NT - 11.01.1985, Blaðsíða 19

NT - 11.01.1985, Blaðsíða 19
 Föstudagur 11. janúar 1985 19 J IlL Útlönd Bresk rannsókn: Atvinnuleysi eykur skilnaði I.ondon Reyter. ■ Tíðni skilnaða er hærri hjá fátæklingum á Bretlandi en þeim sem lifa við efnahagslegt öryggi. Drykkja fátæklinga og reykingar eru einnig meiri. Þetta eru niðurstöður opin- berrar rannsóknar. Rannsóknin náði jfir tímabilið 1972'til 1982. í niðurstöðunum segir að reykingar hafi minnkað í öllum hópum sem könnunin náði til, en þó minnst meðal ófaglærðra- verkakvenna. Hin fátækari reykja meira en þeir sem tekju- hærri eru. Samkvæmt rannsókninni reyktu um 49% ófaglærðra karla 1982 en aðeins 25% sér- menntaðra, atvinnurekenda eða forstjóra. Skilnaðir eru jafnvel enn al- gengari hjá atvinnulausum. Hjá þeim enda 34 af hverjum þús- und hjónaböndum með skiln- aði. í samanburði við sérmennt- aða er munurinn mikill. Aðeins 7 hjónabönd af hverjum þúsund enda með skilnaði. Áhrif vídeómynda: Fimm ára drengur hengdi sig eft- ir að hafa horft á ofbeldismyndir Útleigureglur vídeómynda skortir í Noregi Frá Amþrúði Karlsdóttur fréttaritara NT í Noregi ■ Fimm ára drengur fannst látinn þar sem hann hafði hengt sig í eldhúsdyrunum heima hjá sér í Amberja í Norður-Noregi síðastliðinn þriðjudag. Fyrirmyndina, að sjálfsmorðinu fékk drengurinn í ofbeldiskvikmynd sem hann hafði séð daginn áður í mynd- bandstæki. Norsk dagblöð segja að móðir drengsins hafi fundið hann látinn í eldhúsdyrunum. Drengurinn mun hafa spurt hana daginn áður hvort það væri vont að hengja sig eins og í myndinni sem hann hafði þá nýlokið við að horfa á. Síðar þegar enginn sá til festi drengurinn belti í hún eldhúsdyranna og smeygði því um hálsinn á sér með fyrr- greindum afleiðingum. Móðir drengsins hefur einn- ig skýrt frá því að um jólin hafi hann horft á margar glæpa- myndir, einkum Bruce Lee og James Bond. Mál þetta hefur vakið mik- inn óhug meðal norsks al- mennings. í Noregi eru engar reglur um útleigu ofbeldis- mynda og krefjast nú margir þess að sh'kar reglur verði settar. Magner Runndalen, einn helsti barnasálfræðingur Norðmanna, segir að hjá börn- um sé næstum því ómótstæði- leg þörf fyrir að leika hlutverk sem skapi djúpa angist. Hann segir að þetta tilfelli flokkist greinilega undir slíkan leik. Runndalen segist vita mörg dæmi þess að börn hafi þurft á sálfræðiaðstoð að halda eftir að hafa horft á glæpamyndir um nokkurt skeið. Hann ráð- leggur foreldrum eindregið að halda slíkum myndum frá börnum sínum. Getur gas úr iðrum jarðar varað við jarðskjálftum? San Francisco-Rcuter ■ Bandarískir og japanskir vísindamenn eru nú að rann- saka hvort hægt sé að nota vetnisgufur sem leka úr jarð- skorpunni til þess að spá fyrir um jarðskjálfta og eldgos. Kenneth McGee hjá Banda- rísku jarðfræðistofnuninni segir að fyrstu niðurstöður rannsókn- anna séu mjög uppörfandi. Nokkrum dögum fyrir jarð- skjálfta eða eldgos berist vetnis- gas langt neðan úr iðrum jarðar upp á yfirborðið. Vísindamennirnir hafa komið fyrir 30 mælitækjum á jarð- skjálftasvæðum í Kaliforníu og eldfjallasvæðum á Hawai til að mæla gasleka. Þeir segja að stundum hafi verið all greinileg tengsl milli. gasleka og jarð- skjálfta nokkrum dögum síðar. Þótt vísindamennirnir telji að enn skorti mikið á að rannsókn- irnar séu fullnægjandi binda menn nú þegar miklar vonir við þessa nýju spáaðferð. Blöð í Kaliforníu birtu forsíðufréttir um gasspárnar en þar óttast menn mjög jarðskjálfta enda er talið að mjög stór jarðskjálfti geti orðiö þar hvenær sem er á næstunni. McGee segir að þar sem sýnt hafi verið fram á að gasspárað- ferðin hafi staðist í sunium til- vikum þá sé næsta verkefni að reyna að mynda sér heilsteypta mynd um sambandið þarna á miili. Vísindamenn í Japan stunda nú einnig svipaðar rannsóknir. En bandarísku vísindamennirn- ir standa betur að vígi þar sem mælitæki þeirra senda upplýs- ingar beint um gervihnött þann- ig að upplýsingar um gasleka koma strax í hendur vísinda- mannanna. Bandaríkjamaðurinn Mot- oaki Sato, sem fæddist í Japan, er upphafsmaður hugmyndar- innar að þessum tilraunum. Hann fann upp tækin sem notuð :eru til að mæla gaslekann sem oft cr mjög lítill þannig að hann mælist ckki á venjuleg tæki. Sato segir sjállur að tilraunirnar séu enn skammt á veg komnar og mikið starf sé óunnið áður en hægt verður að nota vetnisleka til að spá fyrir um styrk og tímasctningu jarðskjálfta. V'Þýskaland: Gert ráð fyrir 2.5% hagvexti ■ Sprunga eftir jarðskjálfta í Þingeyjarsýslu. Hér á landi verða sjaldan rniklar skemmdir í jarðskjálftum vegna dreifbýlisins og sterklegra bygginga. Samt væri það mikils virði fyrir okkur íslendinga jafnt sem aðra ef hægt yrði að spá fyrir um jarðskjálfta með nokkurri vissu svo ekki sé nú talað um eldfjöllin. Wicsbadcn-Reuter ■ Hagvöxtur í V-Þýska- landi var 2.6% á síðasta ári en það er mesti hag- vöxtur þar í landi síðan 1979. Hagvöxturinn á árinu 1983 var aðeins 1.3% en 1982 var hann jafnvel ennþá minni, eða 1.1%. Efnahagsspár um fram- vinduna á þessu ári eru ósamhljóða. Ýmsar stofnanir spá um tveggja prósenta hagvexti, en bjartsýnni spár hljóða upp á 3.3%. Ríkisstjórn- in gerir ráð fyrir 2.5% hagvexti. Konurfáaukið slagsmálahlutverk Hong Kong-Reutcr ■ Kvikmyndaframleiöendurn- ir sem framleiddu kung fu myndirnar meö Bruce Lee ætla sér að blása nýju lífi í kung fu myndir meö nýjum slagsmáia- stjörnum. Golden Harvest kvikmynda- fyrirtækiö sem framleiddi mynd- irnar með Bruce Lee ætlar sér að skapa nýjar alþjóðastjörnur. Efniviðurinn verður kvikmynda- leikarar og kung fu fólk sem nú þegar eru stórstjörnur í Suðaust- ur-Asíu. Louis Sit hjá Golden Harvest segir að hinar nýju kung fu myndir muni verða öðru vísi byggðar upp en hinar eldri, söguþráðurinn verði skýrari og konur muni hafa stærra hlutverk í myndunum. Áhorfendur eru sagðir síður ginnkeyptir nú á dögum fyrir kung fu myndum þar sem karlar eru allsráðandi. Júgóslavía: Refsingum hótað fyrir verðhækkanir Belgrad-Reutcr ■ Leiðtogar júgóslavneskra kommúnista segja að nauðsyn- legt sé að hefja einbeittar að- gerðir gegn öllum þeim sem hækki verð á vörum í andstöðu við verðlagsstefnu stjórnvalda. Verðbólga í Júgóslavíu var 52,4% á síðasta ári sem er nokkur lækkun frá því árið 1982 þegar hún var 60%. Stjórnvöld telja þessa miklu verðbólgu mjög alvarlegt vandamál fyrir Júgóslava sem skulda 19 millj- arða bandaríkjadala erlendis. Þótt ekki séu nema tæpar tvær vikur liönar af þessu ári hafa ýmsar olíuvörur, rafmagn, matur og margar neysluvörur hækkað í verði. Leiðtogar júgóslavneskra kommúnista segja að ekki sé lögð nægjanlega mikil áhersla á að framfylgja verðlagsstefnu stjórnarinnar. Það verði að beita efnahagsaðgerðum. laga- legum refsingum og pólitískum þvingunum gegn þeim sem hækki vöruverð í andstöðu við opinbera verðlagsstefnu. ■ Tito, fyrrverandi einvaldur í Júgóslavíu. Nú ríkir ekki eins mikil festa í efnahagsmálum landsins og þegar hann hélt um stjórnar- taumana. Eflaust yröi honum ekki rótt í gröf sinni ef hann vissi að eftirmcnn hans geta ekki einu sinni fengið opinber fyrirtæki til að fylgja yfirlýstri verðlagsstefnu stjórnarinnar.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.