NT - 28.12.1984, Blaðsíða 3
Föstudagur 28. desember 1984 3
■ Dr. Ólafur Bjarnason tekur við verðlaununum úr hendi dr. Sturlu
Friðrikssonar, formanns sjóðsstjórnar.
Úthlutun úr Verðlaunasjóði
Ásu Guðmundsdóttur Wright:
Dr. Olafur Bjarnason
hlaut verðlaunin í ár
■ Dr. Ólafur Bjarnason prófess-
or fékk í gær 100 þús. króna
viðurkenningu úr Verðlaunasjóði
Ásu GuðmundsdótturWright.fyr-
ir brautryðjandastarf á sviði
krabbameinsrannsókna á Islandi,
og að eiga manna drýgstan þátt í
því að betri árangur næst nú hér á
landi í baráttunni við krabbamein
í legi kvenna en víðast hvar.
Dánartíðni af völdum þessa sjúk-
dóms cr nú lægri hér lendis en
víðast annars staðar.
Ólafur lauk kandídatsprófi í
læknisfræði árið 1940 og stundaði
síðan framhaldsnám í meinafræði
við Karolinska Instituet og Radio-
patologiska Institutionen í Stokk-
hólmi.
Ólafur lagði grundvöllinn að
krabbameinsskrá íslands og hefur
verið forstöðumaður hennar frá
upphafí. í hana eru færð öll krabba-
meinstilfelli sem greinast meðal
íslendinga og er hún grundvöllur
að faraldsfræðilegum athugunum
á krabbameini hérlendis. Fjöldi
sérfræðinga hefur nýtt sér skrána
við rannsóknir og er hún talin til
fullkomnustu gagna á þessu sviði í
heiminum. Leitarstöð Krabba-
mcinsfélagsins er ávöxtur braut-
ryðjandastarfs dr. Ólafs, en hún er
orðin öflug og mjög virk rannsókn-
arstofnun.
Ása Guðmundsdóttir Whright.
stofnandi Verðlaunasjóðsins var
menntuð hjúkrunarkona og bjó
lengst af á Trinidad í Vestur-Indí-
um, þar sem hún átti búgarð.
Sjóðurinn, sem ber nafn hennar,
var gefinn Vísindafélagi íslands
fyrir 16 árum og standa vextir af
höfuðstólnum undir fjárt'eitingum
og árlegum viðurkenningum.
Hefur Albert horn í síðu gamalla neftóbakskarla?
Neftóbakið hækkar um 128% en
vindlar um 48% á sama tíma
■ Líklegt er að neftóbaks-
kaupin séu farin að koma nokk-
uð illa við létta pyngju margs
öldungsins, því þessi eina
nautnavara, sem ntargir í þeirra
hópi láta eftir sér, hefur hækkað
um 128% á rétt rúmu ári, eða
frá því í nóvember í fyrra. Þá
kostaði dósin tæpar 22 krónur
en er nú komin upp í 50 krónur.
Á sama tíma hefur verð á vindl-
unt aðeins hækkað um 48% og
á sígarettum um tæp 80%, sem
ýmsum þykir nóg um.
Ennþá svartara er þó dæmið
hjá pípureykingarmönnnum.
Þeir hafa þurft að taka við
177% hækkun á umliðnu ári -
bréfið af Prince Albert hefur
hækkað úr 32,50 kr. í nóvember
í fyrra upp í 89,70 krónur nú við
síðustu verðhækkun.
Snorri Olsen í tekjudeild
fjármálaráðuneytisins sagði
skýringuna á þessurn mikla mun
vera þá, að fyrir um ári hafi
komið nýjar verðlagningarregl-
ur sem sett hafi allan fyrri
samanburð úr skorðum. Upp
hafi verið tekin þau sjónarmið
að láta útsöluverð endurspegl-
ast af raunverulegu kostnaðar-
verði og jafnframt miða við
ákveðinn skatt á gramm af
tóbakinu, svipað og gert hefur
verið við alkóhólprósentuna í
áfenginu. Það sé þessi gramma-
skattur á tóbakinu sem valdi því
að reyktóbakið og neftóbakið
hafi hækkað svo miklu meira en
annaðtóbak.
Þessi skattur er nú sent hér
segir á hvert gramm af tóbaki.
Sígarettur 88 aurar, vindlar 73
aurar og reyk- og neftóbak 64
aurar. Samkvæmt því fær ríkis-
kassinn í skatt 32 krónur eða
64% afhverri 50grammatóbaks-
dós, sem kostar nú 50 krónur
sem fyrr segir.
Snorri sagði stefnt að því að
þessi tóbaksskattur verði sá
sami á reyktóbaki - ööru en
sígarettum - og á vindlunt.
Varðandi gömlu neftóbakskarl-
ana sagði hann það sjálfsagt
spurningu hvort ríkið eigi að
halda áfram að halda einhverj-
um „óþverra" ódýrum til þess
að þeir geti haldið áfram að
taka í nefiö án þess að það ríði
léttri pyngju þeirra að fullu.
■ Þessi fimmtíu ára gamla þýska Junkerorrustuflugvél var á leiöinni frá Bandaríkjunum til Þýskalands
þegar bilun varð í tveim hrevflum hennar skammt undan íslandi. Flugvél Flugmálastjórnar og þyrla
frá Varnarliöinu komuá móti vélinniog lóösuðu hana til Rcykjavíkurflugvallar þar sem gert var viö
hreyflana. Vélin hélt síðan af staö áleiöis til Þýskalands á annan í jólum.
Breyttar niðurgreiðslur hafa haft mikil áhrif á verð:
Hafa kartöflur hækk-
að um 15% eða um 66%?
■ Lækkun niðurgreiðslna eða
afnám þeirra á sumum tegund-
um búvara hefur valdið miklum
hækkunum á smásöluverði þess-
ara vörutegunda umfram það
sem verð þeirra hefur í raun
hækkað á umliðnu ári, að því er
fram kemur í samanburði á
vöruverði í nóvember 1983 og
svo aftur í nóvembermánuði sl.
í þessu tilliti skera þó kart-
öflurnar sig úr - frjálsar jafnt
sem ófrjálsar. Verð á kartöflum
í nóvember sl. var 22,73 kr.
kílóið að meðaltali samkvæmt
könnun Verðlagsstofnunar, en
13,72 kr. í sama mánuði í fyrra.
Það þýðir tæplega66% hækkun.
í nóvember í fyrra greiddum við
hins vegar 5,98 krónur af hverju
kartöflukílói í gegnum skattana
okkar, þ.e. með niðurgreiðsl-
um. Raunverulegt kartöfluverð
var því 19,70 krónur kílóiö og
hækkun í 22,73 kr. því aðeins
rúm 15%,þarsem kartöflureru
nú ekki lengur greiddar niður.
Af öðrum mjólkurvörum má
nefna skyr sem hækkað hefur
um 44% í smásölu. Hefðu
niðurgreiðslur haldist hlutfalls-
lega þær sömu og fyrir ári væri
um tæplega 21% hækkun að
ræða. Sömu sögu er að segja af
öðrum mjólkurvörum sem verið
hafa niðurgreiddar og eru sumar
enn, nema hvað niðurgreiðslur
hafa lækkað í öllum tilvikum.
Raunveruleg hækkun á þessuni
vörum; nýmjólk, rjóma, smjöri
og mjólkurosti, svo og dilka- og
nautakjöti, er á bilinu 17-tæp-
lega 20%. Vegna lækkunar eða
afnáms niðurgreiðslna hefur
hækkunin hins vegar orðið á
bilinu 25-35%.
Verðhækkun á „frjálsum"
mjólkurvörum á þessu ári (nóv-
ember-nóvember) hefur hins
vegar verið sáralítil, á jógúrt
með ávöxtum tæp 4%, á MS-ís
rúm 8% og kakómjólkin hefur
m.a.s. lækkað um 1% á árinu,
nánar tiltekið á sl. sumri.
Verkfallið
kostaði
SVR9
milljónir!
■ Tap Strætisvagna Reykj-
avíkur vegna verkfalls borg-
arstarfsmanna í vetur nam
um níu milljónum króna.
Að sögn Sverris Björns-
sonar, forstjóra SVR má
reikna með því að íyrirtækið
hafi misst af 700 þúsund
farþegum þann tæpa mánuð
sem verkfallið stóð og far-
gjaldatekjum upp á níu mill-
jónir króna.
Alafoss-hlutabréfin renna
út eins og heitar lummur
Nær 2/3 starfsmanna keypt bréf í fyrirtækinu á einni viku
■ Um 150 manns í starfsliði
Álafoss h.f. hefur keypt hluta-
bréf í fyrirtækinu á þeirri einu
viku sem liðin er síðan þessi
hlutabréfasala hófst. Að sögn
Péturs Eiríkssonar, fram-
kvæmdastjóra hafa um 240
starfsmenn heimild til skulda-
bréfakaupa, þannig að hlutfall
þeirra sem keypt hafa bréf nú
strax fyrstu vikuna er hátt í tveir
þriðju.
„Já, þetta voru miklu nteiri
viðbrögð en við bjuggumst við,
ekki síst með tilliti til þess að
þetta er vikan fyrir jólin sem er
tiestum útgjaldasöm. Maður er
því bæði hissa og ánægður."
sagði Pétur Eiríksson.
Hve rnikið hafi verið selt af
því 24 milljón króna hlutafé
sem starfsfólkinu er heimilt að
kaupa sagði Pétur ekki hafa
verið tekið saman ennþá - enda
búið að vera svo mikið að gera
að ekki hafi unnist tími til þess.
Hann taldi hins vegar nokkuð
algengt að fólk hafi keypt bréf
að nafnverði 10 til 15 þús.
krónur í þessum fyrsta umgangi.
Starfsfólkið hefur hins vegar 27
mánuði a.m.k. til að gera upp
við sig hversu mikið það ætlar
að kaupa, þannig að segja má
að þessi hlutabréfasala sé rétt
að byrja.
Ný stjórn
Kvikmynda-
sjóðs skipuð
■ Menntamálaráðherra
hefur skipað nýja stjórn
Kvikmyndasjóðs. Knútur
Hallsson ráðuneytisstjóri
er formaður, en aðrir
stjórnarmenn eru Sigurð-
ur Sverrir Pálsson, sant-
kvæmt tilnefningu Félags
kvikmyndagerðarmanna,
Hraln Uunnlaugsson sam-
kvæmt tilnefningu Sam-
bands íslenskra kvik-
myndaframleiðenda,
Kristín Jóhannesdóttir,
samkvæmt tilnefningu
Bandalags íslenskra lista-
manna, og Sigurður
Guðmundsson samkvæmt
tilnefningu Félags kvik-
myndahúsaeigenda.
Þá hafa eftirtaldir menn
verið skipaðir í stjórn
sjóðsins, þegar fjallað er
um málefni Kvikmynda-
safns íslands: Árni
Björnsson, samkvæmt til-
nefningu Þjóðminjasafns
íslands og Karl Jeppesen,
samkvæmt tilnefningu
Námsgagnastofnunar.
Samkvæmt nýjunt lögunt
um kvikmyndamál, fer
stjórn Kvikmyndasjóðs
jafnframt nteð stjórn
Kvikmyndasafnsins.
Þrír menn hafa veriö
skipaðir í úthlutunarnefnd
Kvikmyndasjóðs. Þeir eru
Jón Þórarinsson, sent er
formaður hennar, Sveinn
Einarsson og Friðbert
Pálsson.
Umsóknir um úthlutun
úr Kvikmyndasjóði verða
að hafa borist fyrir 1. janú-
ar 1985.
Jóhann með
fjöltefli
■ Jóhann Hjartarson alþjóða-
meistari í skák, teflir fjöltelli
við unglinga laugardaginn 29.
desember kl. 14.00 í Félags-
heimili Taflfélags Reykjavíkur
á Grensásvegi 46.
Fjöltefli þetta er liður í
skákæfingum unglinga sem Jón
Pálsson hefur séð um á laugar-
dögum, en einnig eru tefld stutt
mót að æfingunum loknum og
veitt eru bókaverðlaun þeim
sem sigra í hvert skipti.