NT - 29.03.1985, Page 5
Ómar Lúðvíksson, slökkviliðsstjóri á Hcllissandi með brak sem rekið hefur.
NT-mynd: Ámi Bjurna.
mikið hefði borist í land daginn
áður. Sneri hún þá ásamt fleiri
smábátum til hafnar en áður
en heim kom var aftur kallað
til skipverja og þeim sagt að
frystihús á Rifi gæti tekið við 8
■ Leifur Jónsson, formaður Slysavarnardeildarinnar á Hellis-
sandi og stjórnandi leitarinnar í gær ásamt Adolf Steinssyni,
lögregluvarðstjóra á Ólafsvík, í stjórnstöð Slysavarnarfélagsins.
NT-mynd: Árni Bjarna,
tonnum frá þeim og hélt bátur-
inn þá út aftur.
„Þau voru dýr þessi 8 tonn,“
sagði einn leitarmanna og sjó-
maður á trillu dapur í bragði
þegar NT ræddi við hann og
fleiri á hafnargarðinum í Rifi
í gærdag. Þegar NT innti hann
eftir hvort þetta yrði til þess að
menn hyrfu frá því að fara á sjó
á litlum bátum töldu fæstir að
svo myndi verða. „Þetta erþað
sem hefur alltaf verið að gerast
allar aldir og heldur áfram að
gerast. Á sjó í dag og uppi á
fjöllum á morgun, það veit
enginn slíkt fyrirfram. Þetta er
lífsbaráttan.“
„Hann fór rólega“
Það hefur væntanlega verið
Hringur Hjörleifsson, fram-
kvæmdastjóri fiskiðjunnar
Búrfells, sem síðastur manna í
landi sá til Bervíkur heiman að
í stofu hjá sér í Rifi. Hann tók
eftir bátnum tíu mínútum eða
korteri fyrir átta og segir svo
frá í samtali við NT að hann
hafi fylgst með bátnum þar til
klukkuna vantaði nokkrar
mínútur í átta.
„Hann fór auðsjáanlega ró-
lega og ég gat ekki séð að það
væri neitt að,“ sagði Hringur,
en það var fiskiðja hans sem
ætlaði að kaupa fiskinn af Ber-
víkinni og er talið að hún hafi
verið með þau átta tonn sem
um var talað og ekki meira.
Aflanum átti að landa í Ólafs-
vík og flytja með bíl yfir á Rif.
Hringur fylgdist því aðeins
með bátnum að þarna var á
ferðinni afli sem hann ætlaði
að taka á móti.
Á sama tíma og Hringur
fylgdist með Bervíkinni hafði
■ Hér verður aldrei fullleitað. Gunnar Hauksson, einn ieitarmanna. NT-mynd: Ami Bjama.
skipstjóri hennar samband við
höfnina í Ólafsvík og tilkynnti
að sér myndi seinka en til-
greindi ekki hversu mikið
Hvað þá hefur verið að er ekki
vitað en vont var í sjó þannig
að báturinn fór hægt yfir.
„Ég þurfti svo að fara niður
í frystihús klukkan svona fjór-
ar mínútur í átta,“ sagði
Hringur. 25 mínútum yfir átta
hringdi Hringur svo í höfnina
á Ólafsvík og var þá sagt að
Bervíkin væri ekki komin.
Hann vakti þá athygli á því að
hann hafði séð hana um átta-
leytið en var sagt að hún hefði
tilkynnt seinkun. „Mér fannst
þetta þá alveg standast áætlun
og ekkert athugavert þó henni
seinkaði um 10 til 15 mínútur.
Hún hefði átt að vera komin
korter til tuttugu mínútum yfir
átta til hafnar,“ sagði Hringur.
Það var svo laust upp úr hálf
níu að Hugborgin sigldi fram á
gúmbjörgunarbátinn sem skot-
ist hefur upp fyrir sjálfvirkan
sleppibúnað. Þá vissu skipverj-
ar á henni ekkert úr hvaða bát
björgunarbáturinn væri en sáu
að hann var mannlaus og sló
óhug á áhöfnina. Haft var
samband við Ólafsvíkurhöfn
og fengust þar þær upplýsingar
að Bervíkin hefði enn ekki
skilað sér til hafnar.
Stundu síðar hófst leit
Það var svo svolítilli stund
síðar, eða laust upp úr klukkan
níu að haft var samband við
Slysavarnarfélagsdeildirnar
Sæbjörg í Ólafsvík og Björg
á Hellissandi og hófst þegar
leit. Fram á þriðja tímann
aðfararnótt fimmtudagsins
leituðu á þriðja tug báta úr
báðum plássum á sjó og gátu
þeir með dýptarmælum sínum
numið að báturinn væri að
öllum líkindum á hafsbotni
þar sem björgunarbáturinn
fannst.
Samtímis þessu voru á ann-
að hundrað manns að leita í
fjörum á svæðinu allt frá
Brimnesi og að Ólafsvíkurenni
eða um 7 kílómetra strand-
lengju. Leitarskilyrði voru afar
slæm. í gærmorgun leituðu
sveitirnar svo einungis af landi
en þyrla Landhelgisgæslunnar
sveimaði yfir svæðinu í þrjá
tíma fyrir hádegi en sá ekkert.
Gott skyggni var en leitarskil-
yrði að öðru leyti slæm áfram.
Síðdegis í gær bættust við
leitarmenn frá Slysavarnar-
félagsdeildum í Grundarfirði
og Hólmarar koma til leitar í
dag.
Bervíkin SH-43 var 36 tonna
eikarbátur smíðuð á ísafirði
1954. Aflaskip og veiddi á
snurvoð.
Föstudagur 29. mars 1985 5
Flokkur mannsins
stefnir í stjórn
Lagdi fram lista á deildarfundi í gær
■ Flokkur mannsins hefur
undanfarna daga gengið í hús á
Akureyri, og tekið gangandi
vegfarendur tali. Með þessum
samtölum hafa flokksmeðlim-
irnir verið að kynna skoðanir
sína á hvernig mætti bæta starf-
semi Akureyrardeildar KEA.
Á deildarfundi Akureyrardeild-
arinnar sem haldinn var í gær,
voru lagðir fram tveir listar.
Listi stjórnar og listi frá Flokki
mannsins. Á fundinum í gær-
kvöldi voru kjörnir 120 fulltrúar
sem sitja síðan aðalfund, en á
honum er stjórn Akureyrar-
deildarinnar kjörin .
„Mikið af fólki hefur hringt í
mig og kvartað undan ágengni
og starfsaðferðum hjá þeim sem
leggja fram mótframboðið.
Við í stjórninni leituðum eftir
samkomulagi um einn lista sem
allir gætu sætt sig við, en því var
ekki svarað. Ég er ekki á móti
því að rætt sé um samvinnuhreyf-
inguna, og öll gagnrýni á hana
er vel þegin, en ég leyfi mér að
efast um að þessar starfsaðferðir
séu þær réttu,“ sagði Þóroddur
Jóhannsson formaður Akureyr-
ardeildar KEA í samtali við NT
í gærkvöld.
Ryk:
Slökkvilið
kallað til
■ Norðanrok í höfuð-
borginni orsakaði tals-
verðar annir hjá Slökkvi-
liði Reykjavíkur í
gærkvöld. Ástæðan var sú
að rokið bar með sér ryk
sem gerði eldvarnarkerfi
virk. Meðal annars var
slökkviiiðið kallað að Al-
þingishúsinu og í verslun-
ina Hagkaup. Að sögn
slökkviliðsmanna er það
viss gæðastimpill fyrir eld-
varnarkerfin, að þau skuli
vera svona næm að ryk
setji þau í gang.
Nýir vatnsmælar fyrir Hitaveitu Akureyrar:
Tilboði upp á
2.7 m. tekið
- kostnaðaráætlun var 1.7 m.
■ Stjórn Hitaveitu Akureyrar
samþykkti á fundi sínum á mið-
vikudag að fela Wilhelm V.
Steindórssyni hitaveitustjóra að
ganga til samninga við Harald
Helgason pípulagningameistara
um breytingar á hemlagrindum
og uppsetningi á rúmmetramæl-
um í öllum bænum, alls tæplega
3 þúsund inntök. Helgi Haralds-
son átti lægst þriggja tilboða í
verkið og hljóðaði það upp á
tæplega 2.7 milljónir króna.
Wilhelm V. Steindórsson
hafði hins vegar lagt til á sama
fundi, að öllum tilboðunum yrði
hafnað, þar sem þau voru langt
yfir kostnaðaráætlun Hitaveit-
unnar, sem hljóðaði upp á rúm-
lega 1.7 milljónir. Endurskoðuð
áætlun Hitaveitunnar hljóðaði
aftur á móti upp á 2.3 milljónir.
Hæsta tilboðið var upp á 4.8
milljónir og miðboðið var upp á
tæpar 3 milijónir.
Wilhelm sagði í samtali við
NT, að hann hefði lagt til að
leitað yrði samninga á frjálsum
grunni við verktaka um gagn-
kvæmt hagkvæman samning,
sem tryggði öruggan framgang
verksins. Hann sagði, að sam-
kvæmt útreikningum sínum ætti
að vera hægt að framkvæma
verkið fyrir 1.5 milljónir króna
með því að ráða pípulagninga-
menn til Hitaveitunnar á þeim
kjörum, sem byðust á markað-
inum.
Verk þetta er liður í að koma
á breyttu sölufyrirkomulagi hjá
Hitaveitunni. Verkið skal hefj-
ast eigi síðar en 15. apríl og því
skal lokið 31. maí.
Félagsstofnun:
Dansiball hjá
hagsmunafélagi
■ Hagsmunafélag Garð-
búa við Háskóla íslands
gengst fyrir dansleik í Fé-
lagsstofnun Stúdenta í
kvöld. Gleðin hefst kl.
22.00 og stendur til kl.
03.00.
Tónlistin verður í hönd-
unt hljómsveitarinnar
Grafík og einnig koma
þau Jakob Magnússon og
Ragnhildur Gísladóttir
ásamt hljómsveit.
Borgarfjörður:
Þrír sluppu ómeiddir úr bíl-
veltu - en bíllinn eyðilagðist
Frá Magnúsi Magnússyni, fréttarítara NT í
Rorgarfirði:
■ Fólksbíll af Subarugerð valt
út af veginum skammt frá
Sturlu-Reykjum í Reykholtsdal
skömmu eftir hádegið í gær.
Þrír ungir menn voru í bílnum
og sluppu þeir ómeiddir en
bílstjórinn, piltur um tvítugt,
fékk vægt taugaáfall.
Slysið bar að með þeim hætti
að bíllinn var að koma úr
lúmskri beygju sem þarna er og
missti bílstjórinn vald á honum
með þeim afleiðingum að hann
endastakkst og lenti á hvolfi út
í skurð. Bíllinn er mikið
skemmdur ef ekki ónýtur.