NT - 29.03.1985, Page 23
UM HELGINA
íslandsmótið
í fimleikum
■ íslandsmeistaramótiö í fim-
leikum 1985 verður haldið í Laug-
ardalshöll dagana 30. og 31. mars,
þ.e. á morgun og sunnudaginn.
Kcppni hefst báða dagana klukk-
an 14.00.
Á morgunverður keppt í frjáls-
um æfingum - fjölþraut, en á
sunnudag verða úrslit á einstök-
um áhöldum.
Meðal keppenda verða Hanna
Lóa Friðjónsdóttir og Arnór Di-
ego Hjálmarsson sem urðu Ung-
lingameistarar um síðustu helgi
(sjá bls. 22), Hulda Ólafsdóttir
og Davíð Ingason Islandsmeistar-
ar 1984, Kristín Gísladóttir ís-
landsmeistari 1983, Guðjón
Gíslason Unglingameistari 1984
og Atli Thorarensen kemur frá
Svíþjóð til að taka þátt í mótinu.
■ Pálmar Sigurðsson fyrirliði Hauka smellir kossi á bikarinn góða. Það er ekki að sjá annað en fyrirliðinn kunni vel að meta bikarínn
og það sem hann er tákn fyrir, sigur í Bikarkeppni Körfuknattleikssambandsins. Hið sama var að segja um félaga Pálmars, enda þessi
bikar fyrsti „stóri“ titill liðsins. NT birtir fleiri myndir frá þessum skemmtilega viðburði á morgun. NT-mynd: Svemr.
Bikarúrslitin í körfunni:
lisstu mal Id rei itri ina' í
- á sigur og það gerði útslagið sagði Pálmar Sigurðsson eftir 73-71 sigur - Haukar bikarmeistarar
Fræðslufundur
ÍBR um knatt-
spyrnumenn
■ Á laugardaginn, 30. mars,
verður haldinn fræðslufundur á
vegum íþróttabandalags Reykja-
víkur í Kiwanishúsinu í Brautar-
holti 26, 3. hæð. Viðfangsefni
fundarins er knattspyrnumenn,
næring, keppni, meiðsli ogfleira.
Þrír sérfræðingar halda fyrirlestra
á fundinum að loknu stuttu ávarpi
Júlíusar Hafstein formanns ÍBR.
Sérfræðingar eru: Grímur Sæm-
undsen læknir og knattspymu-
maður, Jón Gíslason næringar-
fræðingur og Stefán Carlsson
bæklunarskurðlæknir.
Dagskráin er þannig:
1. Orkubúskapur og keppni.
2. Mataræði og næring.
3. Þrek og kraftþjálfun knattspyrnu-
manna.
4. Nárameiðsl knattspyrnumanna,
greining, meöferð, fvriibyggjandi
aðgerðir.
5. Liðbandaáverkar á hnc-greining og
meðferð.
6. Sálfræði í hópíþróttum, kynning.
Fundurinn stendur frá kl. 13 til
18, þátttaka tilkynnist ÍBR eða
KRR í síma 35850.
Innanhúss-
meistaramótið í
sundi: Allir
bestu með
■ Innanhússmeistaramótið f
sundi verður haldið um helgina í
Sundhöll Reykjavíkur. Þarverða
130 keppendur frá 12 félögum, 32
fararstjórar og þjálfarar, og synt
verða 297 einstaklingssund og 29
boðsund. Á mótinu verður allt
besta sundfólk landsins, utr.n
einn, Árni Sigurðsson úr Vest-
mannaeyjum, sem kemur heim
eftir helgina frá Bandaríkjunum.
Meðal þeirra sem mæta verða
Guðrún Fema Ágústsdóttir Ægi,
Bryndís Ólafsdóttir HSK, Eð-
varð Þór Eðvarðsson Njarðvík,
Ragnheiður Runólfsdóttir ÍA,
Tryggvi Helgason HSK sem kem-
ur frá Bandaríkjunum, og syst-
kinin Ragnar og Þórunn Kristín
Guðmundarbörn sem koma frá
Danmörku.
Keppni hefst klukkan 20 í
kvöld, undanrásir kl. 9 í fyrramál-
ið, úrslit klukkan 15, undanrásir
kl. 9 á sunnudagsmorgun, og
úrslit kl. 15.
■ „Við trúðum því allan tím-
ann að við mundum vinna bikar-
inn, og misstum aldrei þá trú.
Það held ég að hafi gert útslagið
þarna í lokin,“ sagði Pálmar
Sigurðsson ein aðalhetja Hauka
úr Hafnarfirði í gærkvöld, en
þá urðu Haukar bikarmeistarar
í körfuknattleik með því að
sigra KR 73-71 í úrslitaleik í
Laugardalshöll. „Ég vil þakka
KR-ingum kærlega fyrir drengi-
legan, skemmtilegan og spenn-
andi leik, þeir hafa frábært lið
sem á eftir ða láta mikið að sér
kveða í framtíðinni,“ sagði
Pálmar ennfremur.
Pálmar, sem lengst af hefur
verið aðalhetja Haukanna, kom
mjög við sögu í lok leiksins,
þrátt fyrir að vera í mjög
strangri gæslu. Tæp mínúta var
til leiksloka, Haukar höfðu yfir
71-69, og Pálmar var með bolt-
ann í baráttu við tvö KR-inga
sem gættu hvers fótmáls hans.
Þegar Pálmar gafst endanlega
upp á því að reyna að senda
boltann til félaga sinna, sneri
hann KR-ingana fallega af sér á
leið að körfunni og lagði bolt-
ann snyrtilega ofan í . Fjögur
stig skildu , 22 sekúndur til
leiksloka, og KR-ingar náðu
aðeins að skora tvö stig.
Haukar byrjuðu betur, náðu
forystu 14-9 og 20-13, en þá
tóku KR-ingar leikinn í sínar
hendur. Þeir jöfnuðu og náðu
svo forystu 37-26, en Haukar
minnkuðu muninn aðeins fyrir
hálfleik, og þá var staðan 47-41
KR í hag. Haukar hófu
svo síðari hálfleik með látum,
jöfnuðu 53-53, og komsut yfir
60-57. KR-ingar svöruðu með
fjórum stigum í röð, en næstu
fimm stig voru Hauka, 65-61.
Haukar höfðu svo yfir 67-63, en
góður kafli KR-inga færði þeim
forystu á ný, 69-67. Stíf vörn
KR gekk nærri Haukum
þarna, eins og oft í leiknum, og
loks tóku Haukarnir til bragðs
að gefa háa bolta inná hinn
risavaxna ívar Webster, sem
skoraði tvisvar í röð, 71-69, og
lokamínútunni hefur verið lýst.
Leikurinn var dæmigerður
bikarleikur, mikil barátta og
mörg mistök. Leikurinn var þó
skemmtilegur allan tímann, afar
spennandi, og oftar en ekki
sáust skemmtileg tilþrif. Góð
vörn var aðal KR-inga, og
skynsamlegur leikur hafði næst-
um fært þeim sigur. En Hauk-
arnir voru betri, og náðu að
knýja fram sigurinn, sem var
langþráður eftir erfiða keppni
undanfarið, og vonbrigði í úr-
slitum íslandsmótsins. Frábær
miðherji, ívar Webster, sem
tók á milli 15 og 20 fráköst í
leiknum og skoraði grimmt var
það sem setti Haukana helst
flokki ofar KR-ingum, en skyn-
semi og dugnaður KR-inga vann
upp í þann mun.
Bestu menn Hauka voru
Webster, Pálmar, Kristinn
Kristinsson og svo Henning
Henningsson sem barðist eins
og Ijón allan tímann í vörninni. 1
KR liðinu var meiri jöfnuður,
Birgir Mikaelsson var þó þeirra
hættulegastur í sókn, og Jón
Sigurðsson og Guðni Guðnason
voru eitraðir í vörn.
Stigin: Haukar: Webster 26, Pálmar 17,
Hálfdán Markússon 8, Kristinn Kristins-
son 8, Henning 5, ólafur Rafnsson 5, ívar
Ásgrímsson 4. KR: Birgir M. 21, Þor-
steinn Gunnarsson 16, Gudni 16, Jón 9,
Matthias Einarsson 6 og Birgir Jóhanns-
son 5.
Dómarar voru Kristinn Albertsson og
Jóhann Dagur Björnsson, og kom það á
óvart að þeir skyldu látnir dæma, þvi
nokkrír eru taldir þeim hæfari. Þeir
leystu sitt hlutverk allvel, þrátt fyrir ad
valda ekki spennunái í lokin.
■ fþróttafélag stúdenta varð í fyrrakvöld bikarmeistari
kvenna í blaki, sigraði Breiðablik 3-1 í úrslitaleik í
Digranesi. Hér sést Þóra Andrésdóttir fyrírliði ÍS taka við
bikarnum góða úr höndum Þorvalds Sigurðssonar fulltrúa
NT-mynd: Sverrir.
■ Það var sannkölluð bikarstemmning í úrslitaleiknum í kvennaflokki í Bikarkeppni KKÍ gærkvöld.
Hart var barist, en lítið skorað. íþróttafélag stúdenta hafði betur.vann íþróttafélag Reykjavíkur 25-24,
eftir að hafa haft yflr 15-14 í hálfleik. Kolbrún Leifsdóttir skoraði mest fyrír ÍS, 9 stig, en Guðrún
Gunnarsdóttir skoraði 10 stig fyrir ÍR. Myndin er af sigurvegurunum. NT-mynd: Svenír.
29. mars 1985 23
Zico fer heim
tilFlamengó
■ ítalska íþróttablaðið
„La Gazzetta Dello Sport“
segir í gær að ítalska 1.
deildarfélagið Udinese sé
búið að selja brasilísku
stórstjörnuna Zico aftur til
Flamengo í Brasilíu, félags-
ins sem hann lék með
lengst af.
Blaðið segir að samning-
urinn I hafi veriðgerður þeg-
ar Zieo fór í frí heim til
Brasilíu fyrr í þessum mán-
uði og verði endanlega
gengið frá honum 14. apríl.
Enginn vildi tjá sig um
málið hjá Udinesc í gær en
Zico sagði á blaðamanna-
fundi fyrír 10 dögum að
hann vildi helst vera hjá
félaginu þar til samningur-
inn rynni út 1986.
La Gazzetta hafði eftir
forseta Flamengo í Rio de
Janero George Helal, að
félagið hefði útvegað sér
mest af þeim 2,3 milljón-
um dollara sem það þyrfti
að borga fyrir Zico, sem nú
er 32 ára gamall. ítalska
blaðið segir að Flamengo
hafl þegar reitt fram hluta
af fénu og hitt muni Udin-
ese fá 14. apríl.
Tekst
FHað
sigra
Sabací
kvöld?
■ í kvöld leika FH og
Metaloplastika Sabac fra
Júgóslavíu síðari leik sinn
í undanúrslitum Evrópu-
keppni meistaraliða í
handknattleik. Leikurinn
hefst klukkan 20.30 í
Laugardalshöll.
FH-ingar eiga mögu-
leika á að sigra í leiknum
í kvöld, nái þeir toppleik
og áhorfendur „kæfi“
Júgóslavana. En það þarf
það allt og gott betur.
Metaloplastika Sabac er
af mörgum talið besta
félagslið heims í hand-
knattleik í dag, - enda
hefur liðið átt landsliðs-
menn Júgóslavíu innan
sinna raða. Júgóslavar
urðu sem kunnugt er Ól-
ympíumeistarar í hand-
knattleik sl. sumar. í FH-
liðinu eru „aðeins“ þrír
landsliðsmenn, Krístján
Arason, Þorgils Óttar
Mathiesen og Hans
Guðmundsson, og nái
þeir sér á strik, Haraldur
og Sverrír loki markinu
og aðrír gerí sitt allra
besta er von um sigur.
Eitt er þó víst, að ef
handboltaunnendur vilja
sjá frábært félagslið í
handknattleik, fá þeir
vart annað eins tækifæri
til þess á næstunni.