NT

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 28.12.1984, Qupperneq 6

NT - 28.12.1984, Qupperneq 6
Föstudagur 28. desember 1984 6 Páll Sigurjónsson Galtalæk: Svar við grein Bolla Héðinss. ■ Þaö er tilefni þessara lína, að í N.T. II. des. s.l. birtist1 grein eftir Bolla Héðinsson, undir yfirskriftinni „Hækkum vextina". í upphafi greinar sinnar spyr Bolli eitthvað á þessa leið; Hvenær þaö hafi hætt að vera dyggð að spara, og hverjir cigi að jána ef allir skuldi? Agætar spurningar og að mér finnst nokkuö auöveldar í svörum. Vitanlega cr, eins og alltaf hefur veriö, dyggö að. spara, og væri margt öðruvísi í okkar þjöðfélagi ef þaö hefði veriö gert í ríkari mæli en staðreynd- ir vitna um. Ég vil taka það fram nú þegar, að það er ekki af nein- um fjandskap viö fjármagns- eigendur, að ég tel hækkun vaxta hrcint ekki af því góða. Heldur hitt að fjármagnskostn- aöur er þvílík hyröi, að undir- stöðuatvinnuvegirnir fá ekki undir henni risiö. Svo dæmi sé tekið, þá var keyptur togari til landsins árið 1981 á um 50 milljónir, en sá er nú í skuld, sem ncmur rúmléga fimmfaldri þeirri upphæð, þrátt fyrir að vera toppskip í afla. Mér virðist aö hækkaðir vextir hefðu síst bætt þar um. Þcssi togari ereinn þcirra, sent ekki geta fengið aðstoð nú, hann skuldar of niikið til að réttlætanlegt sé talið að hjálpa uppá sakirnar. Nú er það staðreynd að sumar atvinnugreinar geta borgað vexti af lánsfé sínu, jafnvcl þó vextir yrðu hærri en nú eru á verðbréfum. En að miða vexti viö það, hvað ein- stakar þjónustugreinar geta hæst goldið, er vitanlega hrein uppgjöf við að stjórna fjár- ntagninu. Ef hinsvegar vextir hefðu verið hærri, svo nokkru næmi, mætti spyrja: Hefði nokkur togari sloppið við opin- bert uppboð? Það getur eki gengið að draga eitt atriöi útúr myndinni, og leggja útaf því, eins og klerkur ritningargrein. Þá vil ég aðeins koma að landbúnaðinum. Staða hans er á sama háft og sjávarútvegsins slík aö stórhækkaðir vextir þýða aðeins rekstrarstöðvun. Það gildir einu hvort lánin fást eða ekki, ef þau eru svo dýr að undirstöðuatvinnuvegirnir geta ekki greitt þann kostnað, sem af lántöku leiðir. Hvoru- tveggja þýðir óhjákvæmilega stöðvun þcirra, eða hækkaðan framleiðslukostnað, sem að- eins verður mætt með liækk- uðu vöruverði. En sá böggull fylgir skammrifi að ekki veröur séð að markaðirnir þoli hærra vcrð en nú gerist. Það er alveg Ijóst að cinn snarasti þátturinn í okkar efnahagsvanda, er að við höfum ekki gætt þess að halda öllum tilkostnaði í lág- marki. Það er alveg sama hvernig við reynum að sann- færa okkur um hið gagnstæða. Verðmætasköpunin er að lang- mestu leyti upprunnin í land- búnaði og sjávarútvegi. Þess vegna eru allir póstar sem bætt er á frumgreinarnar til þess eins fallnir að rýra lífskjör almennings. Það þýðir, and- stætt niðurstöðum Bolla, aukin útgjöld heimilanna. Og þar sém ég trúi því að launafólki gangi nógu illa að láta enda ná saman nú þegar, þá yrði sú hækkun, sem hlýst af ránvöxt- um, sennilega til þess, að fólk- ið mætti leggja öll fögur áform um dyggðir þær, sem báðir tala um og kalla sparnað á hilluna. Ég vil lýsa þeirri skoðun minni, að raunvextir eru þeir einir, sem undirstöðuatvinnu- vegirnir geta skilað. Allir vext-' ir umfram það eru ránvextir, sem byggjast á því að verð- myndunarkerfið er eitthvað úr lagi gengið. Annar þáttur, sem áhrif hefur á möguleika til hávaxtagreiðslna, er umsetn- íngarhraði á því fé sem að láni hefur verið tekið. T.d. getur matvöruverslun margendur- nýjað sinn lager á sama tíma og t.d. tilbúinn áburður, fer einu sinni í gegn. En áburður keyptur að vori skilar ekki arði fyrr en (svo sauðfjárbú sé tekið til dæmis) cinu og hálfu ári síðar. Þ.e.a.s þegar lömbun- um, sem urðu til veturinn, sem heyið var gefiö, er slátrað og kjötið selt neytendum. Eitt af því sem hafa verður í huga þegar vextir eru ákveðn- ír, er hvort við ætlum okkur að lifa hér í landi sem sjálfstæð þjóð. Með því að lcggja sí- auknar byrðar á frumatvinnu- vegina, göngum við þannig frá ■ Páll Sigurjónsson málum, að þeir verða þess ekki megnugir að bera uppi þau Iífskjör, sem við krefjumst. Það mætti því spyrja svo: Er það tilviljun að launatekjur féllu hér á landi, með raun- vaxtastefnunni svonefndu, á þessu og síðastliðnu ári að við getum farið að öfunda ítali af sínum kjörum? Sannleikurinn er auðvitað sá, aö vaxtahækkanirnar hafa orðið svo hrikalegar, að engu tali tekur. í um það bil 120% veröbólgu um mitt síðasta ár voru vextir um 60%, í ca. 15% verðbólgu, í október voru vextir hinsvegar a.m.k. 20%. Við skulum sannanlcga vona að ríkisstjórninni auðnist að Bolli Héðinsson Hækkum vextina! Um fomar dyggðir og nýjar Á þe&sum sídustu og verstu tímum þegar horft er uppá hvernig þjóðin er að skiptast ( tvennt, ríka Islcndinga og fá- Ueka, þá vona ég samt sem áður að ekki sé svo illa komið fyrir nokkrum, að hann verði að lifa á lánum til að draga fram lífið. Að cnginn þurfi að lifa af bankalánum til að sjá sér og sínum farborða. Enda vzrí þá um vftahring að ræða sem erfitt væri að komast úr, því augaleið gefur að þeir hinir sömu einstaklingar munu þá heldur ckki ciga fvrir afborg- ununi1* jfc»a— ■ Hvenær hætti það að vera dyggð á Islandi að spara fé i stað þess að skulda það? Hverjir eiga að lána ef allir skulda? Er nema von að spumingar af þessu tagi leiti á, þegar umræðan um vexti og vaxta- pólitík hefur snúist svo gjör- samlega við, að allír eru löngu bættir að tala um „garnla fóikið'' og það dyggðum prýdda fólk sem sparaði og lét fé sitt brenna á verðbólgubál- inu. Nú bcr enginn hag þessa fólks fyrir brjósti lengur, því • 'ifA--' Vl»r- HvonA,,, rneð afföllum, þá má alltaf fjárfesta t.d. í fasteignum eða öðrum cignum, scm munu vcrðtryggja fjármuni sparifjár- eigenda, og það vel. Hvort álíta menn nú heppi- legra, að láta sparifjárcigendur vera á stöðugum flótta með spanf^^^^^^^^lækkun- ■ Bolli Héðinsson halda verðbólgunni í skefjum, því ef hún færi í sama farveg og hún var, þá mættum við búast við 160% vöxtum, en ef þú réðir Bolli minn, að minnsta kosti 200%. Ef það er rétt að líta til baka, og skoða í Ijósi sögunnar þær aðgerðir, sem hélst var beitt í efnahagsmálum, og á- hrif þeirra hverju sinni, kemur í Ijós að einhverjar best heppn- uðu aðgerðir eru gerðar í fjármálaráðherratíð Eysteins Jónssonar. Og ef þú lest nú sögu hans muntu sjá að það urðu önnur vopn fyrir hendi en hávaxtastefna og frjálshyggja. Það getur þurft að þora að grípa til ráðstafana, sem ekki er víst að öllum líki, til þess að vernda sjálfstæði þjóðarinnar. Barátta framsóknarmanna var þá sú að efla íslenska framleiðslu. Það var gert m.a. með því að spara gjaldeyri eftir föngum, og stuðla að upp- byggingu innlends iðnaðar. Þá var ekki spurt hvert fjármagnið sækti til ávöxtunar. Það var lagt allt kapp á að stjórna fjármagninu. En stjórnun þess er forsenda þess að við geturn lifað hér sem frjáls þjóð í frjálsu landi. Þess vegna verður að meta greiðsluþol undirstöðuatvinnu- veganna og haga verði á lánsfé samkvæmt því. Ef það er ekki gert verða aurar sparenda næsta lítils virði. því peningar eru aðeins ávísun á verðmæti. Þess vegna einskis virði ef verðmætasköpunin er drepin í dróma. Páll Sigurjónsson Galtalæk Frá Náttúru- verndarráði: Fiskeldi og náttúruvernd ■ Á undanförnum árum hafa verið settar á stofn fjölmargar fiskeldisstöðvar hérlendis og er Ijóst, að allmargar stöðvar eru nú í undirbúningi, sumar hverjar mjög stórar. í þessu sambandi telur Nátt- úruverndarráð nauðsynlegt að minna á 29. grein laga um náttúruvernd, sem hljóðar svo: „Valdi fyrirhuguð mann- virkjagerð eða jarðrask hættu á því, að landið breyti varan- lega um svip, að merkum nátt- úruminjum verði spillt eða hættu á mengun lofts eða lagar, er skylt að leita álits Náttúru- verndarráðs, áður en fram- kvæmdir hefjast. Ef það er vanrækt, getur Náttúruvernd- arráð krafist atbeina lögreglu- stjóra til aö varna því, að verk verði hafið eða því fram haldið. Virkjanir, verksmiðjur og önnur stór mannvirki skulu hönnuð í samráði við Náttúru- verndarráð. Sama gildir um vegalagningu til slíkra mann- virkja. Nánari fyrirmæli samkv. þessari grein setur menntamálaráðuneytið í reglugerð." Ekki fer á milli mála, að þetta ákvæði í náttúruverndar- lögunum á við klak-, eldis- og hafbeitarstöðvar. Slíkum stöðvum fylgir ætíð jarðrask, mismikið að sjálfsögðu; Frá- rennsli frá slíkunt stöðvum er mjög mengað lífrænum leifum. og getur þessi mengun á stund- um verið varhugaverð. Merkar náttúruminjar eru víða urn land og er augljóst að þeim getur stafað hætta af fiskeldis- stöðvum, sem oft er valinn staður á ströndum eða í fjarð- arbotnum þar sem er auðugt og fjölbreytt lífríki. Á næstunni kemur út endur- skoðuð útgáfa náttúruminja- skrár, hin 4i í röðinni, sem Náttúruverndarráð hefur sett saman. Tilgangur náttúruminjaskrárinnar er að gefa „heildaryfirlit yfir þau svæði eða staði sem hafa eitthvað það til að bera sem þjóðinni er mikils virði að eiga og vart eða ekki verður bætt, sé því raskað. Slík skrá markar m.a. stefnu í friðlýsingarmál- um, og undirbýr jarðveginn fyrir viðræður rétthafa um þau efni. Það er og mikilvægt fyrir þá, sem leggja á ráðin um ný mannvirki og hverskonar breytingar á landi, að vita hvar síst má raska náttúrunni, um leið er henni ætlað að vera leiðarvísir varðandi skipulag og nýtingu lands." Því miður hefur orðið tals- verður misbrestur á því, að forsvarsmenn fiskeldisstöðva hafi leita álits Náttúruverndar- ráðs áður en stöðvar eru reistar eins og þeim ber þó skylda til samkvæmt lögum. Þess eru jafnvel dæmi að fiskeldisstöðv- ar séu reistar á svæðum sem eru á náttúruminjaskrá og styrktar af opinberum sjóðum án þess að leitað hafi verið álits náttúruverndarráðs, eins og lög gera ráð fyrir. Tekið skal fram, að þegar leitað hefur verið álits Náttúru- verndarráðs vegna fiskeldis hefur ráðið í flestum tilvikum ekki gert athugasemdir við staðsetningu eða rekstur stöðvanna. í öðrum tilvikum hafa framkvæmdaaðilar og Náttúruverndarráð komið sér saman um ýmis atriði. þannig að báðir hafa vel við unað. Til undantekninga heyrir að fram- kvæmdaaðilar séu ófúsir til þess að virða óskir Náttúruvendar- ráðs um að sérstökum svæðum eða stöðum sé hlíft við raski eða mengun. Náttúruverndarráð vill hér með eindregið hvetja alla þá, sem eru með fiskeldisstöðvar í uppbyggingu eða undirbún- ingi, en ekki hafa leitað til Náttúruverndarráðs að gera það hið fyrsta. Jafnframt er skorað á þá, sem nú starfrækja fiskeldisstöðvar án þess að til- skilið samráð hafi verið haft við Náttúruverndarráð að hafa þegar samband. Það er þjóðinni fyrir bestu að leitast sé við að sú starfsemi sem hún rekur taki mið af þeim lögmálum sem landið setur.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.