NT - 11.01.1985, Blaðsíða 22

NT - 11.01.1985, Blaðsíða 22
Fimmtudagur 10. janúar 1985 22 Frjálsar íþróttir: fara að hefjast - búist við mikilli keppni - fellur langstökksmetið? Doina Melinte frá Rúmeníu verdur í eldlínunni í Bandaríkjunum næstu mánuði. „Masters“-keppnin í tennis: Þrír Svíar eftir - og fjórir Bandaríkjamenn - hálfgert einvígi ■ Eins og NT skýrði frá í gær þá stendur yfir í Bandaríkjun- um „Masters“-keppni í tennis þar sem 12 bestu tennisleikarar heims keppa. Síðastliðna nótt (ísl.tími) voru tveir leikir í undankeppninni og nú eru að- eins 8 kappar eftir í mótinu. Leikirnir í nótt enduðu þannig að Joakim Nystrom frá Svíþjóð sigraði Vitas Gerulaitis frá Bandaríkjunum 6-3 og 6-4 og Eliot Teltscher frá Bandaríkj- unum sigraði Tomas Smid frá Tékkó 6-3 og 6-4. Næstu fjórir leikir eru því: Nystrom-Lendl Jarryd-McEnroe Wilander-Kriek Connors-Teltscher Hér eru í lokakeppninni fjór- ir Bandaríkjamenn. þrír Svíar og Tékkinn Lendl. ■ Það er búist við því á frjáls- íþróttasviðinu að þessi vetur verði mun viðburðaríkari en margir fyrri vetur. Nú er að hefjast fjöldi innanhúsmóta um allan heim. Mesta athygli vekur keppni á milli austan- tjalds íþóttafólks og keppnis- fólks frá Vesturlöndum. Eins og menn muna voru íþrótta- unnendur sviftir því að fá að sjá keppni milli þessara tveggja póia er Sovétmenn og banda- menn þeirra mættu ekki til Ólympíuleikanna í Los Angeles síðastliðið sumar. Þau mót sem mesta athygli eiga eftir að vekja eru án efa keppnirnar í Bandaríkjunum auk heimsmeistaramótsins í París. Vitað er að Sovétmenn ætla að einbeita sér fyrst að heimsmeistaramótinu en marg- ir íþróttamenn frá Bandaríkj- unum hafa ákveðið að sleppa því móti til að keppa á mótum í Bandaríkjunum. Eftir heims- meistaramótið munu allmargir Sovétmenn fara til Bandaríkj- anna og keppa þar á mörgum mótum. Einnig hafa aðrar þjóðir sem ekki voru á ÓL tilkynnt að þær muni taka þátt í mótum í Bandaríkjunum. Venjulega hefur veturinn á eftir ÓL verið rólegur og íþróttamenn tekið sér allt að því frí eftir erfiði Ólympíuárs. Ekki verður svo nú. Carl Lewis hefur ákveðið að taka ekki þátt í heimsmeistaramótinu heldur keppa í Los Angeles í staðinn. Hann er staðráðinn í að r.eyna að hnekkja heimsmeti Bob Beamons íí langstökki og mun hann keppa á nokkrum mótum í Bandaríkjunum með þetta takmark að leiðarljósi. Mary Decker heimsmethafi í 3000m hlaupi mun einnig verða í baráttunni í Los Angeles og á fleiri mótum. Hún mun mæta m.a. rúmensku stúlkunni, sem sigraði í 3000m hlaupinu á ÓL, Maricica Puica. Fleiri rúmensk- ar stúlkur eru ákveðnar í að taka þátt í mótum í Bandaríkj- unum. Langstökksmeistarinn Anisoara Stanciu og stalla hennar, sem varð í öðru sæti á Spænska bikarkeppnin: Ekkert óvænt ■ Seinni leikirnir í spænsku bikarkeppninni í knattspyrnu, þriðju umferð voru leiknir í gær. Úrslitin koma hér aö neð- an og eru liðin sem komast í fjórðu umferð fcitletruð: Boxað i Noregi ■ Svo getur fariö aö norsk yfírvöld aflétti banni á hncfaleikum sem staðið hefur síöan 1981.. Hnefaleikar voru bann- aðir í Noregi eftir aö upp koinst um fjármálasvindl í sambandi við atvinnu- mennsku í hnefaleikum. En ástæöan fyrir því aö nú gæti svo farið að hncfalcikar yrðu leyfðir að nýju er sú að Norðmenn hafa eignast Evrópu- meistara í þungavigt í hnefaleikum. Steffen Tangstad heitir sá og vann Evrópumeistaratit- ilinn með því að berja á Frakkanum Rodriguez. Og nú vilja Norðmenn óðir fá að sjá hetjuna sína berjast á heimavelli. Norsk stjórnvöld virð- ast vera nokkuö hlynnt því að taka þessa ákvörð- un og bendir margt til þess að Tangstad fái að keppa í Noregi. Hann hcfur æft í Bandaríkjunum síðan bannið var sett en segist endilega vilja keppa „heima“ í Noregi. Estcpona-Hercules.......1-0 Espanol-Vallado. Pro ... 0-1 At. Bilbao-Alcoyano ... 5-0 Valencia-Barcelona At. . . 2-0 Real Betis-Sevilla ......3-0 R.Mallorca-Osasuna ... 3-1 At. Madrid-Malaga .... 1-2 Real Murcia-Barcelona . . 0-1 Sporting-Constancia .... 3-0 Celta-Alaves.............0-2 Real Oviedo-Badajoz ... 1-0 Deportivo-Linares.......1-0 Las Palmas-Vallecano . . 5-0 At. Madrileno-Sestao ... 3-2 Real Vallad-Real Zaragoza og Real Socicdad-Lorca báðum frestað vegna snjókomu. Heimsbikarkeppnin á skíðum: Figini fyrst í bruninu ■ Ólympíumeistarinn Mic- hela Figini frá Sviss sigraði í brunkeppni kvenna í heimsbik- arkeppninni á skiðunt sem fram fór í Bad Kleinkirchheim í Austurríki í gær. Hún fór braut- ina á samanlögðum tíma 1:43,23. Hún varðáundan stöll- um sínum frá Sviss, sem tóku annað og þriðja sætið. Birgitte; Oertli varð önnur á 1:43,83 og Ariane Ehrat varð þriðja á 1:44,32. Með þessum sigri skaust Figini í annað sætið í stiga- keppninni í heimsbikarkeppn- inni. Efst er Marianna Kiehl, sem varð sjötta í bruninu í gær, með 117 stig en Figini er með 105 stig. Anders Jarryd Portúgal: Benfica sigraði ■ Portúgölsku meistararnir Benfíca sigruðu Varzim í 1. deildarkeppninni 1-0 í fyrra- dag. Leikurinn átti að vera 2. des. en honum var frestaö vegna þess að áhorfandi henti fíösku í höfuð annars línuvarðarins. Diamantino skoraði eina mark leiksins beint úr auka- spyrnu á 7. mínútu. Benfíca er nú þriðja ■ deildarkeppn- inni aðeins 2 stigum á eftir Porto og Sporting sem eru jöfn að stigum en Porto á leik til góða. Carlsberg og knattspyrnan: Danir fá bjórfé ■ Til að tryggja afkomu danska landsliðsins í knatt- spyrnu fram yfir HM í Mexíkó á næsta ári hefur Carlsberg bruggfyrirtækið gert auglýs- ingasamning við landsliðið til tveggja ára. Samstarf þessara tveggja að- ila er ekki nýtt af nálinni, því Carlsberg hefur verið „sponsor" danska landsliðsins í 7 ár. Þessi nýi samningur er til 2 ára og hljóðar upp á 6 milljónir danskra króna. Fyrsta afhending fór fram í nóvember síðastliðnum en þá fékk landsliðið 2,5 milljónir í vasann. Á myndinni sem fylgir má sjá aðstoðarframkvæmdastjóra Carlsberg, Roelsen að nafni taka í hendina á Sepp Piontek, landsliðsþjálfara Dana en Pre- ben Elkjær (ekki Ölkær) markaskorari landsliðsins stendur á milli þeirra. ÓL, Vali Ionescu, munu báðar verða með. Þá mun 800m hlaupakonan Doina Melinte verða í fremstu Iínu víða um Bandaríkin. Allir þessir keppnismenn verða með á miklu móti í Dallas þann 2. febrúar. Þar munu mæta að minnsta kosti 9 Sovétmenn. Þá er víst að þeir verða með á móti í Cleveland þann 17. febrúar og á banda- ríska meistaramótinu í New York 22. febrúar. Á þessu meistaramóti er einnig búist við mörgum öðrum frægum nöfnum, svo sem Jose Abascal frá Spáni og hástökks-Svíanum Patrik Sjoberg. Það verður því mikið að gerast á frjálsíþróttasviðinu á næstunni. Knattspyrna: Chile-búar fá þjálfara ■ Chile-búar hafa nú ráðið þjálfara fyrir knatt- spyrnulandslið sitt. Sá heitir Pedro Morales og hefur hann einu sinni áður þjálfað landsliðið. Eins og NT skýrði frá í gær þá voru orðin mikil vandræöi hjá Chile-búum með þjálfara eftir að Arg- entínumaðurinn Canta- tore gat ekki fallist á til- boð knattspyrnuyfírvalda í Chile. Chile-búar eiga að leika fyrsta landsleikinn í undankeppni heims- meistarakeppninnar þann 3. mars á móti Eq- uador. Szarmach með 200 ■ Pólverjinn Andrzej Szarmach, framherjinn sem ekkert fékk að lcika með Pólverjum í heims- meistarakeppninni 1982 á Spáni skoraði sitt 200, mark á ferli sínum fyrir stuttu. Hann hafði skorað 109 mörk er hann lék í Póll- andi. Síðan hóf hann að spila með Auxerre í Frakklandi ogsigurmark- ið í leik á inóti Metz reyndist vera hans 91 mark í Frakklandi. Þar með voru þau samtals orðin 200 mörkin sem kappinn hcfur gert. Þetta er smá liuggun fyrir karlinn sem var gjörsamlega látinn af- skiptalaus á Spáni. Innanhúsmótin

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.