NT - 08.02.1985, Page 8

NT - 08.02.1985, Page 8
ÁBOT Föstudagur 8. febrúar 1985 8 Blað II Útvarp — SJónvarp Utvarp föstudag kl. 20:40 „Kýrin hennar Jóu“ Álda Snæhólm Einarsson segir f rá ■ „Ég hef aö undanförnu lesiö nokkrum sinnum í kvöld- vöku útvparsins þætti úr endurminningum móður minnar, en þessi frásagnarþátt- ur „Kýrin hennar Jóu" er mín endurminning og skrifuð af mér,“ sagöi Alda Snæhólm Einarsson, er blaðamaður NT ræddi viö hana í síma um dagskráratriði það sem nefnist þessu nafni, og verður í kvöld- vöku útvarpsins kl. 20.40 í kvöld. „Við bjuggum uppi í sveit á Laxárdal í A-Húnavatnssýlu, en faðir minn þoldi ekki hey- ryk, svo hann varð að hætta búskap. Þá fluttum viö búferl- um. Viðvorum mörg systkinin og ég var 8 ára gömui, þegar þetta var. Fjölskyldan fluttist þá á Blönduós. Farið var á hestum um skarð í fjallaskag- ann milli Laxárdals og Langa- dals og hét skarðið Geitaskarð, en komið var niður að sam- nefndum bæ. Þar var höfuöból og er enn, og þar stoppuðum við og var vel tekið. Húsmóðir- in fór framá að fá að hafa mig um sumarið, og það varð úr. Varégþarsvo í nokkursumur. Stuttu eftir að ég kom aö Geitaskaröi gerist atburður sá sem ég ætla að segja frá í kvöld. Yngsta dóttirin á Geita- skarði Jóhanna gifti sig um sumarið og flutti sig til Sauðár- króks, og henni var gefin snemmbæra í brúðargjöf, - en það er „Kýrin hennar Jóu”,sem hér segir frá og ferðalagi því. ■ Alda Snæhólm Einarsson var búsett nærri 20 ár erlendis, en Hermann Einarsson fiski- fræðingur (d. 1966), maöur hennar, vann á vegum FAO í ýmsum heimshlutum. Þaö er þó atburöur úr íslensku sveita- líli, scm Alda ætlar aö rilja upp nú, en hún var 8 ára þegar þetta gerðist. NT-mynd: Arni Bjarna. sem við lentum í saman, kýrin og ég,“ sagði Alda. ijónvarp föstudag kl. 21.25; Með grimmdina í klónum: Haukur getur veitt bráð sem er þyngri en hann sjálfur ■ Með grimmdina í klónum heitir þáttur um ránfugla sem sýndur er í sjónvarpinu um þessar mundir. Þátturinn í kvöld, föstudagskvöld, er um haukategundir í Astralíu. Þetta er áströlsk náttúrulífs- mynd gerð af sömu aðilum og mynd um fálka, sem sýnd var nýlega í sjónvarpinu. í myndinni í kvöld er sýnt hvaða aöferðum kvikmynda- tökumennirnir beita til að ná jafngóðum nærmyndum af ránfuglum og raun ber vitni Við sjáum hvernig haukar geta jafnvel' ráðið við bráð sem er þyngri en þeir sjálfir og gripið fugla á flugi með stórum klóm sínum. Þýðandi og þulur er Óskar Ingimars- son. ■ Haukur rennir sér á kan- ínu, en af þcim er nóg í Ástralíu. Þær voru fluttar inn í landið og fjölgaöi svo ört að þær urðu að plágu. Sjónvarp föstudag kl. 21.55: Vinnan er leið- inleg og hjóna- bandið líka! ■ Föstudagsmynd sjónvarps- ins nefnist Við frcistingum gæt þín og er bandarísk bíómynd frá 1971. Á frummálinu heitir hún The Marriagc of a Young Stockbroker. Sýning hefst kl. 21.55. Þar segir frá ungum, aðlað- andi að aðgerðalitlum manni William Alren, sem á eitthvað erfitt með aö koma lífi sínu í ákveðinn farveg. Honum leið- ist starf sitt sem vcrðbréfasali, ekki síst þegar yfirmaður hans minnir hann á þá gullvægu reglu að „verðbrefasali sem ekki sýnir ágengni, er á rangri hillu”. Og hjónabandið gerir honum ekki lífið léttara. Að vísu elskar hann konu sína, Lísu, en honum erfyrirmunað að láta í Ijós ást sína. Hann er sagður dæmigcrt fórnarlamb siðfræði miðstéttarmanns nú- tímans, sem býr við vinnuálag og þjóðfélagslega firringu. Hans flóttaaðferð er að láta sig dreyma kynferðislega drauma og flestum tómstund- urn sínum ver hann í að „skoða stúlkur". Líklega hefði líf hans haldið áfram að líða svona áfram, ef ekki hefðu orðið tveir atburð- ir, sem snertu hann og leiddu til að hann fór alvarlega að íhuga hvar hann væri staddur. Starfsfélagi hans deyr af hjartaáfalli, afleiðingu hinnar „gullvægu reglu“, og kona lians stendur hann að verki þar sem hann sinnir helsta áhuga- máli sínu. Hún ákveður að yfirgefa liann í kjölfarið. Leikstjóri er Lawrence Turman. Þýðandi er Björn Baldursson. ■ Hjónaband þeirra Williams og Lisu Alren er ekki upp á marga liskana, aðallega vegna deyfðar eiginmannsins. Þau Richard Benjamin og Johanna Shimkus fara með hlutverk þeirra. Sjónvarp laugardag kl. 21. Sumir ættu ekki að gerast þjófar! ■ Fyrri laugardagsmynd sjónvarpsins hefst kl. 21. Hún hetir Demantaránið (Hot Rock) og er bandarísk bíó- mynd frá 1972. Leikstjóri er Peter Yates og með aðalhlut- verk fara Robert Redford, George Segal, Zero Mostel, Ron Leibman, Paul Sand, Moses Gunn og Charlotte Rae. Þar segir frá því, þegar John Archibald Dortmunder (Robert Redford), sem setið hefur í fangelsi í fjögur ár og reyndar lært þar pípulagning- ar, er látinn laus og á móti honum tekur mágur hans Andrew Kelp (George Segal), sem hefur fengið dá- indis góða hugmynd. Það er hinn fullkontni og einfaldi glæpur að ræna ófnetanlega dýrmætum afrískum demanti af safni einu. Þegar Dort- munder hefur verið fræddur um það að öruggur kaupandi sé þegar fundinn að dernant- inum, slær hann til. Mágarnir tveir ásamt tveim samverkamönnum hefjast handa og með ágætum árangri tekst þeim hið erfiða verk að komast höndum undir demantinn. Til að vera örugg- ir unt að glata ekki dýrgripn- um á einhvern hátt, grípa þeir til þess ráðs að einn þeirra gleypir demtantinn, en sá er óðar handtekinn af lög- reglunni! Þaðan í frá snýst hugur félaganna þriggja auðvitað ekki um annað en að endur- heimta félagann, og þó um- frant allt demantinn, áður en einhverannar verðurfyrri til. Föstudagur 8. febrúar 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Sig- urðar G. Tómassonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður- fregnir. Morgunorð - Kristján Þor- geirsson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Perla“ eftlr Sigrúnu Björgvins- dóttur Ragnheiður Steindórsdóttir les (5). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 „Mér eru fornu minnin kær“ Einar Kristjánsson frá Hermundar- felli sér um þáttinn. (RÚVAK). 11.15 Morguntónleikar 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 „Blessuð skepnan“ eftir James Herriot Bryndís Viglunds- dóttir les þýðingu sína (2). 14.30 Á léttu nótunum Tónlist úr ýmsum áttum. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar 17.10 Siðdegisutvarp Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Daglegt mál Valdimar Gunn- arsson flytur þáttinn. 20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thoroddsen kynnir. 20.40 Kvöldvaka a. Af Árna Grims- syni Benedikt Sigurðsson lýkur frásögn sinni. b. M.A. kvartettinn syngur. Undirleikari: Bjarni Þórð- arson. c. Kýrin hennar Jóu Alda Snæhólm Einarsson flytur frum- saminn frásöguþátt. Umsjón: Helga Ágústsdóttir. 21.30 Hljómbotn Tónlistarþáttur i umsjón Páls Hannessonar og Vals Pálssonar. 22.00 Lestur Passíusálma (5) 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Ur blöndukútnum - Sverrir Páll Erlendsson (RÚVAK) 23.15 Á sveitalínunni: Umsjón: Hilda Torfadóttir. (RÚVAK). 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Nætur- útvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00 Laugardagur 9. febrúar 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 7.25 Leikfimi. Tónleikar. 8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð - Hrefna Tynes talar. 8.15 Veðurfregnir. 8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón- leikar. 8.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Valdimars Gunnarssonarfrá kvöldinu áður. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ. Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.) Óskalög sjúklinga, frh. 11.20 Eitthvað fyrir alla Sigurður Helgason stjórnar þætti fyrir börn. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 Hér og nú Fréttaþáttur í viku- lokin, 15.15 Listapopp - Gunnar Salvars- son 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 íslenskt mál Guðrún Kvaran flytur þáttinn 16.30 Bókaþáttur Umsjón: Njörður P. Njarðvík. 17.10 Alban Berg(100 áraminning) a. Atli Heimir Sveinsson flytur inn- gangsorð. b. „Sieben frúhe Lieder" c. Pianósónata op. 1 d. Fjórir þættir op. 5 Elisabet Erlingsdóttir syngur, Kristinn Gestsson leikur á píanó og Kjartan Óskarsson á klarinettu. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 Úr vöndu að ráða Hlustendur leita til útvarpsins með vandamál. 20.00 Útvarpssaga barnanna: „Ævintýri úr Eyjum“ eftir Jón Sveinsson Gunnar Stefansson endar lestur þýðingar Freysteins Gunnarssonar (23). 20.20 Harmonikuþáttur Umsjón: Bjarni Marteinsson 20.50 Björn Jónsson ritstjóri og barátta hans í bindindismalum Halldór Kristjánsson tók saman dagskrána. Lesarar með með honum. Ásgerður Ingimarsdóttir, Jón F. Hjartar, Gunnar Þorláksson, Sigurlaug Sævarsdóttir og Sigrún Gissurardóttir. 21.35 Kvöldtónleikar Þættir ur sí- gildum tónverkum. 22.00 Lestur Passiusálma (6). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá’ morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Þriðji heimurinn Þáttur i umsjá Jóns Orms Halldórssonar. 23.15 Hljómskálamúsík Guðmund- ur Gilsson kynnir. 24.00 Miðnæturtónleikar Umsjón: Jón örn Marinósson. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00. Sunnudagur 10. febrúar. 8.00 Morgunandakt Séra Hjálmar Jónsson flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 8.35 Létt morgunlög. Hljómsveit Wal Bergs leikur. 9.00 Fréttir. 9.05 Morguntónleikar a. „Eins og snjór og regn”, kantata nr. 18 eftir Johann Sebastian Bach á 2. sunnudegi í 9 vikna töstu. Kurt Equiluz, Max van Egmond og Vín- ardrengjakórinn syngja með Con- centus musicus-kammersveitinni i Vín; Nikolaus Harnoncourt stj. b. Hornkonsert í Es-dúr eftir Christ- oph Förster. Barry Tuckwell og St. Martin-in-the- Fields hljómsveitin leika; Neville Marriner stj. c. Sin- fónia nr. 29 i A-dúr K. 201 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Fil- harmoniusveitin í Berlín leikur; Karl Böhm stj. 10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. 10.25 Stefnumót við Sturlunga Ein- ar Karl Haraldsson sér um þáttinn. 11.00 Messa i Hallgrimskirkju á Biblíudegi Séra Kjartan Jónsson predikar. Organleikari: Hörður Áskelsson. Hádegistónleikar. 12.10 Dagskrá. Tónleikar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.20 Þuriður formaður og Kambs- ránsmenn Fyrsti þáttur. Klemens Jónsson tók saman, að mestu eftir bók Brynjúlfs Jónssonar frá Minna- Núpi, og stjórnar jafnframt flutn- ingi. Sögumaður: Hjörtur Pálsson. Lesarar: Sigurður Karlsson, Þor- steinn Gunnarsson, Hjalti Rögn- valdsson, Steindór Hjörleifsson, Guðrún Stephensen, Andrés Þor- steinsson, Margrét Ólafsdóttir, Guðmundur Pálsson og Þórhallur Sigurðsson. 14.40 Frá tónleikum Kammersveit- ar Reykjavikur i Áskirkju 4. des. s.l. Flytjendur: Rut Ingólfsdóttir, Szymon Kuran, Helga Þórarins- dóttir, Robert Gibbons, Inga Rós Ingólfsdóttir og Arnþór Jónsson. „Uppljómuð nótt" op. 4 eftir Arnold Schönberg. 15.10 Með bros á vör Svavar Gests velur og kynnir efni úr gömlum spurninga- og skemmtiþáttum út- varpsins. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Um visindi og fræði Laga- setning til forna. Sigurður Líndal prófessor flytur sunnudagserindi. 17.00 Frá tónleikum Sinfóníu- hljómsveitar íslands í Háskóla- bíói 7. þ.m. (fyrri hluti). Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat. Einleikari: Þorsteinn Gauti Sigurðsson. a. „Saga", tónaljóð op. 9 eftir Jean Sibelius. b. Pianókonsert nr. 2 í g-moll eftir Prokofieff. Kynnir: Jón Múli Árnason. 17.45 „Frásögnin um lestina" eftir Evu Moberg Hanna Lára Gunnarsd. les þýðingu sína. 18.00 Vetrardagar Jónas Guð- mundsson rithöfundur spjallar við hlustendur. 18.20 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 Fjölmiðlaþátturinn Viðtals- og umræðuþáttur um fréttamennsku og fjölmiðlastörf. Umsjón: Halldór Halldórsson.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.