NT - 11.01.1985, Blaðsíða 10

NT - 11.01.1985, Blaðsíða 10
 I Happdrætti t VINNINGAR í 9. FLOKKI 1984—1985 Vinningur til íbúðarkaupa, kr. 500.000 727 Bifreióavinningar eftir vali, kr. 100.000 4563 8333 23815 38397 76086 6696 19466 32429 67075 Utanlandsferðir eftir vali, kr. 35.000 3664 15860 33169 43139 57248 3683 21182 35185 46991 59637 4422 21604 37833 47452 62751 5737 26805 39204 47776 70292 7158 27187 40912 50707 72474 8558 27940 41308 52315 74009 9614 28266 41362 54702 74385 15021 32345 42635 54925 78853 Húsbúnaður eftir vali, kr. 10.000 77 14202 34618 57098 67689 423 16102 36297 58449 69010 2747 16702 37193 58509 70018 3053 19747 39818 58608 73105 4482 21664 40796 59008 73298 7753 22587 44840 61320 73846 7859 23126 46533 61792 75525 8131 26054 49188 63042 76304 8797 27841 50053 63479 76659 8883 28520 51007 64793 77883 10597 29573 51617 65028 78441 10658 30803 53804 65173 78488 11956 30952 56773 66590 78784 13691 32595 56846 67172 79553 Húsbúnaður eftir vali, kr. 2.500 82 7943 16271 23041 32182 41612 48324 56113 63795 71250 221. 7948 16452 23057 32302 41.669 48544 56156 64047 71513 274 8007 16466 23071 32928 41892 ' 48553 56193 64192 71767 553 8185 16476 23237 33427 41946 48807 56240 64195 72107 607 8490 16479 23684 33433 41984 48911 56247 64212 72526 696 8783 16731 24571 33490 42077 49073 56369 64228 72695 806 8888 16733 25108 33518 42081 49089 56647 64296 72990 879 9145 16869 25200 33635 42168 49189 56732 64337 73017 950 9218 17087 25508 33690 42574 49287 57033 65037 73168 1132 9317 17105 25602 33691 42607 49478 57113 65047 73206 1169 9451 17610 25815 34173 42958 49489 57365 65421 73232 1362 9456 17637 25955 34387 42982 49561 57572 65496 73248 1653 9897 17747 26005 34394 43104 49901 57576 65535 73386 1877 9909 17915 26161 34519 43388 49961 57642 65564 73555 1998 10023 17976 26199 34598 43391 50279 57794 65616 73889 2155 10440 17992 26483 34745 43557 50298 57970 65623 73959 2268 10570 18311 26553 34884 43671 50834 58147 65872 74205 2570 10664 18934 26727 35108 43672 51036 58176 65905 74223 2851 10726 18974 26785 35334 43680 51211 58218 66077 74233 3023 11134 19045 26809 35430 43792 51265 58380 66133 74837 3106 11344 19108 26949 35877 44098 51406 58494 66310 74985 3308 11394 19114 27061 36216 44236 51483 58647 66494 75101 3454 11445 19119 27142 36857 44359 51763 58658 66636 75168 3600 11475 19424 27323 37105 44551 52174 58889 66699 75513 3652 11722 19804 27450 37107 44760 52440 58921 67027 75565 3823 12297 20204 27586 37182 44770 52462 59096 67700 75644 4094 12355 20237 28004 37252 44801 52868 59535 67743 75742 4175 12582 20411 28014 37264 44886 52924 59990 68182 75908 4316 12672 20526 28172 37348 44891 53014 60098 68377 75997 4373 12817 20573 28384 37876 45110 53067 60104 68404 76046 4787 12843 20739 28438 37940 45611 53086 60247 68490 76150 4938 13141 20961 28661 38183 45961 53134 60448 68664 76377 5533 13455 21072 28861 39077 46179 53203 60501 68719 76471 5597 13528 21082 29308 39082 46225 53214 61031 68990 76635 5700 13936 21122 29457 39094 46406 53273 61499 69041 76923 6049 14077 21377 29724 39404 46421 53296 61727 69112 77019 6238 14156 21379 29808 39451 46586 53554 61967 69121 77104 6353 14164 21598 29825 39463 46624 53671 62002 69228 77298 6355 14554 21638 29893 39528 46667 53955 62049 69329 77345 6365 14592 21671 30075 39861 46847 54051 62168 69618 77458 6400 14772 21807 30465 39968 47083 54114 62681 70279 78774 6873 14891 21953 30495 40504 47407 54436 62741 70378 78895 7328 15584 21966 30841 40679 47555 54628 62814 70499 78981 7522 15622 22120 31344 40826 47650 54659 62932 70600 79020 7642 15932 22617 31399 40928 47677 55065 62941 70627 79145 7733 15996 22740 31536 41252 47927 55116 62991 70657 79161 7778 16146 22741 31732 41360 48080 55680 63254 70752 79173 7825 16261 22831 32079 41508 48279 55987 63575 71047 79550 Afgreiðsla húsbúnaðarvinninga hefst 15. hvers mánaðar og stendur til mánaðamóta. Föstudagur 11. janúar 1985 10 Guðrún Stefanía Guðjónsdóttir Fædd 4. ágúst 1891. Dáin 19. nóvember 1984. Nú hefurein af hetjum hvers- dagslífsins kvatt þennan heim eftir langt æviskeið. Hinn 19. þessa mánaðar lést á Hrafnistu tengdamóðir mín, Guðrún Stef- anía Guðjónsdóttir, 93 ára að aldri. Hún var fædd 4. ágúst 1891 að Álftavatni í Staðarsveit. Foreldrar hennar voru Guðjón Jónsson og Guðbjörg Jónsdótt- ir. Hún varelstafáttasystkinum og eru nú tvö þeirra á lífi, Styrkár Már og Sæunn Sigríður. bæði búsett í Reykjavík. Þegar Stefanía er átta ára gömul flytja foreldrar hennar búferlum að Galtárhöfða í Norðurárdal og er hún þar hjá þeim til 11 ára aldurs, er hún fer að Sveinatungu til sæmdarhjón- anna Ingibjargar Sigurðardótt- ur og Jóhanns Eyjólfssonar. í Sveinatungu er hún til 17 ára aldurs, er hún leggur land undir fót í fylgd föður síns, fótgang- andi yfir heiðar og fjöll að Fellsenda í Miðdölum, en þar bjuggu þá stórbúi Guðrún Tóm- asdóttir og Ólafur Finnsson. Hún ræður sig þar í vinnu- mennsku og er þar samfleytt í 12 ár. Þar kynnist hún eigin- manni sínum, Hannesi Gunn- laugssyni, sem var þar vinnu- maður. Hann var fæddur á Litla-Vatnshorni í Haukadal 30. sept. 1891. Stefanía átti góðar minningar frá dvöl sinni á þess- um heimilum og minntist alltaf fólksins þar með hlýjum huga og hélt vináttu og tryggð við það fólk alla tíð. Árið 1921 þann 29. október gengu þau Stefanía og Hannes í hjónaband og hófu búskap á föðurleifð hans að Litla-Vatns- horni og bjuggu þar til ársins 1949 er Hannes lést 5. septem- ber það ár. Eigi munu efnin hafa verið mikil þegar þau hófu búskap að Litla-Vatnshorni, lítilli jörð með þýfðu túni. En þau voru ung og samhent og bæði dugn- aðarforkar til allra verka og hlífðu sér hvergi. Það var hand- aflið eitt sem á varð að treysta á þeim tímum. Þau hófu strax að slétta túnið og á næstu árum að endurbyggja húsakostinn af miklum dugnaði. En aldrei voru þau svo önnum kafin að þau hefðu ekki tíma til að gera öðrum greiða, eða taka á móti gestum og gangandi, enda þeirra mesta ánægja í lífinu að gera öðrum gott. Þau Stefanía og Hannes eign- uðust þrjú börn. Elstur þeirra var Gunnlaugur Eysteinn, f. 19. nóv. 1921, d. 25. júlí 1975. Gunnlaugur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Guðrún Sigurðardóttir frá Lundi í Fljótum, þau eignuðust þrjá syni. Þau slitu samvistum. Seinni kona Gunnlaugs og eftir- lifandi ekkja er Ása Gísladóttir frá Pálsseli í Laxárdal, eignuð- ust þau fimm börn. Næst elst er Ragnheiður Hildigerður gift Víglundi Sigurjónssyni og þau eiga þrjú börn. Yngsturer Ólaf- ur kvæntur Nönnu Jónsdóttur og eiga þau fjögur börn. Barna- börnin eru því 15 og barna- barnabörnin eru orðin 12. Það skiptust á skin og skúrir í lífi Stefáníu. Henni var það mikið áfall að missa eiginmann- inn á miðjum aldri. Hún gat þó ekki til þess hugsað að vera annars staðar en á Litla-Vatns- horni. Árið eftir að hún missti eiginmanninn var erfiður tími í lífi hennar. Naut hún þá ómetanlegrar aðstoðar ná- granna sína er seint verður full- þökkuð. Árið 1951 hóf Gunnlaugur búskap á Litla-Vatnshorni með fyrri konu sinni, Guðrúnu. Tím- inn græddi sárin og Stefanía vann af lífi og sál að búi þeirra og sá myndarlegan barnahóp vaxa úr grasi, býlið breytast í betri jörð með nýrri tækni og dugnaði sonarins. Enn dró ský fyrir sólu er Gunnlaugur veiktist og lést 25. júlí 1975 frá fimm ungum börnum og konu sinni, Ásu Gísladóttur, dugnaðar- konu, sem hefur brotist áfram að koma upp barnahópnum með aðstoð móður sinnar og tengdamóður. Eg dáist oft að því hvað þessar öldruðu mætu konur voru samtaka við að hlynna að heimili og börnum, sívinnandi frá morgni til kvölds. Það var auðséð að þær mátu livor aðra rnikils, enda var samkomulagið gott. Þannig starfaði Stefanía meðan kraftar entust og hennar ánægja og sólargeisli voru börn- in á heimilinu. Fyrir fimm árum tók heilsu hennar að hraka. Hún varð fyrir því áfalli að lærbrotna og leggj- ast í sjúkrahús. Þar með mátti heita að dvöl hennar fyrir vestan væri lokið, og var hún til heimil- is og umönnunar hjá Ragnheiði dóttur sinni og þess á milli á hjúkrunarheimilum, þar til hún fór á sjúkradeild Hrafnistu í desember á síðastliðnu ári og dvaldi þar til hinstu stundar. Fyrir hönd systkina og ann- arra ættingja vil ég færa starfs- fólki sjúkradeildar Hrafnistu innilegustu þakkir fyrir góða ummönnun. Stefanía var sérstakur per- sónuleiki, sem aldrei kvartaði yfir hlutskipti sínu í lífinu, gerði engar kröfur til annarra, en því meiri til sjálfrar sín. Aldrei heyrðist æðruorð af hennar vörum. Hún var stálminnug og greinargóð og hafði gaman af þjóðlegum fróðleik, og mundi gamla daga til síðustu stundar. Ég og fjölskylda mín dvöld- um oft í sumarleyfum á Litla- Vatnshorni og eigum þaðan góðar minningar við veiðar í vatninu og sveitastörf. Aldrei sá ég Stefaníu glaðari en á þeim stundum. Nú að leiðarlokum þakka ég henni alla vináttu og tryggð. Miklu ástfóstri tóku þau Hannes við sveitina sína og Litla-Vatns- horn og þar vildu þau bera beinin. Lét Hannesgera heima- grafreit á gamla túninu, þar scm vítt sér um sumarfagran dalinn. Þar verður nú 35 árum síðar hin trúfasta eiginkona hans lögð til hinstu hvílu við hlið hans. „Far þú í fridi, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. “ (V.Briem) Víglundur Sigurjónsson. „Ég minnist tveggja handa er hár milt struku einn horfinn dag“. (St. Steinarr.) Fyrsti dagurinn í sveitinni var erfiður fyrir ungan og óframfær- inn borgardrenginn. Nýtt fólk og nýr framandi heimur. Þegar pabbi var farinn suður aftur um kvöldið yfirbugaðist sá litli sem snöggvast af heimþrá og feimni. Þá tók amma hann sér í fang og bægði burt öllum kvíða. Síðan var hún óhagganlegur mið- punktur tilverunnar í sveitinni. Þó amma væri sívinnandi, innan húss sem utan, bar hún hag okkar barnanna stöðugt fyrir brjósti. Og gaman var að hlusta á hana segja sögur frá gamalli tíð af fólki og veraldar- vafstri þess í Haukadalnum. Enn man ég hvað hún var dreymin á svipinn er hún sagði frá því hvernig hún veiddi silung til matar í svuntuna sína að loknu dagsverki við heyskapinn. „Þá var fiskur í hverjum polli,“ sagði hún. Amma var kona gamla tím- ans á íslandi. Nægjusemi, dugn- aður, æðruleysi, kímni og trú- festa voru hennar traustu dyggðir. Og þó henni þætti stundum nóg um lífsgæða- kapphlaupið hjá okkur fyrir sunnan stóð hún ekki í neinu ævarandi stríði við nýja tímann. Aldrei kvaddi hún sveitargest- ina að hausti án þess að læða vænum seðli í lítinn lófa. Þegar hún háöldruð gisti hjá okkur í Keflavík um tíma sprangaði hún oftlega ein og óstudd bæinn á enda til að heimsækja Guðlaugu systur sína eða sinna öðrum erindum - rétt eins og hún hefði búið þar alla tíð. Lítil og veik- burða var hún Jafn kvik og örugg með sig í umferðinni og þegar hún mundaði prjónana sína í sveitinni. Nú er þagnað glamrið í prjón- unum hennar ömmu, en áfram lifir hin ljúfa minning. Guð blessi hana. Stefán, Ómar, Jónína, Atli og fjölskyldur. í dag er til moldar borin sæmdarkonan Guðrún Stefanía Guðjónsdóttir, fyrrum húsfrú að Litla-Vatnshorni, Haukadal, Dalasýslu, en hún andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 92 ára að aldri, þar sem hún dvaldist síð- asta æviár sitt. Þegar við barnabörnin og barnabarnabörnin kveðjum ömmu og langömmu horfum við aftur til þeirra ára þegar við dvöldum hjá henni að Litla- Vatnshorni sem börn og ung- lingar. Við rifjum upp góðar og ljúfar minningar frá þeim tíma, sem ekkert okkar vildi vera án. Tilhlökkunin var alltaf jafn mik- il yfir því að heimsækja ömmu í dalina, þar sem sólin og fjöllin spegluðust í vatninu á góðviðris- dögum og nýveiddur silungur- inn beið okkar í pottinum. Amma bar ekki tilfinningar sínar á torg. Hún var hörð af sér, enda hafði hún reynt mikið á sinni löngu ævi, en aldrei heyrðist hún kvarta. Hún var sérstaklega hreinskilin kona og var vön að segja skoðanir sínar hispurslaust. Amma var vinnu- samasta kona sem við höfum kynnst, áreiðanleg, gestrisin og hlý heim að sækja. En hún átti það sem okkur er öllum svo mikilvægt að eiga, en það er trúin á algóðan Guð. Við þökkum henni samfylgd- ina og þá umhyggju sem hún sýndi okkur í gegnum árin. Við biðjum Guð að blessa minningu hennar. „En ástin er björt sem barnsins trú, hún blikar í Ijóssins geimi, og fjarlægð og nálægð, fyrr og nú, oss finnst þar í eining streymi. Frá heli til lífs hún byggir brú og bindur oss öðrum heimi. Af eilífðar Ijósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri'en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. “ (Einar Bcncdiktsson.) Trausti og fjölskylda, Stefanía og fjölskylda.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.