NT - 16.04.1985, Page 20

NT - 16.04.1985, Page 20
Víðtækt hjá Ford Bonn-Kcutcr ■ Ýmislegt bendir til þess að bandaríski bílaframleiðandinn Ford og Fiat-verksmiðjurnar á Ítalíu muni bráðlega komast að samkomulagi um viðtæka sam- vinnu og jafnvel samruna. Sameinuð nefnd þessara fyrirtækja hefur nú um nokk- urra mánaða skeið rætt um „allar hliðar mögulegs samstarfs" að sögn aðaltals- manns dótturfyrirtækis Fords í Vestur-Þýskalandi. Samkvæmt heimildum í bíla- iðnaðinum eru nú ýmis merki á lofti unt að æðstu yfirmenn hjá Ford og Fiat hafi tekið þátt í viðræðunum og hafi þeir nú til athugunar samruna á dótturfyr- irtækjum Ford í Evrópu og Fiat. Slíkur samruni myndi stór- minnka þróunar- og fram- leiðslukostnað hjá þessum fyrir- tækjum og bæta samkeppnisað- stöðu þeirra gagnvart japönsk- um og bandarískum bílafram- leiðendum. Samvinnan eða samruninn myndi líklega fyrst og fremst birtast í því að fyrirtækin myndu sameina framleiðslu sína á ákveðnum bílhlutum og sam- eina markaðskerfi sitt og hrá- efniskaup en þau myndu ekki hætta sjálfstæðri framleiðslu á bílategundum undir eigin merki. Eftir samrunann gætu bæði þessi fyrirtæki gert sér Suður-Afríka: Lappað upp á aðskilnað' arstefnuna Höfðabor}>-Kcutcr ■ Suður-Afríkustjórn tilkynnti í gær að hún myndi afnema þau ákvæði aðskilnaðarlaganna sem banna kynlíf og hjóna- band hvítra og þeldökkra. Lög þessi hafa nú gilt í meira en aldarfjórðung. De Klerk, innanríkis- ráðherra, skýrði þinginu frá því í gær að banni þessu yrði aflétt á næstu mánuðum og mun það verða mikill léttir þeim hundruðum blandaðra para sem hingað til hafa getað átt von á lögreglunni heim til sín á hvaða tíma sólarhringsins sem var. Ráðherrann skýrði ekki frá því hvar bíandaðar fjölskyldur eiga að búa, í hvaða skóla börnin eiga að fara eða hvaða stjórn- málaflokka þeim leyfist að kjósa, en íbúðahverfi, skólar og stjórnmálaflokk- ar eru vandlega aðskilin samkvæmt aðskilnaðar- stefnu stjórnvalda. Skoðanir á þessari lagabreytingu eru skiptar í Suður-Afríku. Hægri- sinnaðir hvítir öfgamenn telja bannið ómissandi fyr- ir sérstöðu hvíta minni- hlutans en margir svertingj- ar álíta afnám bannsins léttvægt miðað við mikil- vægi beinna stjórnmála- legra réttinda svertingja. Og nóbelsverðlauna- hafinn Desmond Tutu biskup sagðist vonast til þess að stjórnvöldum tæk- ist ekki að afnema bannið við kynlífi og hjónabönd- um hvítra og þeldökkra án þess að þurfa að hreinsa enn frekar til. Að áliti Tutus eru stjórnvöld ein- ungis að lappa upp á að- skilnaðarstefnuna með af- námi bannsins. Afríka: Kólerufaraldur á þurrkasvæðum samstarf og Fíat vonir um aukna markaðshlut- deild á heimsmarkaðinum. Pað mun hafa ýtt mjög undir sameiningar og samrunaviðræð- ur Ford og Fiat að bílaframleið- andinn General Motors í Banda- ríkjunum skýrði frá því í janúar síðastliðnum að hann myndi hafa samvinnu við japönsk fyrirtæki við smíði nýs smábíls sem yrði ódýrari en svipaðir bílar hjá Ford og Fiat. Nú þegar munu Ford og Fiat hafa gert með sér samkomulag um sameiginlega notkun á nýj- um sjálfvirkum gírkassa og Ford hefur sýnt mikinn áhuga á nýrri öflugri og sparneytinni vél sem Fiat hefur smíðað. Mogadishu-Kcutcr ■ Á undanförnum vik- um hafa rúmlega 1.600 manns dáið vegna kól- erufaralds í flóttamanna- búðum í Sómalíu. Meiri- hluti flóttamannanna kom frá Eþíópíu þar sem kólera mun hafa komið upp á mörgum stöðum. Ríkisfréttastofan í Sómalíu hefur það eftir eþíópískum flóttamönn- um að kóleru hafi orðið vart í bæjum í Austur- Eþíópíu þar sem mörg hundruð manns hafi látist. Að sögn fréttastof- unnar hafa margir einnig sýkst af kóleru í Suður- Eþíópíu. Sómalir segja að sér hafi tekist að koma í veg fyrir að kólerufaraldur- inn í flóttamannabúðum skammt fyrir utan Harg- eisa-borg breiddist út til annarra stað með því að hafa mjög stranga sóttkví um búðirnar. Söguleg heimsókn: Forseti Ecuador áKúbu ■ Endurnýting blóðs við uppskurði er nú komin aftur á dagskrá í Bandaríkjunum vegna ótta manna þar við ónæmisbæklunina AIDS. Sjúklingarnir fá blóðið sitt aftur ■ í nýjasta tölublaði breska vísindatímaritsins New Scientist er skýrt frá því að bandarískir læknar hafi nú í athugun mögu- leika á því að dæla blóði upp- skurðarsjúklinga aftur í þá að aðgerð lokinni. Með þessu vilja þeir ntinnka möguleikana á þvi að sjúklingar fái ónæmisbæklun- ina AfDS með blóðgjöf eða aðra smitsjúkdóma sem berast meö blóði. Hugmyndir um að dæla eigin blóði aftur í sjúklinga voru fyrst settar fram fyrir 160 árum en þá var það óframkvæmanlegt. Blóðpumpur, sem gerðar voru með slíka endurnýtingu blóðs á sein- asta áratugi reyndust sórhættu- legar því það komust loftból- ur í blóðið sem ollu lífshættuleg- um æðastíflum. Nú segjast Bandaríkjamenn hafa leyst þessi vandamál. Ein- faldasta endurnýtingaraðferðin er reyndar sú að blóð er tekið úr sjúklingnum a.rn.k. nokkrum vikum fyrir uppskurð. Þetta er sérstaklega hentug aðferð ef góður fyrirvari er á aðgerðinni og sjúklingurinn hefur sjaldgæfa blóðtegund. En bandarískirlæknarsegjast einnig geta endurnýtt blóð sem sjúklingurinn missir á meðan á aðgerðinni stendur. Blóðið er sogað úr sárinu og síðan er andstorkunarefnum blandað við það. Eftir það er blóðið þvegið og sett í skilvindu með saltvatni. Að lokum er því dælt aftur í sjúklinginn í sérstökum dælum. 200 til 300 ml. af blóði fara í gegnum blóðendurnýting- arvélina á hverri mínútu. Þessi endurnýtingaraðferð rnun samt ekki alltaf vera mjög hentug þar sem hætta er á að blóðið spillist ef gall og aðrir líkamsvökvar komast í það. Einnig hafa surnir áhyggjur af því að krabbameinsfrumum yrði aftur dælt inn í líkama krabbameinssjúklinga sem fengju blóðið sitt aftur úr slíkri vél. Havana-Rcutcr ■ Tveggja daga heimsókn forseta Ecuadors, Leon Fe- bres Cordero, til Kúbu lýkur nú í dag. Heimsókn hans er talin ákaflega mikilvæg þar sem þetta er fyrsta heimsókn íhaldssams þjóðarleiðtoga Mið-Ameríkuríkis frá því að Castro komst til valda á Kúbu fyrir 26 árum. Febres Corderos var vel fagnað á Kúbu við komuna þangað á sunnudag. Castro kom sjálfur út á flugvöllinn til að taka á móti honum og 21 heiðursskoti var hleypt af til heiðurs forsetanum. Tiltölulega stutt er síðan stjórnmálasamband komst á milli Ecuador og Kúbu. Heirn- sókn Corderos til Kúbu er talið mikilvægt merki um að leiðtogar Mið- og Suður- Ameríku hafi nú sætt sig við stöðugleika kommúnista- stjórnarinnar á Kúbu. Erlend- ir sendimenn á Kúbu segja heimsókn forsetans hafa sögu- lega þýðingu. í för með Cordero voru einnig utanríkisráðherra og fjármálaráðherra Ecuadors. Þeir munu aðallega hafa rætt við Castro um skuldir þróunar- ríka í Ameríku. Hægristjórn í Perú möluð í kosningum Lima-Kcutcr. ■ íhaldssöm stjórn stjórn- málaflokksins Alþýðuathafna í Perú beið mikið afhroð í kosning- unum nú á sunnudag. Þótt endanleg úrslit úr kosningunum liggi ekki fyrir fyrr en eftir um það bil mánuð er Ijóst að fráfar- andi forseti Fernando Belaunde Terry hefur ekki fengið nema um fimm prósent atkvæða en í kosningunum 1980 fékk flokkur hans 45% atkvæða. Kjósendur í Perú höfnuðu nú hægrisinnuðum og íhalssömum frambjóðendum og greiddu sós- íaldemókrötum og kommúnist- um atkvæði sín. Samkvæmt sjónvarpsspám fékk sósíaldem- ókratinn Alan Garcia frá Hinni alþýðlegu byítingarsamfylkingu Ameríku um 48 prósent at- kvæða. Það dugar honum samt ekki til að verða forseti þar sem hreinan meirihluta þarf til þess. Líklega verður því að kjósa aftur milli Garcia og borgar- stjórans í Lima, Alfonso Bar- rantes sem fékk 23,5% sam- kvæmt sjónvarpsspánum sem byggðar eru á tölum frá kjör- stöðum þar sem atkvæðin voru talin. Atkvæðunum verður síð- an safnað saman frá 42.500 kjörstöðum og þau talin að nýju í 24 héraðshöfuðborgum. Bæði Garcia og Barrantes vilja draga mikið úr endur- greiðslum Perúmanna á 13.5 milljarða dollara skuld sem er að sliga landsmenn. Mikið fylgi þeirra eru því slæmar fréttir fyrir lánardrottna Perúmanna. Kosningarnar fóru tiltölulega friðsamlega fram þrátt fyrir hót- anir maoískra skæruliða um árás- ir á kjörstaði. Aðeins á örfá- um stöðum kom til átaka milli skæruliða og rúmlega hundrað þúsund lögreglumanna og hermanna sem kallaðir voru út vegna kosninganna. Sprengjur sprungu í fimm borgum, þ.á.m. í höfuðborginni Lima. Nái Garcia kosningu verður hann yngsti forsetinn í Suður- Ameríku þar sem hann er að- eins 35 ára að aldri. Erlend stórfyrirtæki geta þá einnig átt von á hærri sköttum og Garcia hefur lýst því yfir að hann muni þá líka auka viðskipti Perú- manna við sósíalísk ríki. Óeirðir í Teheran: Þrjú hundruð handteknir Teheran-Reuter ■ íranska dagblaðið „ís- lamska lýðveldið" skýrði frá því nú um helgina að á miðvikudag í seinustu viku hefðu 300 manns ver- ið handteknir eftir óeirðir í suðurhluta Teheranborg- ar. Samkvæmt blaðinu féll eitt ungmenni í átökum milli öryggissveita og íbúa í Suður-Teheran. Yfir- maður öryggissveita Ir- ana, Hojatoleslam Salek, segir að hinir handteknu séu félagar í kommúnista- flokknum, sem er bannað- ur, eða tilheyri skæruliða- samtökum Mujahedin sem berjast gegn klerka- veldinu. í opinberri yfirlýsingu um óeirðirnar segir að til átaka hafi komið eftir að öryggisverðir hafi aðvarað nokkur ungmenni um að vera ekki að abbast upp á kvenfólk. íbúar hverfisins þar sem óeirðirnar urðu eru venjulega álitnir ein- dregnir stuðningsmenn stjórnarinnar.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.