NT - 12.03.1985, Side 11
Þriðjudagur 12. mars 1985 11
Erlent yfiirlit:
■ Líklegt er talið að undir stjórn Gorbachevs muni hugmyndafræðilegar áherslur dofna en áhrif
tæknikrata aukast. Á myndinni er Gorbachev ásamt forstjóra breska bílafyrirtækisins British Leyland
að skoða M.G. Montego turbo er hann var í heimsókn í Bretlandi í desember s.l.
Símamynd-POLFOTO
■ Frá útför Andropovs í febrúar fyrir rúmu ári síðan. Chernenko fylgir honum til grafar. Hann er.
neðst á myndinni.
■ Mikhail Gorbachev og Raisa kona hans á göngu í London síðastl. haust.
Hugmyndafræðilegar
áherslur munu dofna
-telur Árni Bergmann ritstjóri Þjóðviljans
■ „Það eru meiri líkur á að
spurt sé um árangur og einhvers
konar sérþekkingu hjá mönnum
eins og Gorbachov og hans
kynslóð. En þá er spurningin
hvort þessir sömu leiðtogar þora
eitthvað að hreyfa við stöðu
flokksins, og þá sérstaklega við
efnahagslegri miðstýringu.“
Þetta sagði Árni Bergmann
ritstjóri Þjóðviljans, þegar hann
var spurður um áhrifin af fráfalli
Tsérnenkos, forseta Sovétríkj-
anna.
Hann sagði það líklegt, að
undir stjórn Gorbachovs rnyndu
hugmyndafræðilegar áherslur
dofna, en tæknikratar yrðu
áhrifameiri. Sovéskt efnahags-
kerfi væri þungt í vöfum og hver
einasti Sovétleiðtogi hefði talað
öðru hvoru um skriffinnsku, um
lélega nýtingu fjárfestinga og
sóun á orku.
■ Árni Bergmann.
„En síðan hefur alltaf orðið
tiltölulega lítið úr þeim breyt-
ingum, sem hafa verið boðaðar,
vegna þess, að ef á að gera
eitthvað róttækt til að gera efna-
hagskerfið virkara, þá verður
líka að taka til athugunar hið
óskerta vald flokksins. Og eink-
urn og sér í lagi þessa sterku
efnahagslegu miðstýringu,"
sagði Árni.
Árni vildi engu spá urn áhrif
leiðtogaskiptanna á utanríkis-
stefnu Sovétríkjanna, en það
hefði verið talað um það í
Bretlandi eftir heimsókn Gor-
bachovs þangað, að yfir honum
væri léttari stíll en öðrum Sovét-
leiðtogum. „í rauninni erennþá
erfiðara að spá í utanríkismál
en innanlandsmál við foringja-
skipti hjá Rússunum," sagði
Árni Bergmann.
■
'