NT - 22.01.1985, Side 24
HRINGDU ÞÁ í SÍMA 68-65-62
Við tökum við ábendingum umfréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónurfyrir hverja ábendingu sem leiðir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónurfyrir ábendinqu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvóldsímar: áskrift og dreifing 686300 9 ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
■ Einbjörn, Tvíbjörn, Þríbjörn og Fjórbjörn gæti hún heitið þessi mynd úr leik Vals og KR í gær. Þeir Páll Björgvinsson, Hörður
Harðarson og Friðrik Þorbjörnsson KR-ingar hafa misst af Valdimar Grímssyni, sem þó ekki tókst að skora í þetta sinn. Enginn Björn,
nema Björn Kristjánsson dómari sem tók fram flautuna að nýju í gær meö miklum sóma, en hann er nú ekki á myndinni.
NT-mynd: Árni Bjarna
Islandsmótið í handknattleik:
Gamla seiglan dugði KR
KR-ingar náðu jafntefli við Val 19-19
■ Gamla seiglan koin KR í gegn uin leikinn við Val í 1. deild karla
í handknattleik. Eftir jafnan leik þar sem KR var lengst af aðeins
á eftir, voru Valsmenn orðnir tvcimur mörkum vfir 02 stutt eflir.
KR-ingar gáfust ekki upp og uppskáru víti sem Ólafur Lárusson
skoraði úr, 18-19. Valsmcnn fóru illa ineð góð tækifæri og láuni
sékúndum fyrir lcikslok komst Friðrik Þorbjörnsson inn úr
horninu. Einar Þorvaröarson varði, en Jóhannes Stefánsson náði
frákastinu og fiskaði víti. Aftur Ólafur Lár, og mark, 19-19, tvær
sekúndur eftir, leikurinn búinn.
Leikurinn fór jafnt af stað, KR-
ingar á undan að skora framan
af, en jafnt á flestum tölum.
Valsmenn komust þó í 10-8 og
11-9, en KR-ingar jöfnuðu.
Valsmenn yfir 12-11 í hálfleik.
Valsinenn voru ávallt á undan
í síðari hálfleik, virtust geta gert
út um leikinn á köflum, cn
vantaði herslumuninn. Þeir
voru yfir 13-11, en KR jafnaði.
Jafnt 14-14, Valur yfir 16-14 og
síðan einu og tveimur mörkum
yfir uns staðan var 19-17.
KR-ingar börðust vel í leikn-
um og uppskáru laun erfiðisins.
Páll Björgvinsson stýröi þeim
vel til sigurs, Jóhannes Stefáns-
son var ómetanlegur á línunni
meö sinn mikla kraft (fiskaði
fjögur víti), Hörður Harðarson
lék vel, sinn besta leik með KR.
og Ólafur var öruggur í víta-
köstunum. Hjá Val bar Einar
Þorvarðarson af, varði alltaf vel
þegar liðinu annars gekk illa.
Þorbjörn Guðmundsson var
sterkur. og Jakob góður í horn-
inu.
Mörkin:
KR: Pill Bj. 4, Ólafur 4/3, HörSur 3,
Haukur G. 3/1, Jakob Jónsson 2, Friðrik
Þorbjörns 2 og Pétur Árnason 1.
Valur: Þorbjörn G. 6. Jakob Sig. 4. Jón
Pétur 2, Geir 2, Július 2, Valdimar 1/1
Þorbjörn J. 1, Theódór 1.
Dómarar Óli Olsen og Björn Kristjáns-
son og dæmdu vel.
Staðan í 1. deild:
FH
Valur
KR
Víkingur
Stjarnan
Þróttur
Þór V.
Breiðablik
10 9 1 0 274-227 19
8431 190-157 11
8 4 2 2 169-153 10
9 4 2 3 221-208 10
10 3 2 5 218-224 8
10 3 2 5 234-248 8
9 3 0 6 181-216 6
10 1 0 9 203-257 2
Alfreð
átti
stórleik
-ogAtli var saumaður
fyrir íslendingaleikinn
Sjá íþróttir bls. 23
Handknattleikur 1. deild:
Víkingar
héldu út
■ Víkingar bættu við tveimur
stigum í safn sitt í 1. deildinni í
handknattleik í Laugardalshöll í
gærkvöldi er liöið sigraði Þrótt-
ara með 29 mörkum gegn 21.
Sigurinn var sanngjarn. Víking-
ar héldu haus betur er mest á
reyndi en Þróttarar inisstu al-
veg niður einbcitinguna í síðari
hálfleik.
Leikurinn var jafn til að
byrja með og um miðjan fyrri
hálfleik var staðan 6-6. Þá tók
Þorbergur Aðalsteinsson sig til
og gerði þrjú mörk í röð fyrir
Víkinga og staðan 9-6, Viggó
bætti síðan 10. markinu við
áður en Gísli Óskarsson og
Lárus Lárusson minnkuðu
muninn. Síðan skiptust liðin á
að skora og í hléi var staðan
orðin 17-14 fyrir Víkinga.
Síðari hálfleikur hófst með
tveimur Víkingsmörkum sem
svarað var með þremur stykkj-
um frá Þrótturum, staðan 19-
17. Víkingar komast í 20-17 en
Þróttarar gera næstu tvö og
staðan 20-19. Þá hrundi allt hjá
Þrótturum og Víkingarnir
gengu á lagið og gerðu 6 mörk
í röð. Þá var leikurinn búinn.
Eftir þetta var aldrei spurning
um úrslit og lokatölur urðu
29-21 eins og fyrr sagði.
Það var ljótt að sjá hve
Þróttarar hreinlega misstu nið-
ur allt tempó í leiknum á kafla
í síðari hálfleik. Vörnin hriplak
og Víkingar skoruðu nánast án
þess að hreyfa sig. Þorbergur
var bestur Víkinga og skoraði
mörg falleg mörk með gríðar-
uppstökkum. Hjá Þrótti bar
mest á mörkum Sverris Sverris-
sonar sem mörg hver voru
hreint stórglæsileg.
Þorbergur skoraði mest Vík-
inga 9, Steinar gerði 5, Viggó,
Hilmar og Karl 4 hver, Guð-
mundur 2 og Einar 1. Hjá
Þrótti skoraði Sverrir 7, Páll og
Konráð 4, Lárus 3, Gísli 2 og
Birgir 1. Þá má geta frammi-
stöðu Kristjáns Sigmundssonar
í Víkingsmarkinu en hann
varði vel í síðari hálfleik.
Dómarar voru Guðmundur
Kolbeinsson og Þorgeir Pálsson
og voru lítillega frá sínu besta.
Badmintonlandsliðið í Evrópukeppni B-þjoða:
„Það verður allt að
takast gegn Wales“
- til að við komumst í úrslit segir Sigfús Ægir
■ „Þaö verður allt aö ganga
upp hjá okkur til að við gctum
borið sigur af Wales-búum,"
sagði Sigfús Ægir Árnason hjá
Badmintonsambandinu er
NT spurði liann um möguleika
íslenska landsliðsins í badmin-
ton í Evrópukeppni B-þjóða,
svokallaðri Helvetia Cup.
„Við eigum aftur á móti að
eiga nokkuð góða möguleika
gegn Finnum. Viö höfum sigr-
að þá í sfðustu þrjú skipti.
Síðast spiluðum við reyndar við
þá.fyrir tveimur árum og þeitu
hefur farið rnikið fram síðan."
bætti Sigfús við.
fslendingar leika í riðli með
Finnum og Walcsbúum á mót-
inu sem hefst 24. janúar og
lýkur þann 27. Mótið fer frarn
í Varsjá í Póllandi að þessu
sinni en þetta mót fer fram
annað hvert ár. Þetta er kallaö
B-keppni vegna þess að 6 besiu
þjóðir í Evrópu fá ekki aö
keppa þar.
Riðlarnirá mótinu líta þann-
ig út:
A-riðill: írland. Sviss. Belg-
ía.
B-riðill: Austurríki,
Pólland. Frakkland. Ung-
vcrjaland.
C-riðill: Holland. Tckkósl-
óvakía, Noregur.
D-riðill: Wales. Finnland.
ísland.
„Mér virðast Hollendingar
vera sterkastir af þessum þjóð-
um en sfðan eru aðrar mjög
jafnar," sagði Sigfús í samtal-
inu við NT.
■ Á myndinni hér að ofan má sjá íslenska badmintonlandsliðiö. Efri röð frá vinstri: Guðmundur
Adolfsson, Broddi Kristjánsson, Kristín Magnúsdóttir, Elísabet Þórðardóttir, Sigfús Ægir Árnason
og Hrólfur Jónsson þjálfari. Fremri röö frá vinstri: Jóhann Kjartansson, Kristín Berglind
Kristjánsdóttir, Þórdís Edwald og Þórsteinn Hængsson.