NT


NT - 16.04.1985, Side 21

NT - 16.04.1985, Side 21
■ Amerískir arabar hafa nú fengið sig fullsadda af þeirri mynd sem dregin er upp af þeim í bandarískum sjónvarpsþáttum, kvikmyndum, bókum og teiknimyndasögum. Myndin hér að ofan er úr myndinni Dauði prinsessunnar og sýnir araba með reidda sveðju - nema hvað! Amerískir arabar mót- mæla skúrk-ímyndinni New York-Reuter ■ ( bandarískum sjónvarpsþáttum, kvikmyndum, bókum og teikni- myndasögum eru arabar ævinlega vondu mennirnir sem engum ber að treysta, segja samtök amerískra araba (ADC) sem nú láta æ meir í sér heyra og krefjast þess að framleiðendur sjónvarpsþátta og kvikmynda hressi upp á hina dæmigerðu ímynd arabanna. Samtökin skipa um þrjár milljónir Ameríkana af arabískum uppruna sem telja sig iðulega sæta illri meðferð, ýmist vegna mannvonsku eða fávisku, en hafa nú risið upp og hafið skipulegt andóf gegn þessari meðferð, líkt og svo margir aðrir reiðir minnihlutahópar. James Abourezk, fyrrum þingmað- ur Suður-Dakota og formaður ADC af lýbönskum ættum, segir að arabar hafi of lengi verið „öruggt“ skotmark hæðandi og spottandi samborgara sinna. Bonnie Rimawi, ein af leiðtogum ADC í New York, segir að á fyrstu árum kvikmyndanna hafí arabar verið sveipaðir óraunhæfum ævintýraljóma en nú séu þeir nær undantekningar- laust látnir vera stórhættulegir hryðju- verkamenn eða smeðjulegir olíukóngar. „Þetta eru alltaf sömu ímyndirnar - lostafullur græðgislegur sjeik með kvennabúr,“ ADC kvartaði beisklega yfir út- smognum arabískum náunga í Dyn- asty-þáttunum vinsælu og báðu um að hann yrði „skrifaður út úr“ þáttunum á þann hátt að í ljós kæmi að þetta væri heiðvirður maður. En það var öðru nær. Maðurinn var skotinn til bana í hótelanddyri eins og hver annar dólgur. Og nýlega komust ADC samtökin að því að kvikmyndaframleiðendur sem auglýstu sérstaklega eftir leikur- um með arabískt útlit í kvikmynd sem þeir hyggjast framleiða hafa gefið hinu goðsögulega araba-landi, sem er sögusvið myndarinnar, hið ósæmilega nafn „Rottuhola" - sé það stafað aftur á bak. Amerísku arabarnir eru þó ekki vonlausir um að staða þeirra fari skánandi þó erfitt sé að vinna bug á stöðluðu ímyndinni. En þeir hafa áhyggjur af því að kynþáttamisréttið lifi af bætta stöðu þeirra sjálfra: „Þeir finna sér einhverja aðra. Víetnama, Kóreana, eða einhverja. Kynþáttahat- ararnir finna sér alltaf einhverja.“ Féllu niður í Vesúvíus Napóli-Reuter ■ Tveir bandarískir sjóliðar féllu rúmlega hundrað metra niður í gíg ítalska eldfjallsins Veúvíusar nú á sunnudaginn. Annar þeirra lést við fallið en hinn náðist upp alvarlega slasaður. Að sögn ítölsku lögreglunnar munu sjóliðarnir hafa misst fótana þegar þeir hölluðu sér fram til að skoða betur gíg þessa heimsfræga eldfjalls sem eyddi rómversku borginni Pom- pei í fornöld. Vesúvíus hefur ekki gosið í meira en fjörutíu ár. Einkaskóli í Detroit: Kennarar reknir fyrir að merkja gyðingana Detroit-Reuter ■ í síðustu viku ákváðu yfirmenn einka- skóla í Detroit að reka þrjá kennara frá störfum fyrir að merkja sérstaklegsa skjöl í spjaldskrá skólans yfir þá nemendur sem eru gyðingar. í skóla þessum, sem þjónar velstæðum íbúum úthverfis nokkurs sem flestir eru háttsettir starfsmenn bílaiðnaðarins, eru 1.400 nemendur. Talkona skólans lýsti þessu athæfi kennaranna sem miklu áfalli fyrir forráða- menn skólans og samfélagsins sem hann þjónar, en það er mjög blandað og 22% allra nemendanna eru gyðingar. Kennararnir sögðust hafa gripið til þessara merkinga til þess að auðvelda sér að skipta gyðinganemendunum jafnar á milli bekkja á morgnana og síðdegis. Ætlaði að flytja inn en... Húsið var horfið af grunninum - niðurrifsmenn fóru húsavillt Sydney-Reuter ■ Áströlsk yfirvöld hafa lofað blaðamanni í Sydney bótum fyrir hús sitt sem var rifið niður vegna misskilnings niðurrifsverktaka sem fór götuvillt. Verktakinn hafði fengið fyrirmæli um að rífa niður hús númer 58 við Glebe Point Road en þess í stað reif hann niður hús í lannarri götu með nafninu Glebe Street. Þar gjöreyði- lagði hann hús, sem blaðamaðurinn David Osborne hafði nýkeypt. Osborne hafði ætlað að flytja inn í húsið nú í þessari viku en þegar hann kom til að ljúka við undirbún- ing flutninganna nú um helgina var ekkert eftir af húsinu nema grunnur- inn. Meira að segja byggingarefni sem hann hafði ætlað að nota til endurnýjunar húsnæðisins var horf- ið svo að ekki sé minnst á gamaldags arinn sem hann hafði hlakkað mikið til að nota. Byggingarráðherra í Nýju Suður- Wales hughreysti blaðamanninn með því að stjórnvöld myndu greiða allan kostnað vegna þessara mis- taka. . i Þriðjudagur 16. apríi 1985 21 Tökum að okkur hverskonarjarðvinnu. Efnisflutninga, útvegum efni. Höfum: treiler, vörubíl, Broyt-gröfu, Case-gröfu, jarðýtu, jarðvegsþjöppu, 4x4 traktor (74 hestöfl) og margt fleira. Föst tilboð eða tímavinna. Vanir menn og örugg þjónusta. Leitið upplýsinga. Hringið í síma 99-4166 (vinnusími) eða í síma 99-4180 (heima- sími). AJHCffiUEN VINNUVClALEIGA HVERAGERÐI Auglýsing íbúð fræðimanns í húsi Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn er laus til afnota tímabilið 1. september 1985 til 31. ágúst 1986. Listamenn eða vísindamenn, sem hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum í Kaupmannahöfn, geta sótt um afnotarétt af íbúðinni. í íbúðinni eru fimm herbergi og fylgir þeim allur nauðsynlegasti heimilisbúnaður. Hún er látin í té endurgjalds- laust. Dvalartími í íbúðinni skal eigi vera skemmri en 3 mánuðir en lengstur 12 mánuðir, en venjulega hefur henni verið ráðstafað til þriggja mánaða í senn. Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist stjórn húss Jóns Sigurðssonar, Islands Ambassade, Dantes Plads 1, 1556 Köbenhavn V, eigi síðar en 20. maí n.k. Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi með dvöl sinni í Kaupmannahöfn, svo og menntun og fyrri störfum. Þá skal tekið fram hvenær og hve lengi óskað er eftir íbúðinni, svo og fjölskyldustærð umsækjanda. Tekið skal fram að hússtjórn ætlast til að dvalargestir nyti úthlutaðan tíma sinn að fullu við störf í Kaupmannahöfn. Sérstök umsóknareyðublöð er hægt að fá á skrifstofu Alþingis í Alþingishúsinu í Reykjavík og í sendiráðinu í Kaupmannahöfn. Stjórn Húss Jóns Sigurðssonar LÆST DRIF í LADA Eigum fyrirliggjandi lœst mismuna- drif í allar tegundir LADA bifreiða. 40% og 75% lœsing. Hagstœtt verð. Skittiborð Verslun Verkstæði Soludeild 38600 39230 39760 31236 Bifreiöar & Landbúnaöarvélar hf Suöurlandsbraut 14

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.