NT - 22.01.1985, Síða 23
Þriðjudagur 22. janúar 1984 23
V<Þýskaland:
Stórleikur Alfreðs
Heimsmet hjá Decker
■ Mary Deeker: Nýtt met.
- í 2000 m hlaupi
■ Mary Decker setti nýtt
heimsmet á innanhússleikun-
um í frjálsum íþróttum sem
fram fóru í Los Angeles um
síðustu helgi, eins og sagt var
frá í NT í gær. Hún hljóp 2000
metrana á 5:34,52 mínútum,
sem er næstum 9 sekúndum
betri tími en gamla heimsmetið
5:43,30. Það met átti Yakater-
ina Podkopaeva frá Sovétríkj-
unum. sett í Moskvu fyrir
tveimur árum.
„Ég er mjög ánægð. Áhorf-
endur voru frábærir og studdu
mig mikið, sérstaklega krakk-
arnir. Mér finnst ég hafi brotið
Atli Hilmarsson spilaði með sjö spor. Hann lét það þó ekki á sig fá.
NT-mvnd Róbert
ísinn Og var hissa á því hve Þrí»tokk karla:
auðvelt það var“ sagði Decker Michael Conley 16.92 m.
eftir hlaupið. Míluhlaup karla:
Her koma nokkur úrslit frá Eamonn Coghlan írlandi 3:56,34 min.
leikunum: Steve Scott USA 3:56,35 mín.
60 Jarda hlaup karla:
Darwin Cook 6.16 sek.
50 Jarda grindahlaup karla: Harvey Glance 6.20 sek.
1. Greg Forster 5.96 sek. Innocent Egbunike 6.21 sek.
2. Tonie Campbell 6.02 sek. Kirk Babtiste 6.25 sek.
60 Jarda grindahlaup karla: 60 Jarda hlaup kvenna:
Greg Forster 7,11 sek. Alice Brown 6.72 sek.
A1 Joyner 7.7,19 sek. Jennifer Innis 6.85 sek.
Hástökk karla: 440 Jarda hlaup kvenna:
Jim Howard 2.30 metrar Valerie Brisco-Hooks 53,41 sek.
Lee Balkin 2.26 metrar Florence Griffith 60,99 sek.
Stangarstökk 2000 metra hlaup kvenna:
Earl Bell 5.58 m. Mary Decker 5.43,52 min.
Billy Olson 5.58 m. Ruth Wysocki 5:45,93 min.
■ Sunnudaginn 20. janúar fór fram fyrirtækjakeppni Ba-
dmintonsambands Islands í TBR-húsinu.
Keppnin var að þessu sinni fjölmennari en nokkru sinni
áður, 53 fyrirtæki tóku þátt og 48 önnur styrktu keppnina.
Oll verðlaun voru gefin af skartgripaversluninni Jón og
Óskar, Laugavegi 70. í keppninni var eingöngu leikinn
tvíliðaleikur og varð annar keppandinn að vcra frá fyrirtæk-
inu.
Sigurvegarar urðu þeir Hængur Þorsteinsson tannlæknir og
Þorsteinn Hængsson og var þetta í þriðja sinn sem þeir sigra.
Friðleifur Stefánsson tannlæknir varð í öðru sæti en nieð
honum lék Víöir Bragason. Þeir hafa hafnað í 3. sæti 3 ár í
röð. Úrslitaleikurinn fór 15-8, 11-15 og 15-10.
A myndinni eru sigurvegararnir Hængur Þorsteinsson og
Þorsteinn Hængsson til vinstri en þeir Friðleifur Stefánsson
og Víðir Bragason til hægri.
Mót í Los Angeles:
Spænska knattspyrnan:
ALLT f STEIK
hjá stóru félögunum - Mörg að verða gjaldþrota
- Atli saumaður - Spilaði með sporin
■ Mörg af stærstu knatt-
spyrnufélögum Spánar eiga nú
við mikla erfiðleika í fjármál-
um að etja. Margir slæmir hlut-
ir hafa dunið á félögunum að
undanförnu og má nefna verk-
fall leikmanna, endurnýjun á
völlum fyrir HM ’82, lélegan
árangur í Evrópukeppnum og
minnkandi áhorfendafjölda.
Þessir þættir hafa gert sum
félaganna nærri gjaldþrota.
„Þetta er það versta í sögu
spænskrar knattspyrnu og ég
velti því oft fyrir mér hvort við
komumst nokkurntíma út úr
þessum ógöngum,“ segir Salva-
dor Gomar, framkvæmdastjóri
hjá Valencia, sem einu sinni
var ríkt félag.
Skuldir félaganna nú nenta
um 360 milljónum isl. króna en
þær voru árið 1982 um 270
milljónir. Sérstaklega risu
þessar upphæðir er liðin þurftu
að gera endurbætur á leikvöng-
um sínum fyrir HM ’82. Sum
hinna minni félaga sem voru
vön að fara með eigin rútum á
leiki hafa neyðst til að ferðast
með áætlunarbílum og einnig
hefur öll eyðsla á keppnisferð-
um verið skorin við nögl.
Margir klúbbanna, sem hafa
verið þekktir fyrir að ná til sín
frægum útlendum stjörnum,
hafa orðið að hætta við að
kaupa leikmenn og við það
hafa þeir misst ákveðinn
„klassa" og þar með áhorfend-
ur.
Valencia gat ekki haldið í
Mario Kempes og nú er félagið
með herferð í gangi undir nafn-
inu „Björgum Valencia” sem
felst í að safna peningum með
alls konar spilaþrautum og
leikjum, þessi herferð hefur
ekki skilað miklum árangri.
Alls sitja 11 félög verulega í
súpunni og má nefna að Atlet-
ico Madrid, Elche, Real Betis,
Espanol Barcelona, Sevilla,
Alicante og Malaga hafa öll átt
í erfiðleikum með að borga af
lánum.
Aðeins Real Madrid, sem
komið er í 8 liða úrslit í UEFA-
keppninni og Bercelona, sem
er efst í deildinni, eiga mögu-
leika á að rétta úr kútnum með
sölu aðgöngumiða. Svo framar-
lega að allir miðar seljist.
Félögin segja að einn mögu-
leiki til lausnar vandanum sé að
ná betri samningum við sjón-
varp og útvarp um greiðslur
fyrir leiki sem sýndir eru eða
lýst. Þetta hefur ekki tekist og
í árerengum leikjum sjónvarp-
að - er það mikill tekjumissir
fyrir liðin. Þá hafa liðin heimt-
Frá Guðmundi Karlssyni fréttamanni
NT í V-Þýskalandi.
■ Alfreð Gíslason hand-
knattleiksmaður hjá Essen í
V-Þýskalandi átti stórleik á
sunnudagskvöld er hann og fé-
lagar hans í Essen gerðu jafn-
tefli við Atla Hilmarsson og
félaga í Bergkamen. Atli lék
meiddur og lagði fram herslu-
muninn að því að heimaliðið. lið
hans, næði jafntefli.
Gömul meiðsli tóku sig upp
hjá Atla Hilmarssyni viku fyrir
leikinn, og þurfti að sauma sjö
spor í fót rétt fyrir neðan hné.
Átli lét það ekki á sig fá og lék
með saumana. Hann skoraði
tvö mörk í leiknum og átti
ágætan leik.
En Alfreð Gíslason var
hetjan. Hann skoraði sex mörk
og var besti maður vallarins.
Alfreð virðist nú vera í topp-
formi, og lék sinn besta leik á
tímabilinu.
Jafnt var í hálfleik 9-9, en í
fyrri hálfleik var munurinn
aldrei meiri en tvö mörk, og
skiptust liðin á um að leiða.
Svo var jafnt á öllum tölum í
síðari hálfleik og staðan 18-18 í
lokin þegar Bergkamen fékk
víti. Rafka tók vítið en lét
Hecker í marki Essen verja.
Lemgo, lið Sigurðar Sveins-
að meiri hluta í gróða af get-
raunasölu sem ríkið rekur, en
ekkert hefur hreyfst í sam-
komulag í þá áttina.
Eina liðið sem ekki er á
barmi gjaldþrots er Osasuna
frá Pamplona, einn af fáum
klúbbum sem ekki þurfti að
fara út í endurbætur á leikvangi
sínum fyrir HM '82. Ein af
meginástæðunum fyrir vel-
gengni Osasuna er sú að liðið
hefur aldrei verið með dýrar
erlendar stjörnur og er eina
liðið sem ekki kaupir erlenda
leikmenn, ásamt Athletic Bil-
bao og Real Sociedad.
■ Jorge Valdano, Argentínu-
maðurinn hjá Real Madrid,
hefur staðið sig frábærlega á
árinu. Spurningin er nú hvort
Rcal verði að selja kappann
fyrir skuldum.
sonar, lék á útivelli gegn Rhein-
ingsdorfer Fuchse og varð,
niðurstaðan jafntefli, 19-19.
Sigurður lék vel, en var tekinn
úr umferð. Hann skoraði 5
mörk, þar af 4 úr vítum.
■ Alfreð Gíslason átti einhvern sinn besta leik í Þýskalandi.
NT-mynd: Ella
Úrslit í
Norrænu
sund-
keppninni
■ Nú liggja fyrir úrslit í
norrænu sundkeppninni
sem stóð yfir í sex mánuði
hjá hverri Norðurlanda-
þjóðanna. Færeyingar
sigruðu i keppninni með
1271 sund á mann en
íslendingar höfnuðu í
öðru sæti ineð 1021 sund
á mann. Aðrar þjóðir
voru langt á eftir og Danir
síðastir með 0,003 sund á
mann.
Keppnin stóð yfír í sex
mánuði en þrír bestu
mánuðirnir voru reiknað-
ir út. Var síðan deilt með
íbúatölu viðkomandi
lands. Allir máttu synda
eins oft og þeir gátu en
aðeins einu sinni á dag.
Körfuknattleikur kvenna:
ÍR-STÚLKUR
Á UPPLEIÐ
■ IR-stúlkurnareru á uppleið
í 1. deild kvenna í körfuknatt-
leik, cn þær byrjuðu heldur
slaklega í mótinu, miðað við
það scm búist var við.
IR lagði á sunnudag ÍS að
velli 42-38 í spennandi leik. en
stúdínurnar höfðu yfir í leikhléi
19-17. í síðari hálfleik lék ÍR-
liðið mun betur, sem cin heild
og knúði fram sigur.
Stigahæstar í liði ÍR voru
Guðrún Gunnarsdóttir með 9
stig og .Þóra Steffensen méð 8.
Helga Friðriksdóttir var lang-
stigahæst stúdínanna, skoraöi
19 stig.
Sovétmenn lagðir
■ Sovétmenn, heimsmeist-
ararnir í handknattlcik, voru
lagðir að velli um helgina.
Þetta gerist ekki á hverjum
degi, en þeir sem lögðu þá
voru A-Þjóðverjar. Urslitin
í leiknum urðu 19-18, en
leikið var í Baltic-mótinu í
Póllandi.