NT - 29.03.1985, Síða 24
-'V
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leið ir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónurfyrirábendingu sem leiðirtil bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
:
Vöruskiptajöfnuðurinn í febrúar:
Innflutningur 723 millj-
ónum meiri en útf lutningur
■ Vöruskiplajöfnuðurinn í
febrúar 1985 var óhagstæöur
um rúmar 723 milljónir króna
en var hagstæður um tæpar 82
millj. króna í sama mánuði
1984, reiknaö á sama gengi
bæði árin. í þessari viömiöun er
reiknað út frá fob.verði bæði
inn- og útflutnings.
Ástæður hins mjög svo óhag-
stæða vöruskiptajöfnuðar nú
eru að mati Hagstofunnar þær
helstar að útflutningur sjávar-
afurða hafi aukist lítið á milli
ára, eða um 4,6% reiknað á
sama gengi bæði árin. Innflutn-
ingur, sérstaklega olíu og vara
til álverksmiðju hafi hins vegar
aukist gífurlega, eða um 161%
til álversins og olían um 120%.
Aukning á almennum vöruinn-
flutningi er tæp 19% milli ára,
reiknað á gengi í febrúar 1985
bæði árin.
Útkoman er miklu skárri ef
litið er á fyrstu tvo mánuðina til
samans. Vöruskiptajöfnuður-
inn (fob/fob) varð þá óhagstæð-
ur um 490 milljónir króna, sem
er 89 milljónum meira en á
sama tíma 1984 hvorutveggja
reiknað á gengi þessa árs. Ut-
flutningur hefur aukist um 31%
milli ára, en innflutningurinn
um 27% reiknað á föstu gengi.
Vestfirskir sjómenn:
Samninga-
fundimmr
frestað
■ Fyrirhuguðum samn-
ingafundi með sjómanna-
deildum Alþýðusambands
Vestfjarða og Útvegs-
mannafélaginu var frestað
í gær vegna veðurs. Samn-
inganefndarmenn af Vest-
fjörðunum komust ekki til
Isafjarðar og heldur ekki
ríkissáttasemjari. Annar
fundur hefur ekki verið
ákveðinn.
Tölvuafgreiðsla Iðnaðar-
bankans í Vörumarkaði:
Viðskiptaráðherra
vissi ekki að hún
væri komin í gang
■ Steingrími Hermannssyni,
forsætisráðhcrra, verða afhent
þrjú stjórnarfrumvörp í dag.
Frumvörpin eru samin af nefnd
skipaðri af stjórnarflokkunuin
og fjalla um stofnun Þróunarfé-
lags íslands, Byggðastofnun,
Framkvæmdasjóð og afnám
laga um Framkvæmdastofnun.
í frumvarpinu um Fróunarfé-
lagið er gert ráð fyrir að stofnað
verði félag með 200 ntilljón
króna hlutafé, og Ieggi ríkið
fram a.m.k. helming, og meira
ef afgangurinn selst ekki.
Reiknað er með að aðrir hlut-
hafar verði bankar, tryggingafé-
lög, fyrirtæki, almenninguro.fi.
Reikna má með að Þróunarfé-
lagið muni hafa verulegan hluta
þeirra 500 milljóna, seni á láns-
fjáráætlun eru ætlaðar til ný-
sköpunar í atvinnulífinu, til ráð-
stöfunar, en félaginu er ætlað
að styðja rannsóknir og nýsköp-
un í atvinnulífinu.
Guðmundur G. Þórarinsson.
einn nefndarmanna sem sömdu
frumvörpin, sagði í samtali við
NT að nefndin reiknaði með að
leggja fram frumvörp um Bún-
aðarsjóð, Sjávarútvegssjóð og
Iðnaðarsjóð strax eftir páska.
Þannig yrðu sjóðir atvinnuveg-
anna sameinaðir í þrjá, og ýms-
um reglum þeirra breytt.
Þá er í bígerð frumvarp um
Eignarhaldsfyrirtæki ríkisins
sem mun m.a. samræma arð-
semiskröfur ríkisins til þeirra
fyrirtækja sem ríkið á hlut í.
Veðrið
um helgina
Þróunarfélagið:
Nálega 500
milljonir
króna til
ráðstöfunar
Fékk aðsvif undir stýri
■ Stór Volvo vörubifreið lenti á þremur kyrrstæðum bílum
scm stóðu á bílastæði í Ármúla í gærmorgun. Tildrög slyssins
voru þau að ökumaöur vörubifrciðarinnar fékk aðsvif í bifreiö-
inni og missti stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að bíllinn
rann stjórnlaust yfír á andstæðan vegarhelming, og þaðan inn á
bílastæði. Ökumaður vörubifreiðarinnar var fluttur á slysadeild.
Miklar skemmdir urðu á bílunum þremur. nt mynd ge
Það verður norð-
austan strekkingur
um mest allt land
um helgina, nokk-
urn veginn bjart
sunnanlands- og
vestan en skýjað
og éljagangur á
Norður-og Austur-
landi. Hiti verður
alls staðar undir
frostmarki.
■ „Mér var ekki tilkynnt um,
að þetta væri komið í gang, en
ég vissi að þetta var þarna,“
sagði Matthías Á. Mathiesen
viðskiptaráðherra í samtali við
NT í gær, þegar hann var spurð-
ur um tölvuafgreiðslu Iðnaðar-
bankans í húsakynnum Vöru-
markaðarins á Seltjarnarnesi.
Valur Valsson bankastjóri
Iðnaðarbankans sagði í samtali
við NT, að tölvuafgreiðsian
hefði verið tekin í notkun á
þriðjudag og viðskiptaráðherra
hefði verið tilkynnt um það á
miðvikudag.
Matthías Á. Mathiesen sagði,
að hann ætti von á umsögn
Seðlabankans um mál þetta í
dag og hann myndi þá úrskurða
urn hvort starfsemi þessi væri
háð leyfi.
Uppsetningu tölvuafgreiðsl-
unnar var frestað fyrir þremur
vikum á meðan kannað væri
hvort leyfi þyrfti fyrir starfsem-
inni. Valur Valsson bankastjóri
telur aftur á móti að svo þurfi
ekki. Endanleg niðurstaða ætti
að liggja fyrir í dag.
Skreiðarkaupmenn
aftur til Nigeríu
■ Sendinefnd íslenskra
skreiðarkaupmanna kom
til Nígeríu í gær, til þess
að gera nýja tilraun til að
fá innflutningsleyfi fyrir
skreið til landsins.
Nú er talið að skreið og
hausar fyrir um 57 milljón-
ir dollara, eða 2,4 millj-
arða króna, liggi óseld í
geymsium hér á landi.
Þá skulda Nígeríumenn
okkur enn nokkuð fyrir
skreið síðan í fyrra.
Nokkrar greiðslur hafa þó
borist frá áramótum, og
fékk Sambandið eina að
upphæð 34 milljónir króna
í vikunni.