NT - 29.03.1985, Page 8

NT - 29.03.1985, Page 8
 Dag- bók Kvenfélag Háteigssóknar ■ Fundur þriðjudagskvöldið 2. apríl í Sjómannaskólanum. Steinunn Gísladóttir sýnir tertuskreytingar. Allar konur í sókninni velkomnar. Ásmundarsafn ■ Ásmundarsafn við Sigtún verður lokað fram í maí vegna framkvæmda við safnahúsin. Ný sýning verður opnuð í lok maí og mun hún bera^firskrift- ina „Konan í list Ásmundar Sveinssonar". Ásmundarsafn. ■ Hið íslenska sjóréttar- félag: Fundarboð ■ Fræðafundur verður hald- inn í Hinu íslenska sjóréttarfé- lagi þriðjudaginn 16. aprfl n.k. og hefst hann kl. 17:00 í stofu 201 í Árnagarði, húsi heim- spekideildar Háskólans (Ath. breyttan fundarstað). Fundarefni: Sjálfstæður réttur áhafnar til björgunarlauna? Framsaga verður um nýleg- an dóm Bæjarþings Hafnar- fjarðar, sem tengist þessu efni, og síðan verða umræður af því tilefni. Fundurinn er öllum opinn og eru félagsmenn og aðrir áhugamenn um sjórétt og sjó- vátryggingarétt hvattir til að fjölmenna. Gerðuberg: Fundur um Eþíópíu á vegum Amnesty Intemational ■ í tegnslum við sýningu Amnesty International, al- þjóðlegu mannréttinda- samtakanna, í Menningarmið- stöðinni Gerðubergi, gengst íslandsdeild Amnesty fyrir al- mennum fundi laugardaginn 30. mars kl. 16.00 í Gerðu- bergi. f>ar munu Árni Gunn- arsson og Bernharður Guð- mundsson segja frá Eþíópíu, landi, þjóð og félagslegu ástandi, en þeir voru báðir nýlega í landinu. Er áhugafólk um mannréttindamál, í Amn- esty og utan, hvatt til að koma á fundinn til að kynnast betur þessari fornu menningarþjóð, sem hefur verið svo ofarlega á baugi í fréttum. Fyrirfundinn, kl. 15.00 verða í setustofu Gerðubergs sýnd myndbönd sem alþjóðasamtökin hafa gert um baráttuna gegn pyntingum og um starfsemi sína. Er> Gerðuberg opið um helgar kl. 14-18 og á virkum dögum kl. 16-22. Árnað heilla ■ 90 ára. Um helgina, laugardaginn 30. mars og sunnudaginn 31. mars eiga hjónin Vilborg Árnadóttir og Pétur Teitsson 90 ára afmæli. Þau bjuggu áður á Bergsstöðum á Vatns- nesi en eru nú búsett á Hvammstanga og taka á móti gestum laugardaginn 30. mars kl. 14:30 til kl. 17:00 í félags- heimilinu á Hvammstanga. Föstudagur 29. mars 1985 8 ndur haf Snerist hugur í bjórmálinu Ölvun við akstur um allt land? ■ Fyrir nokkrum árum skrif- aði ég grein í eitt dagblaðanna, þar sem ég hvatti ráðamenn þessa lands að leyfa fram- leiðslu á áfengum bjór til útf- lutnings og sölu í ÁTVR. Á síðastliðnu sumri dvaldi ég nokkurn tíma í Bandaríkj- unum og snérist mér þá algjör- lega hugur, en þar kynntist ég bjórmenningu sem hugmyndin er að innleiða hér á landi. f Bandaríkjunum er bjór eingöngu til sölu í áfengisversl- unum og betri matsölustöðum og hótelum. Pað að bjór sé aðeins seldur í ÁTVR, breytir engu um flæði bjórsins yfir Takk, Stein- grímur þú hjóst á hnútinn ■ Ég get ekki látið hjá líða að þakka Steingrími Her- mannssyni forsætisráðherra fyrir það að höggva á hnútinn í kennaradeilunni. Það sýndi sig enn og aftur í þessari deilu að sjálfstæðismenn eru alls ófærir að leysa friðsamlega deilur sem komu upp við launafólk og þarf ekki annað en að vitna til haustsins til þess að sjá það. Þá héldu framsókn- armenn reyndar um of að sér höndunum en vitað var að bæði Steingrímur og fleiri fram- sóknarráðherrar voru mjög ósáttir við ýmsar harðar ákvarðanir sjálfstæðisráðherr- anna. Ég held að við höfum nú forsætisráðherra sem er mjög treystandi til að bera klæði á vopnin og laða til samstarf ólíka hagsmunahópa í þjóðfé- lagi okkar. Ég vil ekki láta hjá líða að þakka honum fyrir það að leysa kennaradeiluna þegar allt virtist vera að hlaupa í hnút. Gamall kennari. Steingrímur hjó á hnútinn. Sendum ekki skatteítirlitinu svona boðskort Stöndum saman um hciöarlcg framtöi IJÁItMÁIARÁIMJNl Ylll) Samkeppni um vitlaus- ustu auglýsingarnar Bréfkorn frá Eiríki og Auðu til Alberts og co. ■ Það cr murgt brcfið scm Albcrt blcssaður hcíur scnt okkur Auðu minni og það á prcnti Og núna þcgar framtal- ið okkar cr farið (cg læddist mcð það á síðustu stundu). þá lang; r okkur Auðu að scnda þcssar linur i þakklartisskyni til stjórnarhcrra og unnarra Dándimanna. Þctta vcröur icyndar ógn sundurluust og bara um at- burði líðandi stundar. cins og þcir segja svo fallcga i fjolmiðl- unum. Nú ciga ba-ndur að fá þús- undkall fyrir hvcrn kálf scm þcir skcra Það cr nú munur cða smánarvcrðlaunin scm scla- dráparar fá hjá Birni D. Samnorræn lciksýning ku hafa vcrið haldin i Þjóð- lcikhúsinu. Lcikstjóri Páll minn á Höllustóðum. Frum- sýnt lcikritið Pappírspúkinn Sviðsmcistarar Jón Baldvin og Árni Johnscn. Jon formaður lagstur i lands- hornaflakk cr okkur sagt mcð annan trúð mcð scr. F.r það satt scm okkur Auðu cr fortalið. að Rikisútvarpið okkar. Háskólinn og ríkissjóð- urinn þinn Albcrt minn scu nú i harðri samkcppni um vitlaus- ustu auglýsingar ársins í sjón- varpi'.’ Sumir scgja. að vinur litla mannsins sc týndur. Er það satl? ..Stcingrimur stcrki" hvcnær kcmur þú til að hrcssa okkur þurrbrjósta. og horga þó ckki \æri ncma auglýsingakostnað- inn þinn Albcrt minn? öðru hvoru cr vcrið að tala um að ..fækka bændum." Hvaða aðferðum á að beita við fxkkunina? Eg las í Mogganum minum. að hið opinbcra og bankarnir hafi aukið mannafía sinn yfir 2007o síðustu árin. Já. gott cr að hafa atvinnutxkifarrin. I Suðurlandi. scm cr blað okkar Stcina stóllausa. las cg þctta: ..Milliliður tekur aöeins kr. II.356.00 fvrir að koma cinu nauti í frystikistu ncyt- andans " Það cr cins og cg hcf alltaf sagt og við i íhaldinu: Milliliðirnir cru ómissandi. Er það satt að cinhvcrjir scndlar Reagans hafi sést á vappi á Þórshöfn og horft mjög til fjalla? ()g cnn spyrjum við: Er það virkilcga satt að (icir hafi sctt Þorstcini minum stölinn fvrir dyrnar? Mikið list okkur Auðu vcl að fá niðurgrciddar kartoflur. Ekki má hcfta innflutning- inn á þcim útlcndu. þaðskcrðir frclsið og svo cru þær islcnsku svo svcito og þær utlcndu ..boðlcgri" scgja fínu vcitinga- mcnnirnir i hcnni Rcykjavik. Nú xtti að ganga gctur að lækka saufcnu. hara scnda þyrlur yfir hjarðirnar og frcta á þxr Mcð kvcðju til dóms- málaráðhcrrans og frú Sórcn- scn. Það glcpur okkur Auð- bjorgu mina að nýtni og hag- ræðing er ckki fyrir bí i landi okkar. I Vcstfirðingi lásum við: ..Skclvinnsla og harnagæsla i sláturhúsinu. Hvaö varðar sjavarfang. þá hcfur kaupfc- lagið hafið skclvinnslu og cr hón til húsa i sláturhúsinu eins og barnagæslan á staðnum." Aldcilis crum við undrandi á hvi að kA.nn-.livl-.l,.....r „Sjá hér hve illan enda...“ landsbyggðina og inn á heimil- in. Bjórflaskan er mjög sak- leysisleg, og þar með besti felustaður Satans, og veit ég að það verður mikil ógæfa fyrir íslensku þjóðina ef hann kemst í bjórflösku inn á hvert heimili í landinu. Ég tók nefnilega oft eftir því í Bandaríkjunum, að það þótti ekkert athugavert við það þótt menn drykkju áfengan bjór þótt þeir ækju bifreið, má vera að það sé leyfilegt þar. Hér vil ég mynna á, að þegar Kóreu-styrjöidin geysaði fór- ust fleiri menn í umferðarslys- um í Bandaríkjunum, heldur en þeir sem féllu í stríðinu. En hvernig verður ástandið hér á landi ef bjórfrumvarpið verður samþykkt? Númer eitt, ölvun við akstur um allt land. Forráðamenn okkar keppast við að segja landsmönnum, að þjóðin sé skuldum vafin og hvert mannsbarn á landinu skuldi núna 4 til 5 þúsund krónur í erlendum gjaldeyri, þjóðin er sem sagt á heljar þröminni. Ég spyr því ráðamenn þess- arar þjóðar, er hægt að lög- leyfa sterkan bjór í slíku landi, sem leiðir af sér böl og eykur útgjöld ríkisins um ótaldar milíjónir? Nei, ríkisstjórn íslands og alþingismenn, hugsið um að efla og skapa arðvænlega at- vinnuvegi í landinu til upp- byggingar og betra lífs í land- inu, en ekki öfugt, það á ekki að eyða tíma í fánýtt hjal á Alþingi þjóðarinnar um fánýt mál eins og bjór og nýjar útvarpsstöðvar sem enginn í þessu litla landi hefur gagn af. Magnús Guðmundsson Patreksfirði. Nafnnúmer: 6257-7908. ■ Þegar við Gudda, konan mín, erum háttuð á kvöldin les ég venjulega dálitla stund í NT áður en við förum að sofa en hún tekur prjónana sína með- an ég les. Stundum les ég upphátt fyrir Guddu mína. Þegar ég var að lesa NT í gærkvöldi, sá ég í blaðinu bréf frá Eiríki og Auði til Alberts & Co., og ég las það upphátt. Að lestri loknum sagði Gudda: „Ég held við ættum að bregða fyrir okkur betri pennanum og skrifa sold- inn póst um hið 'einstæða safnaðarlíf hér í byggðarlag- inu". Ég kvaðst hafa lítinn áhuga fyrir að bera svoddan ósköp út á torg og gatnamót, en Gudda mín var að nudda þar til ég lét undan, enda er hún sauðþrá, kerlingin. Hér í byggðarlaginu eru tvö trúfélög. Ég ætla ekki að nafn- greina þau eða byggðarlagið, enda nöfn og staður auka- atriði. Fyrir öðrum söfnuðinum ræður séra Steinþór. I upphafi prestsskapar síns var hann mjög vinsæll, en nú hefur mjög skipt um til hins verra, því séra Steinþór er farinn að boða kenningar sem ganga þvert á barnatrú safnaðarfólksins, og er nú allt í upplausn og ringul- reið í söfnuðinum og sækja nú fáir kirkju til séra Steinþórs. En, eins og segir í einni ágætri æfisögu: „Kerlingin vill gifta og gifta“, eins vill séra Steinþór messa og messa, þótt æ færri sálir vermi kirkjubekkina. Víkjum þá að hinum söfnuð- inum. Fyrir u.þ.b. 15 mánuð- um réðst til safnaðarins nýr prestur, Þorlákur að nafni, og fyrst í stað dýrkaði safnaðar- fólkið hann svo mjög að það mátti vart vatni halda af hrifn- ingu. En fljótlega fór að brydda á því að séra Þorlákur var mjög óánægður með préd- ikunarstólinn, og kvað hann það svívirðu mikla að bjóða ungum og fallegum presti upp á slíkt stólskrifli. í hverri ein- ustu stólræðu nú síðustu mán- uði hefur séra Þorlákur suðað og tuðað um að fá nýjan préd- ikunarstól. Þetta þykirsafnað- arlimum þunn kenning, enda sívaxandi óánægja með séra Þorlák. Er nú svo komið að surnir gera því skóna að hann missi hempuna þegar safnað- arfundurinn verður haldinn í apríl. Fólk með skyggnigáfu í söfnuði séra Þorláks tók eftir því fyrir nokkrum vikum að púki hafði tekið sér bólfestu á kirkjubitanum. Er honum svo lýst að hann sé toginleitur, hárið aftursætt og hýjungur í vöngum. Púkinn virtist þrífast vel á bitanum, því hann fitnaði stöðugt. Kvöld eitt í vikunni, sem Norðurlandaráðsþing stóð yfir, var aftanandakt í kirkj- unni hjá séra Þorláki. Þetta kvöld lék óvenjumikill vindur undir púkanum og ærslaðist hann mjög á bitanum. Fóru svo leikar að hann gætti sín ekki og hlunkaðist niður á gólf. Skreiddist síðan inn í krókbekkinn og bar sig aum- lega. Þar hefur hann húkt síðan, og er mjög tekinn að horast. Með kærri kveðju. Gísli og Gudda. ■ Fyrsti strætisvagninn í Reykjavík. Var tillitssemin meiri í Haoa? Tillitsseml í strætó ■ Ég er ein þeirra sem ferð- ast mikið með strætisvögnun- um og hef ávallt gert. Ég minnist þess að hérna áður voru í vögnunum ýmsar áminningar til farþega, svo sem um að ferðast ekki í vögnunum óhreinlega til fara. Þetta hefur mikið skánað á síðustu árum frá því sem var, þótt enn sé það til að fólk sé ekki búið að hafa fataskipti, t.d. eftir að hafa unnið allan daginn í fiskvinnu. Þetta leynir sér sjaldnast á lyktinni. Ég vona að fólk sem þetta les hvetji ættingja eða börn sem þannig vinnu stunda að hafa með sér föt til að klæðast á leið úr og í vinnu. Það er sjálfsögð tillitssemi, sé ferðast með strætisvögnunum. Einnig voru hér áður auglýs- ingar sem hvöttu börn til að láta fullorðnum eftir sæti sitt, þegar margt er í vögnunum. Þetta er því miður orðið sjaldgæft, því krakkar sitja sem fastast þótt gamalmenni eða konur með börn eigi í hlut og standi í fullum vögnunum, það er helst að eldra fólkið sýni tillitssemi. Þetta þarf að breytast og mættu SVR-menn gjarna hvetja til þess með áminningum í tilkynninga- formi í vögnunum. Hulda. Skrifh) lil: NT Lesendasiðan Síðumúla 15 108 Reykjavík ...•t* hringitiwMS8S30ð millikl. 13og 14

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.