NT - 12.03.1985, Qupperneq 4
Húnvetningar
Skákæfing á fimmtudag kl.
20 í félagsheimilinu, Skeif-
unni 17. Takið með ykkur
töfl og klukkur.
Húnvetningafélagið
Háteigskirkja
Föstuguðsþjónusta mið-
vikudag kl. 20.30.
Tómas Svcinsson
Minningakort
Félags velunnara Borgar-
spítalans fást í upplýsinga-
deild spítalans. Einnig eru
kortin afgreidd í síma 81200.
Ljósmyndasýning í
Bandaríska sendiráðinu
Um þessarmundirstendur
yfir Ijósmyndasýning Björns
Rúrikssonar, hjá American
Scandinavian Foundation, í
Bandaríska sendiráðinu.
Sýningin er styrkt af Thor
Thors sjóðnum og fleiri aðil-
um, og stendur hún til 29.
mars.
Birta fyrir
blind börn
Kiwanisklúbburinn Esja
hefur nú farið af stað með
happdrætti undir kjörorðinu
„Birta fyrir blind börn “. All-
ur ágóði af miðasölunni á að
renna til kaupa á tæki í nýju
Sjónþjálfunarstöðina við
Hamrahlíð í Reykjavík, sem
sérstaklega er ætlað sjón-
skertum og blindum
börnum.
Gefnir eru út 15 þús.
miðar, og er vinningurinn
Renault 11 að verðmæti kr.
376.000 krónur.
Bókin opnar
alla heima
Dagana 11.-29. mars
verður dagskrá í kennslu-
miðstöð Námsgagnastofn-
unar að Laugávegi 166 sem
ber vfirskriftina „Bókin opn-
ar alla heima“.
Markmiðið með dag-
skránni er að vekja athygli á
mikilvægi þess að börn eigi
aðgang að vönduðu fræðandi
lestrarefni. í tengslum við
dagskrána verður haldin
sýning á bókuin, sem hafa
komið út á undanförnum
árum og henta til notkunar í
skólum sem heimildar- og
uppflettirit.
Föstudaginn 22. mars
verður haldin ráðstefna um
efnið: Hvernig er unnt að efla
útgáfu á fræðandi efni fyrir
börn? Ráðstefnan er öllum
opin.
„Réttarbót
aldraðra“
Nú hefur stjórn félagsins
ákveðið að halda kynnis- og
skýringarfund þriðjudaginn
12. þ.m. kl. 3 e. hádegi, að
Hofi við Rauðarárstíg 18.
Síðast þegar við héldum fund
reyndist húsplássið of lítið,
svo við urðum að leita annað.
E, t.v. má búast við að þessi
fundarstaður reynist of lítill,
þegar fram líða stundir.
Verðum við þá bara að halda
áfram að leita að nægilega
stóru húsnæði, sem tæki á
móti öllum sem vilja mæta.
Því til okkar eru allir vel-
komnir á hvaða aldri sem er,
með málfrelsi og tillögurétt.
Við viljum því eindregið
hvetja alla þá aðila, sem
málstað aldraðra í Reykjavík
og nágrenni vilja styðja, að
mæta á þennan fund. Verið
velkomin.
Stjórnin.
Dag*
bók
Þriðjudagur 12. mars 1985
Kvenfélagasamband
íslands
Kvenfélagasamband ís-
lands vill vekja athygli á því
að Leiðbeiningastöð hús-
mæðra á Hallveigarstöðum
verður fyrst um sinn opin kl.
2^1 síðdegis alla virka daga
nema laugardaga.
Stjórnin.
Heilsugæsla í Borgar-
firði
Einar Sindrason háls-, nef-
og eyrnalæknir ásamt öðrum
sérfræðingum Heyrnar- og
talmeinastöðvar íslands
verða á ferð í Borgarnesi
dagana 15. og 16. mars n.k.
Rannsökuð verður heyrn
og tal og útveguð heyrnar-
tæki.
Peir, sem hafa áhuga á að
nýta sér þessa þjónustu, eru
beðnir að hafa samband við
Heilsugæslustöð Borgarness.
Heyrnar- og talmeinastöð
íslands
Fundarboð
Fræðafundur í Félagi
áhugamanna um réttarsögu
verður haldinn fimmtudag-
inn 14. mars n.k. kl. 20.30 í
stofu 103 í Lögbergi, húsi
Lagadeildar Háskólans.
Fundarefni: Már Jónsson,
B.A., flytur erindi, er hann
nefnir: „Um útburð barna á
íslandi á 18. og 19. öld“
Fundurinn er öllum opinn
og eru félagsmenn og aðrir
áhugamenn um lög og sögu
hvattir til að fjölmenna.
Myndakvöld
Ferðafélagið efnir til
myndakvölds miðvikudaginn
13. mars, kl. 20.30 í Risinu á
Hverfisgötu 105. Efni: Skúli
Gunnarsson sýnir myndir frá
Snæfellssnesi og segir frá
gróðri og staðháttum á Nes-
inu. Einnig sýnir hann mynd-
ir frá ýmsum stöðum á land-
inu. Eftir hlé verða kynntar
páskaferðir Ferðafélagsins í
máli og myndum. Tækifæri
gefst til þess að spyrja og
leita nánari upplýsinga um
ferðirnar.
Allir velkomnir félagar og
aðrir. Veitingar í hléi. Að-
gangseyrir kr. 50.00
Ferðafélag íslands
Skák
Skákkeppni framhalds-
skóla 1985 hefst að Grens-
ásvegi 46 föstudag, 15. mars
n. k. kl. 19.30 Keppninni
verður framhaldið laugar-
dag, 16. mars kl. 13-19 og
lýkur sunnudag, 17. mars kl.
13-17.
Fyrirkomulag er með svip-
uðu sniði og áður, hver sveit
skal skipuð fjórum nemend-
um á framhaldsskólastigi (f.
1963 og síðar), auk 1-4 til
vara. Tefldar verða sjö um-
ferðir eftir Monradkerfi, ef
næg þátttaka fæst. Að öðrum
kosti verður sveitum skipt í
riðla, en síðan teflt til úrslita.
Umhugsunartími er ein
klukkustund á skák fyrir
hvorn keppanda. Almennar
skákreglur gilda, nema þegar
annar hvor keppandi á eftir
fimm mínútur af umhugsun-
artímanum, þá er teflt eftir
hraðskákreglum.
Fjöldi sveita frá hverjum
skóla er ekki takmarkaður.
Sendi skóli fleiri en eina
sveit, skal sterkasta sveitin
nefnd a-sveit, næsta b-sveit
o. s.frv.
Þátttöku í mótinu má til-
kýnna í síma Taflfélags
Reykjavíkur á kvöldin kl.
20-22,1 síðasta lagi fimmtu-
dag, 14. rttars.
Fjórðungs-
samband
Norðlendinga:
Iðnráðgjafi fyrir
Norðurland vestra
■ Fjórðungssamband Norð-
lendinga hefur auglýst eftir iðn-
ráðgjafa, sem ætlað er að hafa
aðsetur á Blönduósi. Er það í
samráði við ákvörðun þings
sambandsins, sem haldið var á
Reykjum í Hrútafirði í fyrra, en
svéitarstjórnarmenn á vestur-
svæðinu hafa sótt það mjög fast
að fá iðnráðgjafa í héraðið.
Áskell Einarsson fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssam-
bandsins sagði í samtali við NT,
að lögum samkvæmt ætti það
rétt á fjárframlagi fyrir tvo iðn-
ráðgjafa á Norðurlandi, en
hingað til hefði gengið treglega
að fá fyrir þann síðari. Ef góður
maður fengist, yrði iðnráðgjaf-
inn ráðinn og myndu sveitarfé-
lögin og Fjórðungssambandið
standa straum af kostnaði við-
starfið, fáist ekki fé frá ráðu-'
neytinu.
„Það er vafalaust þörf fyrir
svona mann þarna vestur frá.
Spurningin er hvernig starfs-
maðurinn nýtist, en það hefur
sitt að segja, að hann sé þarna
til staðar og að hægt sé að ná í
hann,“ sagði Áskell. Hann
sagði, að meiningin væri, að
iðnráðgjafarnir tveir hefðu með-
sér verkaskiptingu, en yrðu ekki
bundnir eigin svæði eingöngu.
„Við hugsum okkur að iðn-
ráðgjafarnir gefi sér meiri tíma
til að fara á einstaka staði og
gefi gott færi á sér, en.hverfa
meira frá því að taka að okkur
einstök verkefni og fylgja þeim
eftir. Við stefnum að því að
virkja sem flesta og höfum í
huga að koma á námskeiðum til
að kenna mönnum að standa að
stofnun fyrirtækja,“ sagði
Áskell, þegar hann var spurður
hvort einhverjar nýjungar væru
á döfinni vegna væntanlegrar
ráðningar nýs iðnráðgjafa.
Hann sagði, að svona nám-
skeiðahald væri mjög dýrt og
mörg ljón væru í veginum. „Það
alvarlegasta er að sú aðstoð,
sem opinberar stofnanir myndu
veita við slík námskeið, er
verðlögð eins og maður væri að
kaupa þjónustu af verkfræði-
stofu. Þetta þykir okkur ósann-
gjarnt,“ sagði Áskell Einarsson
framkvæmdastjóri Fjórðungs-
sambands Norðlendinga.
Ferðamálaráð íslands:
Tillögur af
ýmsum toga
- fyrir þá sem hyggja á bygg-
ingu eða endurbætur á tjaid-
og útivistarsvæðum
■ Ferðamálaráð héfur tekið
saman bækling með tillögum að
tjaldsvæðabúnaði til afnota fyrir
þá sem hyggja á byggingu eða
endurbætur á tjald- og útivistar-
svæðum.
í bæklingnum koma fram til-
lögur af ýmsum toga sem henta
við mismunandi aðstæður og
fyrir mismunandi stór tjald-
svæði. Sýndar eru hugmyndir
að einingakerfi sem hentar vel
þar sem byggja þarf upp í áföng-
um, allt frá litlu tjaldstæði með
lágmarks snyrtiaðstöðu upp í
stór svæði með fjölbreyttri þjón-
ustu. Einnig er sýnd hugmynd
að yfirbyggðu rými sem hentar
vel á votviðrasömum svæðum.
Hugmyndir eru um skálabygg-
ingar í óbyggðum og til fjalla,
svo og að tjaldsvæðum inni í
þéttbýli. Þá er kynnt nýstárleg
hugmynd að hringlaga bygging-
um sem líkjast graskeri að
lögun.
Tillögur þessar eru afrakstur
hugmyndasamkeppni sem
Ferðamálaráð efndi til í haust í
samvinnu við Arkitektafélag Is-
lands en við uppbyggingu tjald-
■ Einingar steyptar úr trefjaplasti og boltaðar á grind. Höfundur
hugsar sér hvítan botn og bláa veggi en efstu einingarnar eru úr
gegnsæju trefjaplasti sem hleypir birtu inn. Þær líkjast graskeri
þessar einingar og geta staðið einar sér eða fleiri saman í hnapp.
stæða á undanförnum árum hef-
ur oft verið skortur á nýjum
hugmyndum og ósamræmis gætt
í útliti húsa og búnaðar. Geta
þeir sem hyggja á uppbyggingu
tjaldsvæða leitað til Ferðamála-
ráðs og notfært sér framkomnar
hugmyndir í samráði við höf-
unda þeirra.
Rúðubrot
í miðbænum
■ Fjórir drengir á aldrinum
15-17 ára brutu rúður í 13
fyrirtækjum í miðbænum um
helgina. Að sögn lögreglunnar
var eingöngu um skemmdar-
verk að ræða, og engu' var
stolið. Drengirnir náðust, og
voru við yfirheyrslur síðast þeg-
ar fréttist. Drengirnir hafa flest-
ir komið áður við sögu lögregl-
unnar. Þeir voru undir áhrifum
áfengis þegar verknaðurinn var
framinn.
fleWflatt
a
iWsnes'*
Hafnarmannvirkin
sópuðust á haf út
■ Miklar hafnarskemmdir
urðu á Hellnum á Snæfellsnesi
s.l. föstudag í ofviðri sem geis-
aði um vestanvert landið. Mikill
hluti hafnarmannvirkjanna sóp-
aðist burtu og bátar heima-
manna liggja nú að heita má
fyrir opnu hafi.
NT-mynd: Bæring Cecilsson
Flautu-
tónleikar
áKjar-
valsstöðum
■ Tónlistarskólinn í
Reykjavík heldur tónleika
að Kjarvalsstöðum miðviku-
daginn 13. mars kl. 21.00.
Þar leikur Þórunn Guð-
mundsdóttir einleik á flautu
og er það fyrri hluti einleik-
araprófs hennar frá skólan-
um. Dagný Björgvinsdóttir
leikur með á píanó og Elín
Guðmundsdóttir á sembal.
Á efnisskránni eru verk
eftir Bach, John Speight,
Georges Enesco og Prokof-
ieff. Aðgangur að tón-
leikunum er ókeypis og öll-
um heimill.