NT - 29.03.1985, Side 7

NT - 29.03.1985, Side 7
Stefán Guðmundsson alþingismaður: Er það byggðastefnan sem vandanum veldur? ■ Jón Baldvin Hannibalsson form. Alþýöuflokksins kallar þann áratug sem Framsóknar- flokkurinn hefur verið í ríkis- stjórn „áratug hinna glötuðu tækifæra“. Offjárfesting í sjáv- arútvegi og brjáluð byggða- stefna, allt Framsókn að kenna. Petta er sá söngur, sem ákveðin öfl í þjóðfélaginu hafa kyrjað nú um skeið. Hæst hefur hér látið í Alþýðuflokkn- um og Bandalagi jafnaðar- manna, en því er þó ekki að neita að dygga stuðningsmenn hafa þeir átt í öðrum flokkum. Framsóknarmenn hafa sem fyrr staðið vörð um þá byggð, sem fyrir er í landinu og eflt þær hefðbundnu atvinnugrein- ar, sem fætt og klætt hafa þjóðina um aldir, jafn- framt því sem þeir hafa stutt að uppbyggingu nýrra greina. Eitt af því fáa sem menn eru __ sammála um, er að erlendar skuldir séu orðnar of miklar. Sjávarútvegurinn er ekki sá sökudólgur sem menn hafa viljað vera láta í þessum efnum. Pað er mikill misskiln- ingur, eða vísvitandi sett fram til að blekkja. Við athugun kemur í ljós, að sjávarútvegur- inn aflar um 70-75% gjaldeyr- istekna þjóðarbúsins en hlutur hans í erlendum skuldum er ekki nema um 16%. Hins veg- ar er hlutur orkumála yfir 50%. Hverjir hafa eytt og hverjir aflað? Hverjir samþykktu innflutning togaranna? Því hefur verið haldið fram að of stór togarafloti væri fram- sóknarmönnum að kenna. Steingrímur Hermannsson hafi sem sjávarútvegsráðherra eftir forfeður okkar heldur höfum við það að láni frá börnum okkar. Nýir herrar-nýir siðir Sú margumtalaða upplýs- ingabylting og tækniþróun krefst nýrra siða. Fyrir ungt fólk sem kemur á vinnumarkað á næstu áratugum, verður mikilvægast að vera „tölvulæs“ og hafa skilning til að bera á þessari tækni sem ætlast verður til að viðkomandi beiti. Slík þekking og skilningur kemur ekki af sjálfu sér. Hér kemur til kasta mennta- kerfisins, og standi það ekki sína pligt þá gera það aðrir - einkafyrirtæki og prívatskólar og missir þannig hið opinbera vald á menntakerfinu og frum- kvæði í skólamálum. En menntamálayfirvöld eru í úlfakreppu. Þeir kennarar sem eru hvað mikilvægastir í þessari tækniþróun, eru einnig þeir menn sem eru hvað eftir- sóttastir á vinnumarkaðnum og oft vel yfirborgaðir, eða unnið þar hið versta verk með innflutningi togara. Nú vill svo til að frá árinu 1970 hafa allir flokkar farið með sjávarútvegsmál, vissu- lega í mislangan tíma. Ef skoðaður er sá tími sem hver flokkur hefur farið með völdin í sjávarútvegsráðuneytinu kemur í ljós, miðað við valda- tíma og innflutning skipa, að sá sem flest leyfi hefur veitt til innflutnings skipa er Alþýðu- bandalagið. { öðru sæti er sá, sem nánast hefur viljað telja sig sem hreina mey í þessum efnum, Alþýðuflokkurinn. í þriðja sæti er Sjálfstæðisflokk- urinn. í fjórða sæti kemur svo Framsóknarflokkurinn með langfærstu skipin. Það er með ólíkindum hvað tekist hefur að blekkja í þessu máli. Ávöxtur erfiðisins Fróðlegt er að athuga hvað varð um þessi skip og hvernig til tókst, skoða þá „brjáluðu byggðastefnu", sem þessir á- róðurskóngar og falsspámenn eru að tala um. Það er ekki óeðlilegt í þeirri athugun að skoða einn stað í hverju kjördæmi landsins utan Faxaflóasvæðisins, staði sem notið hafa byggðastefnunnar, og athuga hvað fólkið er að starfa á þessum stöðum. Vöruútflutningur á landinu öllu mun vera um 78.000 kr. á mánn. í Ólafsvík er vöruútflutningur á mann um 270.000 kr. í Bolungarvík er vöruútflutn- ingur á mann um 200.000 kr. Á Skagaströnd er vöruútflutn- ingur á mann um 305.000 kr. Á Þórshöfn er vöruútflutning- ur á mann um 220.000 kr. í Neskaupstað er vöruútflutn- ingur á mann um 205.000 kr. í Þorlákshöfn er vöruútflutn- ingur á mann um 275.000 kr. Það má sjá það hér, hvað það fólk sem dreifbýlið byggir starfar. Á mönnum virkilega .að líðast með lævísum áróðri raungreina- og tölvufræði- kennarar. Það hefur komið í Ijós að ríkisvaldið treystir sér ekki til að keppa við hinn frjálsa mark- að hvað laun varðar, sérstak- lega ekki á tímum spennu og útþenslu eins og nú ríður yfir. Þetta hlýtur að vera pólitísk ákvörðun stjórnvalda hvers tíma. Það getur ekki verið náttúrulögmál að opinber þjónusta verði ævinlega að láta í minni pokann í átökum við hinn frjálsa markað. Hitt er annað hvort menn vilja elta allar sveiflur markað- arins eða bæta opinberum starfsmönnum launamismun með öðrum hætti. Svo bregdast krosstré... Án þess að taka afstöðu til kjaramála kennara, þá verður að fordæma þá truflun sem varð á öllu skólastarfi fram- haldsskólanna í mánuðinum. Deiluaðilar, kennarar og ríkis- valdið, verða að vinna því öllum árum að ekki komi til uppsagna né dulbúinna verk- falla - annars verða orðin fögru um glæsta tækniframtíð tóm og tónarnir skrækir. Þá má einnig benda á hversu menntakerfið er úr tengslum að koma því inn hjá stórum hluta þjóðarinnar að þetta fólk, sem að framleiðslunni starfar, sé eitthvert sérstakt vandamál og jafnvel byrði á þjóðinni? Slík vanþekking á högum þjóðarinnar er forkast- anleg og þeim er smyrja áróð- ursvélarnar til skammar. Á hverju lifir þjóðin? Það er eitthvað annað en málefni sem ráða hugsun og gerð þeirra manna sem telja að Framsóknarflokkurinn hafi unnið eitthvert óhappaverk með því að standa flokka fast- ast að útfærslu fiskveiðiland- helginnar. Tvisvar sinnum var fiskveiði- landhelgin stækkuð á þessum umtalaða „Framsðknarára- tug“, úr 12 sjómílum í 50 sjómílur, og síðar í 200 sjómíl- ur, eða úr 75 þús. ferkm. í 758 þús. ferkm. Fyrir þessa út- færslu lögsögunnar er talið að erlendar veiðiþjóðir hafi tekið hér yfir 50% af öllum botnfisk- afla okkar íslendinga. Þeir sem telja þetta tímabil „ár hinna glötuðu tækifæra“ ættu að fá við atvinnulífið. í nýlegri könnun kom fram að aðeins 6% þjóðarinnar hafa hlotið fræðslu um sjávarútveg í skól- um meðan 70% þjóðarinnar hafa unnið við sjávarútveg. Hvað á svoleiðis nokkuð að þýða? Fornaldarsaga og Ijóða- lestur eru ágætis fög svona sem viðbit - en það hlýtur að vera meginkrafa þjóðfélagsins að afsprengi skólakerfisins viti eitthvað um þetta sama þjóð- félag að lokinni margra ára skólagöngu. Horhim björtum augum til framtíðar Vissulega geta menn litið framtíðina björtum augum og látið sig dreyma um þúsundir manna í upplýsingaiðnaði og aðrar þúsundir við framleiðslu á tölvum og græjum. En það er ekki aldeilis nóg að láta sig dreyma - þótt það sé ljúft. Það verður tafarlaust að grípa til aðgerða. Fyrsta skref- ið er stigið með 50 milljón króna framlagi til rannsókna og þróunarstarfa en það þarf meiratil. Það verðuraðtryggja að það fjármagn sem ætlað er til nýsköpunar fari ekki í hefð- sér leyfi frá störfum um sinn og kynna sér á hverju þjóðin lifir, áður en þeir taka við stjórn hennar. Nýsköpun atvinnulífsins krefst aukinnar menntunar Er það röng byggðastefna að hafa byggt Fjölbrautaskól- ann á Akranesi, Menntaskól- ann á ísafirði, Fjölbrautaskól- ann á Sauðárkróki, Verk- menntaskólann á Akureyri, Menntaskólann á Egilsstöð- um, Fjölbrautaskólann á Sel- fossi og Fjölbrautaskóla Suðurnesja? Sú fjölgun sem átt hefur sér stað í Háskóla íslands og hin- um ýmsu sérskólum sýnir að hér var aðstaða til menntunar jöfnuð. Ef skyggnst er til framtíðar er það öllum hugsandi mönn- , um ljóst, að það er bæði rétt og okkur íslendingum nauðsyn að fjárfesta meir í menntun en við höfum áður gert, ætlum við okkur að byggja hér það land, sem getur boðið þegnum sín- um hliðstæð lífskjör og gerast best meðal annarra þjóð. Er það virkilega álit fyrrver- andi skólameistara Mennta- skólans á ísafirði, Jóns Baldvins, að uppbygging hinna ýmsu mennta-, fjölbrauta- og verkmenntaskóla sé „brjáluð byggðastefna" og þar hafi framsóknarmenn unnið hið versta verk? Framsóknarmenn þurfa ekki að biðja afsökunar á sínum hlut að þeirri uppbygg- ingu sem orðið hefur, m.a. til að jafna aðstöðu til menntunar í landinu. Það er orðið meira en tíma- bært fyrir þá sem harðast dæma byggðastefnuna að átta sig á því hvar fjármagnið verður til í þessu landi. íslendingum er nauðsynlegt að byggja landið allt, þannig að sem best takist að nýta gögn þess og gæði. bundnar iðngreinar heldur í það sem því er ætlað. Þá verður að efla mjög alla raungreinakennslu skólanna og efla og örva rannsóknar- starf íslenskra vísindamanna. Það verður að styrkja íslenska hugvitsmenn og hönnuði. Hönnunarvinna er mjög dýr og ekki á færi allra fyrirtækja að standa að þróunarvinnu. Ekki af sjálhi sér! Verkefnin sem bíða eru fjöl- mörg en þau verða ekki leyst nema tekið sé á þeim af einurð. Stjórnvöld hafa stigið fyrsta skrefið með nýsköpunarfjár- magni nú, en menn verða að athuga að það er einungis fyrsta skrefið. Ef sækja á milljónir og millj- arða í hátækniiðnað framtíðar- innar er ekki nóg að fjárfesta nokkrar milljónir núna. Það verður að fjárfesta hundruði milljóna, og þá ekki bara í alls kyns tækjum og fyrirtækjum heldur kannski fremur í menntun og skólakerfinu. Við skulum ekki planleggja tækni- þjóðfélag fyrir börnin án þess að gera þeim kleift að vera tilbúin. S. Alb. Föstudagur 29. mars 1985 7 Málsvari frjálslyndis, samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútíminn h.f. Ritstj.: Magnús Ólafsson (ábm). Markaðsstj.: HaukurHaraldsson Auglýsingastj.: Steingrímur Gíslason Innblaðsstj.: Oddur Ólafsson Tæknistj.: Gunnar Trausti Guðbjörnsson Skrifstofur: Siðumúli 15, Reykjavík. Simi: 686300. Auglýsingasími: 18300 Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 687695, iþróttir 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 og 35 kr. um helgar. Áskrift 330 kr. Virðisaukaskattur? ■ í ítarlegri úttekt, sem NT birtir í dag um virðisaukaskattsfrumvarp ríkisst j órnarinnar, kemur m.a. fram að frá og með gildistöku slíkra laga, myndi verð á matvörum hækka um 19% á einum degi. Útgjöld heimila vegna húsnæðis, ljóss og hita myndu einnig aukast. Pessar hækkanir eru meðal mikilvægustu afleið- inga þess, að virðisaukaskattur kæmi í stað gamla söluskattsins, eins og nú er rætt um. Það er þó sérkennilegt, að þegar um jafn veigamiklar afleiðingar og þessar er að ræða, á sér stað sáralítil almenn umræða um virðisaukaskatt. Þetta er því einkennilegra, að upptöku virðisauka- skatts myndi m.a. fylgja, að gjaldendum myndi fjölga um meir en tíu þúsund frá því sem nú er og alls myndi skatturinn beinlínis snerta um tuttugu þúsund aðila í hagkerfi okkar. Þar sem ákvörðun um virðisaukaskatt mun verða tekin á næstu misserum, er ljóst að sú ákvörðun mun mótast verulega af þeirri umræðu, sem mun eiga sér stað á næstu mánuðum í þjóðfélaginu. Eigi sér engin umræða stað, verður ekki annað séð, en frumvarpið fari hljóðlega í gegn. M.a. til að reyna að koma þeirri umræðu af stað, birtir NT í dag þessa úttekt um virðisauka- skattinn, sem mun snerta um tuttugu þúsund aðila. Söluskattskerfi okkar íslendinga er óneitanlega ekki gallalaust. Undanþágurnar og hátt skatta- hlutfall hafa haft í för með sér, að tilhneiging til skattsvika er veruleg. Pá eru hin svonefndu uppsöfn unaráhrif söluskattsins alvarlegur galli á kerfinu, en þessi áhrif vinna m.a. gegn sérhæfingu og verkaskiptingu milli fyrirtækja. Á hinn bóginn hefur söluskattskerfið einnig mjög mikla kosti. Ber þar hæst, að kerfið er mjög einfalt í framkvæmd og kostnaður við það er í lágmarki. Virðisaukaskattskerfið hefur marga aðlaðandi kosti, s.s. að í því gætir engra uppsöfnunaráhrifa og án undanþága myndi virðisaukaskatturinn vera hlutlaus. Á hinn bóginn verður virðisaukaskattskerfið óhjákvæmilega mjög þungt í vöfum og dýrt í framkvæmd. Gjaldendum mun fjölga um 120%, þannig að aðeins það sýnir hve umfangsmikil breytingin yrði. Mikilvægasta afleiðingin við breytinguna yfir í virðisaukaskatt er án efa sú að allar undanþágur verða afnumdar, þar á meðal á matvörum. Slíkri breytingu verður að mótmæla. Það má ekki gera íslenskum heimilum þann óleik, að hækka allar matvörur um tæp 20% á einum degi án þess að til mótaðgerða kæmi. Slík hækkun kæmi aðeins niður á þeim, sem minnst mega við því að fá matvöruhækkanir. Pá ber að hafa í huga, að samdráttar myndi áreiðanlega gæta í innlendri matvöruframleiðslu í kjölfar slíkrar hækkunar, en ætla má að þegar hafi orðið nægilegur samdráttur á því sviði. Hvað sem því líður, er ljóst að meiri umræða r ,um virðisaukaskattinn er nauðsynleg.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.