NT - 08.02.1985, Qupperneq 7
■ Þaö er vissara að hátt sé til
lofts þar sem Richard dansar.
Þau voru bæði sammála um það
að ágætis félagsskapur væri þeirra
á milli, og Helen sagði: „Það er
hreinlega ekki tími til annars en að
vera vinir og aðstoða livort annað,
Hcr á Islandi búum við saman í
íbúð, og það gengur ágætlega."
Eruð þið bindindismenn á vín
og tóbak?
í ljós kom að Richard reykir, en
ekki Helen, en hvað áfengi snertir
virðist sent þau geri lítið af þvi.
Að lokum, hvernig hafa mót-
tökurnar verið hér á landi?
Þær hafa verið góðar sagði Hel-
en sem greinilega var málgefnari.
Hinsvegar undraðist Richard
hversu fáir áhorfendur hefðu verið
fyrsta kvöldið sem þau skemmtu í
Hollywood.
■ Skötuhjúin Richard og Hel-
en í Hollywood á æfingu, og
virðist greinilega fara vel á með
þeim.
-
—
Selfoss:
Tveir nýir skemmtistaðir
opna með stuttu millibili
■ Guðjón Guðlaugsson framkvæmdastjóri Inghóls á einum af
börum staðarins. Eins og sjá má á myndinni, er bjórlíki til sölu í
Inghól, eins og vel flestum skemmtistöðum í dag.
■ Skemmtanalíf á Selfossi virð-
ist vera í miklum uppgangi, cf
marka má þá staðreynd að nú
með stuttu millibili, hafa tveir
nýir staðir litið dagsins Ijós. Það
er Gjáin, sem er til húsa í gamla
kaupfélagshúsinu. Eigendur
Gjárinnar eru sex: Örn Grétars-
son, Sesselja Sigurðardóttir, Sig-
urður Þór Sigurðsson, Kristín
Gunnarsdóttir, Guðmundur
Jónsson og Sigrid Foss.
Staðurinn selur bjórlíki og létt-
an málsverð. Gjáin er hugsuð
með svipuðu fyrirkomulagi og
margir staðir sem hafa risið á
höfuðborgarsvæðinu, og ganga
undir nafninu bjórstaðir. Gjáin
er skemmtilegur staður þar sem
innréttingar eru látlausar, en
jafnframt sérstakar.
Einn er sá galli, að mati Sel-
fyssinga, sem setur þá ekki við
sama borð og bjórlíkisunnendur
á höfuðborgarsvæðinu. Ekki hef-
ur fengist leyfi til þess að hafa
staðinn opinn lengur en til klukk-
an 23:30, að sögn eigenda staðar-
ins, er ástæðan sú að Jón Helga-
son dómsmálaráðherra telur að
einungis sé um að ræða matsölu-
stað, og ekki sé ástæða til að ætla
annað en að menn hafi lokið því
að seðja hungur sitt fyrir mið-
nætti. Hinsvegar virðist Jón telja
að Reykvíkingar þurfi lengri
tíma til þess að skola niður
samlokunni sinni, ef marka má
opnunartíma samskonar staða í
Reykjavík. Þetta horfir þó allt til
bóta, þar sem að bæjarráð hefur
samþykkt breytingartillögu á lög-
reglusamþykkt staðarins, sem
gerir það að verkum að mögulegt
verður að hafa Gjána opna jafn
lengi, án þess að um ólöglegt
athæfi sé að ræða. Enn er þó eftir
að samþykkja breytinguna í
bæjarstjórn, en að sögn bæjar-
stjórans Stefáns Jónssonar eru
litlar líkur til þess að tillagan
verði felld.
Inghóll er nýr staður sem var
formlega tekinn í notkun síðast-
liðinn föstudag, með opnunar-
hófi. Staðurinn tekur um þrjú
hundruð manns, og er kærkomin
nýjung fyrir Selfossbúa, þar sem
þeir hafa ekki haft almennilega
aðstöðu fyrir sínar skemmtanir
svo sem þorrablót, og sagði Guð-
Föstudagur 8. febrúar 1985 7 Blsð II
„Long drink“ eftir
Símon í Naustinu
- hristur árið 1967
■ Aftur birtum við íslenskan
verðlauna-kokkteil, og ekki að
ástæðulausu. Kokkteillinn
Stranger eftir Símon
Sigurðarson sem vinnur í
Naustinu er einn af þekktustu
íslensku kokkteilunum sem
hafa unnið til verðlauna.í
síðasta þætti var drykkurinn
Appolo 13 birtur, og fellur hann
í flokk „Long drink“.
„Stranger" er hinsvegar
kokkteill, og eins og útskýrt var
síðast, felst munurinn fyrst og
fremst í magninu sem er í
drykknum.
Símon Sigurjónsson er einn
af þeim fáu sem hafa veriö
með í nær öllum
kokkteiikeppnum sem haldnar
hafa verið á vegum
barþjónaklúbbs íslands frá
stofnun hans, en klúbburinn
varstofnaðurárið 1964. Þessi
tiltekni kokkteill sem birtur er í
Hanastéli helgarinnar vann til
verðlauna árið 1967.
Stranger
2 cl. Cacao Marfe Brizard
2. cl. Cointreau
2 cl. Sítrónusafi
Hristist vel saman með ís,
og er síðan hellt i
kokkteilglas. Skreyting er
ekki tiltekin og því ekki hægt
að leiðbeina í þvi tilfelli.
Stranger er kokkteill sem
I íkar vel hvort sem er fyrireða
eftir mat, og hefur notið
vinsælda allt frá því að Símon
hristi hann í keppni.
Þetta er ekki fyrsta
uppskriftin sem birt er eftir
Símon, því birt var
áramótabolla Símonar, í
jólamatargerðarblaði, sem
kom út þann 18. desember
síðastliðinn.
Barþjónaklúbbur íslands,
efnir til „Long drink“ keppni í
vor, nánar tiltekið þann 21.
apríl, og í þetta skiptið verður
keppt í „Long drink“, þar sem
síðasta keppni sem fram fór
var helguð kokkteilum. Þá var
keppí bæði í sætum og þurrum
kokkteilum á Hótel Sögu.
Sigurvegarar úr hverri keppni
fara síðan erlendis, og etja
kappi við bragðlauka
evrópskra fagbræðra sinna.
Barþjónakeppni getur verið
spennandi, og oft er mjótt á
mununum í stigagjöf, sem
dómarar veita. Veitt eru stig,
bæði fyrir bragð og útlit
drykksins, og reynir því bæði
á augu keppandans jafnt sem
bragðlauka. Síðan leggur
keppandinn drykkinn undir
mat dómara, sem valdir eru úr
gestum sem mættireru til þess
að horfa á keppnina. Komi til
að tveir eða fleiri keppendur
séu jafnir að stigum, fer fram
endurhristing á kokkteilunum,
eða eins og barþjónar kalla
það „reshake", og er síðan
úrskurðað endanlega um hvor
þykir betri og ásjálegri.
Keppendur sem lenda í
endurhristingu, vita ekki hvort
þeir eru að hrista drykkinn upp
í efsta sætið, eða að keppa
um þriðja sætið. Þetta m.a. er
það sem gerir keppnina
spennandi.
Keppnin nærsíðan hámarki
sínu, þegar dómarar hafa lokið
við að gefa drykkjunum
einkunn, og dómnefnd hefur
farió yfir niðurstöðurnar, og
keppendur bíða spenntir eftir
úrslitum keppninnar, sem
tilkynnt eru undir lok kvöldsins.
■ Inghóll er á tveimur efstu hæðunum í Fossnesti.
mundur Guðlaugsson fram-
kvæmdastjóri bifreiðastöðvar
Selfoss að staður sem þessi hefði
lengi verið draumur, og væri nú
orðinn að veruleika.
Inghóll er mikið bókaður fyrir
einkasamkvæmi næstu vikur, en
reynt verður að halda almenn
böll inn á milli.
Nafnið Inghóll er orðið til í
samkeppni sem efnt var til áður
en staðurinn opnaði, og þótti
nafnið vel við hæfi, þar sem
Ingólfsfjall er í nálægð Selfoss,
og hæsti toppur þess ber nafnið
Inghóll.
Innréttingar í Inghól eru hinar
skemmtilegustu, og staðurinn er
á tveimur hæðum. Inghóll er til
húsa í Fossnesti á tveimur efstu
hæðunum, og er rekið af Bif-
reiðastöð Selfoss hf.