NT - 22.01.1985, Blaðsíða 3

NT - 22.01.1985, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 22. janúar 1984 3 Þurfum allt það fé sem renn- urtil námsmannaíbúðanna ■ „Við óttumst að sú ákvörðun félagsmálaráð- herra að gefa Búseta heim- ild til þess að byggja yfir námsmenn skerði það fé sem ella rynni til Félags- stofnunar stúdenta, en við höfum sótt um lán til bygg- ingar 150 námsmanna- íbúða,“ sagði Finnur Ing- ólfsson formaður Félags- stofnunar stúdenta í sam- tali við NT í gær. „Við vitum að það er takmark- að fjármagn til þessara hluta og horfur eru á því að námsmannasamtökun- um veiti ekki af öllu því fjármagni sem hægt verð- ur að úthluta í þessu skyni. Þörfin er mjög brýn þar sem við getum aðeins séð 5% stúdenta fyrir húsnæði eins og er.“ Finnur sagði að Félagsstofnun væri að efna til samkeppni um byggingu þessara íbúða og lóðin væri til staðar við Suðurgötu. Finnur benti m.a. á það að þær íbúðir sem fjár- magnaðar eru hjá Búseta vegna námsmanna nýttust ekki námsmönnum nema um skeið þar sem þær fylgdu viðkomandi áfram. Húsnæði í eigu Félags- stofnunar væri hins vegar áfram leigt námsmönnum. Kjörin væru mjög góð. Nú væri leiga á hjónagörðum t.d. 4000 krónur fyrir stærri íbúðir. Finnur Ingólfsson tók fram að hann væri á engan hátt andsnúinn húsnæðis- samvinnufélögum. Þetta væri sjálfsagður valkostur sem þyrfti að komast inn í kerfið, en eins og nú horfði væri rétt að það fé sem færi til byggingar náms-i mannaíbúða rynni til Félagsstofnunar stúdenta. 1 Ný nefnd á vegum borgarinnar: Elliðaárdalsnefnd - fjallar um nýtingu Elliðaárdals- ins til útivistar eftir því að var frestað að stofna þar fólkvang ■ Stofnun fólkvangs í Elliða- árdal var frestað að tillögu meirihluta umhverfismálaráðs á fundi borgarstjórnar s.l. fimm- tudag en jafnframt var sam- þykkt að skipuð verði Elliða- árdalsnefnd sem fjalli um nýt- ingu landsvæðisins til útivistar. Á nefnd þessi að vera um- hverfismálaráði.borgarráði og borgarstjórn til ráðuneytis um Dalvík: Góðar heimtur - dýrara vatn! ■ Innheimta gjalda á Dalvík gekk vel á síðasta ári og náðust inn 92.5% álagðra gjalda. Er það 3.5% betri innheimta en árið 1983. Gjald fyrir heitt vatn var hækk- að um 20% hjá Hitaveitu Dalvíkur 1. jan. sl. og 15% hækkun er áætluð á ný 1. maí næstkomandi. Vistmanns af Kleppiennleitað ■ Leit stendur enn yfir að Krist- jáni Árnasyni, 29 ára gömlum vistmanni af Kleppi, en hann hvarf þaðan á laugardagsmorgun. Lög- reglan hefur reynt að nota hunda til að rekja spor Kristjáns frá spítalanum en án árangurs. Sömu- leiðis hafa kafarar leitað í Reykja- víkurhöfnum en ekkert fundið. málefni er snerta nýtingu dalsins og hafa samráð við framkvæmda- aðila í dalnum, svo sem Hita- veitu Reykjavíkur. Vatnsveitu Reykjavíkur, Rafmagnsveitu Reykjavíkur, Landsvirkjun, Bæjarsíntann í Reykjavík, Ár- bæjarsafn, Hestamannafélagið Fák, íþróttafélagið Fylki, Vega- gerð ríkisins og félag sportbát- aeigenda „Snarfari" í þeim til- gangi að umsvif þessara aðila samræmist sem best útivist í dalnum. í Elliðarárdalsnefnd sitja borgarverkfræðingur og tveir aðilar úr umhverfismála- ráði. Stofnun fólkvangs var frestað með tilvísun í greinargerð frá borgarverkfræðingi þar sem kemur fram að athugasemdir hefðu borist frá 7 aðilum sem telja fólkvangsstofnun vega að starfsemi sinni í Elliðaárdaln- um. Borgarfulltrúi Alb. Adda Bára Sigfúsdóttir og Kristján Benediktsson fulltrúi Fram- sóknarflokks skoruðu á for- mann umhverfismálaráðs að halda stofnun fólkvangs í Elliða- árdal til streitu en borgarstjóri, Davíð Oddsson sagði að ekki væru hundrað í hættunni þó af því yrði ekki. Svæðið væri alfar- ið í landi borgarinnar og hefði þegar alla eiginleika fólkvangs og staðfesting á því með form- legri stofnun bindi einungis hendur borgarstjórnar. Borgin missti við það þann yfirráðarétt sem hún hefur yfir svæðinu. Esjan: Gámarfuku fyrir borð ■ Tveir gániar fuku fyrir horð af strandferðaskip- inu Esju þar sem hún var stödd úti fyrir ísafjarðar- djúpi í snarvitlausu veðri í gærmorgun. Ekki er talið að neinar skemmdir hafi orðið á skipinu. í gámunum voru vöru- sendingar til fyrirtækja og átti annar að fara til Dal- víkur en hinn til Vopna- fjarðar. Að sögn Guö- mundar Einarssonar for- stjóra Skipaútgerðar ríkis- ins höfðu gámarnir ekki að geyma mjög verðmætar vörur og veröur hægt að bæta það tjón sem þarna varð. Esjan er á hringferð, hún ícom til Sauðárkróks í gærkvöldi og heldur svo áfram ferð sinni norður unt land. Aftakaveður hefur verið úti fyrir Vest- fjörðum síðan um helgi og togarar verið í landlegu síðan á laugardag. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: Förutil Finnlands ■ Finnski rithöfundurinn Antti Tuuri hlaut bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs í ár. Dómnefndin kunngerði þessi úrslit síðdegis í gær á blaða- mannafundi sem haldinn var í þinghúsinu í Osló. Verðlaunabókin, skáldsagan „Pohjanmaa", erellefta ritsmíð Tuuris. Sagan gerist í norður- hluta Finnlands og höfundurinn fléttar dulúð og forneskju þessa landshluta inn í söguna. Bókin fjallar þó fyrst og fremst um nútímann, að því er segir í finnskum ritdómi. ■ Verðlaunahafinn: Finnski rithöfundurinn Antti Tuuri. Mynd: POLFOTO Valdimar Indriðason: Ekki rétt að veita Grund- firðingum skelfiskleyfi ■ „Ég sagöi að það væri hægara fyrir Steingrím að stýra ríkisstjórninni ef for- maður Sjálfstæðisflokks- ins væri innan ríkisstjórn- ar," sagði Valdimar Ind- riðason í samtali við NT í gær, en Valdimar og Friö- jón Þórðarson hafa undanfariö veriö á ferð um Vesturlandskjördæmi og héldu um helgina fund í Stykkishómi. „Að öðru leyti sagði ég að stjörnar- samstarfiö væri traust og gott og að breytingar á ríkisstjórninni væri útrætt mál í bili.“ Valdimar skýrði jafnframt frá því að mikil óánægja hefði verið meðal fundarmanna vegria skelfiskléyfa sem s j á va r ú t ve gs ráð h e rra hefði veitt Grundfiröing- unt. „Meöan skelfisk- stofninn er ekki traustari en hann er er rangt að bæta við leyfum." sagði Valdimar, „og þetta mun ég líka segja þegar ég kem á Grundarfjörö, að sjálf- sögðu," sagði Valdimar. Verkamannasambandið: Mótmælir öryggisleysi hjá fiskverkunarfólki ■ Verkamunnasamband íslands inótmælir því réttindaleysi oc at- vinnuleysi, sem ilskvinnsliifólk býr við, og varar viö þeirri þróun, aö þrautþjálfaö fiskverkunarfólk flýi í önnur störf vegna öryggisleysis í atvinnu, og lélegrar afkomu. I frétt frá VMSI scgir, að ótrú- legur fjöldi fjölskyldna eigi lífsaf- komu sína undir því, að vinna við fiskverkun sé stöðug og traust. Samkvæmt samningum og lögum, sern ekki sé hægt að fá breytt. megi segja þessu fólki upp störfum mcð viku fyrirvara, hvenær, sem hrá- efni er ekki til, alveg sarna hvort viðkomandi hafi unniö í 3 mánuði eða 30 ár. Örvggisleysi þctta bitnar fyrst og fremst á konum, sem cru 75% vinnuafls í fiskverkuninni. Nú eru á þriðja hundrað manns atvinnu- lausir á Akranesi og fjöldinn er svipaður í Hafnarfirði, og eru kon- ur þar í meirihluta. Segir í fréttinni aö án þessarar miklu þátttöku kvenna í þessari atvinnugrein myndu útflutningstekjur íslend- inga hrynja saman. Nýtt skip: Jökulfell ■ Hinu nýja flutningaskipi SÍS var gefið nafn sl. föstudag. Hlaut það nafnið Jökulfell. Athöfnin fór fram í Appledor skipasmíðastöðinni í Devon í Lnglandi. Jökulfell mun annast Itutning á frystivöru og gámum til Noröur- Ameríku. Hægt er að opna frysti- geýmslurnar til að auka pláss fvrir gáma. Heildarburðargeta skipsins er 3000tonn.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.