NT - 19.12.1984, Blaðsíða 25

NT - 19.12.1984, Blaðsíða 25
ísrael: Þjóðstjórn- in riðar Jenísalem-Reuter ■ Yitzhak Shamir, utanríkis- ráöherra ísraels, hótaði í gær að Samdráttur í evrópskum bílaiðnaði Brussel-Reuter ■ Árið 1984 hefur verið fremur lélegt fyrir evrópskan bílaiðnað. Skrásetningum nýrra bíla í Evrópu hefur fækkað og framleiðsla bílaverksmiðja hefur minnkað þrátt fyrir aukinn útflutning. Margir bílafram- leiðendur standa nú fjárhagslega betur en í upphafi ársins en fram- leiðsla á fólksbílum í ríkjumEBEhefursamt dregist saman um fimm prósent á árinu og fram- leiðsla flutningabíla og annarra farartækja, sem eru notuð í iðnaði og verslun hefur minnk- að um átta til níu prósent. splundra hinni þriggja mánaða gömlu þjóðstjórn í landinu ef Shimon Peres forsætisráðherra tækist ekki að leysa ágreining tveggja smáflokka sem aðild eiga að ríkisstjórninni fyrir fimmtudag. Smáflokkarnir tveir, sem báðir byggja á grunni gyðinga- trúarinnar, eru komnir í hár saman um skiptingu ráðherra- embætta. ísraelska stjórnin hélt skyndifund um málið í gær og síðan ræddust þeir Peres og Shamir við. Eftir fundinn virtist Shamir reiður og sagði: „Hann veit hvað við viljum og hvað við hyggjumst gera.“ Og bætti svo við: „Stjórnin er í hættu." Ráðherrar Likudbandalags- ins, flokks Shamirs, koma sam- an til fundar á fimmtudaginn. búist er við því að allir ráðherrar flokksins sitji fundinn, líka Ari- el Sharon iðnaðarráðherra sem nú stendur í málaferlum í New York. Þjóðstjórnin í ísrael erskipuð mörgum ólíkum flokkum. Þeirra stærstir eru Verka- mannaflokkur Peresar og Likudbandalag Shamirs, en í stjórnarsáttmálanum ergert ráð fyrir að þeir skiptist á um að gegna forsætisráðherraembætt- inu. 21 njósnari ■ Víetnamskur dómstóll hefur dæmt fimm menn til dauöa fyrir landráö og njósnir fyrir Kínvcrja og Tahilendinga. Alls var 21 maöur dreginn fyrir dóm af þessu tilefni, en hinir fengu fangelsisdóma. Réttarhöldin, sem fóru fram í Ho Chi Minh-borg (áður Saigon), stóðu í fímm daga og eru pau viöamestu síðan kommúnistar náðu völdum í öllu Víetnam áriö 1975. Frakkar lýstu í gær áhyggjum sínum af því að verið gæti að tveir af þeim fímm sem fengu dauöadóma væru franskir ríkisborgarar. Sagt er að sakborningarnir hafí allir játað á sig landráö. 19. desember 1984 25 Grísk laun verðtryggð Aþena-Reuter ■ Efnahagsráðherra Grikkja, Gerassimos Arsenis, segir að gríska stjórnin muni ekki fylgja fordæmi sumra ríkja í Evrópu þar sem raunlaun hafa verið lækkuð. I Grikklandi eru laun ríkis- starfsmanna vísitölubundin þann- ig að þau hækka í samræmi við verðlagshækkatiir. Ríkisstjórn grískra sósíalista leggur samt mikla áherslu á að laun hækki ekki umfram verðbólguhækkanir. Þess í stað reynir stjórnin að bæta lífskjör með skattalækkunum sem hún segir að muni leiða til tveggja prósenta rneiri rauntekna fyrir Tág- tekjufólk á næsta ári. Stjórnvöld segja að með skatta- breytingunum sé mögulegt að bæta lífskjörin án þess að slíkt verði til þess að auka framleiðslu- kostnað fyrirtækjánna. Regan minnkar fjár- útlát til hernaðar - en Stockman finnst ekki nóg að gert Washington-Reuter: ■ Ronald Reagan Banda- ríkjaforseti hefur ákveðið að skera niður útgjöld til varnar- mála um 28 milljarða dala næstu þrjú árin. Þetta er tæpur helm- ingur þess niðurskurðar sem efnahagsráðgjafar hans mæltu með og því talinn sigur fyrir Caspar Weinberger varnarmála- ráðherra, en að sama skapi niðurlæging fyrir David Stock- man efnhagsráðunaut forset- ans. Niðurskurðurinn segir þó ekki alla söguna, því þrátt fyrir hann halda fjárframlög til her- máia áfram að aukast næstu þrjú árin. Hins vegar verðiu aukningin rninni en ráögert var. í ár verja Bandaríkjamenn í fjárlögum 258 milljörðum dala til varnarmála, en sú upphæð á að vera komin upp í 348 mill- jarða dala árið 1988. Skoðun Weinbergers er sú að ekki sé raunhæft að skera niður fjárframlög til varnarmala tyrr en Ijóst er hvað kemur út úr næstu lotu afvopnunarviðræðna stórveldanna, sem hefst í Genf í janúar. Fjárlagahalli Bandaríkjanna er nú um 201) milljarðar dala, en stefna Reagans er að hann verði kominn niður í 100 milljarða dala áriö 1988. Peronistaflokkurinn að klofna endanlega? Bucnos Aires-Reuter ■ Djúpstæður klofning- ur kom upp á yfirborðið í flokki Peronista í Argen- tínu á þingi flokksins, sem haldiðvarum helgina. Um helmingur þingfulltrúa gekk út af þinginu og að sögn þeirra sem til þekkja gætu endalok Peronista- flokksins verið nærri. Peronistaflokkurinn hefur verið æði sundurleit- ur síðan Juan Peron, stofnandi hans og leiðtogi í fjölda ára lést árið 1974. Úrslitin í kosningunum í Argentínu í fyrra voru einnig mikið áfall fyrir flokkinn, en þá vann flokkur Alfonsins núver- andi forseta óvæntan sigur. Um 350 af 670 þingfull- trúum munu hafa gengið út af þinginu. Þeir munu flestir vera úr dreifbýlis- armi flokksins og eru ó- ánægðir með átroðslu og valdníðslu flokksleiðtoga sem koma úr verkalýðs- hreyfingunni og frá stærri iðnaðarsvæðum. Til átaka kom fyrir utan þingsalinn þegar þeir gengu út. Þeir þingfulltrúar, sem eftir sátu, endurkusu Mariu Estellu de Peron, ekkju Juans Peron, for- mann flokksins. Hún kýs að búa í útlegð á Spáni og því er Jose Maria Vernet varaformaður hinn eigin- legi leiðtogi Peronista- flokksins. Peronistaflokkurinn hefur frá upphafi fylkt saman mjög ólíkum öflum, sem lengst af sam- einuðust um persónu Ju- ans Peron, og kannski ekki síður hinna frægu konu hans, Evitu. Síðasta veldisskeiði Peronista lauk árið 1976 þegar her- foringjar steyptu Mariu Estellu de Peron af stóli. Búlgarskt platviskí I.ondon-Reuter ■ Samband breskra atvinnu- rekenda ásaka Búlgari um að framleiða platviskí undir nafn- inu Johnnie Walker. Nýlega gerðu ítölsk tollyfir- völd upptæka 22.500 kassa af áfengi sem kom frá Búlgaríu og voru ranglega merktir sem Jo- hnnie Walker af rauðmiða og svartmiðagerð, en rauðmiða Jo- hnnie Walker er mestselda viskítegund Skota. Breskir atvinnurekendur hafa beðið búlgörsk yfirvöld um að gera afganginn af birgðum við- komandi fyrirtækis upptækan og rannsaka málið, en Búlgarir hafa enn sem komið er ekkert aðhafst. Bretar segjast hafa skjalfestar heimildir fyrir því að búlgarskt ríkisfyritæki hafi átt þátt í framleiðslu eða dreifingu platvlskísins. Danmörk: Krónubankinn í erfiðleikum Kaupmannahöfn-Reuler ■ Bankaeftirlit ríkisins í Danmörku segir að nú sé unnið að því að bjarga danska Krónubankanum (Kronebank) frá gjald- þroti. í yfirlýsingu frá bankaeftirlitinu segir að fjáreign bankans hafi minnkað mikið vegna þess að hann hafi tapað á vafasömum skuldbindingum. í yfirlýsingunni var ekki sagt hve mikið þetta tap væri en fjórir danskir bankar, þ.á.m. danski Seðlabank- inn hafa lofað 500 milljón dönskum krónum í tryggingarfé til að aðstoða bankann við að fleyta sér yfir skuldafenið. Seðlabankinn hefur líka lofað að ábyrgjast fjárhagslegar skuldbindingar Krónubankans. Krónubankinn var stofnaður í fyrra eftir samruna Friðriksbergsbankans og Sjálands- bankans. í árslok 1983 hafði bankinn um 11,7 milljarða danskra króna. Þrátt fyrir tapið verður rekstri bankans ekki hætt heldur mun hann halda áfram starfsemi sinni undir nýrri stjórn. BÓNDIER BÚSTÓLPI GUÐMUNDUR JÓNSSON BÚST0LPI SAGT FRÁ NOKKRUM GÓÐBÆNDUM Guðmundur Jónsson, fyrrverandi skólastjóri á Hvanneyri, gjörþekkir sögu íslensks landbúnaðar, og sér nú um útgáfu fimmtu bókarinnar í bókaflokknum Bóndi er bústólpi. í þessari bók eru frásagnir af tíu bændum, skráðar af jafnmörgum höfundum. Allir voru þeir „bústólpar" meðan þeir lifðu, mörkuðu spor í sögu íslensks landbúnaðar eða voru þekktir af félagsstörfum. Þessir menn eru: Björn Hallsson á Rangá, Einar Eiríksson á Hvalnesi, Gísli Helgason í Skógar- gerði, Jónas Magnússon í Stardal, Júlíus Björnsson í Garpsdal, Ketill Indriðason á Ytra-Fjalli, Oddur Oddsson á Heiði, Ólafur Finnsson á Fellsenda, Skúli Gunnlaugsson í Bræðra- tungu og Þorleifur Eiríksson Bókhlaðan

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.