NT - 16.04.1985, Side 8
Þriðjudagur 16. apríl 1985
8
Svæfir Alþingi stálbræðsluhugmyndina?
Skýrslan sem gerði
útslagið er ársgömul
-sýndi m.a. að sjóðsstreymi fyrirtækisins
yrði neikvætt til aldamóta
■ Allt bendir nú til að beiðni
Stálféiagsinsum ríkisábyrgð á
40-50 milljóna króna láni frá
Norræna fjárfestingabankan-
um verði endanlega söltuð eða
vísað frá á næstunni, jafnvel í
þessari viku. Iðnaðarráðherra
hefur sent þingflokkunum bréf
þar scm hann fer fram á að
honum verði heimilað að aftur-
kalla stjórnarfrumvarp um
ríkisábyrgðina frá þinginu.
Frumvarpið er nú til með-
ferðar hjá fjárhags- og við-
skiptanefnd efri dcildar, og
sagði Jón Kristjánsson, einn
nefndarmanna, að nefndin
hcföi áður en erindi iðnaðar-
ráðherra barst haft „miklar
efasemdir" um málið. Ólafur
G. Einarsson, formaður þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins,
sagði að sér sýndist málið vera
„dautt", hvaða aðferð sem
endanlega yrði höfð við að
ganga endanlega frá því.
Ríkisábyrgðin var svo aftur
skilyrði fyrir fleiri fjármögn-
unarleiðum heldur en láni
fj á rfest i nga ba n k ans. Þa n n i g
hafði Framkvæmdasjóður
samþykkt að kaupa 9 milljóna
króna hlutafé í Stálfélaginu,
en eitt af fjórum skilyrðum
fyrir að frá kaupunum yrði
gengið var einmitt aö ríkis-
ábyrgð fengist fyrir erlendu
láni. Gunnlaugur Sigmunds-
son. forstjóri Framkvæmda-
stofnunar ríksins, sagði engin
hlutabréf enn hafa verið keypt,
og engin verða keypt ef ríkis-
ábyrgðinni yrði hafnað.
En ræður ríkisábyrgðin úr-
slitum í stálverksmiðjumál-
inu? Leifur ísaksson, formað-
ur stjórnar Stálfélagsins, sagði
í samtali við NT að „mjög
erfitt" yrði að vinna áfram að
verksmiðjuhugmyndinni án
ríkisábyrgðarinnar. Stálfélags-
menn virðast því ekki horfa til
annarra lausna á fjármögn-
unarmálum sínum; þeirra von
er að iðnaðrarráðherra muni
skipta um skoðun á málinu,
eins og hann hefur áður gert.
Ársgömul skýrsla
Það vekur sérstaka athygli
að þær áætlanir sem nú liggja
til grundvallar afturköllunar-
beini iðnaðarráðherra eru
orðnar ársgamlar. Það var í
apríl I984 scm danska ráðgjaf-
arfyrirtækið ÍKO Plan A/S
lagði fram álitsgerð sem það
hafði gert að beiðni iðnaðar-
ráðuneytisins, Framkvæmda-
sjóðs og Iðnlánasjóðs, um
rekstrargrundvöll stálverk-
smiðju á íslandi. Skýrsla IKO
staðfesti að tæknilegar áætlanir
Stálfélagsins stæðust. en dró
þá niðurstöðu að efnahagsleg-
um íorsendum rekstursins væri
ábótavant. Iðnþróunarsjóður
tók nokkrar athugasemdir
Stálfélagsins við skýrsluna til
greina, og gerði nokkrar við-
bótrarrekstraráætlanir fyrir
verksmiðjuna, en komst aftur
að þeirri grundvallarniður-
stöðu í lok maí í fyrra að við
verksmiðju Stálfélagsins blasti
aðeins verulegt tap, einkum á
fyrri hluta starfstíma hennar;
ennfremur komst sjóðurinn að
þeirri niðurstöðu að sjóðs-
streymi fyrirtækisins yrði nei-
kvætt á öllu tímabilinu 1985-
I999.
Iðnþróunarsjóður byggöi
ákvörðun sína um að lána
Stálfélaginu ekki 18 milljónir
króna til fjárfestinga á þessum
niðurstöðum. Iðnaðarráð-
herra tók hins vegar lítiö mark
á skýrslu Dananna, kvað hana
illa unna og einskis veröa.
Ráðherra stóð að því að leggja
ríkisábyrgðarfrumvarpiö fram
á haustþinginu.
Hver yrði
samkeppnisstaðan?
Stálfélagsmenn gera enn
miklar athugasemdir við
skýrslu IKO. Leifur ísaksson
sagði að skýrslan tæki t.d.
aðeins með í reikninginn bygg-
ingu og rekstur völsunarverk-
smiðju, sem átti að verða fyrsti
hluti stálverksmiðjunnar og
kosta 93 milljónir í byggingu.
Hún gerði ekki áætlun um
stálbræðslu og stálsteypu. sem
einnig hefði átt að reisa, og
væru mun arðvænlegri. Guð-
mundurTómasson hjá Iðnþró-
unarsjóði sagði að þetta væri
rétt, en bætti því við að frá
Stálfélaginu hefðu aldrei kom-
ið ncin gögn eða áætlanir sem
sýndu að þessir síðari þættir
liefðu oröið svo arðbærir, og
því síður að þeir hefðu getað
breytt heildardæminu.
Gagnrýnendur og fylgjend-
ur stálverksmiðjunnar deila
sérstaklega um þrjú atriði í
rekstraráætlunum verksmiðj-
unnar: verð á framleiðslunni,
markaðshlutdeild fyrirtækisins
á innanlandsmarkaði, og þró-
un stálmárkaðarins. Leifur ís-
aksson sagði að markaðurinn
hér á landi næmi um 12 þúsund
tonnum á ári, og væru þá
undanskildar þarfir fyrir stór-
ar virkjanaframkvæmdir og
fyrir framkvæmdir á Keflavík-
urflugvelli. Stálfélagið hefði
gert ráð fyrir að verksmiðjan
næði 50-60% af þessum mark-
aði.
En yrði verksmiðjan þásam-
keppnisfær? Lcifur ísaksson
sagði að í könnun Verðlags-
stofnunar á árinu 1983 hefði
komið fram að steypustyrkt-
arstál hcfði verið 36% dýrara
á íslandi heldur en í Svíþjóð;
80-90% af þessu stáli hér á
landi kæmi liins vegar frá Sví-
þjóð og Noregi. Augljóst virt-
ist að á markaðnum hér heima
myndi íslensk stálverksmiðja
njóta verulegrar fjarlægðar-
verndar í verði, enda væri
flutningskostnaður stór hluti
söluverðs á stáli hér.
Hingað til lands kemur hins
vegar einnig mun ódýrara stál.
Leifur ísaksson sagði að þetta
stál væri gæðaminna heldur en
stálið sem þeir hyggðust fram-
leiða og sóst væri eftir hér.
Guðmundur Tómasson sagði
að við þetta ódýrara stál myndi
heimsmarkaðsverð á stáli verða
miðað. Hann minnti á að Stál-
verksmiðjan hefði skuldbund-
ið sig til að selja verulegan
hluta framleiðslu sinnar til
sænsks samstarfsaðila síns,
Halmstad Jernværk, á heims-
markaðsverði.
Hættirvið
Þannig rök og gagnrök hafa
gengið á milli aðila að Stálfé-
lagsmálinu um langa hríð; það
hefur jafnvel tekið menn ár að
átta sig á ákveönum upplýsing-
um og álitsgerðum um málið.
Framvinda málsins hefur vald-
ið Leifi ísakssyni, og öðrum
Stálfélagsmönnum, skiljanleg-
um vonbrigðum:
„Þessu máli var hrint af stað
með lögum um stálbræðslu á
Alþingi árið 1981. Síðan var
þctta ríkisstjórnarfrumvarp
um ríkisábyrgð lagt fram í
haust. Nú á svo að segja, við
þúsund manna félag: „Nei
strákar mínir, við erum
liættir". Þetta gengur ekki."
Erlent lán
■ Landsbanki íslands gerði í
síðustu viku lánssamning við
18 erlenda banka undir forustu
Manufacturers HanoverTrust.
Samkvæmt þessum samningi
gefur Landsbankinn út inn-
lánsskírtcini, víxla og aðrar
skuldaviðurkenningar til
skamms tíma, og mega allt að
110 millj. Bandaríkjadollara
vera í umferð á hverjum
tíma. Erlendu bankarnir munu
hver fyrir sig gera tilboð í þessi
skuldaskjöl og Landsbankinn
mun taka tilboðum að því
marki, sem hann telur
hagkvæmt. Náist ekki með
þessurn hætti sú upphæð sem
Landsbankinn hefur þörf á
hverju sinni, eru erlendu bank-
arnir skuldbundnir til að lána
Landsbankanum það sem á
vantar, allt að 77.5 millj.
Bandaríkjadollara á umsömd-
um hagstæðum kjörum. Lán
þessi verða tekin í ýmsum
tegundum gjaldeyris, Banda-
ríkjadollurum, sterlingspund-
um og þýskum mörkum.
Samningurinn er til fimm ára.
Andvirði þessara lána mun
aö hluta til verða ráðstafað til
að cndurgreiða önnur erlend
lán, sem tekin hafa verið vegna
viðbótarlána, og einnig til að
greiða Seðlabankanum endur-
seld, gengisbundin afurðalán.
Þessar lántökur munu ekki
auka skuldir þjóðarinnar.
Uppgreiðsla endurseldra,
gengisbundinna lána í Seðla-
bankanum er liöur í fram-
kvæmd þeirrar ákvöröunar
stjórnvalda, að afurðalánin
flytjist til viðskiptabankanna.
Samningur sá, sem Landsbank-
inn hefur nú gert tryggir áfram-
haldandi fjármögnun þeirra.
■ Helgi Bachmann, framkvxmdastjóri lánasviðs
Lánasvið í
Landsbanka
■ Nýtt starfssvið, lánasvið,
hefur verið stofnað í Lands-
bankanum. Lánasviðinu er
ætlað að sameina alla þá starf-
semi, sem lýtur að útlánamál-
um fyrirtækja. Verður hag-
deild bankans hluti lánasviðs-
ins.
Framkvæmdastjóri lána-
sviðs hefur verið ráðinn Helgi
Bachmann. Helgi lauk cand.
oecon prófi frá viðskiptadeild
Háskóla íslands 1955 og hóf
sama ár störf í Hagfræðideild
Landsbankans og Seðlabank-
ans. Hann hefur verið for-
stöðumaður Hagdeildar
Landsbankans frá 1961 og
jafnframt ráðunautur banka-
stjórnar um útlánamál.
Banda-
ríkja-
menn
skaðast
■ Gengishækkun dollar-
ans frá 1980 og fram á
þennan dag hefur kostað
tvær milljónir Bandaríkja-
manna atvinnuna. Þetta
er niðurstaða skýrslu sem
Data Resources í Lexing-
ton í Massachusetts hefur
gert fyrir bandaríska
þingnefnd. Þrír fjórðu
hlutar þessara atvinnu-
tækifæra hafa farið for-
görðum í framleiðslu-
greinum. Sérstaklega hafa
vefnaðarfyrirtæki í Norð-
ur og Suður-Karólínufylki
og Georgíu misst fótanna
í samkeppninni við erlend
fyrirtæki við þetta ótrú-
lega klifur dollarans.
Data Resources segir
einnig að hefði dollarinn
haldið svipaðri stöðu og
árið 1980, þá væri vöru-
skiptajöfnuður Banda-
ríkjanna 60-70 milljörðum
dollara hagstæðari á þessu
ári heldur en nú er búist
við að hann verði; gert er
ráð fyrir að vöruskipta-
hallinn verði 140-150
milljarðardollara íár.sem
er 20-30 milljörðum meiri
halli en árið 1984.
Gull í N-Noregi?
■ Norsk Hydro hefur nú yfir-
tekið rétt til að leita að gulli í
Norrland í Norður-Noregi.
Stefnir fyrirtækið að því, ef
leitin ber árangur, að vinna
200 kíló af gulli árlega, en
verðmæti slíkrar framleiðslu
væri um 20 milljónir norskra
eða 90 milljónir íslenskra
króna.
Frá því fyrir stríð hefur verið
vitað um gull í Bindal í
Norrland. Fyrirtækið Sulfid-
malm hefur undanfarin ár
haldið uppi leit að gullinu, en
án árangurs. Norska ríkið hcf-
ur nú styrkt Norsk Hydro
með 20 milljóna norskra króna
framlagi til að auka leitina.
Arnarflug byrjar árið vel:
Farþegum í millilanda
flugi fjölgaði um 32%
■ Á tímabilinu frá janúar-
byrjun til marsloka varð heild-
arfjöldi farþega Arnarflugs í
millilandaflugi 4.371, en til
samanburðar voru þeir 3.307 á
sama tímabili í fyrra. Aukning-
in á milli áranna er því um
32%.
Vöruflutningar Arnarflugs
jukust hins vegar um 93% á
sama tímabili. Félagið flutti
um 193 tonn á milli landa
fyrstu þrjá mánuði þessa árs,
en um 100 tonn sömu mánuði
j fyrra.
Arnarflug flutti tæplega 28
þúsund farþega á milli landa
síðasta ári og tölurnar fyrir
fyrstu mánuði ársins benda til aö
talsverð aukning verði á þessu
ári. Þannig voru farþegar í
millilandaflugi félagsins á
fyrstu þremur mánuðunum
16% fleiri heldur en rekstrar-
áætlun félagsins frá því í lok
ársins 1984 gerði ráð fyrir.
Bing og Grön-
dahl gekk vel
■ Postulínsfyrirtækið Bing Velta fyrirtækisins í fyrra óx
og Gröndahl seldi betur og um 10% og varð 289 milijónir
skilaði meiri hagnaði á síðasta danskra króna, eða um 1 mill-
ári heldur en árið á undan. jarður íslenskra króna.