NT - 11.01.1985, Blaðsíða 20

NT - 11.01.1985, Blaðsíða 20
Föstudagur 11. janúar 1985 20 — Sri Lanka: Skæru- liða foringi felldur Colombo-Keuler ■ Öryggissveitum á Sri Lanka hefur tekist art fella leiötoga ötlugasta skæru- liöalióps Tamila, og |irett- án liösmenn hans. Skæruliðaforinginn féll í árás stjórnarliöa á leyni- bækistöö skæruliöa fyrr í þessuni mánuði. í sömu árás voru 44 skæruliðar handteknir og í búöunum fannst ótrúlega mikiö af vopnum og þurfti tvo vöru- bíla til að flytja þau í burtu. Skæruliðarnir kalla samtök sín „Frelsistígra Tamil-Ealam". Feir berj- ast fyrir sjálfstæði þjóðar- brots Tamila. Aðalritari SÞ: Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með vopnabúnaði - og tryggi að afvopnunarsamningar verði virtir Sameinuðu þjóðimar-Reuter ■ Javier Perez De Cuellar, aðalritari Sameinuöu þjóðanna, segir að Sameinuðu þjóðirnar gætu tekið að sér eftirlit með svæðisbundnum afvopnunar- samningum m.a. með notkun gervihnatta og jarðskjálfta- stöðva á jörðu niðri. Hann sagði þetta í fyrirlestri sem hann hélt í Harvardháskóla í Bandaríkjunum undirtitlinum „Möguleikar Sameinuðu þjóð- anna á að móta heim framtíðar- innar“. Perez benti á mikilvægi stöðugs eftirlits með því að afvopnunarsamningum verði framfylgt. Hann taldi að vísu ólíklegt að Sovétmenn eða Bandaríkjamenn fallist á að ■ Þessi mynd var tekin úr gervihnetti í fyrra af smíði sovésks risaflugmóðurskips. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna telur að SÞ geti haft eftirlit með takmörkun vígbúnaðar með því að nota m.a. gervihnetti til þess að fylgjast með hvort samningar um afvopnun séu haldnir. Sameinuðu þjóðrinar sjái um eftirlit með samningum sem þeir kunni að gera um að takmarka kjarnorkuvígbúnað. En Sam- einuðu þjóðirnar gætu hæglega fundið leiðir til að sjá um slíkt eftirlit með því að svæðisbundn- um afvopnunarsamningum verði framfylgt. Perez sagði að áður hefðu komið fram tillögur um að SÞ notuðu gervihnetti, jarð- skjálftastöðvar og radsjárstöðv- ar til að fylgjast nreð því hvort samningum um vopnabúnað væri framfylgt. Hann hvatti þjóðir heims til að nota heims- samtökin til að aðstoða við afvopnun. Það væri ekki nóg að nota Sameinuðu þjóðirnar til gagnslausra ásakana eða enda- lausra ályktana sem ekki leystu nein vandamál. Portúgal: Sprengt við auðmanns- heimili Barcelos-Reuter ■ Sprengja sprakk fyrir utan heimili eiganda vefn- aðarverksmiðju í Barce- losborg í Norður-Portúg- al. Nokkrar skemmdir urðu en engan sakaði. Hópur vinstri sinnaðra borgarskæruliða, sem kalla sig FP-25, hefur lýst ábyrgð á sprengjutilræð- inu á hendursér. Óþekkt- ur maður hringdi í ríkis- fréttastofuna í Portúgal og sagði að skæruliöarnir hefðu ráðist á heintili Al- bertos Macedo De Sousa vegna þess að hann hefði sagt verkamönnum upp störfum án gildra ástæðna. FP-25 hópurinn hefur staðið að fjölda sprengju- tilræða, bankaránum og nrorðum á undanförnum fjórum árum. Lögreglan hefur handtekið 51 ntann en þessi skæruliðasamtök hafa samt ekkert linnt á starfsemi sinni. Allsherjarverkfallið í Ecuador Fimm létust á fyrsta degi mörg hundruð handtekin Quifo-Reuter ■ Finim dóu á miðvikudag er allsherjarvcrkfalliö í Ecuador hófst. Verkalýðshreyfíngin hafði boðaö tveggja daga verk- fall til að inótinæla verðhækk- unum á bensíni og olíu uni allt að 90%. Innanríkisráðherra landsins, Luis Robles. sagði fréttamönn- um að tveir af hinum látnu hefðu farist er þeir voru að konra fyrir dýnamíti. Atvinnumálaráðherra lands- ins sagði aö nteira en 50 hefðu særst og 300 til 600 hefðu veriö handsamaðir í mótmælagöng- um verkafólks í borgunt Ecua- dor. Leiðtogar stjórnarandstöð- unnar sögðu að verðhækkanirn- ar megi rekja til krafna Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins. Stjórn lands- ins hefur sóst eftir 43 milljarða dollara lár.i frá sjóðnum til að bæta greiðslustööu ríkisins gagnvart opinberum erlendum lánum. Jose Chavez, leiðtogi Verka- mannasambandsins, sagði að mjög góður árangur hefði náðst Londun-Reulcr ■ Einn at' hverjum fímmtíu Bretum mun þjást af áunninni ónæniisbæklun (AIDS) um 1991 að öllu óbreyttu segja sérfræðingar. Ef ekki verða geröar sérstak- ar ráðstafanir til að kanna út- breiðslu og koma í veg fyrir hana verður afleiðingin alvar- á fyrsta degi verkfallsins og fulltrúar verkalýðsfélaganna myndu hittast unt helgina og ræða áframhaldandi ótíma- bundin verkföll. Flestar verslanir og verk- leg segir Konunglegi hjúkrunar- háskólinn á Bretlandi. Þessi háskóli spáir því að þrátt fyrir að aðeins 108 dæmi væru staðfest um sjúkdóminn á Bretlandi muni ein milljón Breta hafa sýkst af honum um 1991. Sjúkdómurinn veldur því að ónæmisvarnir líkamans smiðjur voru lokaðar á miðviku- dag og kennsla féll niður í skólum. Olíuframleiðslan í landinu stöðvaðist þó ekki því olíuverkamenn efndu aðeins til táknrænna verkfallsaðgerða. bregðast. Sjúkdónturinn hefur einkum verið áberandi meöal kyn- hverfra, en færist í vöxt meðal kynvísra, þeirra sem hafa kyn- hneigð til beggja kynja, eitur- lyfjaneytenda o.fl. 40hafa látist af völdum sjúk- dómsins á Bretlandi en um 3000 í Bandaríkjunum. AIDS á Bretlandi: Ein milljón sýkt 1991? Garðabær - Grindavík Umboðsmenn vantar fyrir NT í Grindavík, Hveragerði og Garða- bæ. Upplýsingar gefur dreifingarstjóri (Kjartan Asmundsson) í síma 686300. Austur-Þjóðverjar missa sundmeistara til Bandaríkjanna Oklahoma-Rcuttfr ■ Austur-þýski sundmeist- arinn Jens-Peter Berndt hef- ur flúið landa sína og sótt uni landvistarleyfí í Bandaríkj- unum. Berndt, sem átti um tíma heimsmet í 400 metra boð- sundi, yfirgaf félaga sína síð- astliðinn mánudag þegar þeir bjuggu sig undir að fara um borð í flugvél á Oklahoma- flugvelli. Hann bað emb- ættismenn á flugvellinum um að hjálpa sér að sækja um hæli í Bandaríkjunum en fór jafnframt fram á að flótti hans yrði ekki gerður opin- ber. Bandarískir embættis- menn segja að Berndt hafi óttast að flótti hans myndi koma niður á fjölskyldu sinni í Austur-Þýskalandi. Starfs- menn á flugvellinum segja að Berndt hafi kvartað sáran yfir að hafa ekki fengið að keppa á Ólympíuleikunum í Los Angeles síðastliðið sum- ar vegna þess að Austur-Evr- ópuríkin tóku ekki þátt í þeint. Thailand-Víetnam: Hvar liggja landamærin? Thailand-Rcutcr ■ Fidel Castro, forseti Kú manna. ■ Thailendingar og Víetnam- ar komu sér saman um það í gær hvar merkja skyldi landamærin á milli Thailands og Kambodíu við Ampil-skæruliðastöðina þar sem hörð átök hafa átt sér stað að undanförnu. Fulltrúar frá báðum aðilum hittust við landamærin og sömdu um það hvar skyldi láta landamærastaura á tveggja kíló- metra löngum spotta til þess að landamærin yrðu nægjanlega skýrt afmörkuð. Thailenskir og víetnamskir hermenn skiptust á skotum á þessum stað í fyrra- dag. Er það von manna að nú verði auðveldara að forðast átök eftir að landamærin hafa verið rækilega merkt. Fidel Castro heim- sækir Nicaragua Managua-Reuter ■ Fidel Castro, forseti Kúbu, kom í gær til Nicara- gua til að vera viðstaddur þegar Daniel Ortega tekur við embætti sínu sem forseti landsins. Heimsókn Castros var haldið leyndri allt þar til nokkrum klukkustundum áður en flugvél hans lenti í Nicaragua. Embættismenn segja að með heimsókn sinni vilji Castro leggja áherslu á stuðning Kúbu- manna við stjórn Sandinista í Nicaragua. Bandaríkjastjórn segir að náin tengsl Nicaraguastjórn- ar við Kúbumenn sé ein sönnun þess að Sandinistar hyggist flytja byltingu sína út til annarra landa í Mið-Ameríku. Þetta er í annað skiptið sem Castro heimsækir Nicaragua. Hann kom þangað í fyrsta skipti árið 1979 þegar ár var liðið frá því að Sandinistar steyptu Som- oza einræðisherra af stóli. London: Gassprenging í lúxushúsi London-Rcuter ■ Að minnsta kosti sex manns létu lífið þegar mikil gassprenging lagði lúxushús í rúst í úthverfi Lundúna í gærmorgun. Brunaliðsmenn fundu sex lík í rústunum og eina alvarlega slasaða konu. Konan, sem er 35 ára gömul, fannst ekki fyrr en eftir sjö tíma. Seint í gærkvöldi hafði leit ekki enn verið hætt í rústunum að fólki sem hugsanlega kynni að leyn- ast í þeim.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.