NT - 29.03.1985, Side 3
Tillögur og
fyrirspurn-
ir á Alþingi
Kostnaður vegna
stóriðjunefndar
Geir Gunnarsson spyr
iðnaðarráðherra um
kostnað vegna samninga-
nefndar um stóriðju og
vegna stóriðjunefndar og
vill vita heildarkostnað
vegna hvorrar nefndar,
sundurliðun eftir árum
1983 og 1984, sundurliðun
eftir verkefnum, þóknun
til einstakra ráðunauta,
ferðkostnað og annan
kostnað. Oskað er skrif-
legs svars.
Réttarstaða heima-
vinnandi fóiks
Maríanna Friðjónsdóttir
og Jóhanna Sigurðardóttir
hafa lagt fram tillögu til
þingsályktunar þar sem lagt
er til að Alþingi álykti að
fela ríkisstjórninni að skipa
sjö manna nefnd sem hafi
það verkefni að meta þjóð-
hagslegt gildi heimilisstarfa
og gera úttekt á hvernig
félagslegum réttindum og
mati á heimilisstörfum er
háttað samanborið við önn-
ur störf í þjóðfélaginu. Er
lagt til að niðurstöður og
tillögur til úrbóta skuli liggja
fyrir Alþingi eigi síðar en 1.
janúar 1985.
Auglýsingatekjur
af Ríkisútvarpi
Maríanna Friðjónsdóttir
hefur flutt tillögu til þings-
ályktunar um að fella niður
söluskatt af aug-
lýsingatekjum Ríkisútvarps-
ins og verði fjármálaráð-
herra falið það verkefni. I
greinargerð er bent á að á
síðasta ári hafi Ríkisútvarp-
ið greitt 46,6 milljónir í
söluskatt á meðan dagblöðin
og flest tímarit hefðu verið
undanþegin söluskatti.
Er bent á að ýmis blöð, sem
vart teljast menningarleg
eða fræðandi, séu undan-
skilin söluskatti.
Atvinnumál á
Norðurlandi eystra
Kolbrún Jónsdóttir og
Steingrímur J. Sigfússon
hafa lagt fram tillögu til
þingsályktunar um atvinnu-
mál á Norðurlandi eystra
þar sem skorað er á ríkis-
stjórnina að láta vinna nú
þegar tillögur til úrbóta í
atvinnumálum þar sem tekið
verði á eftirfarandi atriðum:
Leiðum til úrbóta á þessu
ári svo komist verði hjá frek-
ari brottflutningi fólks og
atvinnuleysi á svæðinu,
markmiðum sem stefna beri
að í náinni framtíð í sam-
vinnu við atvinnumála-
nefndir í kjördæminu, fjár-
mögnun í þeim tilgangi að
efla atvinnulífið með því að
stofna þróunarsjóð sem hlíti
stjórn heimamanna og upp-
byggingu iðnaðar þar sem
fyrirtækjum gefst kostur á
atvinnuhúsnæði til leigu.
Vélstjóranám
Skúli Alexandersson spyr
menntamálaráðherra hve
margir nemendur hafi verið
innritaðir á 1., 2., 3., og 4.
stig til vélstjóranáms á árun-
um 1976-1985 og hve margir
hafi lokið námi á hverju stigi
á þeim tíma. Þá er og spurt
hversu margir nemendur
hafi farið í nám í vélgæslu á
sama tíma og lokið því. Er
óskað eftir sundurliðuðum
svörum eftir skólum.
Sýningar í
Þjóðleikhúsinu
Karvel Pálmason spyr
menntamálaráðherra um
hversu margar sýningar á
vegum Þjóðleikhússins hafi
verið á Vestfjörðum,
Norðurlandi og Austurlandi
á sl. 5 árumoghversumargir
leikarar eða leikstjórar hafi
verið látnir leikfélögum úti
á landi í té á sama tíma.
Föstudagur 29. mars 1985
3
Skemmtiþættir ffyrir
sjónvarpið boðnir út?
■ Lista- og skemmtideild
sjónvarpsins vinnur nú að könn-
un á kostnaði vegna útboðs á sex
30 minútna þáttum með léttu
efni. Tillaga Jóns Þórarinssonar
þess efnis var samþykkt í út-
varpsráði 9. mars sl. Forsendur
hennar munu vera þær að talið
er að stúdíó sjónvarpsins anni
ekki þeim verkefnum sem stofn-
unin hefur fé til að láta vinna.
„Þetta er áhugavert mál og
mjög í þeim anda sem ég hef
viljað vinna eftir og lagt til í
hvert sinn sem ég hef lagt fram
árs áætlanir í útvarpsráði, þ.e.
að það sé boðið út efni ef til eru
peningar fyrir meiru en það
starfsfólk, sem hér er ráðið
kemst yfir,“ sagði Hinrik
Bjarnason yfirmaður Lista- og
skemmtideildar í samtali við NT
í gær. Hann sagði reyndar ekki
ljóst hvort svo væri nú, við því
hefðu ekki fengist hrein svör.
En hann liti svo á að hér væri um
að ræða verkefni, sem ekki væri
unnt að vinna innan sjónvarps-
ins enda teldi hann óeðlilegt að
bjóða út verk sem hægt væri að
láta fastráðið starfsfólk sjón-
varpsins vinna.
„Ég tel það skyldu mína í
starfi að sjá til þess að undir-
menn mínir hjá stofnuninni hafi
næg verkefni, en jafnframt að ef
fé er fyrir hendi til þess að láta
vinna meira en það þá verði það
boðið út. Við færum ekki fé á
milli ára,“ sagði Hinrik Bjarna-
son.
„Ég get ekki svarað því, út-
varpsráð er yfirstjórn dagskrár-
stefnunar hér og það er þess að
ráðstafa dagskrárfé," sagði
Hörður Vilhjálmsson fjármála-
stjóri aðspurður um málið.
■ Þorbjörn Karlsson prófessor, formaður Fulbright stofnunarinnar á íslandi veitir viðtöku íslandskortinu sem Sólrún B. Jensdóttir
afhenti fyrir hönd menntamálaráðherra. Milli þeirra á myndinni eru f.v. Robert Breman framkvæmdastjóri og Dan Simpson frá
bandaríska sendiráðinu. NT-mynd: Sverrir.
Fulbright stofnunin í nýju húsnæði
■ Fulbright stofnunin hefur
tekið til starfa í nýju húsnæði að
Garðastræti 16 í Reykjavík, en
áður var stofnunin til húsa 'a
Neshaga í húsnæði Menningar-
stofnunar Bandaríkjanna. Að
sögn Wincie Jóhannsdóttur
starfsmanns stofnunarinnar
rýmkast mjög um hana við hús-
næðisskiptin.
Starfsemi Fulbright stofnun-
arinnar er tvíþætt, hún veitir
íslenskum námsmönnum styrki
til náms og rannsókna í Banda-
ríkjunum og Bandaríkjamönn-
um sömu fyrirgreiðslu hérlend-
is. Ennfremur veitir hún upplýs-
ingar um nám og einstaka há-
skóla í Bandaríkjunum og veitir
ráðgjöf þar að lútandi. Skrif-
stofan er opin alla virka daga kl.
12-16 og á fimmtudögum til kl.
19.
Blaðamönnum var boðið að
skoða hið nýja húsnæði þegar
það var tekið í notkun. Við það
tækifæri afhenti Sólrún B. Jens-
dóttir skrifstofustjóri í mennta-
málaráðuneytinu stofnuninni
íslandskort að gjöf fyrir hönd
Ragnhildar Helgadóttur
menntamálaráðherra.
Akureyri:
Fulltrúi ís-
lands í kyn-
skiptingu
- á vinnumarkaði
i samnorrænu verkefni
Fra freftarítara NT á Akureyri HÍÁ:
■ Akureyri hefur verið
valin sem fulltrúi íslands í
samnorrænu verkefni um
kynskiptingu á vinnumark-
aði, og hefur bæjarráð Ak.
lýst sig samþykkt þátttök-
unni.
í skýrslu jafnréttisnefndar
á Akureyri kemur fram að
félagsmálaráðuneytið og
Jafnréttisráð íslands hafa
valið höfuðstað Norður-
lands til þátttöku í verkefn-
inu, sakir fjölbreytts at-
vinnulífs og öflugs skóla-
starfs. Norræna ráðherra-
nefndin mun kosta verkefn-
ið að verulegum hluta, þó er
gert ráð fyrir að félagsmála-
ráðuneytið og viðkomandi
bæjarfélag standi straum af
kostnaði innanlands. Hlutur
bæjarfélagsins yrði að leggja
til aðstöðu fyrir innlendan
verkefnisstjóra og skrif-
stofuaðstoð.
Jafnréttisnefnd Akureyr-
ar mælir eindregið með því
að þessu boði verði tekið.
Nefndin telur þetta mikil-
vægan lið í norrænu sam-
starfi og hafi auk þess mikið
kynningar- og auglýsingar-
gildi fyrir Akureyri, þar eð
þau fimm norrænu bæjarfé-
lög sem þátt taka í verkefn-
inu verða mikið í sviðsljós-
inu næstu 4-5 árin. Bent er á
að" könnunin „Vinnumar-
kaðurinn á Akureyri og at-
vinnuþátttaka kvenna", nýt-
ist vel í þessu verkefni og
auðveldi á margan hátt skip-
ulagsvinnu þess og
framkvæmd.
Hjálparsveit
skáta á Fjöll-
um stofnuð
■ Stofnuð hefur verðið Hjálp-
arsveit skáta á Fjöllum, H.S.F.
Heimili hennar og varnarþing
er á Grímsstöðum í Fjallahreppi
í N-Þingeyjarsýslu. Tilgangur
með stofnun sveitarinnar er að
stunda almenna björgunar-,
leitar- og hjálparstarfsemi, þeg-
ar verðmæti eða mannslíf eru í
hættu.
Hjálparsveitin á Fjöllum er
sú átjánda sem gengur til liðs
við Landssamband hjálpar-
sveita skáta, og jafnframt sú
afskekktasta. 1 fréttatilkynn-
ingu frá Landssambandinu segir
að starfsvæði sveitarinnar sé
stórt og oft og tíðum erfitt
yfirferðar.
Nær allir verkfærír karlmenn
í hreppnum,: þar sern eru 25
manns, taka þátt í störfum sveit-
arinnar. Formaður er Sigurður
Axel Benediktsson, bóndi á
Grímsstöðum.
Áttatíu og fimm ára gamall bóndi í Mývatnssveit:
Leggur f ram 100 þúsund
til kaupa á Kolbeinsey
- Ekki nema árs eftirlaun sem ég gaf, segir Jón Sigtryggsson
Hagstofa íslands:
Strikar
menn út
af tölvu-
listum
■ Hagstofa fslands vekur athygli
á því að þeir einstaklingar sem
óska eftir að nöfn þeirra verði af-
máð úr skrám sem Hagstofan færir
og kann að verða beitt til þess að
senda út dreifibréf, happdrættis-
miða og annað efni af svipuðu tagi,
geta snúið sér til Hagstofunnar
með beiðni þarað lútandi.
Samkvæmt ákvæðum 2. mgr.
13. gr. laga nr. 63/1981 um kerfis-
bundna skráningu á upplýsingum
er varða einkamálefni er skylt að
verða við óskum manna um að
nöfn þeirra séu máð af skrám
sem notaðar eru til útsendingar
dreifibréfa, tilkynninga, auglýs-
■ „Þetta eru nú ekki nema
eins árs eftirlaunin mín sem ég
gaf. Það tapa margir atvinn-
unni ef Kolbeinsey verður seld
burt, margar konur vinna við
að verka aflann sem togarinn
færir að landi en hafa enga
vinnu ef hann fer,“ sagði Jón
Sigtryggsson, áttatíu og fímm
ára bóndi á Syðri-Neslöndum
Mývatnssveit, en hann hefur
tilkynnt bæjaryfírvöldum á
Húsavík að hann hyggist leggja
fram 100 þúsund krónur sem
hlutafjárframlag vegna þeirra
aðgerða sem bæjaryfirvöld
muni beita sér fyrir til þess að
eignast skipið þegar til upp-
boðs kemur.
Jón kvaðst vona að fleiri
gerðu slíkt hið sama og sam-
einuðust um að leggja sitt af
mörkum til þess að ekki þyrfti
að koma til þess að togarinn
yrði seldur burt á uppboði.
Það þarf mikið til að greiða úr
þessum vanda en með góðum
vilja er mikið hægt að gera.
Bjarni Aðalsteinsson,
bæjarstjóri á Húsavík, sagði
að ekki væri enn búið að setja
viðmiðunarverð á skipið þann-
ig að erfitt væri að segja til um
hvaða upphæðir væri um að
ræða. Umræður við ýmsa aðila
á Húsavík um mögulegar að-
gerðir í málinu verða sennilega
á næstu dögum og einnig verð-
ur bráðlega rætt við stjórnvöld
og fulltrúa Fiskveiðisjóðs.