982, sökuð um að hafa látið í ljósi skoðanir sínar. Sagt er að þau hafi verið pyntuð í varðhaldinu. Þau eru úr hópi 36 rnanns seni voru handtekin í janúar og febrúar 1982 er lögregl- na gerði skyndi- aðför að íbúum Asunción. Ekki var greint opinber- lega frá handtökunum fyrr en um miðjan mars 1982. Þeir sem vilja leggja málum þessum lið eru beðnir vinsamlegast að hafa samband við skrif- stofu íslandsdeildar AMNESTY. Hafnarstræti 15, Reykjavík, sími 16940.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.