NT - 08.02.1985, Blaðsíða 2

NT - 08.02.1985, Blaðsíða 2
2 ■ Flugfélagið Amarflug kynnti sl. mánudag nýtt fargjald, sem kallast annafargjald og felur það í sér 38% lækkun fyrir þá sem þurfa að fara í stuttar ferðir til útlanda í miðri viku. Nýja fargjaldið er 20.435 krónur báðar leiðir, þ.e. frá Reykjavík til Amsterdam og til baka. Það kemur í mörgum tilvikum í stað svokallaðs normalfargjalds sem er 32.984 krónur. Arnarflugsmenn hafa stað- ið í löngum samningaviðræð- um við flugmálayfirvöld bæði hér og í Hollandi til að fá samþykki fyrir þessu nýja far- gjaldi og er þetta í fyrsta skipti sem fargjald er í gildi hérlendis, aðeins hjá öðru flugfélaginu, að sögn Magnús- ar Oddssonar hjá Arnarflugi. Fram að þessu hafa þeir farþegar, sem vildu njóta lægri fargjalda en normal- fargjaldsins, alltaf þurft að dvelja erlendis yfir helgi, en með annafargjaldinu er unnt að fara í stutta utanferð og koma aftur heim án helgar- dvalar erlendis og fá samt verulega lækkun frá normal- fargjaldi. Helstu reglur um þetta nýja fargjald eru þær að lág- marksdvöl erlendis er ein nótt og hámarksdvöl fimm nætur. það gildir aðeins a flugleið- inni milli Reykjavíkur og Amsterdam, eins og áður sagði. Farseðilinn má kaupa frani að brottför og farpöntun er heimil hvenær sem farþegan- um hentaroghenni mábrevta eftir hentugleikum og farseð- illinn fæst endurgreiddur ef hann er ekki notaður. Með annafargjaldi Arnar- flugs er farþegum kleift að fara í stuttar ferðir til fjölmargra annarra staða í Evrópu og víðar á verulega lægra heildarverði en fram til þessa hefur verið unnt. Arnarflug hefur aðalum- boð fyrir hollenska flugfélag- ið KLM á íslandi og getur því selt farþegum framhaldsfar- seðla út um allan heim frá Amsterdam. Með því að tengja slíka farseðla anna- fargjaldinu er t.d. unnt að ferðast til neðangreindra staða í Evrópu í miðri viku og spara samt verulegar fjárhæð ir: Staður: Normal-fargjald Frankfurt 37.714 Genf 40.808 Vín 47.556 Róm 55.864 París 38.460 Madrid 55.290 Það skal þó haft í huga í samanburði á normal-far- gjaldi og samsettu fargjaldi eins og að ofan er sýnt, að farþeginn afsalar sér vissum sveigjanleika, þ.e. gildistími er styttur og flugið milli Is- lands og meginlandsins verð- ur að vera í gegnum Amster- dam. Því er þess að vænta að í mörgum tilvikum kjósi far- þegar eftir sem áður að greiða normal-fargjaldið. Fyrir þá Samsett fargjald Sparnaður 27.534 10.180 31.894 8.914 36.414 11.142 38.833 17.031 27.922 10.538 38.811 16.479 sem þurfa að fara á marga staði í sömu ferðinni og vilja hafa sem mestan sveigjan- leika er normal-fargjaldið enn sem fyrr besti kosturinn. Annafargjaldið hentar vel þeim sem eru tímabundnir, þeir þurfa ekki að dvelja yfir helgi til að komast hjá því að borga normalfargjald og spara sér um leið hótelkostn- að og uppihald. Fyrirtæki sem notfæra sér þetta nýja Umsjón: Ásta R. Jóhannesdóttir fargjald spara sér einnig auknar dagpeningagreiðslur til starfsmanna sinna. Nýtt fargjald - Stand by Það kom fram í máli Magn- úsar Oddssonar er hann kynnti annafargjaldið að í vormyndi bæði Arnarflug og Flugleiðir bjóða nýtt fargjald svokallað „stand by“ fargjald sem verð- ur mun lægra en fargjöld sem nú giltu. Þau yrðu háð aldurs- ákvæðum þ. e. aðeins fyrir 26 ára og yngri. Ekki verður unnt að bóka far fyrirfram á þessu fargjaldi, en farþeginn verður látinn vita með sól- arhrings fyrirvara hvort hann kemst með því flugi sem hann hefur keypt farseðil með, þannig að rnenn eru á nokk- urskonar biðlista. Föstudagur 8. febrúar 1985 ÁBÓT Arnarflugsklúbburinn Nýjung í þjónustu flugfarþega ■ Arnarflughefurstofnaðfé- lag fyrir þá farþega sína, sem greiða hæst fargjöld. Félagið nefna þeir Arnar- flugsklúbbinn eða Eagle Club og geta allir sem greiða svo- kallað „annafargjald" eða hærra orðið félagar. Hver félagi fær félagskort, sem skráð er á nafn, og fær eigandi kortsins aukna þjón- ustu, s.s. afslátt með því að sýna það. Kortið gildir í eitt ár frá útgáfu. Farþegar Arnarflugs sem kjósa að verða félagar sækja um það á sérstökum umsókn- areyðublöðum og verða félag- ar til eins árs. Hafi þeir síðan ekki ferðast með Arnarflugi í 12 mánuði rennur aðild þeirra sjálfkrafa út. Þessi háttur á að veita far- þeguni, sem greiða hæst fargjöld, aukna þjónustu, er algjör nýjung hér á landi og þekkist varla i Evrópu, enda mun hugmyndin fengin frá Bandaríkjunum. Hingað til har'a flugfélög í Evrópu boðið þessum farþeg- um sérstaka þjónustu um borð í flugvélunum. samanber Saga Class farrýmið hjá Flugleiðum, og oft betri þjónustu á flug- velli. Á þessum sérstöku farrým- um fá farþegar fría drykki og meiraer lagt í matogþjónustu. FAGIEGWB FÁGWŒ B AftNAXP'.UG r<«lvf 9kvf'S:« At tluhv. <*l«g twivrj |«r- (Inftt, x«:n 'Jreií;. largj«i<li:; &g v«i!a |»im sukn* j>i(.nu>l:: ■ wnrtm: vii f-tl Akv*ftia h«!u' v«::t h'jo'i Minið CCUB og Iok! ti: olsrtn ; januw 1 Mi. rálagkr i EAtííf. CLUO g«U allir ptu otKt. «•«•, yro:6* cvukx:i.v» . Sutlnwa- la'g:»ul «4a h*"a. FarpvftKr v»ria Mayjr t:i «:»* x.-« i «««::. HxN p*» **<: > V»gum AiuarKug* t :<J: a»r-aða lunaMli ttimtt aiSld l»:cr» *t tAUlf. CIUB «:a:tl<r*:» Mag:nhug nv/na:r' .V'«. xtofnon |.<:ssa <«:«<.< «: •« y.>iu þ«lm !»i • t'Kgum A'nxrtlujj*. m graiða h»xlu l*iyj::M:r. v»ru- lo:ja xukna t.jhnu.tu. E. þ*i . swu/aimt ¥t» |u t«-oun. xorn »n hxtvi »*r «:»í llja friaotlvir. (!ugl*lóg'.:n> a yon S.«lo' FcUXjar: EACU CLUB n>:i'nir«r**!>»*Vm :>0ta m«:yhxa*i'o: »i:Urm»r þk..im K*n*r v«rður «xrlð u< i lio i;.V h*r o «-<i:r. Hir. oukna ^jonuxU oy Iriðinri:. x«:r. 'elayar i CAGUt CLUB monu r.|Ol» vciður : •tO.'lvyrl •nriursKoðvn og nxin vttia euknlng g þxgxvm px>n:n> r lr»ml:A<i!r.i. ■ Svona líta félagskort Arn- arflugsklúbbsins út, þau eru gcfin út á nafn og opna leiðir til aukinnar þjónustu og af- sláttar fyrir eigandann. Betri aðstaða á Schiphol Aukin þjónusta félaga Arn- arflugsklúbbsins, er ekki um borð í flugvélunum, heldur er hún frekar í formi afsláttar hjá hótelum og bílaleigum og betri þjónustu á flugvelli. Sem dænii um betri þjónustu má nefna að félögum klúbbsins stendur til boða aðgangur að sérstakri setustofu á Schiphol- flugvelli í Amsterdam, sem kallast „Executive Lounge" þar geta farþegar dvalið í næði, og lesið tímarit og blöð. Enn- freniur er þar í boði vinnuað- staða til minni verkefna. í setustofu þessari er boðið upp á veitingar endurgjalds- laust, eins og te, kaffi og vínföng, svo eitthvað sé nefnt. Félagar klúbbsins fá aðgang að sérstökum innskráningár- boröum á Schiphol-flugvelli, þar sem afgreiðsla er hraðari. Verulegur afsláttur Allir félagar fá 35% afslátt af bílaleigubílum hjá IR, Inter Rent, í Amstcrdam gegn fram- vísun meðlimakorts. I Zúrich fá félagar 30% afslátt af bíla- leigubílum IR. Þá njóta félagar sérstakra vildarkjara á hinu rómaða lúx- ushóteli Pulitzer í Amsterdam. Félagarfá45% afslátt afverði, auk þess sem boðið er upp á sérstakt val á herbergjum. Ennfremur er félögunt Eagle Club boðiö upp á að afhenda herbergi síðar, en jafnan gerist, Er það með sérstöku tilliti til brottfarar Arnarflugs fá Amsterdam, en það er klukkan 18.00. Margir furða sig e.t.v. á því hvað átt sé við með því að Eagle Club-félagar geti valið úr herbergjum á Pulitzer hótel- inu. Þetta lúxus hótel, sem margir íslendingar þekkja er í hjarta Amsterdam og er til húsa í nítján sambyggðum sautjándualdar byggingum við Princengract og eru engin tvö herbergi eins. Félagar klúbbsins fá einnig afslátt af gistingu á lúxushótel- inu Appollo, sem er í aðalvið- skiptahverfi Amsterdam. Állir félagar munu fá sent sérstakt fréttabréf félagsins, þar sem greint er frá því, sem er á döfinni hverju sinni. Til dæmis verður greint frá nýjuni fargjöldum einnig ferðamögu- leikum frá þeini borgum, sem Arnarflug flýgur til, sem eru Amsterdam, Zúrich og Dúss- eldorf. Stefnt er að því að fá enn frekari afslætti fyrir félags- ntenn af ýmiskonar þjónustu í framtíðinni og verður þá greint frá því í fréttabréfinu. Félagar í Arnarflugsklúbbn- unt hafa einnig aðgang að sínta- og telexþjónustu á skrif- stofum Arnarflugs erlendis.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.