NT - 08.02.1985, Blaðsíða 11
■ Jesus Christ Superstar - söngieikurinn var settur á svið á skemmtuninni, og tókst vel.
í Háskólabíói
útfært í kabarett stíl, og það
fór ekki milli mála að nóg er af
föngulegu fólki í Verslunar-
skólanum.
Nemendamótsdagurinn er
langur og strangur, og hefst
með partýum í heimahúsun,
um níuleytið í morgunsárið.
Þessar veislur standa oft fram
til klukkan 13, og er þá farið á
skemmtunina, sem haldin er í
Háskólabíó, eins og áður segir.
Skemmtunin stendur allt fram
til kl. 17,ogerþáfariðogskipt
um föt, og haldið á eitthvert af
hirium mörgu veitingahúsum,
og sest að snæðingi. Partý hefj-
ast aftur um klukkan 21, og um
miðnættið er haldið á ball, og
dansað á meðan orkan leyfir.
Þeir al-hörðustu, fara síðan í
veislur eftir ball.
■ Úr leikritinu Aljóna og Ivan. Inga Hildur Haraldsd. sem
„Grái úlfurinn.
Aljóna og ívan í Lindarbæ
■ Sýningar á barnaleikritinu
Aljóna og ívan á vegum Leík-
listarskóla íslands og Tónlist-
arskólans í Reykjavík verða i
Lindarbæ á föstudag, sunnu-
dagogþriðjudag. Allarsýning-
arnar hefjast kl. 17.00 (kl.5 ).
Miðapantanir eru í síma
21971, en þar er símsvari og
svarað allan sólarhringinn.
■ Atriði úr leikritinu Gísl.
Leikfélag Reykjavíkur:
Dagbók Önnu Frank,
Agnes og Gísl
■ í kvöld (föstudagskvöld)
sýnir Leikfélag Reykjavíkur
Dagbók Onnu Frank, sem sýnt
hefur verið frá því snemma í
haust. Hallmar Sigurðsson
leikstýrir. Guðrún Krist-
mannsdóttir leikur Önnu
Frank, og er þetta frumraun
hennar í atvinnuleikhúsi. For-
eldra hennar leika Sigurður
Karlsson og Valgerður Dan,
en aðrir leikendur eru Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Kristján
Franklín Magnús, Jón Sigur-
björnsson, Gísli Halldórsson,
Ragnheiður Tryggvadóttir,
Jón Hjartarson og María Sig-
urðardóttir.
Sýningum fer senn að fækka
á þessu vinsæla leikriti.
Annað kvöld (laugardags-
kvöld) er Agnes - barn
Guðs á fjölunum, en þetta
leikrit Johns Pielmeier hefur
verið sýnt víða um lönd síðustu
ár. Sýningin þykir óvenju
áhrifamikil og vel leikin.
Leikarar eru þær Guðrún
Gísladóttir, Sigríður Hagalín
og Guðrún Ásmundsdóttir, en
leikstjóri er Þórhildur Þorleifs-
dóttir.
Á sunnudagkvöldið er Gísl
á sýningarskránni, en það hef-
ur nú verið sýnt á annað ár og
sýningar nálgast 70. Til stóð að
taka verkíð út af verkefnaskrá,
en vegna gífurlegrar aðsóknar
verður það sýnt áfram enn um
sinn. Fimmtán leikararsyngja,
leika og dansa í þessu víðfræga
verki Brendans Behans, sem
Stefán Baldursson leikstýrir.
Sigurður Rúnar Jónsson
stjórnar tónlistinni, en með
stærstu hlutverk fara Gfsli
Halldórsson, Martgrét Helga
Jóhannsdóttir, Jóhann Sigurð-
arson (gíslinn), Guðbjörg
Thoroddsen og Hanna María
Karlsdóttir.
Litli Kláus og stóri Kláus
í Bæjarbíó
■ Revíuleikhúsið sýnir Litla
Kláus og stóra Kláus í Bæjarbí-
ói í Hafnarfirði laugardag og
sunnudagkl. 14. Miðapantanir
eru allan sólarhringinn í síma
46600. Sýningum fer að fækka.
Síðustu sýningar á
Carmen
■ Umhelginaverða3sýning-
ar á Carmen. föstudags-, laug-
ardags- og sunnudagskvöld kl.
20 og eru þetta jafnframt síð-
ustu sýningar. í aðalhlutverk-
um eru m.a. Sigríður Ella
Magnúsdóttir og Ólöf Kolbrún
Harðardóttir.
Föstudagur 8. febrúar 1985 11 Blað II
Kvikmynd í MÍR
um gasleiðsluna
milli Síberíu og V-Evrópu
■ Kvikmyndasýning verður
að venju í húsi MÍR, Vatnsstíg
10 n.k. sunnudag, 10. febrúar.
kl. 16.00. Sýnd verðurheimild-
arkvikmynd um hinar ntiklu
jarðgasauðlindir í Vestur-Sí-
beríu, nýtingu þeirra og eink-
um gasleiðsluna miklu til Vest-
ur-Evrópulanda, sem tekin var
í notkun í fyrra. Skýringar
með myndinni eru á ensku.
Aðgangur ókeypis og öllum
heimill.
Myndakvöld
Ferðafélags íslands
■ Ferðafélagið verður með
myndakvöld miðvikudaginn
13. febrúar að Hverfisgötu
105, Risinu, og hefst það kl.
20:30 stundvíslega. Grétar Ei-
ríksson sýnir myndir og segir
frá eftirtöldum stöðum: Karls-
drætti, Núpsstaðarskógi,
Öskju, Hljóðaklettum, Þúfu-
verum, Eyvindarkofaveri,
Grímsvötnum, Þingvöllum,
Heiðmörk, Selatöngum og
Borgarlandi.
Eftir hlé sýnir Tryggvi Hall-
dórsson myndirfrá: Loðmund-
arfirði, Portúgal, Hagavatni og
Jarlshettum.
Grétar og Tryggvi koma
Útivistarferðir
■ Fjallaferð á þorra: Helgar-
ferð 8.-10. febr. Gist verður í
húsi og sundlaug er á staðnum.
Upplýsingar og farmiðar á
skrifstofunni Lækjargötu 6a s.
14606.
Gullfoss í Idakaböndum:
Sunnudaginn 10. febr. kl.
10.30. Einnig verður farið að
Brúarhlöðum, Geysi, Hauka-
dal, Bergþórsleiði og víðar.
Kleifarvatn - Krísuvík og ná-
grenni: Sunnudaginn 10. febr.
kl. 13.00. Hverirogfrostmynd-
anir við Seltún. Létt ganga.
Frítt fyrir börn með fullorðn-
um. Brottför í ferðirnar frá
Umferðarmiðstöðinni að vest-
anverðu.
Útivistarfélagar munið að
gera skil á árgjaldinu. Þá fæst
10. ársrit sent.
Myndasýning
Breiðfirðingafélagsins
■ Breiðfirðingafélagið í
Reykjavík efnir til myndasýn-
ingar í Domus Medica sunnu-
daginn 10. febrúar kl. 14.30.
Þátttakendur úr ferðurn félags-
ins í Þórsmörk sumarið 1983
og til Vestmannaeyja 1984 eru
hvattir til að fjölmenna og taka
með sér myndir.
Allir félagar og gestir vel-
komnir. Kaffiveitingar.
■ Eitt verkanna á sýningu Jónínu Guðnadóttur.
Skúlptúrsýning Jónínu
.■ Jónína Guðnadóttir, leir-
' listamaður, opnar sýningu á
skúlptúrum, lágmyndum o.fl.
í Hafnarborg, menningar- og
listastofnun Hafnarfjarðar að
Strandgötu 34, laugardaginn
9. Sýningin er opin daglega frá '
víða við og gefst hér gott
tækifæri til að sjá þá staði sem
Ferðafélagið skipuieggur ferð-
ir til. Veitingar verða í hléi.
Allir velkomnir, félagar og
aörir.
Ferðir
Ferðafélags íslands
■ Öxarárfoss í klakabönd-
um: Öxarárfoss i klakabönd-
um er sjaldan fallegri en núna.
Gengið verður niður AI-
mannagjá að fossinum og
víðar, eftir því sem tíminn
leyfir. Þingvellireruskoðunar-
verðir á öllum árstímum.
Brottför er frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin. Far-
miðar seldir við bíl. Frítt fyrir
börn í fylgd fullorðinna.
Ferö í Brekkuskóg helgina 15.-
17. febrúar. Farin verður helg-
arferð í Brekkuskóg helgina
15.-17. febrúar og gist í sumar-
bústöðum. Gullfoss skoðaður
í klakaböndum, skíðagöngur
og gönguferðir. Leitið upplýs-
inga á skrifstofu Ferðafélags
íslands.
kl. 14-19. Henni lýkur 24.
febrúar. Þettaer fimmtaeinka-
sýning Jónínu en hún hefur
tekið þátt í fjölda samsýninga
innan lands sem utan, m.a.
Scandinavia Today í Banda-
ríkjunum og Form Island sem
hófst í Helsingfors á síðast-
liðnu ári.
Frestun kaffiboös
Vegna óviðráðanlegra að-
stæðna seinkar kaffiboði fyrir
Breiðfirðinga 60 ára og eldri til
sunnudagsins 12. maí, og verð-
ur það þá í félagsheimili Bú-
staðakirkju. Vinsamlega
breytið dagsetningu á heim-
sendri dagskrá.
Stjórn Breiöfirðingafélagsins
Félagsvist
Skagfirðingaféiagsins
■ Skagfirðingafélagið í
Reykjavík verðúr með félags-
vist í Drangey, Sfðumúla 35,
sunnudaginn 10. febr. Byrjað
verður að spila kl. j4.00.
:gL
Laugardagskaffi
Kvennahúss
■ Laugardaginn '9. febrúar
verður verkefnið Klassa píur.
Vorkonur Alþýðjfleikhússins
ræða um verkið, |fni þess og
vinnu við það. Wi.