NT - 29.03.1985, Page 21
Föstudagur 29. mars 1985 21
Vinnudeilumar í Danmörku:
Launþegar lokuðu þinghúsinu
Frá Guðrúnu Ögmundsdóttur fréttaritara NT
í Kaupmannahöfn
■ Launþegar slógu hring um
Kristjánsborg-þinghúsið í
Kaupmannahöfn í gærmorgun
og lokuðuþar með öllum dyrum
inn í húsið.
Fyrsta umræða um lagasetn-
ingu ríkisstjórnarinnar og Radi-
kala átti að hefjast í gærmorgun
en þingmenn komust ekki inn í
Kristjánsborg vegna mótmæl-
anna þar fyrir utan.
Lögreglan var kölluð á stað-
inn og tókst henni að koma
helmingi þingmanna inn fyrir
klukkan tíu en þá skyldu um-
ræður um lögin hefjast. Meiri-
hluti þingmanna verður að vera
til staðar þegar tillögur um
breytingar á dagskrá skulu
bornar fram. Var rétt rúmlega
meirihluti þingmanna í salnum
þegar atkvæði voru greidd.
Lögreglan leysti mótmælin
upp kl. 10.30 og tókst þing-
mönnum þá að hverfa til vinnu
sinnar.
Tveir voru handteknir en þeir
voru látnir lausir síðdegis. Þeir
eru ákærðir fyrir að hafa hindr-
að þingmenn í starfi og að
stofna til óeirða. Viðurlög við
því að hindra þingmenn í starfi
eru allt frá 16 ára og upp í
lífstíðarfangelsi. Mótmælastöð-
ur héldu þó áfram fram eftir
degi og var stór fundur haldinn
fyrir utan Kristjánsborg á há-
degi.
Sven Auken, talsmaður Só-
síaldemókrata, tók afstöðu
gegn aðgerðum þessum ogsagði
að það væri ólöglegt að hindra
þingmenn, kosna af þjóðinni, í
því að vinna verk sín, en hann
sagðist skilja vel viðbrögð laun-
þega - ríkisstjórnin hefði í raun-
inni beðið um þetta.
Ekki er talinn 100% meiri-
hluti fyrir lögunum í þinginu,
þar sem einn þingmaður Kristi-
legra demókrata er ósammála
lögum um skyldusparnað fyrir
fólk með tekjur yfir 150.000
danskar krónur á ári, en þetta
kemur ekki í ljós fyrr en við
atkvæðagreiðslu á laugardag
þegar önnur umræðan fer fram.
Arabaríki
styðja
fraka
Tunis-Reutcr.
■ Ríki í Arababandalaginu
hafa lýst yfir stuðningi við íraka
í stríðinu við írana.
í ályktun stjórnarráðs Araba-
bandalagsins segir að bandalag-
ið muni reyna að finna lausn á
stríðinu. 21 ríki á aðild að
bandalaginu. í ályktun ríkjanna
segir m.a. „Öll Arabaríki sýna
samstöðu með Irökum og munu
reyna í sameiningu að stöðva
þetta stríð."
írakar hafa nú viðurkennt að
íranir hafi skotið sex sinnum
langdrægum flugskeytum á Bag-
dad í þessum mánuði en áður
ásökuðu þeir hryðjuverkamenn
um að bera ábyrgð á spreng-
ingunum. Þeir saka nú arabíska
svikara um að hafa útvegað
írönum flugskeytin.
írakar gerðu harðar loftárásir
í íranskar borgir í gær, þar á
meðal á Teheran. íranir segja
að fjöldi manns hafi látist eða
særst í loftárásunum. íranir hafa
nú líka beðið Sameinuðu þjóð-
irnar að fordæma íraka fyrir að
nota efnavopn í stríðinu hvað
eftir annað og ráðast á íbúða-
hverfi.
■ „Við viljum koniast inn í
Efnahagsbandalagið,11 sagði
Fernando Moran utanríkisráð-
herra Spánar á blaðamanna-
fundi fyrir skömmu. Allt útlit er
nú fyrir að hann fái vilja sínum
framgengt og er þá von til þess
að hýrni yfír andlitsdráttum
hanS. Símamynd: POLFOTO
Danmörk:
Verkföllin
breiðast út
Guðrún ögmundsdóUir fréttantari
NT í Kaupmannahöfn skrifar:
■ í gær lagði fólk víða
niður vinnu í mótmæla-
skyni við fyrirhugaða laga-
setningu ríkisstjórnarinn-
ar og til stuðnings frjálsum
samningsrétti.
Hér var einkum um að
ræða háskólamenn, skrif-
stofufólk í ráðuneytum og
starfsfólk skóla, sjúkra-
húsa og dagheimila og
annarra sem ekki tilheyra
þeim verkalýðsfélögum
sem nú eru opinberlega í
verkfalli.
í dag mun fólk líka
leggja niður vinnu á
barnaheimilum og í skól-
um og á flestum vinnu-
stöðum verða fundir frá
klukkan 11. Mikil óánægja
er ríkjandi, bæði á meðal
láglauna- og hálaunafólks
og er undirskriftasöfnun
í gangi á öllum vinnustöð-
um.
Þá verður haldinn stór
fundur á vegum verkalýðs-
félaganna fyrir utan Krist-
jánsborg í dag og er búist
við miklu fjölmenni.
Aðalræðumaður verður
Anker Jörgensen.
Efnahagsbandalag Evrópu:
Samkomulag um skilyrði
fyrir Spán og Portúgal
Hrússel-Keuler.
■ Utanríkisráðherrar Efna-
hagsbandalagslandanna komu
sér í gær saman um helstu
skilyrði fyrir inngöngu Spán-
verja í bandalagið og ruddu þar
með brautina fyrir loka sarnn-
ingaviðræðurnar sem áttu að
fara fram í gærkvöldi.
Samkvæmt upplýsingum tals-
manns bandalagsins reyndu ráð-
herrarnir að koma sér saman
um endanleg inngönguskilyrði
fyrir Portúgala en utanríkisráð-
herra Ítalíu, Giulio Andreotti,
átti að hitta spænsku og portú-
gölsku samninganefndirnar síð-
ar til þess að fá svör þeirra við
inngönguskilyrðunum.
Samkomulag um inngöngu
Spánar í bandalagið virtist fyrir-
sjáanlegt eftir firnm daga við-
ræður í síðustu viku en þá voru
Frakkar sakaðir um að hindra
samkomulagið. Ítalía, sem nú
heldur um stjórnartauma
bandalagsins, hótaði því að
fresta frekar tveggja daga fundi
sem átti að hefjast í dag en að
tefja hann með frekari viðræð-
um um inngöngu Spánar.
Flugslys í
Kolombíu
Verkfall í Ecuador:
Lögreglan beitti
táragasi gegn
náms- og verkamönnum
Quito-Reuter.
■ Lögreglan í Quito í
Ecuador beitti í gær tára-
gasi til þess að tvístra stúd-
entum og verkamönnum
sem reistu götuvígi úr
brennandi hjólbörðum til
þess að trufla umferðina á
meðan á eins dags allsherj-
arverkfalli stóð í borginni,
að sögn vitna.
Opinberar heimildir
segja að 60 hafi
verið handteknir í höfuð-
borginni og í Guayaquil
400 km suðaustur af höf-
uðborginni en Samfylking
vinstri sinnaðra verka-
manna (FUT) sagði að
hundruð manna hafi verið
tekin til fanga.
FUT, sem boðaði til
verkfallsins til þess að
krefjast 131% hækkunar á
mánaðarlegum grunn-
launum sem eru um 100
dollarar (um 4200 ísl.kr.),
sögðu að verkfallið hefði
heppnast vel.
Innanríkisráðherrann,
Luis Robles, sagði á hinn
bóginn að verkfallið hefði
misheppnast og aðeins
20% af starfandi verka-
mönnumhlýtt kalliFUT.
Ferðir strætisvagna í
Quito féllu niður en verk-
fallið virtist ekki hafa áhrif
á starfsemi banka og opin-
berra stofnana.
Robles skipaði í fyrra-
dag hersveitum og vopn-
aðri lögreglu á vörð í öll-
um helstu borgum til að
koma í veg fyrir ofbeldi á
meðan á verkfallinu stæði.
Þær vopnuðu sveitir beittu
svo tólum sínum gegn
stúdentum fyrir utan for-
setahöllina en ekki var
tilkynnt að af því hefðu
hlotist dauðsföll.
Svíþjóð:
Morðgátan enn
Frá Guðrúnu Gardarsdóttur fréttarítara NT í
Svíþjóð:
■ Ekkert hefur enn komiö
fram sem leysir gátuna um hver
frakinn Majid Husain var í
raun og veru. En Husain fannst
myrtur á hroðalegan hátt fyrr í
þessum mánuði.
Rannsóknum er enn haldið
áfram og í haldi er 35 ára gamall
íraki sem grunaður er um
aðild að morðinu. Frásagnir
hans eru fullar mótsagna og
telur lögreglan það benda til
þess að hann eigi örugglega
aðild að morðinu.
Komið hefur í ljós að hinn
ákærði hefur haft ýmis tengsl
við Líbýu ogm.a. veriðformað-
ur samtaka sem hafa fengið
fjárhagslega aðstoð þaðan.
Hann er ennfremur talinn
vera sá sem kynnti Husain fyrir
hinni dularfullu Nínu sem lokk-
aði Husain frá heimili sínu
kvöldið sem hann hvarf.
Rannsóknarlögreglan telur
sig nú hafa fundið morðstaðinn.
í síðastliðinni viku rannsökuðu
tæknimenn rannsóknarlögregl-
unnar íbúð í Stokkhólmi og
fundu þá blóðleifar á ýmsum
stöðum í íbúðinni. Tækni-
mennirnir gátu þó ekki lokið
störfum sínum því þegar þeir
voru í miðju kafi ruddust inn
þrír menn sem ráku þá á dyr
með þeim orðum að þeir væru
starfsmenn sendiráðs Líbýu og
að íbúðin væri sendiráðsbústað-
ur þeirra.
Líbýska sendiráðið hefur
staðfest þetta og mótmælt því
harðlega að þeir séu á nokkurn
hátt viðriðnir morðið.
íbúðina keyptu þeir fyrir
nokkrum vikum og var hún ekki
í eigu þeirra þegar morðið var
framið í janúarmánuði síðast-
liðnum.
Lögreglan telur því vafasamt
að blanda Líbýu í málið að svo
stöddu. En óneitanlega hindrar
þetta störf rannsóknarlögregl-
unnar því að sendiráðsstarfs-
menn lúta ekki sænskum lögum
og er því ekki unnt að yfirheyra
þá. Hugsanlegarráðstafanireru
þær að vísa þeim úr landi.
íbúðin hefur ekki verið rann-
sökuð að nýju en hæpið er að
sendiráð Líbýu geti hindrað áfr-
amhaldandi rannsóknir þar.
Yfirráðasvæði Líbýu er aðeins í
aðsetri sendiráðsins. Hver
Husain var og hvort hann var
einnig starfsmaður Líbýu erenn
á huldu. Ýmsar getgátur eru þó
á lofti, m.a. þær að þegar Husa-
óleyst
in hóf frásagnir sínar um íröksku
upplýsingaþjónustuna í des-
ember síðastliðnum hafi Líbýu-
mennséðsigknúnatilað „þagga
niður í honum“ í öryggisskyni.
■ Janos Kadar, leiðtogi ung-
verska kommúnista, sagði í
ræðu, sem hann hélt á síðasta
degi flokksþings Kommúnista-
flokks Ungverjalands í gær,
að flokkurinn myndi halda
áfram frjálslyndri efnahags-
stefnu.
Kadar flutti níutíu mínútna
ræðu blaðalaust og svo
líflega og skemmtilega að
hann fékk þinggesti hvað eftir
annað til að hlæja enda voru
skrýtlúr í ræðunni. Eftir
ræðuna stóð þingheimur upp
og hyllti Kadar en hann stöðv-
Bogota-Reuter.
■ Óttast er að yfir 20
manns hafi látið lífið þegar
Fokker F-28 flugvél kol-
ombiska flugfélagsins Sat-
en flaug á fjall í Suður-
Kolombíu í gærkvöldi,
skömmu áður en hún átti
að lenda í Florencia. Vélin
var á leið frá Neiva til
Florencia. Samkvæmt Re-
uters-frétt í gærkvöldi virt-
ist enginn hafa komist af.
aði fagnaðarlætin og fékk fólk
til að setjast.
Kadar minntist m.a. á þá
5,5 milljón Ungverja sem fara
árlega sem ferðamenn til út-
landa. Hann sagði að sagt væri
um þá að þeir yrðu þrisvar
sinnum fegnir. Fyrst þegar þeir
væru að undirbúa ferðina, síð-
an þegar þeir kæmu til útlanda
og að lokum þegar þeir kæmu
aftur heim.
Kadar lagði áherslu á að
þrátt fyrir ýmsa efnahags-
örðugleika í Ungverjalandi nú
þyrfti enginn að óttast atvinnu-
leysi.
Þing ungverskra kommúnista:
Kadarboðar framhaldá
frjálsri efnahagsstefnu
Budapest-Reuter