NT - 29.03.1985, Page 2

NT - 29.03.1985, Page 2
Févana nef nd í vanda Föstudagur 29. mars 1985 Úthlutun listamannalauna 1985 lokið: ■ Úthlutunarnefnd lista- mannalauna hefur nú lokið störfum og tilkynni urn úthlutun fyrir árið 1985 í gær. 89 lista- menn hljóta laun í efra flokki, 30 þúsund krónur, en 20 í neðra flokki, en í þeim flokki er úthlutað 15 þúsund krónum. Nefndin tók þá ákvörðun nú að veita aðeins laun í neðra flokki til listamanna, sem aldrei hafa hlotið þau áður. Um efra flokk- inn gildir hins vegar sú hefð að þeir sem einu sinni hafa fengið Íaun samkvæmt honum verða ekki gerðir burtreka þaðan. í efra flokknum var ekki um neina fjölgun að ræða, raunar fækkar þeim um þrjá frá í fyrra. Tveir eru látnir af þeim sem þá fengu laun í efra flokki, þeir Björn Ölafsson og Sverrir Har- aldsson og einn er fluttur úr landi og þiggur ekki íslensk listamannalaun, Manuela Wi- esler. Nefnarmenn kvörtuðu sáran á blaðamannafundi sem haldinn var í gær yfir því hve litlu fé þeir hefðu úr að spila. Þeir töldu rangnefni að tala um laun, frem- ur væri um viðurkenningu að ræða. Aðrir sjóðir hefðu tekið við hlutverki listamannalaun- anna að nokkru, starfslauna- sjóðirnir. Hins vegar sinntu þeir sjóðir ekki eldri listamönnum sem hafa ávaxtað sitt pund vel, en eiga e.t.v. ekki aðild að lífeyrissjóðum. Listi með nöfnum listamann- anna verður birtur síðar. ■ Sigurður Helgason stjórnarformaður Flugleiða flytur skýrslu sína á aðalfundi félagsins, sem haldinn var í Reykjavík í gær. NT.m,nd svemr Flugleiðir högnuðust um 228 milljónir í fyrra ■ Nefndarmennirnir Halldór Blöndal alþingismaður og Gunnar Stefánsson dagskrárstjóri útskýra úthlutun listamannalauna. NT-mynd: Ari. ■ Flugleiðir högnuðust um 228 milljónir króna á síðasta ári, þar af nam hagnaður vegna sölu þriggja flugvéla á árinu 172 milljónum. Þetta er annað árið í röð, sem félagið skilar hagnaði og hefur afkoma þess ekki verið Ríkisábyrgð fyrir Stálfélagið hafnað? ■ Hvcrfandi líkur eru nú, að sögn Sverris Hermannssonar, iðnaðarráðherra, á að Stálfélagið hf. fái ábyrgð ríkissjóðs fyrir láni til byggingar stálbræðslu í Vatns- lcysustrandarhreppi. Fjármála- ráðherra lagði í haust fram frum- varp um veitingu rikisábyrgðar á 45 milljóna króna láni, sem ætlað var að fjármagna helming stofn- kostnaðar stálbræðslunnar, en frumvarpið hefur að undanförnu setið fast í fjárhags- og viðskipta- nefnd efri deildar. Ríkisstjúrnin fjallaði í gær um ríkisábyrgðina á fundi sínum, og mun vera að endurskoða afstöðu sína til málsins. „Ég hef ekki trú á að þessi ríkisábyrgð verði veitt að óbreyttu," sagði Sverrir Her- mannsson. „Þessi iðnaður hefur átt mjög svo undir högg að sækja undanfarin ár, og kemur þar margt til, s.s. verð á stáli og orkuverð. Ég held að útlitið sé því miður mjög dökkt.“ Ríkisstjórnin tók ekki endan- lega afstöðu til málsins í gær, en það verður ennfremur rætt í þingflokkum stjórnarflokkanna næstu daga. Hlutafé Flugleiða í Arnarflugi: Hugsanlega afskrif- að aftur á næsta ári - segir Sigurður Helgason ■ Flugleiðir munu hugsan- lega afskrifa aftur hlutafjár- eign sína í Arnarflugi á næsta ári, eins og gert var í ársbyrj- un 1984. Þetta kom fram í máli Sigurðar Helgasonar stjórn- arformanns Flugleiða á fundi með freítamönnum í gær, þar sem ársskýrsla Flugleiða fyrir 1984 var kynnt. Sigurður sagði, að árs- reikningar Arnarflugs fyrir síðasta ár lægju ekki fyrir enn, en taprekstur væri fyrir- sjáanlegur hjá fyrirtækinu. Hlutaféð var einmitt afskrif- að í fyrra vegna neikvæðrar stöðu Arnarflugs. Flugleiðir neyttu for- kaupsréttar síns á hlutabréf- um í Arnarflugi í fyrra, þegar hlutafé þess fyrirtækis var aukið. Flugleiðir keyptu fyrir 18 milljónir króna, og eru þau bréf nú skráð sem eign í ársreikningi fyrir 1984. Ein ástæðan fyrir kaupunum voru áætlanir, sem gerðu ráð fyrir batnandi stöðu Arnar- flugs. Nýsköpun íTogo ■ Togo-fararnir eru væntan- legir aftur heim nú strax eftir helgi. Hvað þeir Svavar og Friðrik hafa skrafað vitum við ekki en þykir dropateljara lík- legt að staða ríkisstjórnarinnar hafi komið til tals. Það væri ekki ónýtt fyrir Friðrik að geta spásserað sig inn á landsfund Sjálfstæðis- manna með nýsköpunarstjórn í vasanum - væntanlega með stóla fyrir sig og Þorstein í pakkanum en sumir segja að það sé stólaleysi sem hafi kom- ið kosningaskjálfta sjálfstæðis- manna af stað. Hjörtur hefur áhrif ■ Áhrif af brottrekstri Hjart- ar Pálssonar úr forstjórastöðu Norræna hússins getur haft hliðarverkanir hér heima. Hjörtur mun, samkvæmt heimildum NT, taka við sínu gamla starfi hjá Ríkisútvarp- inu, sem dagskrárstjóri, en þeir sem ráðnir voru til að leysa hann af munu síga í sessi. Þá höfum við heyrt að Ríkis- útvarpið áformi að senda mann til Færeyja á laugardag til að flytja hlustendum þáttarins Hér og nú fréttir af vettvangi átakanna. r)árnámsferdin eml adiilla. Hundurgen) arþola beil fulllrúann w II U»)a<U t KvbJ r • dJWuaum .. Nú þegar þeir hafa leyft hundahald í Reykjavík held ég þeir ættu að banna það til sveita betri frá árunum 1979-1980, þegar miklir erfiðleikar voru í rekstrinum. Hagnaður tveggja síðustu ára nemur þó aðeins 30% af tapi undanfarinna ára, reiknuðu á núvirði, en það var 1230 milljónir króna. Þetta kom m.a. fram í skýrslu Sigurðar Helgasonar stjórnar- formanns Flugleiða á aðalfundi félagsins, sem haldinn var í Reykjavík í gær. Sigurður Helgason sagði meginástæðurnar fyrir batnandi hag félagsins vera verulega aukningu í flutningum og öðr- um umsvifum. Þá voru greiddar niður langtímaskuldir að nú- virði yfir 400 milljónir króna, og vaxtagjöld fyrirtækisins lækk- uðu um meira en 100 milljónir króna, miðað við það, sem þau komust hæst. Einnig jukust af- köst mikið, en þau eru mæld í arðbærum farþegakílómetrum á hvern starfsmann. Aukningin varð 86% milli áranna 1980 og 1984. Mikil fjölgun farþega Farþegum í Norður-Atlants- hafsfluginu fjölgaði um 20.3% á síðasta ári og urðu þeir rúmlega 248 þúsund. Sætanýting á N- Atlantshafsleiðum varð 80.5%, en var 81.2% árið á undan. Flugleiðir hófu áætlunarflug til tveggja nýrra staða í Banda- ríkjunum í fyrra, Detroit og Orlando, og er það skýringin á hluta farþegaaukningarinnar. Mest varð aukningin hins vegar í flugi til Baltimore og Chicago. Meðaltekjur félagsins vegna hvers farþega voru 2.4% minni en árið á undan. Heildartekjur félagsins af farþegaflutningum yfir Norður-Atlantshafið urðu þó 6.9% meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Farþegar í Evrópuflugi Flug- leiða voru rúmlega 194 þúsund, sem er 26.5% aukning frá fyrra ári. Þar sem það var langt umfram áætlanir, þurfti að bæta við fjölda aukaferða, einkum til Norðurlandanna. Sætanýting var 67%, á móti 59.6% árið á undan. Heildartekjur af far- þegaflutningum til Evrópu voru 9.6% meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Meðaltekjur fyrir hvern farþega, mælt í dollurum, lækkuðu hins vegar um 9.4%, og kemur þar til sterk staða dollars og aukin fjölbreytni í sérfargjöldum. Flugleiðir buðu í vor upp á svonefndan Saga-Class, með aukinni þjónustu og mæltist sú nýbreytni vel fyrir. Minnst aukningin varð í innanlandsfluginu, eða 7.2%. Farþegar voru liðlega 217 þús- und og sætanýting 64.4%. Áfangastaðir utan Reykjavíkur í regiulegu áætlunarflugi voru tíu. Engar nýjar flugvélar Flugleiðir festu kaup á tveim- ur DC-8-63 farþegaþotum í fyrra og í byrjun þessa árs var ákveðið að festa kaup á þeirri þriðju. Allar þessar vélar verða búnar hljóðdeyfum síðar á árinu til að fullnægja kröfum banda- rískra flugmálayfirvalda um hávaðatakmarkanir. Þar með hefur verið mörkuð stefna um næstu framtíð um notkun flug- véla á Norður-Atlantshafsleið- inni. Það kom fram í máli Sigurðar Helgasonar, að flug- vélartegund þessi hentar mjög vel þeim aðstæðum, sem ríkja á Norður-Atlantshafsmörkuðun- um. Hann sagði einnig, að það yrði engu að síður eitt af megin verkefnum stjórnar félagsins að gera framtíðaráætlanir um endurnýjun flugflotans. í máli Leifs Magnússonar framkvæmdastjóra stjórnunar- sviðs kom fram, að erfitt væri nú að réttlæta kaup á sparneytn- ari flugvélum, þar sem fjár- magnskostnaður, sem þeim fylgdi, mundi vega mun þyngra en þeir kostnaðarþættir, sem spöruðust. Nefndi hann sem dæmi, að þegar sparneytnari flugvélar voru á hönnunarstigi fyrir 10 árum, hefði verið búist við, að verð á hverju galloni af eldsneyti yrði í ár 1.5$ og vextir yrðu aðeins 6%. Eldsneytisverð væri hins vegar 90 sent fyrir hvert gallon og vextir væru um 12%. Utlitið bjart Sigurður Helgason gerði hlutafjáreign ríkisins í Flugleið- um að umtalsefni og sagði, að það mat, sem ríkið hefði látið gera á hlutabréfunum væri óraunsætt. Sagðihann,aðmatið hefði raunverulega ekki verið framkvæmt á hlutabréfum í Flugleiðum, heldur hefði það verið mat á eignum félagsins. Hann sagði, að það væri um 310 milljónum króna hærra en fasteignamat. Stærri eignirseld- ust aftur á móti á verði, sem væri nærri fasteignamatinu og því væri hér um ofmat að ræða. Sagðist Sigurður ekki sannfærð- ur um, að þetta væri rétt mat á hlutabréfum. Hann sagði það persónulega skoðun sína, að hlutabréf ríkisins í Flugleiðum ætti að selja hluthöfum og/eða starfsmönnum, eða hvoru- tveggja, og sagðist hann vænta þess, að hægt yrði að hefja samningaumleitanir við fjár- málaráðuneytið um það. Áætlanir Flugleiða fyrir árið 1985 gera ráð fyrir aukningu farþega á öllum áætlunarleiðum félagsins. í Norður-Atlants- hafsfluginu er gert ráð fyrir 12% aukningu, 8-9% í Evrópu- fluginu og 5-6% í innanlands- fluginu. Áætlanir þessar hafa staðist vel það, sem af er ársins og var aukningin rúmlega 20% á öllum flugleiðum fyrstu tvo og hálfan mánuðinn.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.