NT - 22.12.1984, Page 6
Vettvangur
Laugardagur 22. desember 1984 6
Pétur Sigurgeirsson biskup:
Veröldin er stödugt í sömu
þörf fyrir friðarbænina
■ Senn kemur „Nóttin
hljóða, helgust allra nótta".
Freystcinn Gunnarsson, guð-
fræðingurinn og skáldið hiður
í Ijóði sínu:
„Jólabarn í jötu reifum vafið
Jesúbarn til æðstu dýrðar
hafið
send oss friðinn, jólafrið á
jörð.“
I þessari bæn sameinumst
við á jólum scm endranær. -
Jörðin hrópar, og börn jarðar-
innar biðja Guö bænarinnar:
Send oss friðinn. Aðventuljós-
in hafa lýst okkur að þeim staö
og stund, er við tendrum sjálft
jólaljósið. Þá eru helgustu og
hljóðustu augnablikin ársins.
Kirkjan okkar hefir á um-
liönum árum átt þátt í Ijósa-
tendrun jólanna samtímis meö
þcim hætti, að kl. 9 á aðfanga-
dagskvöld er kveikt á jóla-
kerti og það síðan borið út í
glugga, dyr, út á svalir eða hvar
sem Ijósið nær að lýsa út til
nágranna í næsta húsi eða
húsum með óskina um gleðileg
jól. Með þessu móti tengjast
nágrannar sérstökum vináttu-
og kærleiksböndum á hátíð-
Samvinnustefna í
starfi og baráttu
Hjörtur lljartar
A líðandi stund.
Nokkur rök samvinnumanna
1977-1982.
Samltand íslenskra
samvinnulelaga.
■ l’essl bók er endurprentaö-
ar blaðagreinar um samvinnu-
mál. Þær birtust í Tímanum
árið 1977-1982.
Blaðagreinar eru misjafnar
að gæðum oggerð. Blööin eru
vettvangur þjóðmálaumræðu
og þar birtast því öðru Itvoru
mcrkar greinar. Þar eru stefn-
ur túlkaðar, nýir tímar boðaðir
og gcfin ráð og bendingar um
viðbrögö í scrhverjum vanda.
Samvinnuhreyfingin er um-
deild. Ekki cinungis einstakar
framkvæmdir og aðgerðir á
liennar vegum, - heldur hreyf-
ingin sjálf, - allt það sem við
köllum samvinnustcfnu. í
Bandalagi jafnaðarmanna eru
samvinnufclögin kölluð
krabbamein í þjóðfélaginu.
Hér er komin bók sem
geymir á síðum sínum rök-
semdir samvinnustcfnunnar.
Hér er fjallað um fjölmarga
þætti samvinnustarfsins. Því er
þetta ágæt lesbók fyrir þá sem
vilja kynnast samvinnustefnu
og starfi á íslandi. Hvort sem
unt er að ræða samvinnumenn
eða þá sem álengdar standa er
óhætt aö mæla með bókinni
við þá.
Þeir scm þekkja samvinnu-
hreyfinguna ekki en heyra deilt
á hana vilja eflaust margir átta
sig á málum og vita hvað rétt
er í þessum efnum. Þeir ættu
að lesa þessa bók. Finnist þeim
röksemdir hennar léttvægar
eiga þeir ekki samleið með
samvinnumönnum.
Samvinnumenn sem mæta
rógi og ádeilum á félagsskap
sinn og framkvæmdir hans hafa
líka gott af að kynna sér þessar
greinar. Þangað má sækja
mörg svör sem að gagni koma
í umræðunni. Ég held að þarna
finnist svör við Uestu því sem
notað er til ádcilu á samvinnu-
félögin.
Höfundurinn var lítt af
barnsaldri erhann hófaðvinna
við afgreiðslu í kaupfélagsbúð.
IJann stundaði nám í Sam-
vinnuskólanum, tók við stjórn
á litlu kaupfélagi og vann alltaf
upp frá því fyrir samvinnu-
hreyfinguna. Hann vcit því af
eigin reynd hvað um er að
ræða. Hann hafði góðan úndir-
búning til þátttöku í þessari
umræðu á efri árum. 011 ævi
hans var þar hagnýtur undir-
búningur.
Það er ástæða til að gleðjast
yfir útkomu þessarar bókar.
Hér er bók sem benda má á og
vísa til hvort scm í hlut eiga
samvinnumenn eða andstæð-
ingar þeirra. Þeir sem vilja
vara við samvinnufélögum
þyrftu að þekkja til mála svo
að þeir geti hnekkt röksemd-
um þeirra. Lesið þessa bók og
komið svo með ádeilur ykkar.
Tímar líða og viðhorf breyt-
ast. Eftir nokkra áratugi eru
komnar aðrar ástæður. Þá cr
annar vandi við að bregðast.
Þá verða sumar þessara greina
orðnar úreltar sem þáttur í
brennandi umræðu líðandi
■ Hjörtur Hjartar
stundar. En þær halda gildi
sem söguleg heimild um tog-
streitu og baráttu liðins tíma,
- heimild um átök við þróun
íslenskrar sögu á sinni tíð.
Þannig mun þctta greinasafn
halda gildi sínu þó að tíma liði.
Það er heimild um skoðanirog
viðleitni íslenskra samvinnum-
anna eftir miðja tuttugustu öld
og hvernig þeir mótuðu og
vildu mótá þjóðlífið.
„Lítið sjáum aftur en ckki
fram“, segir skáldið. Hér þarf
engu að spá um framhald.
Bókin hefur sitt gildi til glöggv-
unar í átökum dagsins í dag
og hún heldur gildi sem sögu-
leg heimild hvort sem sam-
vinnumenn verða fleiri eða
færri eftir hundrað ár.
Þakklátur lesandi sem fyrr-
um naut þess þó í litlu væri að
vinna með Hirti Hjartar undir
merki samvinnunnar sam-
glcðst honum vegna þessarar
bókar og væntir þess að hún
stuðli að nýjum sigrum í þjóð-
lífi okkar þar sem þörfin er
mest.
H.Kr.
Ævintýri um endurlausn
C.S. Lewis
Ljönið, nornin og skápurinn.
Myndirnur geröi Pauline Bayn-
es.
Kristín R. Thorlacius íslensk-
aði.
Alnienna bókal'élagið
■ Fremst í þessari bók er svo-
felld tileinkun:
„Til Lúsíu Barfield.
Kæra Lúsía.
Ég skrifaði þessa bók handa
þér, en þcgar ég byrjaöi á henni
var mér ljóst að stúlkur vaxa
hraðar en bækur verða til. Nú
ert þú orðin of gömul til að liafa
gaman af ævintýrum og þegar
bókin kemst á prent verður þú
enn eldri. En einhvern daginn
verður þú nógu gömul til að fara
aftur að lesa ævintýri. Þá tekur
þú bókina aftur úr hillu, blæst af
henni rykið og segir mér hvað
þér finnst um hana. Sennilega
verð ég orðinn heyrnarlaus og
of kalkaður til að skilja orð af
því sem þú segir, en ég mun
ávallt verða
þinn elskandi guðfaðir
C.S. Lewis.”
Síðan segir að þessi ævintýra-
bók sé sagan af því sem gerðist
þegar Lúsía og stystkini hennar
þrjú voru send burt úr Lundún-
um á styrjaldarárunum vegna
loftárásahættu og komið fyrir
hjá gömlum prófessor á af-
skekktum stað.
Þetta verður spennandi
ævintýri en kjarni þess er hin
forna trú um frelsarann sem
gefur líf sitt af frjálsum og
fúsum vilja öðrum til lausnar en
rís síðan upp aftur samkvæmt
eiífu lögmáli og leysir fólk úr
álögum. Þessi frelsari er nefnd-
ur Aslan í sögunni og er í
ljónsgerfi.
Hér er sem sé komin gömul
saga, grundvölluð á fornri trú
og von hrjáöra manna í spenn-
andi búningi ævintýris.
Frásögnin er létt og lipur og
þcss verður ekki vart að um
þýðingu sé að ræða. Að vísu
kann ég ekki við að talað sé um
að braki í snjó undir mannsfæti,
-- við köllum það að marra, og
svo er líka gert í þessu ævintýri
þó að hinu bregði fyrir á bls. 15.
Svo lít ég alltaf á „fúlustu al-
vöru“ sem slæma dönskuslettu
sem er rökvilla þar sem alvara
og fýla eiga alls ekki samleið.
Ég er sennilega orðinn svo
gamall að ég sé aftur farinn að
lesa ævintýri. - cn raunar man
ég ekki betur en ég hafi alltaf
haft.vndi af þeim. Ég held að
megi treysta því að þetta reynist
skemmtileg unglingabók. Úr
klæðaskápnum var fljótfarin
leið í veröld hinna mestu ævin-
týra.
H.Kr.
Nokkrar barnabækur
■ Enginn má halda að þær
bækur sem hér verða nefndar
séu valdar úr öllu því sem út
hefur komið í haust og þyki þar
fremstar í flokki. Bæði er það
að einstakra bóka hefur áður
verið getið hér í blaðinu og að
vera má næsta tilviljanakennt
hverjar borist hafa til uinsagn-
ar. Þeirra sem hér eru komntir
og ekki er áður getið verður nú
minnst með fáeinum orðum:
Astrid Lindgren
og llon Wikland
Sjúdu Madditt, þai) snjóar
Þuríður Baxter þýddi
Mál og nienning
■ Tvær bækur hafa komið á
íslensku um systurnar Madditt
og Betu og þeirra fólk. Þessi
smásaga cr skrautútgáfa, - svo
glæsilega er hún myndskreytt.
Sagan sjalf stendur fyrir sínu,
ferðasaga Betu litlu í fyrsta
snjónum, undarlega efnismikil
svo stutt og einföld sem hún er.
Góðar smástúlkur eru ekki
alltaf fyrirhyggjusamar og
ýmsir koma við sögu.
Elsku litlif’rís
Texti: Ulf Nilsson
Myndir: F.va Eriksson
Þýöing: Þórarinn Eldjárn
Mál og inenning
■ Þetta er ævintýri sem segir
frá litlum grís sem þótti ofauk-
ið í búinu þar sem liann fæddist
og gerðist borgarbarn því að
feðgin í borginni fengu að
hirða hann og tóku í fóstur.
Það varð til mikillar gleði þar á
heimili en fóstursonurinn
stækkaði og óx fólki sínu á viss-
an hátt yfir höfuð enda virtist
honum áðurcn lauk viðsjált að
búa við mannfólkiö. Það hefur
líka sína kosti að liía frjáls og
óháður.
Þóranna Gröndal
Músikalska inúsin
Margrét Magnúsdóttir
myndskreytti
Helgafell
■ Þetta er á engan hátt mikil
saga. En það getur haft trutJ-
andi áhrif og valdið röskun á
reglusömu heimili ef köttur-
inn ber lifandi mús í bæinn og
hún velur sér athvarf í píanó-
inu. Þá er eins víst að húsmóð-
urinni líki ekki það sambýli.
Svo fór hér og því er nú sagan,
spaugileg og á sinn hátt spenn-
andi meðan óvíst er hvern
enda ævintýri mýslunnar fær.
Myndirnar í kverinu eru
klippimyndir.
Ólafur Haukur Símonarson
Hattur og Fattur komnir á
kreik
Iðunn
■ Hér á ferðinni stórkostlegt
ævintýri og myndir við söguna
hefur Sigrún Eldjárn gert. Sýn-
ist mér að þær þeki helming
blaðsíðnanna og séu vel sam-
boönar sögunni og vísar með
að auka og magna ánægju
ungra lesenda eða heyrenda,
því að kannske er ævintýrið
best fyrir þá sem þurfa að láta
lesa fyrir sig.
Hér er svigrúm fyrir ímynd-
unaraflið. Fattur segir stór-
kostlegar Ivgasögur og matar-
veisla ljónaklúbbsins í Höfn í
Hornafirði er í samræmi við
það.
Krakkar inínir, komitl þið sæl.
Barnaljóð eftir Þorstein Ö.
Stephensen
4. útgáfa
Helgafell
■ Þetta er gamalkunnugt
kver en ljóðin flest eða öll mun
höfundur hafa sungið í útvarpi
á sinni tíð fyrir niunn jóla-
sveinsins. Nokkuð er misjafnt
hvað þau hafa náð útbreiðslu
og hafa eflaust mest átt gengi
sitt undir vinsældum höfundar.
Þetta eru útvarpsbókmennt-
ir eða a.m.k. trúum við því að
Þorsteinn hafi saniið þetta og
sungið fyrir útvarpið eins og
góðum þegni sæmdi.
Það skal þakkað hér að ekki
er kverinu gefið nafn sam-
kvæmt tískulatmælinu komiði.
Svei þeirn rithætti.
Jóhanna Álfheiður Stein-
grímsdóttir
Dagur í lífi drengs
Hringur Jóhanncsson teiknaði
myndirnar
Iðunn
■ Bókin er kynnt sem ævin-
týri handa börnum. Svo má til
sanns vegar færa en þó er það á
takmörkunum að hér sé um
ævintýri að ræða. Þetta er allt
svo nærri veruleikanum en að
vísu er sá veruleiki blandinn
draumum í vöku og svefni en
draumar manns eru raunveru-
leiki á sinn hátt.
Sagan er sögð af næmum
skilningi á barnshuganum og
því er hún hollur lestur fyrir
hvern sem er og mætti vera
vekjandi fyrir ýmsa sem vaxnir
eru.
Stefán Júlíusson
Kári litli í skólanuin
Barnasaga
Æskan
■ Þetta er sjötta útgáfa sög-
unnar og segir það til um vin-
sældir hennar. Stefán Júl-
íusson skrifaði Kárabækurnar í
byrjun rithöfundarferils síns
og vann sér nteð þeint öruggt
sæti á skáldabekk enda þótt þá
og enn um sinn vefðist fyrir
sumurn að nieta sögur um börn
jaínt og aðrar bókmenntir.
einkum ef þær voru við barna-
hæfi.
Þjóðin þekkir Kára svo að
kynning er óþörf.
Brúðubíllinn
Afmælisdagurinn hans Lilla
Brúður, leiktjöld og texti eftir
Helgu Steffensen
Forlagið
' ■ Þessi bók er sérstök að því
leyti að fyrst eru brúður búnar
til og síðan myndaðar því að
hér eru ljósmyndir sem Rut
Hallgrímsdóttir hefur tekið.
Allt þetta fólk ferðast í bíl sem
Gústi frændi ekur en Lilli er
sögumaður og segir frá afmæl-
isdegi sínum, viðhöfn og fagn-
aði í tilefni dagsins.
Leikbrúðusmíði hefur náð
góðum þroska hérá landi. Þar
hafa listamenn sýnt bæði hag-
leik og hugkvæmni.
Vart er að efa að ungum
börnum muni þykja margt
góðra mynda í þessari bók. Og
textinn tengir myndirnar sam-
an og gefur þeim líf enda þótt
hann sé ekki sérlega efnismik-
ill.
Jólasveinafjölskyldan
á Grýluhæ
Saga eftir Guðrúnu Sveins-
dóttur
Myndir eftir Elínu Jóhanns-
dóttur
Isafoldarprentsmiðja
■ Hér eru þau Grýla og
Leppalúði orðin sæmdarfólk
með siði og hætti sveitafólks í
byrjun þessarar aldar og fyrri
öldum. Barnabörnin seni
konta í heimsókn taka band-
hnykil hjá ömmu og draga um
gólfið til að láta köttinn leika
sér við. Við hátíðleg tækifæri
heimsækja grannar og góðvinir
hverjir aðra og gera sér daga-
mun.
Sagt er að Grýla sé ófríð en
mér finnst hún ekki vera það á
myndunum. Að vísu verður
hún ekki kölluð smáfríð en alls
ekki Ijót. Þetta er myndar-
kona.
Höfundur sögunnar er aust-
ur á Fljótdalshéraði á Ormars-
stöðum í Fellum.
Sennilega hefur þessi saga
fyrst verið notuð í munnlegri
frásögn til að hafa af fyrir
börnum. Nú er hún komin á
bók, eflaust í sama tilgangi.
Hún mun vekja ýmsar spurn-
ingar um hætti liðinna tíma hjá
lesendum sínum.
H.Kr