NT - 22.12.1984, Page 25
Laugardagur 22. desember 1984 25
■ Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna segir að með tiltölulega
ódýrum aðgerðum megi bjarga lífi allt að 20.000 barna á dag.
Útlönd
Barnahjálp Sþ:
Auðvelt að bjarga
milljónum ungbarna
London-Reuler
■ Aðalframkvæmdastjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna
James Grant, segir að ný ódýr blanda af sykri, salti og vatni bjargi
nú daglega lífi meira en þúsund ungbarna í þróunarlöndunum.
Það er talið að árlega deyi um fjórar milljónir barna í Þriðja
heiminum vegna vatnstaps og almenns slappleika sem fylgir
niðurgangi. Þessi nýja blanda getur auðveldlega bjargað lífi flestra
þessara barna.
Framkvæmdastjórinn nefndi
þrjár aðrar einfaldar og tiltölu-
lega ódýrar aðgerðir sem hann
taldi að gætu bjargað allt að
20.000 lífum á dag. í fyrsta lagi
sagði hann að það væri nauðsyn-
legt að fylgjast með vexti barn-
anna með því að vigta þau
reglulega á ódýrum vigtum.
Hægt væri að kenna mæðrum
barnanna að fylgjast þannig
með vexti barna sinna. Þannig
myndu þær strax verða varar
við það ef börnin væru vannærð.
I öðru lagi sagði frant-
kvæmdastjórinn að það yrði að
fá mæður barna í Þriðja heimin-
um til að hafa börn sín á brjósti.
Og í þriðja lagi væri nauðsynlegt
að sprauta þau við sex algengum
sjúkdómum sem væru sérstak-
lega hættulegir börnum.
Þetta kom fram á blaða-
mannafundi sem haldinn var í
London fyrr í þessari viku til að
kvnna nýja skýrslu sem Barna-
hjálpin hefur látið semja.
Skýrslan fjallar unt það hvernig
hægt sé að bjarga lífi barna í
jafnvel fátækustu löndum heims
á tiltölulega einfaldan og ódýran
hátt. Framkvæmdastjóri Barna-
hjálparinnar talaöi um „Millj-
arðs dollara kostakjör" þar sem
það væri nóg að bæta einurn
milljarð dollara við þá upphæð
sem nú er ætluð til barnahjálpar
og þá mætti bjarga lífi rnargra
barna á hverju ári.
Bandarísk tæki í
sovésku geimfari
Chicago-Reuter
■ Um borð í sovéska könnunargeimfar-
inu, sem ætlað er að rannsaka halastjörnu
Halleys, eru m.a. bandarísk vísindatæki
sem senda upplýsingar til Chicago-há-
skóla í Bandaríkjunum.
Þetta er í fyrsta skipti sem slík sam-
vinna á sviði geimrannsókna hefur tekist
á milli sovéskra og bandarískra aðila svo
að vitað sé. Geimfarið gengur undir
nafninu Vega 1 og er bandaríska tækinu
ætlað að rannsaka halastjörnuryk. Því
var skotið á loft á laugardag í seinustu
viku.
Annað sovéskt geimfar sem var skotið
á loft í gær hefur einnig svipaðan búnað.
Bandarískir vísindamenn vonast til að
tækin veiti þeim ýmsar upplýsingar um
halastjörnu Halleys. Sjálfir munu Banda-
ríkjamenn ekki senda sérstakar könnun-
arflaugar til að rannsaka halastjörnuna.
Hungrið í Eþíópíu:
50 ríki
lofa
aðstoð
Sameinuðu þjóðirnar-Reuter
■ Háttsettur cmbættismaður
hjá Sameinuðu þjóðunum segir
að 45 til 50 ríki hafi lofað að
leggja sitt af mörkum vegna
hungursneyðarinnar í Eþíópíu.
píu.
Hann sagði frá þessu eftir
lokaðan fund fulltrúa ýmissa
ríkja sem Javier Perez de Cuell-
ar, aðalritari Sameinuðu þjóð-
anna, kallaði saman til að ræða
hjálparstarfið við Eþíópíu. Lof-
orð ríkjanna voru ekki bindandi
en James Baker, sem er yfir-
maður neyðaraðstoðar Samein-
uðu þjóðanna sagðist vona að
þau myndu standa við loforð
sín.
Hann sagði að á fundinum
hefði samt komið í ljós að
töluvert vantaði upp á að þörf
Eþíópíumanna fyrir aðstoð
næstu tólf mánuði væri fullnægt.
3000 dollara
páfagauk
stolið
Varsjá-Reuter
■ Starfsmenn hjá Wroclaw-
dýragarðinum í Suðvestur-Pól-
landi segja að fágætum páfa-
gauki, sem er ættaður frá Born-
eo, hafi verið stolið frá dýra-
garðinum. Þeir sögðu páfagauk-
inn metinn á meira en 3000
dollara.
Forystumenn dýragarðsins
sögðu að tvö ungmenni hefðu
brotist inn í dýragarðinn og
stolið páfagauknum sem er sá
eini sinnar tegundar í Póllandi.
Þeir sögðust óttast að páfa-
gauknum yrði smyglað úr landi.
Uruguay:
án póli-
tískrafanga?
Montevideo-Reuter
■ Tugir þúsunda gengu um götur
Montevideo í fyrrakvöid og kröfðust þess
að herstjórnin í Uruguay léti lausa um
500 pólitíska fanga.
Mótmælaaðgerðirnar voru haldnar
undir vígorðinu „Jól án pólitískra fanga“.
Verkalýðsfélögin í Uruguay skipulögðu
aðgerðirnar og tveir stærstu stjórnarand-
stöðuflokkarnir, Blanco-flokkurinn og
samfylking vinstri manna, studdu þær.
Colorado-flokkurinn. scm sigraði í
kosningunum í Uruguay í síðasta mán-
uði, tók ekki þátt í mótmælaaðgcrðunum
en hann er talinn frekar hægrisinnaður
miðjuflokkur. Þótt Colorado-flokkurinn
hafi sigrað í kosningunum tekur hann
samt ekki við stjórn landsins fyrr en í
mars á næsta ári. Þangað til mun her-
stjórnin sitja.
Herdómstólar í Uruguay hafa gefið
fyrirmæli um að rúmlega hundrað póli-
tískum föngum verði sleppt í smáhópum
frá því á aðfangadagskvöld til loka janú-
ar. En samkvæmt því verða á fjórða
hundrað pólistískra fanga enn í haldi í
ársbyrjun 1985.
Sovésk jólagjöf:
Til breskra
námumanna
Moskva-Reuter
■ Kolanámumcnn í Ukraínu í Sovét-
ríkjunum hafa sent sein svarar um
130.000 dollurum til hreskra stéttarbræðra
sinna sem hafa verið í verkfalli í fjörutíu
vikur.
Sovésku námumennirnir héldu fundi í
fimmtán námum í Ukraínu til að sýna
stuðning við bresku verkfallsmennina. Á
þessum fundum var ákveðið að styðja
verkfallsbaráttu bresku kolanámumann-
anna með fjárgjöfum.
""T» VA % 1
\ v. •:! ifjs:- *■ 1 , 0-' ' tj
M í 'Hk TfLMt i | 1 M ^ L kM V ÆÉÍSSÍŒm
V frá Iznma ^ bV* p J. I
óvart
***** BóKinerP^60'
60 rríyndum
iKKert^ onar
Helga Ha