NT

Ulloq

NT - 29.03.1985, Qupperneq 9

NT - 29.03.1985, Qupperneq 9
Föstudagur 29. mars 1985 Reykingamenn eru oftar frá vinnu Söfnum öskunni í glerkrukku - fjórir dagar eftir Þessi mynd sýnir niðurstöður rannsóknar sem bandarísk heilbrigðisyfirvöld létu gera á 42000 fjölskyldum. Kannaðar voru reykingavenjur og fjöldi tapaðra vinnudaga meðal fjölskyldumeðlima sem orðnir voru 17 ára og voru í föstu starfi. Rannsóknin sýndi að reykingafólk er oftar forfallað frá vinnu en fólk sem ekki reykir og fjöldi fjarvistardaga eykst með auknum reykingum. Tapaðir vinnudagar a mann a ari Sígrettur ■ Allt of lengi hefur hið út- lenska og óíslenskulega orð „sígaretta“ verið notað í ís- lensku máli. Þegar uppfinn- ingamenn nýyrða reyndu á sín- um tíma að taka upp orðið „vindlingur" í staðinn varð það að lúta í lægra haldi fyrir útlenda orðinu, þrátt fyrir ein- arða baráttu ýmissa góðra manna. Nú á allra síðustu misserum hefur hins vegar komið til sögunnar annað nýyrði sem vonandi kemur til með að standa sig betur í 'samkeppn- inni um hylli tungunnar. Hér er að sjálfsögðu átt við orðið „sígretta“ sem er svo líkt hinu viðtekna heiti þessara eitur- nagla, að allir skilja tafarlaust hvað við er átt, en hefur auk þess þann stóra kost að minna á andlitssvip eiturlyfjasjúkling- anna sjálfra. 1 þessum reykingapistlum verður nýyrðið að sjálfsögðu notað. ■ Það er kominn föstudag- ur. Þá er kannski kominn tími til að fara að hagnýta sér þá skrá sem við höfum gert yfir reykingarnar. í dag og á morgun ætla ég bara að reykja þær sígrettur sem eru merktar 1 eða 2 á reykinga-: skránni, en sleppa þristun- um. Á sunnudaginn ætla ég að fækka tvistunum og á mánudaginn er ætlunin að sleppa þeim alveg. Það er líka síðasti reykingadagur- inn. Það er samt ekki víst að þesi aðferð, að fækka sígrett- unum smám saman, henti þér. Mér er sagt að það sé afar persónubundið, sumir eiga auðveldast með að snögghætta, en öðrum fellur betur að hætta í áföngum, ef svo mætti að orði komast og fá þannig dálítinn tíma til að venjast tilhugsuninni. En jafnvel þótt þú ákveðir að reykja í venjulegu um- fangi allt til loka, skaltu samt skoða reykingaskrána þína, tii að reyna að komast að raun um, hvenær og við hvaða aðstæður þér muni líða verst. Frá og með deginum í dag söfnum við öskunni úr ösku- bökkunum okkar, með sí- grettustubbum og öllu saman. Þetta ætlum við að ( eiga til minja. Við skulum safna þessu öllu í glerkrukku með loki og setja dágóðan skammt af vatni út í. Ég ætla reyndar að koma mér upp tveim krukkum, annarri heima en hina ætla ég að geyma hérna úti í glugganum hjá skrifborðinu. Þegar svo kemur að því að löngunin í eins og eina síg- rettu er alveg að bera mann ofurliði, þá er ekki annað en að skrúfa lokið af krukkunni og lykta af ósómanum, til að allt fari vel. Kannski er þó mikilvægast af öllu að búa sér til skrá yfir ástæðurnar fyrir því að við ætlum að hætta. Við eigum að halda áfram að færa inn á hana nýjar og nýjar rök- semdir, eftir því sem þær skjóta upp kollinum í hugum okkar. Þessar ástæður eru sjálf- sagt alveg nógu margar til að fyila heila pappírsörk. Mér finnst til dæmis ekkert gam- an að geta ekki hreyft mig úr sporunum, nema ganga fyrst úr skugga um að sígrettu- pakkinn sé á sínum stað í brjóstvasanum, þar sem hann hefur verið síðastliðin 17 ár, og helst einn eða tveir til vara í öðrum vösum. Það er ekkert frelsi. Galeiðu- þrælar Nikótínusar keisara eru ekki frjálsir. Þeir eru barðir áfram miskunnarlaust ekkert síður en stéttarbræð- ur þeirra í Rómaveldi hinu forna. Og það sem verra er; þeir grátbiðja knékrjúpandi . um hvert högg. Ég get líka vel hugsað mér að fá 4.500 krónur í viðbót til ráðstöfunar á mánuði. Það er hreint ekki afleit kaup- hækkun. Það má kannski segja að þarna höfum við fundið okkar eigin skatta- lækkunarleið. Og hvað um heilsuna; tó- bakshóstann, krabbahætt- una, kransæðastíflur, lungnaþembur, blóðtappa, úthaldsleysi, þreytu og andarteppu? Eða bragðskyn- ið og lyktarskynið... og svo.....framvegis. Námskeið í skyndihjálp ■ Rauðakrossdeild Kópavogs gefur bæjarbúum og þeim sem hafa áhuga kost á námskeiði í almennri skyndi- hjálp. Námskeiðið verður í kennslusal hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíð Kópavogsbraut 1 oghefst 11. apríl kl. 20.00. Það verður 5 kvöld, samtals 24 kennslustundir. Þátttaka tilkynnist í síma 41382 eða 46626 kl. 14-19. Á þriðjudagskvöldið lýkur sýning- um á fræðslumyndum um skyndi- hjálp. Væntanlega hefur sú hugmynd vaknað hjá mörgum að ekki væri úr vegi að fara á námskeið í skyndihjálp. Nú er tækifæri sem menn ættu ekki að láta sér úr greipum ganga. Það gerist allt of oft að menn koma ekki fyrr en eitthvað er búið að koma fyrir en því miður, það er of seint að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í hann. Þess má geta að námskeiðinu lýkur með verkefni sem hægt er að fá metið í fjölbrautaskólum og iðnskólum. Frá Rauðakrossdeild Kópavogs. MARKVISS SKYNDIHJALP VIÐ MEÐVITUNDARLAUSA ef hann andar Alhugið hvorl hmn slas- aöi er meövitundarlaus. - talið við hann - ýtið við honum Athugið hvort hinn með- vitundarlausi andar með þvi að hlusta eftir andar- drættinum eða leggia aðra hondina á brjost- kassann og ftnna hvort hendurnar hreyfast fyrir áhrif andardrattarins Leggið hann i læsta hlið- arlegu. ef hann andar ekki Opnið ondurveg og hmm um hokuna Hokunm er siðan ýtt fram og hofuðið sveigt eins langt aftur og unnt er. Við það lyftist tungan fram og öndunarvegur- innopnast Hlustiðsiðan með eyrað fast við nef og munn hins meðvitundar- lausa ef hann fer að anda Ef hann andar ekki ennþá . . . . r Öndunarvegurinn er opnaöur með þvi aö taka annarri hendi um enmö beitið blástursaöferömni á frábæru verði ★ Sterkir og einfaldir ★ Lág hleösluhæð (92 cm) ★ Nýtísku hönnun . ★ Litur: Grænir 500 lítra kr. 10.700.- 650 lítra kr. 12.000.- 800 lítra kr. 13.500.- Það grær eftir þann græna Hafið samband við sölumenn okkar, sem veita allar nánari upplýsin**'

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.