NT


NT - 12.03.1985, Side 19

NT - 12.03.1985, Side 19
Þridjudagur 12. mars 1985 19 Útlönd tilkynningar Auglýsing um nám í sérkennslufræðum við Kennaraháskóla íslands. Haustið 1985 gefst kennurum í grunnskólum og sérskólum kostur á að hefia nám í sérkennslu- fræðum við Kennaraháskóla íslands sem hér segir: a) Fyrsti áfangi sérkennslunáms til 30 námsein- inga. Þetta nám er ætlað kennurum í grunn- skólum og sérskólum sem lokið hafa almennu kennaraprófi eða B.Ed. prófi og hafa a.m.k. tveggja ára starfsreynslu. b) Annar áfangi sérkennslunáms (sérhæfing) til 30 námseininga, ætlað kennurum sem nú þegar hafa lokið 30 námseiningum í sér- kennslu (fyrsta áfanga). Að þessu sinni verður boðið upp á sérhæft nám fyrir þá sem kenna eða hyggjast kenna nemendum sem eiga af ýmsum ástæðum við alvarlega námsörðug- leika að stríða. Námi í hvorum áfanga fyrir sig verður dreift á u.þ.b. tveggja ára tímabil, á árlegum starfstíma skóla og utan. Kennarar munu því stunda námið samhliða kennslu í grunnskólum og sérskólum sem mynda eins konar starfsvettvang námsins. Óskað er eftir umsóknum frá einstaklingum og skólum sem hefðu áhuga á og aðstæður til að mynda slíkan náms- og kennsluvettvang fyrir hópa starfandi kennara er hyggðust stunda ofangreint nám. Varðandi fyrsta áfanga námsins (30 ein.) er hugsanlegt að boðið verði upp á þennan áfanga sem fullt eins vetrar nám. Þetta er þó háð þeim skilyrðum, að nemendafjöldi reynist nægur. Umsækjendur þurfa að búa yfir staðgóðri kunn- áttu í ensku og norðurlandamálum. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu skólans. Umsóknarfrestur er til 12. apríl 1985. Rektor. atvinna - atvjnna H1 LAUSAR STÖDUR HJÁ 'V REYKJAVÍKURBORG Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtal- inna starfa. Starfskjör samkvæmt kjara- samningum. • Röntgentæknir á lungna og berklavarn- ardeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavík- urborgar. Fullt starf. • Deildarfulltrúi á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Starfið er meðal annars fólgið í gjaldkerastörfumjaunaútreikning- um, framkvæmd kjarasamninga o.þ.h. Æskileg er starfsreynsla á þessu sviði. Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri heilsugæslustöðva í síma 22400 alla virka daga frá kl. 10-11. • Forstöðumenn við dagheimilin Völvu- borg, Völvufelli 7, dagh./leikskóli, Iðuborg Iðufelli 16 og leikskólann Leikfell Æsufelli 4. •Fóstrur við Iðuborg og Hálsaborg. Upplýs- ingar veita framkvæmdastjóri og umsjónarfóstrur á skrifstofu dag- vistar í síma 27277. Umsóknum ber að skilatil starfsmanna- halds Reykjavíkurborgar Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00 mánudaginn 18. mars 1985. Noregur: Tekjuafgangur ríkisins 17 milljarðar á fyrra ári ■ Efnahagshorfur í Noregi eru jákvæðar hefur bankastjóri Noregsbanka fullyrt. Knut Getz Wold sagði þetta gilda bæði um hefðbundinn iðnað og olíu- iðnaðinn í landinu. Mestu vandamál efnahagslífisns sagði hann þó vera atvinnuleysið og aukinn rekstrarkostnaður. Á síðasta ári var tekjuaf- gangur norska ríkisins 16,7 milljarðar n.kr. og eru tekjur af olíufamleiðslunni þá rneð- taldar. Þessi mikli tekjuaf- gangur nam um 3,75% af heildarþjóðarframleiðslu (BNP) ársins. Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir að tekjuafgangur í ár verði um 5 milljarðar n.kr. eða um 1% heildarþjóðartekna. Noregur er eina aðildarríki Efnahags- og þróunarstofnun- arinnar (OECD) sem skilaði tekjuafgangi á síðasta ári. (Norinform) Holland: Skaut mann í höfudið Sleppt lausum vegna skorts á fangaklefum Keynir Þór Finnbogason, fréttaritarí NT í Hollandi skrifar: ■ Um miðjan janúar gerðist það á bar í Amsterdam að maður var skotinn í höfuðið. Fórnarlambið liggur með heila- skemmdir á sjúkrahúsi en hinn seki gengur laus. Hinn seki, Mike B., var strax handtekinn og ákærður fyrir morðtilraun að yfirlögðu ráði og játaði hann sekt sína. Eftir nokkrar vikur í gæsluvarðhaldi á lögreglustöðvum víðsvegar um landið, kvað dómari upp þann úrskurð að ef ekki fengist pláss fyrir Mike í fangelsi innan sólarhrings, þá yrði hann látinn laus, þar til dæmt yrði í máli hans. Sólarhring síðar stóð Mike B. á götunni, þrátt fyrir að eiga yfir höfði séra.m.k. 12árafangelsis- dóm. Hann kom fram í sjón- varpsþætti ásamt lögfræðingi sínum og talsmanni lögreglunn- ar og lýstu þeir allir yfir undrun og hneykslun yfir ákvörðun dómarans sem byggð er á skorti á fangaklefum. Hinn seki kveðst ekki skilja að hann skyldi vera látinn laus meðan fangaklefar eru fullir af bílaþjófum og fólki sem neitar að greiða sektir og skuldir. Fyrir rúmlega 2 árum var Mike handtekinn fyrir að beita stórfyrirtæki í Amsterdam fjárkúgunum. Hann fékk að ganga laus meðan beðið var dóms sem kveðinn var upp vorið 1984. Hlaut Mike 2 ára fangels- isdóm en vegna klefaskorts var hann látinn laus og látinn bíða með að afplána dóminn. Fyrir rúmri viku var Mike handtekinn enn einu sinni og ákærður fyrir fjársvik með fölsuðum skilríkjum. Hann ját- aði það á sig og var því ekki hægt að halda honum lengur föstum. Þetta mál hefur vakið miklar umræður, m.a. í hollenska þing- inu og var stjórnarandstaðan harðorð. Fangelsismál Hollend- inga eru í algerum ólestri vegna gífurlegs skorts á fangaklefum. Miklar umræður hafa verið um fangelsismálin síðustu árin og hefur hvað eftir annað verið óskað eftir að klefum verði fjölgað. Ríkisstjórnin hefursíð- ustu árin verið að keppast við að koma fjárhag hollenska ríkis- ins á réttan kjöl m.a. með því að draga saman allan ríkisrekst- ur og hefur það m.a. komið niður á fangelsum. Dómsmála- ráðherra Hollendinga Korthals- Altes kvaðst myndi setja á stofn rannsókn til að finna út hvernig hægt er að koma í veg fyrir að stórglæpamenn eins og Mike B. sé sleppt lausum. Gasslysið í Bhopal: Fær Union Carbide að semja um skaðabætur? New York-Reuter ■ Talsmaður Union Carbide fyrirtækisins sagðist um helgina fagna yfirlýsingu ríkisstjórnar Indlands um að hún sé tilbúin til samningaviðræðna um skaða- bætur til handa fórnarlömbum gaslekans í verksmiðju Union Carbide í Bhopal á Indlandi. í gaslekanum sem átti sér stað í desember s.l. dóu 2500 manns. Talsmaður fyrirtækisins í Danbury Connecticut sagði við fréttamenn: „Við höfum alltaf haft þá afstöðu að samningar, en ckki málaferli, séu besta og hraðvirkasta aðferðin til að veita fólkinu í Bhopal fébætur vegna þess sem þar gerðist." Um 125.000 manns særðust þegar gas lak frá verksmiðjunni og dreifðist um stórt svæði í nágrenni verksmiðjunnar en flestir íbúanna þar bjuggu í lélcgu bráðabirgðahúsnæði. Dómsmálaráðherra Indlands, Asoke Sen, sagði um helgina: „Ef skaðabæturnar verða miklar, þá erum við til- búnir til að komast að sam- komulagi án málaferla." 400.000 kr. til að bjarga tré Frá Kcyni Þór Finnbogasyni Kunsc- hotcn Hollandi ■ Borgarstjórnin í Til- burg í Suður-Hollandi. hefur ákveðið að leggja fram það fé sem þörf er á til að hægt sé að bjarga rúmlega 800 ára tré sem stendur í miðborginni. Við athugun kom í Ijós að tréð er í mjög slæmu ásig- komulagi. Einn af þrem stórum greinaklösum er .að dcyja og ef það gerist þarf aðeins smávindhviðu til að tréð fjúki um. Það hafði slæm áhrif á tréð þegar akbraut var lögð við það og stór verslunarmið- stöð byggð í næsta ná- grenni því þá seig jarðvatn ið mjög mikið. I byrjun aldarinnar voru áætlanir uppi hjá borgar- stjórninni að fjarlægja tréð en hætt var við það vegna ákafra mótmæla íbúa borgarinnar. Þctta tré hefur þurft að þola ýmislegt gegnum árin en hefur hingað til lifaö af. 1944 óku skriðdrekar á það, 1961 lenti þaö í hvirf- ilvindi og 1980 var kveikt í því. Reyndar þurfti að fjarlægja 3 greinar þcss fyrir nokkrum árum þar sem þær stofnuðu umferð- aröryggi í hættu. Þrátt fyrir þaö að trénu hafi verið gefin sérstök næring og það vökvað á þurrkatímum síðan 1980 hefur það hrörnað mikið. Með vorinu hefjast nauð- synlegar björgunarað- gerðir og er búist við að þær muni kosta u.þ.b. 400.000 ísl. kr. Uruguay: Fangar endur heimta frelsi Montcvidco-Rculcr ■ Hátt á þriðja hundrað pólitískir fangar í Uruguay endurheimtu frelsi sitt í gær eftir að þingið hafði sam- þykkt sakaruppgjöf fyrir þá í seinustu viku. Fangarnir voru í haldi í fangelsi, sem herinn byggði um 60 km fyrir vestan höfuð- borgina eftir að hann hrifsaði til sín völdin árið 1973. 63 fangar, sem herdóm- ' stóll dæmdi fyrir morð, verða áfram. í fengelsi í nokkurn tíma þar til borgaralegur dómstóll hefur endurskoðað mál þeirra. Þeirsem þá verða sekir fundnir um morð fá dóma sína stytta um sem svarar þrem dögum fyrir hvern einn dag sem þeir sátu í fangelsi hersins. Raul Sendic, leiðtogi Tupamaro-skæruliðanna, er meðal þeirra 63 sem fá morð- dóma yfir sér endurskoðaða. T upamaro-skæruliðasam- tökin voru brotin á bak aftur af hernum fyrir rúmum ára- tug. Pólsk dagblöð í pappírshraki Varsjá-Rcutcr ■ Pólsk dagblöð hafa neyðst til að fækka síðum og minnka lesmál vegna pappírsskorts í Póllandi þar sem erlendur gjald- eyrir er af skornum skammti og lítið fé til að kaupa pappír frá útlöndum. Söluhæsta dagblaðið, Zycie Warszawy, hefur verið minnkað um tvær síöur frá og með föstu- degi í seinustu viku og önnur blöð eiga að fylgja í kjölfarið síðar í mánuðinum að sögn talsmanns áætlunarnefndar pólska ríkisins. Miklar vetrarhörkur í Pól- landi urðu til þess að Pólverjar gátu ekki flutt eins mikið út af kolum nú í vetur og þeir höfðu reiknað með. Hluti af kolaút- flutningstekjunum átti að renna til pappírskaupa fyrir dagblöð- in, sem nú neyðast til að draga saman seglin. Vikurit verða líka að minnka pappírsnotkun um allt að 30% og útgáfufyrirtæki munu fá 20% minni pappír en áður hafði vcrið ákveðið að þau fengju. Pappírsskorturinn cr einnig sagður afleiðing af ntinnkandi pappírsframleiðslu pólskra pappírsverksmiðja sem hafa ekki getað endurnýjað tækja- búnað sinn.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.