NT - 22.01.1985, Page 1
Undirmenn:
Verkfallsboð-
un heimiluð
■ Samkvæmt heimildum NT samþykkti trúnaðar-
mannaráð Sjómannafélags Reykjavíkur, á fundi sínum í
gær, að veita samninganefnd félagsins heimild til að boða
til verkfalls undirmanna á farskipum.
Samningaviðræður undir-
manna og viðsemjenda þeirra
hafa staðið í nokkurn tíma, og
varð nokkur árangur af fundi
þeirra í gærdag, en nýr fundur
var boðaður kl.8:3() í morgun.
Ekki tókst að ná í Guðmund
Hallvarðsson, formann Sjó-
mannafélagsins í gærkvöld.
Akureyringar huga
að útgáfu dagblaðs
Fjölgar Dagur útgáfudögum úr þremur í fimm?
■ Fundur starfsfólks og stjórnar blaðsins Dags á Akureyri mun
ræða möguleika á að fjölga útgáfudögum blaðsins nú í vikunni,
að sögn Jóhanns Karls Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Dags.
Sagði Jóhann að þar yrðu hugsanlegar leiðir kynntar, en
ákvarðana þar að lútandi væri ekki að vænta fyrr en eftir
stjórnarfund í febrúar n.k.
Dagur kemur nú út þrisvar í
viku, auk Dagsbrots, aukablaðs
sem inniheldur dagskrá útvarps
og sjónvarps og auglýsingar.
Blaðamenn Dags eru fjórir og
einn í hlutastarfi, en alls eru 23
á launaskrá hjá fyrirtækinu.
Blaðið er til húsa í tiltölulega
nýju húsnæði sem rúmað gæti
stækkun, a.m.k. fyrst um sinn
að sögn Jóhanns. „Dagur er
seldur um allt land, þótt út-
breiðslan sé auðvitað mest á
Akureyri og nágrenni. Áskrif-
endum hefur fjölgað jafnt og
þétt og við höfum staðið undir
rekstri síðustu ár,“ sagði Jóhann
að lokum.
Höfuðborg
arsvæðfb
fékkaba
íbúafjöfg
unina og
meira til:
Fækkaði um 172
á landsbyggðinni
des. s.l. Var þaö 0,94% fjölgun
■ íslendingum fjölgaði um
2.228 á síðasta ári og bættist
allur sá fjöldi við á höfuðborgar-
svæðinu og meira til. Ef litið er
á landsbyggðina utan höfuð-
borgarsvæðisins og Suðurnesja,
þar sem fólki fjölgaði um 136
kemur í Ijós að landsbyggðarbú-
um hefur fækkað um 172.
Samkvæmt bráðabirgðatöl-
um Hagstofunnar voru Islend-
ingar orðnir 240.122 þann 1.
frá 1983 og er töluvert minna en
nokkur síðustu ár Mestu ntunar
að fæðingum hcfur fækkað um
200-300 frá árinu áður - og svo
mikið að svarar til þess að
vöxtur mannfjölda milli kyn-
slóða hafi stöðvast. Janframt
fluttu nokkru fleiri úr landi en
til landsins á síðasta ári.
Reykvíkingunt fjölgaði um
1.399 (1.61%) og íbúunt annarra
sveitarfélaga á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu um 865, eða samtals
2.264. Að Suðurnesjum með-
töldum verður fjölgun á suð-
vesturhorninu 2.400 manns.
Hlutfallsleg fækkun varð
mest á Vesturlandi, 115 manns
eða 0,76%, mest í Grundarfirði,
Ólafsvík, á Akranesi og í Borg-
arnesi. 'Þá fækkaði um 178
manns á Norðurlandi eystra og
kom sú fækkun fram í öllum
kaupstöðum og sýslum - mest
þó hlutfallslega á Þórshöfn
(7%), Raufarhöfn, Ólafsfirði og
í Grýtubakkahreppi. Fækkun á
Austurlandi var 25 manns -
mest á Reyðarfirði. Fækkun á
Austurlandi var 25 manns -
mest á Reyðarfiröi, Stöðvar-
firði, í Breiðdalshreppi og
Vopnafirði. En nokkur fjölgun
var t.d. í Neskaupsstað á Egils-
stöðum og í Höfn.
Á Suðurlandi og Norðurlandi
vestra fjölgaöi um 70 á hvoru
svæði og Vestfirðingar voru líka
ofan við strikið - fjölgaði um
fjóra. Á þessum landssvæðum
ýmist fjölgaði eða fækkaði á
einstökum stöðum.
Gróði
í Noregi
entap
hjá ÍSAL
-sjábls. 10
■ Mikilli tónlistarhátíð í Rio de Janeiro lauk á sunnudag. Talið er að um 250.000 manns hafi sótt
hátíðina en þar léku margar frægustu hljómsveitanna í poppheiminum í dag. Hátíðin gekk vel og
stórslysalaust þrátt fyrir hrakspár margra. Þessi unga stúlka fagnaði hér síðustu hljómsveitinni sem lét
í sér heyra. Mynd: POLFOTO
ísafjörður:
Hópur handtekinn efftir
mikla fíkniefnaveislu!
- tveir sölumenn að sunnan settir í gæsluvarðhald
Bíldudalur:
Uppsagnir
starfsfólks
■ Viðræðufundur verð-
ur á morgun í deilu rækju-
veiðimanna og Rækjuvers
hf. í Bíldudal, en starfs-
fólki Rækjuvers, 13 að
tölu,hefur verið sagt upp
kauptryggingu frá og með
föstudegi, þar sem bátarn-
ir hafa hætt veiðum og
enginn afli er til vinnslu.
Eyjólfur Þorkelsson,
framkvæmdastjóri Rækju-
vers, sagði NT í gærkvöld,
að hann hefði gert sjó-
mönnunum tilboð um að
málið væri ieyst með gerð-
ardómi, fyrir dómstólum,
eða með uppgjöri eins og
eftir verkfall. Hann sagði
að Verkalýðsfélagiö hefði
ekki enn tekið afstöðu til
boða sinna.
■ Um 10 voru í haldi hjá ísa-
Qarðarlögreglu um helgina vegna
sölu, dreifíngar og neyslu á hassi
og amfetamíni. Tveir ungir
menn að sunnan voru svo úr-
skurðaðir í tveggja daga gæslu-
varðhald í gær vegna þessa
máls. Þeir munu hafa átt upp-
tökin að Gkniefnunmn þar vestra
þessa helgi með söluferð sinni
þangað á föstudag.
Mennirnir tveir dvöldu á
hótelinu á ísafirði með ólyfjan
sína og söfnuðust í þeirra hóp
margir heimamenn, sumir sem
áður hafa komið við sögu lög-
reglunnar þar í bæ vegna fíkni-
efna. Lögreglan fylgdist með
samsætinu fram á sunnudags-
morgun að hún lét til skarar
skríða og handtók um tug
manna, eins og ein lögregla
orðaði það í samtali við NT.
Fólkið var svo í haldi í lengri
eða skemmri tíma á fyrstu stig-
um rannsóknarinnar. Nú hefur
öllum verið sleppt nema þeim
tveim sem komu að sunnan og
sýslumannsembættið úrskurð-
aði þá í gærdag í viku gæsluvarð-
hald.
Enn hefur ekki verið ákveðið
hvort þeir muni sitja gæsluna af
sér þar vestra eða að málið
verði sent fíkniefnalögreglunni
í Reykjavfk. Þá er ekki enn
hægt að gefa upp hversu mikið
af lyfjum var þarna í umferð
eða hve mikið var gert upptækt.
Að sögn Arnars Jenssonar hjá
fíkniefnalögreglunni í Reykja-
vík hafa Reykvíkingarnir tveir í
þessu máli báðir komið við sögu
fíkniefnalögreglunnar áður.