NT - 12.03.1985, Blaðsíða 3

NT - 12.03.1985, Blaðsíða 3
m Þriðjudagur 12. mars 1985 3 „Ekki vinnudeila heldur lögbrot“ - segir Ármann Magnússon fyrrverandi formaður úthlutunarnefndar atvinnuleyfa bifreiðastjóra ■ „Deila sú sem leigubflstjór- ar standa í við Steindórsstöðina er til komin útaf hæstaréttar- dómi sem féll í júní, og kvað skýrt á um það að ekki hefði verið heimilt fyrir flmm aðila að selja 45 atvinnuleyfl. Þennan hæstaréttardóm hafa bflstjórar á Seindóri ekki virt,“ sagði Ármann Magnússon fyrrver- andi formaður úthlutunarnefnd- ar atvinnuleyfa atvinnubflstjóra þegar NT innti hann eftir því um hvað deilan snerist. Ármann vildi benda á að þrátt fyrir að lögregla telji um vinnudeilu vera að ræða, sé það ekki rétt. „Hér er um að ræða skýlaust brot á reglugerð og hæstaréttardómi, og mig furðar að nokkur geti efast um hver hafi rétt fyrir sér í þessu máli, með tilvist reglugerðarinnar. í annarri grein reglugerðarinnar frá 1983, sem fjallarum ráðstöf- un atvinnuleyfa leigubílstjóra, segir m.a.: „Enginn bifreiða- stjóri má aka allt að 8 farþega leigubifreið til mannflutninga, nema hann hafi afgreiðslu hjá bifreiðastöð, og hafi öðlast at- vinnuleyfi sem leigubílstjóri. “ Þetta reglugerðarákvæði er það skýrt að það hlýtur að taka allan vafa af um rétt þeirra bílstjóra sem eru að aka Íeyfis- lausir hjá Steindóri." Hverníg stendur á því að leigubílstjórar taka nú til þess- ara ráða? „Leigubílstjórar eru orðnir langþreyttir á að bíða þann tíma sem hefur tekið að fá Hæstarétt til þess að úrskurða um ólögmæti Steindórsmálsins. Síðan, loksins þegar dómur er fallinn, og bílstjórar halda áfram eins og ekkert hafi í skorist þá fjirðar maður sig á því hvers vegna lögreglan hefur ekki tekið meira á málinu, en raun ber vitni. Síðastliðinn júlímánuð sendi samgöngumálaráðuneytið bréf til lögreglustjóra þess efnis að lögreglan skyldi hjálpa til við lokun Steindórsstöðvarinnar, eftir 11. október ef á þyrfti að halda. Ég get ekki séð að neitt hafi verið gert í því máli. Lög- reglan verður að athuga að hér er um lögbrot að ræða, ekki vinnudeilu." Nú flytja leigubílstjórar pakka og smásendingar. Er það löglegt? „Já, frá því að ég hóf störf þá hefur alltaf verið um að ræða ferðir með ýmsa pakka og send- ingar. Þegar lög eru sett um takmarkanir á leigubifreiðum, þá er tekið fram að bifreiða- stjórar skuli í engu missa áunnin réttindi. Það liggur því ljóst fyrir að flutningar á ýmsum pökkum og sendingum fylgja þessum atvinnuleyfum.“ Að lokum sagði Ármann, að það væri ekki að undra þó að 600 manna stétt taki til sinna ráða, eftir að hafa horft upp á, að stjórnvöld aðhefðust ekkert í málinu í fjögur ár, þrátt fyrir að um meint lögbrot væri að ræða. „Alvarlegar ásakanir“ - sögðu Framamenn í gær ■ Nokkrir meðlimir bifreiða- stjórafélagsins Frama komu á skrifstofu félagsins í gær og ræddu atburði þá sem áttu sér stað síðastliðið laugardags- kvöld, þegar framrúður brotn- uðu í tveimur sendiferðabílum frá Sendibílum hf. Guðmundur Valdimarsson formaður Frama sagði í samtali við NT að ekki hefði verið um fund að ræða, heldur hefðu þessir menn óskað eftir því að ræða málin. Hljóðið í mönnum var þungt, og sveið mönnum þær ásakanir sem bifreiðastjóri sendibifreið- arinnar bar fram í fjölmiðlum í „Afskipti lögreglu ítakt við málið“ ■ „Þetta er ekki rinnu- deila, þetta er fyrst og fremst deila um rétt manns til þess að stunda þessa tilteknu atvinnu- grein, án réttinda. Það er ekki vinnudeila í mínum skilningi,“ sagði Bjarki Elíasson, yflrlögreglu- þjónn, í samtali við NT í gær. Bjarki sagðist vísa á bug öllum ásökunum um að lögregla hefði ekki sinnt þessu máli sem skyldi, og taldi að það væri ekki í verkahring leigubílstjóra eða annarra að hirta einn eða neinn með ofbeldi, þrátt fyrir að um lögbrot væri að ræða. Það væri lögreglunnar að skerast þar í leikinn, og rannsaka málið. Finnst þér að afskipti lögreglunnar af þessu máli hafi verið í lágmarki? „Ég held að þau afskipti sem þarna hafa komið til af hendi lögreglunnar hafi verið í takt við það sem átti sér stað. Það voru teknar skýrslur af þeim mönnum sem voru við- riðnir stöðvanir á leigubíl- um. Máliðhefurveriðfull- rannsakað, og ég veit ekki betur en að málið verði lagt fyrir ríkissaksóknara í dag,“ sagði Bjarki að lokum. gær. Þá sagði Guðmundur að rang- túlkun hefði átt sér stað í fjöl- miðlum, þar sem ekki var verið að elta sendiferðabílana, heldur einungis einn leigubíl, sem starfræktur er frá Steindórsstöð- inni og hefur ekki starfsleyfi. „Þeir virðast ekki þola að tapa í Hæstarétti, ntálið snýst um það, og er eftirstöðvar af hæstaréttardómnum. Þeir una ekki dómnum,“ sagði Guð- mundur að lokum. ■ Bifreiðastjórar ræða málin í húsakynnum Frama í gær. NT-mynd Sverrir. ■ „69. grein stjórnarskrárinn- ar segir til um að ekki megi setja hömlur á atvinnufrelsi manna nema almenningsheill krefjist, og þarf þá sérstakt lagaboð til. Það skilja allir hvað þetta þýðir. Við neitum því algerlega að einhver reglugerð sem sett er seinna, geti yfirunniö þetta ákvæði í stjórnarskránni. Bæði Bjami Benediktsson og Ólafur Jóhannesson sem voru einu lög- lærðu mennirnir á þingi þegar að þessi reglugerð er sett árið 1956, lýstu því yfir að þetta væri stjórnarskrárbrot,“ sagði Guð- mundur Ásmundsson í samtali við NT í gær, þegar hann var inntur álits á þróun mála í deilu leigubflstjóra. Guðmundur sagði að þeir ætl- uðu að láta reyna á þetta. „Svona einokunarhringur, eins og Frami er, lætur aldrei undan nema gegn árásum. Það verður að gera árásir á svona einokun- arhringi. Það hljóta allir að sjá þegar þeir eru upplýstir um þetta mál, hversu rotið og ólýð- ræðislegt kerfi þetta er.“ - Telur þú að bílstjóri sem ekur hjá þér á stöðinni, og hefur ekki leyfi atvinnubílstjóra brjóti reglugerð þá sem sett var 1983 um ráðstöfun atvinnuleyfa? „Reglugerðin er markleysa. Á þeirri forsendu að það er 69. grein stjórnarskrárinnar sem gildir." - Eruð þið ekki að flýta ykkur talsvert ef þið gefið ykkur að um stjórnarskrárbrot sé að ræða áður en fjallað er um málið hjá dómstólum? „Nei, og á sömu forsendu ber að líta á bílstjóra þann, sem lagður hefur verið í einelti af Frama, sem saklausan. Hann hefur ekki verið dæmdur. Frami hefur þegar fellt dóm, og það er ekki í fyrsta skipti sem það kemur fyrir áður en dómur fellur hjá dómstólum. Það er lögbrot.“ Að lokum vildi Guðmundur að það kæmi fram að honum fyndist hegðun Frama með stuðningi forráðamanna þeirra undanfarna daga, sýna að Frami væri veik samtök, en ekki sterk, og einokunarstarfsemi þeirra væri að bresta. Telur þú að með þessum atburðum síðasta hálfa mánuð- inn verði einokunarveldi Frama brotið á bak aftur? „Já.“ ■ Bifreiðastöð Steindórs, sem hefur verið mikið í fjölmiðlum upp á síðkastið vegna deilna sem risið hafa milli bflstjóra. NT-mynd: Ari.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.