NT - 16.04.1985, Page 3
Þriðjudagur 16. apríl 1985 3
Neðri deild Alþingis:
Deilt um ríkis-
ábyrgð á launum
■ Annarri unrræðu um
ríkisábyrgð á launum var
frestað í neðri deild Al-
þingis í gær að ósk Karvels
Pálmasonar og Ólafs Þ.
Þórðarsonar þar sem þeir
tjöldu að orlofsfé laun-
þega á Vestfjörðum, sem
er greitt út með öðrunr
hætti en tíðkast annars
staðar á landinu, félli ekki
undir ríkisábyrgðará-
kvæði frumvarpsins.
Miklum tíma liefur ver-
ið varið í samningu frum-
varpsins, sem afgreitt hef-
ur verið frá efri deild, og
benti Alexander Stefáns-
son félagsmálaráðherra á,
að uppfyllt hefði verið sú
krafa launþega að fá ríkis-
ábyrgð á lífeyrissjóðsgjöld
en ýmiss smærri sjóða-
gjöld hefðu ekki verið tek-
in með, s.s sjúkrasjóður.
Sagði Alcxander að mál-
flutningur Karvels byggð-
ist á misskilningi og að
orlofsfé væri ríkistryggt.
Stefán Valgeirsson
gerði grein fyrir nefndaráliti
félagsmálanefndar neðri
deildar um málið en lagt
er til að tvær minni háttar
breytingar verði gerðar á
frumvarpinu.
Húsnæðisáhugamenn hálffylltu Háskólabíó:
Vilja fá ofborgaða
milljarða til baka
■ Ég tel að við höfum ástæðu
til bjartsýni ntiðað við þær
undirtektir sent tillögur okkar
hafa fengið. í samtöl-
um við félagsmálaráðherra hef-
ur hann m.a. tjáð okkur að
hann sé að vinna að tillögum til
úrbóta í svipuðum dúr og við
höfum lagt til. Jafnframt því
hafa allir stjórnmálaflokkar lýst
áhuga á að leysa vandann, sagði
einn af talsmönnum áhuga-
manna um úrbætur í húsnæðis-
málum sem boðuðu til almenns
fundar í Háskólabíói í gær.
Fundarboðendur fengu góðar
undirtektir fundarmanna sem
fóru langt í að fylla bíóið - að
stærstum hluta fólk undir
fertugsaldri að því er séð varð í
fljótu bragði.
Fram kom á fundinum að
reiknað hafi verið út að það sem
haft hefur verið af hús-
byggjendum umfram eðlilegar
vísitöluhækkanir og vexti nemi
um einum milljarði króna og
upphæðin verði um 1.4 milljarð-
ar króna á þessu ári. Þessu fé
vill hópurinn að verði skilað
■ Það er veríð að cndurvekja hér á ný ástand kreppuáranna. Við erum t.d. fjögur í einu svefnherbergi
en getum ekki stækkað við okkur húsnæði því það er svo dýrt, sagði Maríanna Friðjónsdóttir, ein
nokkurra fundarmanna sem komu í ræðustólinn í Háskólabíói. NT-mynd Ari
aftur og verði það best gert í
gegn um skattkerfið.
Rifjað var upp að greiðslu-
byrði af verðtryggðum lánum
sem tekin voru fyrir nokkrum
árum hafi nú nær tvöfaldast.
Þótt fólk hafi gert raunhæfar
fjárhagsáætlanir í upphafi hafi
þær því allar raskast. Við höfum
verið höfð að ginningarfíflum -
það gengur allt út á hvað þeir sem
eiga fjármagnið þurfi að fá í
vexti en er aldrei spurt um hvað
launantaðurinn getur borgað,
sagði einn af frummælendum
m.a. í erindi sínu. í ályktun
fundarins var skorað á stjórn-
völd að leiðrétta nú þegar það
misrétti sem hefur átt sér stað
og jafnframt tryggja að það
muni ekki endurtaka sig.
■ í gær blessaði biskupinn yfir íslandi hr. Pétur Sigurgeirsson nýtt aðsetur
biskupscmbættisins að Suðurgötu 22 í Reykjavík, þar sem áður var aðsetur
krabbameinsfélaganna á íslandi. Þess var jafnframt minnst að 200 ár voru liðin frá því
að biskupsstóll var formlega fluttur til Reykjavíkur og flutti Jónas Gíslason dósent af
því tilefni fróðlegt og skemmtilegt erindi um Hannes biskup Finnsson. Lærðir og leikir
sungu sálma og lásu úr ritningunni, meðal þeirra Jón Helgason kirkjumálaráðherra.
NT-mynd: Árni Bjarna.
Utandagskrárumræða á Alþingi:
Hvar eru leyni-
punktarnir 25?
■ Svavar Gestsson kvaddi
sér liljóðs utan dagskrár í
neðri deild Alþingis í gær og
gerði að umtalsefni 25
punkta forsætisráðherra til
úrbóta í atvinnu- og efna-
hagsmálunt og sagði að lítið
hefði til þcirra spurst eftir
að þcim var hampað í fyrir-
spurnartíma í sjónvarpinu
fyrir nokkrum vikum.
Taldi hann óvenjufá mál
hafa litið dagsins ljós í neðri
deild frá áramótum og lítið
bólaði á þcim umræðum um
atvinnu- og efnahagsmál
sem nauðsynlegar hlytu að
vera. Benti hann á að ef það
væri ætlun ríkisstjórnarinn-
ar að láta afgreiða þessa 25
punkta af leynilistanum þá
væri Ijóst að þingstörf stæðu
í allt sumar ef áfram yrðu
viðhöfð sömu vinnubrögð af
hálfu ríkisstjórnarinnar og
Alþingis og verið hefði á
þessum vetri. Því næst
beindi hann þcinr ummælum
til landbúnaðarráðhcrra að
stjórnarandstaðan fengi
þegar aðgang að frumvarpi
sem er í smíðum um Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins
og kynnt verður Stéttar-
sambandi bænda á fundi á
morgun, miðvikudag. Taldi
Svavar óðelilegt að
stjórnarandstaðan fengi
ekki að fylgjast með franr-
vindu þessara mála.
Jón Helgason sagði að
dreifing á lögunr þessum
hefði veriö á döfinni all
lengi og yrðu þau afhent
stjórnarandstöðunni í dag,
það væri verið að vinna
greinargerð með því. Guð-
mundur Einarsson gerði að
umtalsefni vinnubrögð Al-
þingis og benti á að cinungis
væru 7 vikur þar til þingstarfi
ætti að ljúka. Nefndi hann
að mörg mál lægju fyrir sem
þyrfti að afgreiða, annars
brygðist þingið þjóð sinni,
og benti á að skattastcfnu,
og húsnæðisstefnu þyrfti að
breyta til þess að raunveru-
legir kjarasamningar gætu
farið fram hér á landi með
haustinu.
Sverrir Hermannsson
gerði að umtalsefni m.a.
þann tíma sem eytt hefði
verið til undirbúnings frum-
varpi um Framleiðsluráð
landbúnaðarins og sagði að
þar hefði ekki mátt flana að
neinu því um væri að ræða
„viðamikið og byltingar-
kennt frumvarp“.
Sjóefnavinnslan á Reykjanesi:
Ný úttekt á fyrir-
tækinu með haustinu
■ Iðnaðarráðherra hef-
ur falið dr. Sigmundi Guð-
bjarnarsyni prófessor að
gera úttekt á Sjóefna-
vinnslunni á Reykjanesi.
Sigmundur sagði í samtali
við NT í gærkvöldi, að
hann myndi leggja tillögur
sínar um vinnutilhögun
fyrir iðnaðarráðherra síð-
ar í vikunni. Að öðru leyti
vildi hann ekki tjá sig um
verkið, en sagði að úttekt-
inni yrði lokið í haust.
Iðntæknistofnun gerði á
sínum tíma úttekt á Sjó-
efnavinnslunni og á grund-
velli hennar ákvað Sverrir
Hermannsson iðnaðarráð-
herra að hætta rekstri
fyrirtækisins. Niðurstöður
þeirrar úttektar hafa verið
véfengdar m.a. af heima-
mönnum. Sverrir sagði í
samtali við NT, að hann
vildi láta fullreyna hvort
Iðntæknistofnun hefði
ekki rétt fyrir sér.
„Ef annað kemur upp
úr dúrnum, þá verður að
taka því. En ég hef því
miður ekki mikla trú á, að
svo verði,“ sagði Sverrir
Hermannsson iðnaðarráð-
herra.
Að gefnu tilefni
Fréttatilkynning, sem fjölmiðlar fjórflokkanna hafa ekki séð
ástæðu til að birta.
Þingflokkur Bandalags jafnaðarmanna vill taka fram eftirfarandi:
1. Staðreynd er að bílafríðindum bankastjóra var á sínum tíma komið á að frumkvæði
Alþýðuflokksins með stuðningi hinna gömlu flokkanna.
2. Staðreynd er að núverandi breyting á kjörum bankastjóra er ekki launahækkun
' heidur formbreyting á greiðslum sem lengi hafa tíðkast ómótmælt af þeim flokkum
og fulltrúum sem sæti eiga í bankaráðum ríkisbankanna.
3. Staðreynd er að þeir menn sem fjórflokkarnir treystu best til að gæta hagsmuna
alþjóðar í bönkunum hlýddu ekki samþykkt Alþingis um afnám bílafríðinda
bankastjóra. Fjórflokkarnir bera ábyrgð á þessum mönnum og gerðum þeirra.
4. Staðreynd er að fjórflokkarnir hafa vitað af þessari ákvörðun bankaráðanna í tæpa
3 mánuði. Bankaráð Landsbankans tók sína ákvörðun fyrir áramót.
Ennfremur má benda á eftirfarandi:
1. Gömlu flokkarnir gerðu engar athugasemdir við þessi fríðindi bankastjóranna fyrr
en fjölmiðlar uppljóstruðu um málið.
2. Tillögur um að ákveða laun bankastjóra í kjaradómi eru tillögur aðila, sem eru
hræddir við ábyrgð.
3. Það er ódrengilegt að benda á þá menn sem í bankaráðunum sitja sem sökudólga
fyrir verknað sem kerfið samþykkti þar til almenningur fordæmdi verknaðinn.
Hér nægir ekki að skipta um menn heldur þarf að afnema
samtryggingu og spillta bitlingastjórn fjórflokkanna.
Þingflokkur Bandalags jafnaðarmanna.