NT - 22.12.1984, Síða 20
Sjónvarp laugardag kl. 20.40:
Þau fá sér kaffisopa: Kaupmaiiurinn, Ida, bóndinn og mamma Idu.
jónvarp kl. 19.25:
Mæðgur á sjó í „danska eyjahafinu"
■ Nú kcmur þriðji þátturinn
af danska myndatlokknum
„Kærastan kcmur í höfn"
(laugardagkl. I9.25). Þættirnir
eru sjö og eru frá Nordvision -
danska sjónvarpinu, og cru
ætlaðir börnum. segir í kynn-
ingu. Þó má ætla að fullorðnir
hafi líka gaman af að fylgjast
með lífinu hjá þeim mæðgum,
Idu og mömmu hennar, sem
eru leiknar af Cecilie Kolpin
og Cecilie Nordgreen.
Eins og þeir vita sem fylgst
hafa með tveimur fyrri þátturn
af „Kærastan kemur í höfn."
þá er mamma Idu vélstjóri á
ferju milli danskra smáeyja,
en hún tekur líka til hendi við
öll möguleg önnur störf á ferj-
unni. ekki síst þegar Ida litla á
fullt í fangi með að anna því
sem til er ætlast af henni.
Myndin er tekin syðst í Litla-
belti (milli Fjóns og Jótlands)
við Ærö og fleiri eyjar.
Rás2
laugatdað'-
Hátíð á Rás 2
frá morgni til kvölds
■ - Það má segja að það
verði hátíð allan laugardaginn
á Rás 2, sagði Þorgeir Ást-
valdsson, er hann kynnti okkur
á NT dagskrána. Útsendingar
Rásar 2 hefjast kl. 10.00 og
standa fyrst til hádegis, en
byrja síðan aftur til. 14.00 og
útvarpað verður til 18.00.
Hve margir eru
jólasveinarnir?
Þátturinn frá 10-12 er í urn-
sjón Einars Gunnars Einars-
sonar, og að sjálfsögðu eru
jólalögin áberandi í þættinum
hjá honum í dag, jólalög úr
öllum áttum. Meðal efnis er,
að dregið er úr svörum yngri
hlustendanna við spurningunni
urn hversu margir jólasvein-
arnir séu. Það bárust hundruð
brét'a. Árni Björnsson ætlar að
heimsækja okkur i þennan þátt
í örstutt spjall, en hann er
manna fróðastur um jóla-
sveina.
Annars má segja að þáttur-
inn - hvað músíkina áhrærir -
verði í eldri kantinum framan
af. en síðan má kannski segja
að hann yngist upp. Það hefur
veriö í þessum laugardagsþátt-
um í desembcr eitthvað fyrir
krakkana.
Bjóssi bolla er
með móral!
Eftir hádegið, kl. 14.00-
16.00, situr Asgeir Tómasson
við stjórnvölinn í þættinum
Léttur laugardagur. Aðalgest-
ur rásarinnar allan eftirmið-
daginn er Bjössi bolla. Hann
er tákn um söfnun Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar til handa
hundruðum í Eþíópíu. Bjössi
bolla er með móral, vegna þess
að liann er þéttholda í meira
lagi. Við á Rás 2 ætlum að ýta
undir þessa söfnun, og Bjössi
bolla verður okkar maður.
Hann verður sem sagt hér í
húsi allan daginn. Auk þess
verður Ásgeir með jólakveðjur
frá erlendum útvarpsstöðvum,
stuttar kveðjur frá Norður-
löndum, og sömuleiðis ávarpa
nokkrar útlenskar stórstjörnur
hlustendur rásarinnar. Þætti
Ásgeirs lýkur kl. 16.00.
Millimála
Þá kemur Helgi Már Barða-
son með þáttinn Milli mála.
Það verður heldur rólegra yfir-
bragð á þeim þætti en hinum
sem á undan fóru.
Helgi bregður upp myndum
af jólunum með ýmsu móti, og
sem dæmi vil ég nefna, að
Kristinn R. Ólafsson segirokk-
ur frá jólunum í Madrid, og
hvernig íslendingurinn hefur
það um jólin á Suðurslóðum.
Það verður gestkvæmt hér á
laugardaginn, og þetta er eig-
inlega Þorláksmessan okkar.
Hjá okkur verður þenna dag
músík með jólabragði og góð-
um gestum í 6 klukkutíma.
Nú grípa Margo og Jerry
til sinna ráða til að koma
vitinu fyrir nágrannana
Laugardagur 22. desember 1984 20
■ Stjómendur laugardagsútvarps á Rás 222. des.: F.v. Einar Gunnar Einarsson (Jólahvað), Helgi
Már Barðason (Milli mála) og Ásgeir Tómasson (Léttur laugardagur).
■ Undanfarin laugardags-
kviild höfum við gctaö fylgst
með búmannsraunum fruin-
býlinganna Barböru og Tom
Good, sem ákváðu aö segja
skiliö við lífsgæðakapphlaupið
á almennum vinnumarkaöi og
koma sér upp búskap sem
nægði þeim til eigin framfærslu
í einbýlishúsi sínu í góöu og
virtu hverfi.
Ekki hefur allt gengið sem
skyldi og áætlanir þeirra hafa
yfirleitt haft þann siö að renna
út í sandinn. Þau hafa þó
hingaö til bitið á jaxlinn og
haldiö tilraunum sínum til
streitu, þrátt fyrir ýms mót-
mæli frá næstu nágrönnum
sínum. sem þó eru góðir vinir
þeirra og leggja reyndar sitt af
mörkum til að halda friðinn í
hverfinu. En nú má búast við
■ Það hefur ekki alltaf verið
næsta húsi við frumbýlingana.
fyrir barðinu á sérvisku þeirra.
að línur fari að skýrast um
hvernig þeim gengur í búhokr-
inu, því að í kvöld er síðasti
þátturinn.
Nú kemur að uppskerutím-
eintómt sældarbrauð að búa í
Sérstaklega hefur Margo orðið
anum hjá Goods-hjónunum. -
en þá rísa upp vandamál í
sambandi við mannskap til að
anna uppskerustörfum á
bænum.
Laugardagur
22. desember
7.00 Veðurtregnir. Fréttir. Bæn Tón-
leikar. Þulur velur og kynnir. 7.25
Leikfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð -
Þórhallur Heimisson talar.
8.15 Veðurfregnir.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga.
11.20 Eitthvað fyrir alla Sigurður
Helgason stjórnar þætti fyrir börn.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
17.10 Ungversk tónlist 5. þáttur.
Béla Bartók. Umsjón: Gunnsteinn
Ólafsson. Lesari: Áslaug Thorlac-
ius.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
20.00 Útvarpssaga barnanna:
„Ævintýri úr Eyjum" eftir Jón
Sveinsson Gunnar Stefánsson
les þýðingu Freysteins Gunnars-
sonar (11).
20.20 Harmonikuþáttur Umsjón:
Bjarni Marteinsson.
20.50 „Ekkert er sem rósir“ Þáttur
um danska rithöfundinn Knud Sö-
rensen. Umsjón: Nina Björk Árn-
adóttir.
21.30 Kvöldtónleikar Þættir úr síg-
ildum tónverkum.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Uglan hennar Minervu
Umsjón: Arfhúr Björgvin Bollason.
23.15 Óperettutónlist
24.00 Miðnæturtónleikar Umsjón:
Jón örn Marinósson.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá Rás 2 til kl. 03.00.
Sunnudagur
23. desember
Þorláksmessa
8.00 Morgunandakt Séra Jón Ein-
arsson flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
8.35 Létt morgunlög „Tingluti"-
þjóðlagaflokkurinn leikur og
syngur.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar: Tónlist eft-
ir Wolfgang Amadeus Mozart
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Stefnumót við Sturlunga Ein-
ar Karl Haraldsson sér um þáttinn.
11.00 Messa í Langholtskirkju
Prestur: Séra Pjetur Maack. Org-
anleikari: Jón Stefánsson. Hádeg-
istónleikar.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
14.30 Jólalög frá ýmsum löndum
Kammerkórinn syngur. Rut L.
Magnússon stj. Andrés Björnsson
útvarpsstjóri flylur skýringar.
15.00 Jólakveðjur Almennar
kveðjur, óstaðsettar kveðjur og
kveðjur til fólks sem býr ekki í
sama umdæmi.
16.00 Fréttir. Dagská. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Jóiakveðjur - framhald.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.30 Hátið fer í hönd Þórir Kr.
Þórðarson og Ðernharður Guð-
mundsson líta til jóla.
19.50 „Helg eru jól“ Jólalög i útsetn-
ingu Árna Björnssonar. Sinfóniu-
hljómsveif Islands leikur; Páll P.
Pálsson stj.
20.00 Jólakveðjur Kveðjur til fólks I
sýslum og kaupstöðum landsins.
Leikin verða jólalög milli lestra.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Jólakveðjur - framhald
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Laugardagur
22. desember
10:00-12:00 Morgunþáttur. Stjórn-
andi: Einar Gunnar Einarsson.
14.00-16.00 Léttur laugardagur.
Stjórnandi: Ásgeir Tómasson.
16.00-18.00 Milli mála Stjórnandi:
Helgi Már Barðason.
Hlé
24:00-03:00 Næturvaktin. Stjórn-
andi: Kristin Björg Þorsteinsdóttir.
Rásirnar samtengdar að lokinni
dagskrá rásar1.
Sunnudagur
23. desember
13:30-18:00 Krydd í tilveruna.
Stjórnandi. Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir.
15.00-16.00 Tónlistarkrossgátan.
Hlustendum er gefinn kostur á að
svara einföldum spurningum um
tónlist og tónlistarmenn og ráða
krossgátu um leið. Stjórnandi: Jón
Gröndal.
16:00-18:00 Vinsældalisti Rásar 2
.20 vinsælustu lögin leikin. Stjórn-
andi: Ásgeir Tómasson.
Laugardagur
22. desember
16.00 Hildur Áttundi þáttur - Endur-
sýning. Dönskunámskeið í tiu
þáttum.
16.30 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.30 Enska knattspyrnan
19.25 Kærastan kemur í höfn Þriðji
þáttur. Danskur myndaflokkur i sjö
þáttum ætlaður börnum. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvis-
ion - Danska sjónvarpiö)
19.50 Fréttáágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 í sælureit Lokaþáttur. Breskur ■
gamanmyndaflokkur. Þýðandi
Jóhanna Þráinsdóttir.
21.10 Af svönum Mynd um hnúð-
svaninn á Bretlandseyjum. Þýð-
andi Jón O. Edwald.
21.40 Óður Bernadettu (The Song
af Bernadette) s/h. Bandarisk bió-
mynd frá 1943, gerð eftir sam-
nefndri bók eftir Franz Werfel sem
komið hefur út í islenskri þýðingu.
Leikstjóri Henry King. Aðalhlut-
verk: Jennifer Jones, William
Eythe, Charles Bickford, Vincent
Price og Lee J. Cobb. Myndin er
um frönsku sveitastúlkuna Berna-
dette Soubirous en Maria mey
birtist henni í Lourdes 1858. Þá
segir sagan að sprottiö hafi fram
lind sem fólk vitjar enn i dag til að
leita sér lækninga. Þýðandi Jón O.
Edwald.
00.20 Dagskrárlok
Sunnudagur
23. desember
16.00 Sunnudagshugvekja Dr. Jak-
ob Jónsson flytur.
16.10 Húsið á sléttunni 6. Myndin
af mömmu Bandariskur fram-
haldsmyndaflokkur. Þýðandi Ósk-
ar Ingimarsson.
17.00 Listrænt auga og höndin hög
3. Þráður, band og vefur Kana-
diskur myndaflokkur i sjö þáttum
um listiðnað og handverk. Þýðandi
Þorsteinn Helgason. Þulur: Ingi
Karl Jóhannesson.
18.00 Stundin okkar Umsjónar-
menn: Ása H. Ragnarsdóttir og
Þorsteinn Marelsson. Stjórn upp-
töku: Valdimar Leifsson.
18.50 Hlé
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Sjónvarp næstu viku Jóla-
dagskráin Umsjónarmaður Magn-
ús Bjarnfreðsson.
20.50 Glugginn Þáttur um listir,
menningarmál og fleira. Umsjónar-
maður Sveinbjörn I. Baldvinsson.
21.30 Dýrasta djásnið Sjötti þáttur.
Breskur framhaldsmyndaflokkur í
fjórtán þáttum, gerður eftir sögum
Pauls Scotts frá siðustu valdaár-
um Breta á Indlandi. Aðalhlutverk:
Tim-Pigott Smith, Judy Parfitt,
Geraldine James, Wendy Morgan,
Nicholas Farrell o.fl. Þýðandi Vet-
urliði Guðnason.
23.30 Dagskrárlok.