NT - 22.01.1985, Blaðsíða 21

NT - 22.01.1985, Blaðsíða 21
Þriðjudagur 22. janúar 1984 21 Utlönd 65 menn létu lífið í spilavítisflugslysi ■ 65 fórust þegar flugvél, seni fjárhættuspilarar höfðu á leigu, hrapaöi í Reno í Nevada í Bandaríkj- unum í gær. Aöeins þrír af 68, sem voru um borö í vélinni, sluppu lifandi þegar hún hrapaði skömmu eftir flug- tak í Reno þar sem ineiri- hluti farþeganna hafði eytt helginni í spilavítum. Talið er aö eldur hafi komið upp í vélinni og eftir að hún hafði hrapað var hún um- lukin eldhafí. Auk þeirra þriggja sem lifðu flugslysið af slösuðust einnig fjórir menn sem voru staddir í nágrenni við staðinn þar sem vélin skall til jarðar. Fáum sek- úndum fyrir slysið hafði flug- maðurinn samband við flugturn og sagðist myndu snúa við vegna titrings sem hann hefði orðið var við í vélinni. Unt hverja helgi fljúga leigu- flugvélar meö rnörg þúsund mannstil Reno ogTahoe-vatns, sem er skammt frá, þar sem mikið er um spilavíti. Nú á laugardaginn varð líka annað flugslys í Ameríku. 40 fórust þegar sovésk flugvél í eigu kúbansks flugfélags hrap- aði skömmu eftir flugtak á Kúbu. Verðlag hækkar í Ungverja- landi Hudapest-Kcutcr ■ Nú um síðustu helgi skýrðu stjórnvöld í Ung- verjalandi frá miklum verðhækkunum á matvæl- um, olíu til húshitunar, rafmagni og fargjöldum. Mjólk mun til dæmis hækíca um 27 prósent, raf- magn um 18 prósent og olía til húshitunar um 30 prósent, svo að eitthvað sé nefnt. Stjórnvöld segja að verðhækkanirnar stafi meðal annars af því að nú sé verið að minnka niður- greiðslur og einnig sé þeim ætlað að hvetja til orku- sparnaðar. ■ Svona var umhorfs eftir að flugvél fjárhættuspilara hrapaði niður við spilavítisborgina Reno í Nevadaeyðimörkinni í gær. 65 létu lífið 1 í flugslysinu og það varð að kalla 30 brunaliðsbíla út til að hindra að eldur úr flugvélabrakinu hreiddist út. símamynd-i’Oi.Koro Bandaríkin: Óvíst um aukna aðstoð við El Salvador Washinglon-Kcutcr. ■ Robert McFarlane, varnármálaráðgjafi Bandaríkjastjórnar, sagð- ist í gær ekki vita hvort stjórn Reagans myndi reyna að auka hernaðar- legan og fjárhagslegan stuðning við El Salvador. Hann útilokaði slíka að- stoð þó ekki. „Þaðeroffljóttaðsegja til um það á þessu stígi málsins," sagði McFárlanc í sjónvarpsviðtali. Hann er nýkominn úr 'ferð til fimm landa í Mið-Ame- ríku. Ummæli hans benda til þess að afstaða Banda- ríkjastjórnar til hernaðar- legs stuðnings við El Salv- ador sé ekki eins skýr og kom fram nýlcga hjá tals- manni Hvíta hússins. Larrv Speakes, Larry fullyrti að stjórn Reagans myndi t'ara fram á við Bandaríkjaþing aö aðstoðin við El Salvador yrði aukin. Bandaríkja- mcnn veita El Salvador nú I 326 milljóna dollara efna- I hagsaðstoð og 128 millj- I óna hernaðaraðstoð. Robert McFarlane sagði aö Duarte, forseti El Salvador, hafi ekki farið fram á aukna aðstoð á fundum með sér. Líbanon: Fimm hæða fjölbýlishús rústað I sprengjuárás Fundað um stjörnu stríð í Vatikaninu Sidon-Kcutcf ■ Geysimikil sprenging rúst- aði í gær fjölbýlishús í Sidon i Líbanon þar sem einn helsti andstæðingur ísraelsmanna, Mustafa Saad, átti heima, en hann er leiðtogi sunni-múham- eðstrúarmanna. Sprengingin varð einmilt þeg- ar ísraelski herinn var að undir- búa brottför sína úr borginni. Ekki var enn orðið ljóst í gær- kvöldi hvað margir hefðu farist í sprengihgunni. Utvarpið í Vatikanid-Reuter ■ 25 vísindamenn frá Banda- ríkjunum, Sovétríkjunum og öðrunt löndum sitja nú á fjög- urra daga fundi í Vatikaninu ásamt fjórunr kaþólskum prest- um og ræða stjörnustríð. Að fundinum loknum munu vísindamennirnir semja skýrslu urn vígbúnað úti í geimnum fyrir páfastól. Formaður páfa- akademíunnar, sem hefur að- setur í Vatikaninu í Rónt, segir að þessi fundur hafi verið í undirbúningi frá þvt í byrjun nóvember á síðasta ári. Carlos Chagas, fornraður akademíunnar. segir að aka- demían fylgi engri sérstakri stjórnmálastefnu heldur sé áhersla lögð á að afla sem bestra upplýsinga um vísindi og vandamál sem snerta mannkyn- ið. Portúgal: Mun Soares segja af sér? Lögfræðingar krefjast lýðræðis í Bangladesh Dhaka-Rcuter ■ Lögfræðingar í Bangladesh lýstu því yfir nú um helgina að þeir myndu ekki mæta í réttarsali um óákveðinn tíma. Með þessu vilja þeir sýna stuðning við kröfur stjórnarandstöðunnar um lýðræði í Bangladesh. Stjórnarandstæðingar krefjast þess að herlög verði afnumin í Bangladesh fyrir kosningarnar sem á að halda þann 6. apríl næstkomandi. Hossain Mohamm- ad Ershad forsætisráðherra hefur nú þegar lagt niður herdómstóla, endurreist grundvallarmannrétt- indi og komið á fót sérstakri stjórn utanflokksafla sem á að sjá um framkvæmd kosninganna. Stærstu stjórnarandstöðuflokk- arnir í Bangladesh segjast samt ekki munu taka þátt í kosningun- um nema Ershad forsætisráðherra lýsi yfir hlutleysi sínu og tryggi að yfirvöldin og leyniþjónustan hafi ekki áhrif á framgang kosning- anna. Lögfræðingar taka undir kröfur stjórnarandstæðinga og hvetja stjórnmálaflokka til að taka ekki þátt í kosningunum í apríl nema lýðræði verði fyrst endurreist þar sem annars verði kosningarnar skrípaleikur sem aðeins sé ætlað að gefa stjórn Ershad lagalegt gildi. Lissabon-Rcutcr ■ Á ríkisráðsfundi í Portú- gal var í gær rædd gagnrýni Eanes forseta á ríkisstjórn Mario Soares. Eanes hershöföingi sagði í áramótaræðu sinni að stjórn Soares, sem er samsteypu- stjórn sósíalista og sósíal- demókrata, væri ófær um að samstilla mannleg og nátt- úruleg auðæfí landsins. Utanríkisráðherrann, Ja- ime Gama spáði því í blaða- viðtali að árið 1985 yrði ár stjórnmálalegra ólgu. Ríkisstjórnin lýsti því yfir að ef Eanes teldi að lýðræðið virkaði ekki undir stjórn So- ares bæri honum að vísa henni frá. í miðri efnahagskreppu eiga forsetakosningar og sveitarstjórnakosningar að eiga sér stað skömmu fvrir næstu áramót, en þingkosn- ingar verða 1987. Gert er ráð fyrir að Soares verði forsetaframbjóðandi sósíalista. Samkvæmt stjórn- arskrá Portúgals getur Eanes ekki boðið sig fram þar sem hann hefur setið tvö kjör- tímabil sem forseti. Stuðn- ingsmenn hans hafa hins veg- ar stofnað flokk og munu bjóða fram. Portúgal mun ganga í Efnahagsbandalag Evrópu á næsta ári en á meðan samn- ingaviðræður um inngöng- una standa yfir og vegna efnahagskreppunnar í land- inu gera fréttaskýrendur ráð fyrir mikilli ólgu í stjórnmál- unum og að Soares muni jafnvel segja af sér í júlí og bjóða sig fram í forsetakosn- ingunum. Beirút segir að Mustafa Saad hafi slasast alvarlega og hann hafi verið fluttur á sjúkrahús í Sidon. Sjúkrabílar óku um með gjallarhorn og útvörpuðu áskor- un til fólks að gefa Saad og börnum hans blóð. Læknavísindi: Malaríumót- efni úr öpum? Sundakan-Kcutcr ■ Orangutan-apar, sem eru gæfír og svipar mjög til manna, gætu orðið til gagns við að þróa lyf gegn malaríu. Um milljón manns deyr úr malaríu í heim- inuin árlega. Vísindamenn í Sabah-ríki á Borneo hafa rannsakað apa sem virðast hafa öðlast ónæmi fyrir malaríu. Þetta er haft eftir breskum lækni sem rannsakað hefur apana í yfir 10 ár. Malaríu-sníklar, sem lifa bæði í mönnum og orangutan- öpum hafa viss sameiginleg ein- kenni en aðeins öpunum tekst að vinna á þeim. „Orangutanirnir virðast hafa myndað mótefni sem ekki finnst í mönnum," sagði Paddy Kehoe, breski rannsakandinn. Rannsóknarfólk frá Banda- ríkjunum, Kanada, Japan og Malasíu vinnur að rannsóknun- um en það segir að það geti tekið mörg ár að fá niðurstöður úr þeim.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.