NT


NT - 19.12.1984, Side 28

NT - 19.12.1984, Side 28
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leiðir til fréttar í blaðinu og 10.000 krónurfyrirábendingu sem leiðirtil bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT Síðumúli 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495 IBBBISnHi Grjóthrun í Óshlíðinni Ekki slysahætta! ■ Þennan myndarhnullung á Óshlíðarvegi keyrði fréttarit- ari NT á ísafirði fram á nú fyrir skemmstu. Steinninn hafði olt- ið ofan úr hlíðinni á föstudag og stöðvast fram á vegarkanti. Að sögn Vegagerðarinnar er svona grjóthrun alls ekki óal- gengt en slys vegna þess eru þó mjög fátíð. Oftast kemur grjótið neðarlega úr hlíðar- barminum rétt ofan vegar og þá stafar vegfarendum lítil hætta af því. Banaslys vegna grjóthruns í Óshlíðinni, milli Bolungarvík- ur og ísafjarðar hefur ekki orðið utan einu sinni. Það var 1952 að grjót lenti á hópferðabíl, gekk í gegnum þakið og varð þar tveimur mönnum að bana. Ferðalangarnir voru knatt- spyrnumenn á leið til Bolung- arvíkur og átti slysið sér stað skammt utan við plássið. Grjóthrunið núna á föstu- daginn varð miöja vegu ínilli Bolungarvíkur og ísafjarðar við svokallaðar Hvanngjár. Par hefur grjóthrun verið nokkuð algengt og hefur Vega- gerðin komið þar upp jarð- skjálftamæli sent varar við um leið og einhver hreyfing verður. Á öðrum stað á Óshlíðar- vegi er krossinn sem sést á hinni myndinni. Á honum er skjöldur þar sem stendur: Góður guð verndi vegfarend- ur. Hvorttveggja var sett upp við vígslu vegarins I95l. Nú eru uppi ráðagerðir um að sprcngja úr klettinum í hlíð- inni gegnt krossinunt vegna þess að hann blindar umferð. ■ Góður guð verndi vegfarendur, segir á skildi við hlið krossins en hann var settur upp við vígslu ■ Þetta er myndarhnullungur en engir sjónarvottar voru að því þegar hann rúllaði ofan úr Oshlíðarvegar árið 1951. Máttur þessarar bænar hefur líka verið sá að lítið hefur orðið af slysum hlíðinni. Hjá Vegagerðinni fengust þær upplýsingar að allt benti til að steinninn hafi verið þrátt fyrir grjóthrun. Banaslys hafa ekki hlotist af því í 30 ár. nt m>ndir Finnbogi Krisijánsson neðarlega í hlíðinni og hann því ekki komiö í loftköstum ofan hlíðina. Evrópumót unglinga í skák: Karl Þorsteins meðal keppenda ■ Karl Þorsteins skákmeistari hélt til Groningen í Hollandi, þar sem hann tekur þátt í Evrópumeistaramóti unglinga, sem fram fer yfir jólin og áramótin. Með honum í för er Árni Á. Árnason, sem verður aðstoðarmaður hans. Mótið hefst á morgun og verða tefldar 13 um- ferðir, síðasta umferðin veröur tefld 3. janúar. Karl er stigahæstur þrjátíu og fjögurra keppenda og ættu möguleikar hans því að vera allgóðir. Komust ekki í Sæbjörgina Önnur tilraun gerð á morgun ■ Brim hamlaði því að hægt væri að fara um borð í Sæbjörgina í gærmorgun og héldu fulltrúar Trygginga- miðstöðvarinnar og Og- mundur Magnússon skip- stjóri til Reykjavíkur í gær. Ráðgert er að freista þess að fara út í skipið á morgun ef veður verður skaplegra. Fullvíst er nú að sjálft skipið er ónýtt en einhverjir mögu- leikar eru á að bjarga lausum munum úr því í land. í samtali við NT sagði Ögmundur Magnússon skip- stjóri að.hann væri vantrúað- ur á að það yrði mikið sem hægt yrði að bjarga úr þessu. Hann reiknaði ekki með að verða með í för austur á morgun en fulltrúar Trygg- ingamiðstöðvarinnar og björgunarsveitarmenn á Höfn munu fara. Sæbjörgin mun hafa borist heil upp í fjöruborðið en lent þar á grjóti í sandinum og skemmst af því. Eru kom- in að minnsta kosti tvö göt á skipsskrokkinn og mikill sjór gengur inn í skipið, þar sem það liggur á stjórnborðshlið- inni. Sjór er kominn í flestar vistarverur sjómannanna og því taldar litlar líkur á að bjarga neinu þaðan út en skipverjar töpuðu þarna öll- um sínum persónulegu eig- um. Sömuleiðis sagðist Ög- mundur efins um að nótinni mætti bjarga úr því sem komið er. Hefði Sæbjörgin ekki steytt á grjóti í fjöruborðinu eru einhverjar líkur á að skipið hefði mátt draga á flot að nýju. Samvinnumenn! Munið jólaballið í Broadway 27/12 1984. Starísmannaíélag Sambandsins m

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.