NT - 16.04.1985, Blaðsíða 19

NT - 16.04.1985, Blaðsíða 19
[[[ Þriðjudagur 16. apríl 1985 19 tilkynningar Skattskrá Reykjavíkur fyrir árið 1984 Skatta-, útsvars-, launaskatts- og sölu- skattsskrár fyrir áriö 1984 liggja frammi á Skattstofu Reykjavíkur 16. apríl til 29. apríl 1985 aö báðum dögum meðtöldum, kl. 10 til 16 alla virka daga nema laugardaga. Athygli er vakin á því að enginn kæruréttur myndast þótt álögð gjöld séu birt með þessum hætti. Skattstjórinn í Reykjavík Gestur Steinþórsson Tilkynning um lóðahreinsun í Reykjavík, vorið 1985 Samkvæmt ákvæðum heilbrigðisreglugerð- ar, er lóðareigendum skylt að halda lóðum sínum hreinum og þrifalegum. Umráðamenn lóða eru hér með minntir á að flytja nú þegar brott af lóðum sínum allt, sem veldur óþrifn- aði og óprýði og hafa lokið því eigi síðar en 14. maí n.k. Að þessum fresti liðnum verða lóðirnar skoðaðar og þar sem hreinsun er ábótavant verður hún framkvæmd á kostnað og ábyrgð húseigenda, án frekari viðvörunar. Þeir, sem kynnu að óska eftir sorptunnum og lokum, hreinsun eða brottflutningi á rusli á sinn kostnað, tilkynni það í síma 18000. Til að auðvelda fólki að losna við rusl af lóðum hafa verið settir gámar á eftirtalda staði: Við Meistaravelli, Vatnsmýrarveg, (gamla Lauf- ásveginn), Grensásveg, í Laugarnesi, við Súðarvog, Stekkjarbakka, Rofabæ og Breið- holtsbraut. Eigendur og umráðamenn óskráðra umhirðulausra bílgarma, sem eru til óþirfnaðar á götum, bílastæðum, lóðum og opnum svæðum í borginni eru minntir á að fjarlægja þá hið fyrsta. Búast má við, að slíkir bílgarmar verði teknir til geymslu um takmarkaðan tíma, en síðan fluttir á sorp- hauga. Úrgang og rusl skal flytja á sorphauga við Gufunes á þeim tíma sem hér segir: mánudaga-föstudaga kl. 08-20 laugardaga kl. 08-18 sunnudaga kl. 10-18 Rusl, sem flutt er á sorphauga, skal vera í umbúðum eða bundið. Ekki má kveikja í rusli á sorphaugunum og hafa ber samráð við starfsmennina um losun. Sérstök athygli skal vakin á því, að óheimilt er að flytja úrgang á aðra staði í borgarland- inu. Verða þeir látnir sæta ábyrgð, sem gerast brotlegir í þeim efnum. Gatnamálastjórinn í Reykjavík. Hreinsunardeild. Starfsfólk í veitingahúsum Tekið verður á móti umsóknum um dvöl í sumarhúsum félagsins að Svignaskarði og Húsafelli á skrifstofu félagsins til 15. maí. Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 13-16 á föstudögum frá kl. 13-15. Stjórn orlofsheimilasjóðs FSV. tilkynningar Frá grunnskólanum í Mosfellssveit Innritun nýrra nemenda í grunnskóla í Mos- fellssveit næsta skólaár fer fram í Varmár- skóla (6-12 ára). sími 666154 og í gagn- fræðaskólanum (13-15 ára) sími 666186 þriðjudaginn 16. apríl og miðvikudaginn 17. apríl kl. 9-14. Mjög áríðandi er að þeir sem flytjast í skólahverfið sinni þessu kalli. Skólastjórar. Verkakvennafélagið Framsókn Reykjavík Auglýsing um orlofshús sumarið 1985. Mánudaginn 22. apríl til og með 30 apríl n.k. verður byrjað að taka á móti umsóknum félagsmanna varðandi dvöl í orlofshúsum íélagsins. 5eir sem ekki hafa dvalið áður í húsunum hafa forgang til umsókna dagana 22., 23. og 24. apríl. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu félagsins, Hverfisgötu 8-10 Reykjavík kl. 9-17 alla dagana. Símar 26930 og 26931. Athugið: Ekki er tekið á móti umsóknum í síma. Vikugjald er kr. 2.500,00 Félagið á 3 hús í Ölfusborgum 1 hús í Flókalundi og 2 hús í Húsafelli til sölu n Svalahurðir Verð frá kr: 5[800 Útihurðir Veró frá kr: 9.000 í V Bílskúrshuröir ' j I Verð frá kr: '10.900 Gluggasmiöj?r Siöumúla.20 símar: 38220&81080 Fram nú allir í röð Hjólum aldrei samsíða á vegum ||U^FERÐAR Tage Tjörnbo fær ekki að reyna indverska jurtalyfið vegna ótta sænskra heilbrigðis- yfirvalda við svarta galdurinn. Görel Hallström, kona hans, segist mæta hæðninni einni saman í viðskiptum sínum við yfirvöld. Kerfistregða í Svíþjóð: Færekki indverska krabbameinslyfið ■ Svíi nokkur sem fékk að vita það fyrir þremur mánuð- um að hann er dauðvona stendur nú t' baráttu við yfir- völd um að fá að flytja inn sína síðustu von, indversk jurtalyf. Yfirvöld segja nei, það er á móti reglunum. Tage Tjörnbo, sem er upp- tökustjóri hjá sænska sjón- varpinu, var sagt að loknum uppskurði fyrir þremur mán- uðum að læknar gætu ekki gert neitt meira fyrir hann og var hann útskrifaður og sendur heim. Hann er haldinn krabba- meini í heila, hefur verið í geislameðferð en fær nú lyf sem drepur frumur. Tjörnbo vildi ekki leggja árar í bát við upplýsingar lækn- anna: „Maður fer að leita,“ sagði hann, „það er mikilvægt að finna einhverja vonar- glætu." Hann komst í samband við Lobsang Dolma, lækni frá Tíbet, sem starfar í Indlandi og er sérfræðingur í krabba- meinssjúkdómum. Tjörnbo sendi henni sjúkra- skýrslur sínar og hún sendi honum jurtalyf og bréf til baka. Eiginkona Tjörnbos, Görel Haltström, segir að fjöl- skyldan hafi aldrei áður notað jurtalyf en eftir að hafa búið í Indlandi og Afríku í áraraðir beri hún líka virðingu fyrir læknum sem tilheyra öðrum menningarheimi en þeim vest- ræna. Og náinn vinur hennar, sem talinn var haldinn ólækn- andi krabbameini, hlaut bót meina sinna eftir meðhöndlum asísks læknis. En sænsk yfirvöld eru sem sagt ekki á því að leyfa þeim að reyna og sagðist Görel hljóta háðið eitt að svari þegar hún reyndi að útskýra mikil- vægi þess að þau fengju jurta- lyfið. Pað er kaldhæðnislegt að ef Tjörnbo hefði veikst erlendis hefði hann fengið að taka þetta sama lyf og hvaða lyf annað sem er, með sér inn í landið. Reglan sem leyfir slíkan inn- flutning gengur út á það að sá sem veikist erlðndis eigi að geta lokið þeirri meðhöndlun sem erlendi læknirinn mælir fyrir um. En Tjörnbo veiktist sem sagt heima hjá sér og fær því einungis að neyta þeirra Íyfja sem viðurkennd eru af sænskum yfirvöldum. „Við trúum alls ekki á eitt- hvert kraftaverk," sögðu þessi sænsku hjón í viðtali við Dag- ens Nyheter, „en þetta lyf gæti kannski gefið okkur meiri tíma.“ Kólombía: Skæruliðardrepa sjö lögreglumenn Uogotu-Rcuter ■ Kólombískir skæruliðar drápu sjö lögreglumenn í tveim árásum á lögreglustöðvar um helgina að sögn yfirvalda í Kól- ombíu. Tveir lögreglumenn voru felldir í árás á lögreglustöð í smáþorpi á laugardag og fimm til viðbótar féllu í sex klukku- stunda orrustu í Torribio í Caudca, miðfylki landsins, þar sem vinstrisinnaður andstæðu- hópur kólombíska byltingar- hersins er öflugur. Leiðtogar kolombíska bylt- ingarhersins skrifuðu undir vopnahlé við stjórnvöld í fyrra en róttækur andstöðuhópur inn- an skæruliðasamtakanna hefur neitað að viðurkenna sam- komulagið. Pakistan: Sovéska sendiherr- anum sagt að þegja fundi þar sem ég er sendiherra Sovétríkjanna. Aðrir sendiherr- ar hafa fullt leyfi til slíks. Eftir hvern fréttamannafund, sem ég hef verið boðinn til af pakistönskum yfirvöldum, hef ég verið ávíttur. Smimov er þekktur fyrir harða gagnrýni á stuðning pakistanskra yfirvalda við upp- reisnarmenn í Afganistan og hann hefur varið veru sovésks herliðs í Afganistan mjög ein- dregið. Islumabad-Reuter ■ Sovéski sendiherrann í Pakistan, Vitaly Smirnov, skýrði frá því í þessari viku að pakistönsk yfirvöld hefðu bann- að honum að halda opinberar ræður undanfarna tvo mánuði og þau hefðu ávítt hann fyrir að ávarpa fréttamenn á frétta- i mannafundi. í yfirlýsingu frá sendiherran- um sem fréttamenn fengu af- henta síðastliðinn sunnudag, segir Smirnov meðal annars: g má ekki halda blaðamanna-

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.