NT

Ulloq

NT - 16.03.1985, Qupperneq 5

NT - 16.03.1985, Qupperneq 5
 fff? Laugardagur 16. mars 1985 5 LlL Fréttir Fellaskóli: Smíðastofurnar opnaðar í gær NT-mynd: Svcrrir ■ Kammersveitin á æfingu í fyrradag. Kammermúsíkklúbburinn: Tónleikar í Bústaðakirkju ■ Deilunni um smíðakennslu- stofurnar í Fellaskóla er lokið. Stofurnar voru opnaðar aftur í gærmorgun eftir rúmlega mán- aðar lokun. Fulltrúar menntamálaráðu- Tívolí á Skaganum Frá S.I..P. frcttaritara NT á Akranesi ■ Skátar á Akranesi halda tívolískemmtun í íþróttahúsi bæjarins sunnudaginn 17. rnars frá kl. 12-17. Alls verða 40 leiktæki á staðnum, lukku- hjól, skotbakkar, þrautir og keppnir. Þá má nefna tveggja metra háan gír- affa, örkina hans Nóa, gosaparís og stóra teygju- byssu, slökkt verður í síð- ustu sígarettunni og alls- staðar verða góð verðlaun í boði. Á annað hundrað starfsmenn, prúðbúnir, munu sjá um að skemmt- unin fari vel fram. Eftir tívolíið verður bingó þar scm hægt verður að vinna utanlandsferðir, tölvur og vöruúttektir. neytis, félagsmálaráðuneytis og Vinnueftirlits ríkisins héldu með sér fund á fimmtudag, þar sem fram kom, að menntamála- ráðuneytið væri að líta á kröfur Vinnueftirlitsins. Þá kom yfir- lýsing frá skólastjóra Fellaskóla um, að ekki verði unnið með lífrænum leysiefnum og opnum eldi í stofunum. Var þá tekin ákvörðun um að opna þær aftur. Eins og fram kom í NT á miðvikudag, skrifaði mennta- málaráðherra bréf til félags- málaráðherra, þar sem spurt var hvers vegna Vinnueftirlitið hefði lokað stofunum. Félags- málaráðuneytið skrifaði svo Vinnueftirlitinu og bað um greinargerð í máli þessu. Munu bréfaskriftir þessar hafa losað um hnútinn, sem málið var komið í. Eyjólfur Sæmundsson for- stjóri Vinnueftirlitsins sagði í samtali við NT í gær, að menntamálaráðuneytið hefði ekki sett nein tímamörk um framlagningu áætlunar um endurbætur á húsnæðinu til samræmis við kröfur Vinnueft- irlitsins. Hann sagði einnig, að ef Vinnueftirlitið hefði vitað í upphafi, að málið yrði skoðað, hefði aldrei verið gripið til lok- unar kennslustofanna. ■ Þriðju tónleikar Kammer- músíkklúbbsins á starfsárinu verða í Bústaðakirkju á morgun kl. 20.30. Strengjakvartett skipaður Guðnýju Guðmunds- dóttur og Szymon Kuran fiðlu- leikurum, Robert Gibbons lág- fiðluleikara og Carmel Russill ‘sellóleikara leikur ásamt Einari Jóhannessyni klarinettuleikara. Á efnisskránni verður Strengjakvartett í C-dúr K-465 eftir Mozart, Strengjakvartett nr. 7 í Fis moll eftir Shostako- vich og kvintett fyrir klarincttu 2 fiðlur, lágfiðlu og selló í h-moll op. 115 eftir Johannes Brahms. Á næstu tónleikum Kammer- músíkklúbbsins gistir klúbbinn Sinnhofer kvíulettinn frá Múnchen. Kvartettinn heldur tvenna tón- leika og hinir fyrri verða helgað- ir Kunst der Fuge eftir Bach í tilefni 3(X) ára afntælis tónskálds- ins. Það verk hefur aldrei áður verið flutt hér á landi. Þingsályktunar- tillaga frá BJ: Vilja frum- varp um þróunar- stofur landshlutanna ■ Þingmenn Bandalags jafnaðarmanna hafa lagt fram tillögu til þingsályktun- ar þar sem Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta semja frumvarp til laga um þróunarstofur landshlut- anna. Tillaga þessi var lögð fyrir síðasta þing en kom þá ekki til afgreiðslu. Hún erhluti af stefnumörkun Bandalags jafnaðarmanna á sviði byggðastefnu og valddreif- ingar. Er markmið tillagna sem settar eru fram að stað- festa frumkvæði heima- manna við gerð byggðaáætl- ana, umsjá þeirra með fram- kvæmd áætlana og ábyrgð þeirra á vörslu og veitingu fjármuna sem varið er til byggðastefnu úr sanieigin- legum sjóðum landsmanna. Segir ennfremur í greina- gcrð að á þennan hátt megi komast út úr þcim vítahring miðsóknar og miðstýringar sem einkennt hefur fram- kvæmd byggðastcfnu og reyndar flestöll samskipti stjórnvalda í Reykjavík og heimamanna út um landið. Hæsti vinningur 35.000 Vinningar að heildarverðmæti yfir kr. 100.00Q.-j Stjórnin Framsóknarmenn skoða hug sinn: Funda um samstarfið við Sjálfstæðisflokk ■ Samstarfið við Sjálfstæðis- flokkinn og staða Framsóknar- flokksins verður umræðuefnið á fundi Framsóknarfélags Reykjavíkur á Hótel Hofi kl. 3 á sunnudag. Frummælendur verða Stein- grímur Hermannsson forsætis- ráðherra og Haraldur Ólafsson alþingismaður. Fundarstjóri verður Valdimar K. Jónsson prófessor. Afmælissýning Textílfélagsins ■ Textílfélagið opnar samsýningu á Kjarvalsstööum 16. mars nk. í tilcfni 10 ára afmælis félagsins. Þetta er þriðja sýning félagsins og sú stærsta hingað til en auk þess hefur félagið unnið með samnorræna Textiltrienalnum sem stendur að samsýningum viða um Norðurlöndin. I Textílfélaginu starfa nú 40 félagar í ýmsum greinum textíllistarinnar s.s.vefnaði, tauþryki, fatahönnun, mynsturhönnun, prióni, bótasaumi og textílskúlptúr. Á meðan á sýningu stendur munu tveir félagar halda fyrirlestra í tengslum við sýninguna. Sigríður Halldórsdóttir talar um Kljásteinavef- staðinn, sunnudaginn 31. mars og Hulda Jósefsdóttir scgir frá norrænni prjónahefð, miðvikudaginn 3. apríl. Þá verður á sýningunni sýnt myndband af verkum félagsmanna. Sýningunni lýkur áttunda apríl.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.