NT - 29.03.1985, Blaðsíða 4
Föstudagur 29. mars 1985 4
Fréttir
Arangurslaus leit þrjú hundruð manna að skipverjum Bervíkur SH:
„Það verður aldrei fullleitað“
■ Brotist yfir fjörugrjótið. Á meðan lemst sjórinn í heljartökum, kaldur og ógnvænlegur.
NT-mynd: Ámi Bjarna.
Slær óhug á mann
- segir Árni Kristinsson skipstjóri
sem sá Bervík skömmu fyrir slysið
■ „Alveg furðulegt að svona eigi sér stað við ekki verri
aðstæður. Maður hefði talið að ejtthvað hafi gefið sig en getur
ekkert fullyrt um það,“ sagði Árni Kristinsson skipstjóri á
Svaninum, en hann og fáeinir aðrir stóðu í húsi vigtarmanna
á bryggjunni á Rifi og horfðu á Bervíkina nokkrum mínútum
áður en hún hvarf í sæ. Enginn sá þegar bátnum hvolfdi.
NT hitti Árna Kristinsson
niðri í lúkar á Svaninum í
gærdag þar sem hann og aðrir
skipverjar ræddu atburðina
yfir kaffibolla.
„Óneitanlega slær óhug á
mann þegar það gerist rétt
við bæjardyrnar að kunningj-
ar manns fara svona,“ sagði
Árni og félagar hans tóku í
sama streng.
„Ég horfði á hann svolitla
stund og mér fannst ekkert
athugavert við þetta. Við
höfðum verið að landa og ég
fór svo upp á vigt. Það var
látlaust rennerí af smábátum
hérna. Pað að enginn sér
þetta lýsir því að engum hefur
þótt neitt athugavert við
bátinn,“ sagði Árni ennfrem-
ur.
Bátur Árna, Svanurinn, er
einn margra norðanbáta sem
gerir út frá Snæfellsnesinu og
sagði Árni að þetta væri 10.
vetrarvertíð hans á þessum
slóðum en sjálfur er hann
Hríseyingur.
■ Tíunda vetrarvertíðin
héðan. Árni Kristinsson frá
Hrísey. NT-mjnd: Árni Bjarna.
■ Yfir þrjú hundruð manns
tóku þátt í leitinni í gær að
skipvcrjum Bervíkur frá Ólafs-
vík sem saknað hefur verið
síðan í fyrrinótt, og verður leit
haldið áfram í dag. Hvasst var
í veðri í gærdag, bræla á mið-
um og brunagaddur sem tor-
veldaði leit því hálka var mikil
á grjóti í fjörunni þar sem
leitað var.
„Það verður aldrei,“ svaraði
Gunnar Hauksson aðspurður
hvenær hann teldi að það yrði
fullleitað í hafnargarðinum,
þegar NT hitti hann að máli
þar á vettvangi í gærdag. Mikið
stórgrýti er í garðinum og
liggja víða göng og gjótur milli
þeirra og langt inn í garðinn.
Er ekki loku fyrir það skotið
að sum göngin nái alla leið í
gegn.
„Þetta er í fimmta eða sjötta
sinn sem við förum yfir þetta
en hér eru allsstaðar holur sem
hægt er skríða inní og mikið
þarf að leita,“ sagði Gunnar
ennfremur. Tugir manna voru
við leit á hafnargörðunum
tveimur og var þar gengið milli
allra steina og reynt að líta
ofan í allar gjótur.
Allt bendir til þess að Bervík
hafi hvolft mjög skyndilega
aðeins fjögur til fimmhundruð
metrum frá nyrðri enda hafn-
argarðsins á Rifi og slysið orðið
svo skyndilega að enginn hafi
náð að senda út neyðarkall eða
komast í björgunarbát.
Á þessum stað fann áhöfn
Hugborgar frá Ólafsvík gúm-
björgunarbát Bervíkur. Hann
var mannlaus og virðist enginn
hafa komið í hann en báturinn
var bundinn við eitthvað á
hafsbotni sem talið er að sé
flak skipsins. Ekki var hægt að
kafa þar niður í gærdag vegna
hvassviðris en dýpt sjávar á
þessum stað er innan við 20
metrar samkvæmt mælingu
varðskips.
Það litla sem rekið hefur í
land frá Bervíkinni er lestar-
hlerar og svokallaðar uppstill-
ingar af dekki.
Hættuleg röst
Hvað valdið hefur slysinu er
ekki vitað en í samtali við NT
nefndi Leifur Jónsson leitar-
stjóri og formaður slysavarna-
félagsdeildarinnar á Hellis-
sandi að lestarstíur gætu hafa
bilað þannig að aflinn hafi runnið
ið til í lest og jafnvægi bátsins
raskast. Brotsjór gekk svo
þarna yfir, enda niu vindstig.
í samtali við NT sagði Stein-
ar J. Lúðvíksson sem hvað
gerst þekkir sögu sjóslysa í
landinu að einmitt á þessum
stað sé röst í sjónum sem
mikið brjóti á og geti brotið í
logni. Þarna hafi tveir vélbátar
farist á öldinni, Dagmar 1940
og Sunnlendingur 1903.
Vont var í sjó á miðviku-
dagskvöldið og lenti að
minnsta kosti einn annar smá-
bátur í Breiðafirðinum í
brotsjó en komst klakklaust til
hafnar. Einn 27 tonna bátur
sem gerir út frá Ólafsvík, Siggi
Bjarna NK, beið í vari drekk-
hlaðinn sunnan jökuls alla
nóttina og komst svo til hafnar
í fylgd með varðskipi um há-
degisbilið í gær.
Mátti veiða 8 tonn
Bervíkin hélt til veiða á mið-
vikudagsmorgun en fékk þau
skilaboð rétt síðar að fisk-
vinnslan gæti ekki tekið við
meiri afla þar eð einstaklega