NT - 16.04.1985, Síða 23
Þriðjudagur 16. apríl 1985
Iþróttir
US Masters í golfi:
Þjóðverjinn vann
- eftir baráttu við Strange - Ballesteros annar
■ V-Þjóðverjinn Bernhard
Langer sigraði á einu af
stærstu golfmótum heims,
U.S. Masters, nú um helg-
ina. Þetta er fyrsti sigur Lan-
ger á móti í Bandaríkjunum
síðan hann varð atvinnu-
maður í greininni aðeins 15
ára gamall. Mótið fór fram í
Augusta í Georgiu.
Langer, sem nú er 27 ára
gamall, fór seinni hluta
keppninnar þ.e. 18 holur, á
136 höggum sem er 8 undir
pari og tryggði sér þar með
sigur. Sá sem atti mestu
kappi við Langer var Banda-
ríkjamaðurinn Curtis
Strange. Strange átti mögu-
leika á að knýja fram auka-
keppni við Langer en mis-
tóks skot inn á flötina á
síðustu holu og þar með varð
Langer sigurvegari.
Verðlaunin voru ekki af
versta tagi eða 126 þúsund
dollarar. Það jafngildir um 5
milljónum íslenskra króna.
Röð efstu manna varð
þessi:
Bernhard Langer
V-Þýskaland .... 72-74-68-68=282 högg
Seve Ballsteros,
Spánn .......... 72-71-71-70=284 högg
Curtis Strange .. 80-65-68-71=284 högg
Raymond Floyd . 70-73-69-72=284 högg
JayHaas......... 73-73-72-67=285 högg
JackNicklaus ... 71-74-72-69=286 högg
Craig Stadler ... 73-67-76-70=286 högg
Gary Hallberg ... 68-73-75-70=286 högg
Bruce Lietzke ... 72-71-73-70=286 högg
Portúgal:
23
Gomes er enn við
sama heygarðshornið
- skoraði og Porto vann - Gomes markahæstur I Evrópu
■ Kenny Dalglish er meiddur; nær hann að jafna sig fyrir
leikinn annað kvöld?
Frá Heimi Bergssyni fréttaritara NT í
Englandi:
■ ..TVEIR AF BESTU
LEIKMÖNNUM LIVER-
POOL, þeir Kenny Dalglish
og Ian Rush, eru meiddir en
gætu verið tilbúnir í slaginn
á miðvikudagskvöldið (á
morgun). Þá fer fram hinn
gríðarmikilvægi leikur á milli
Liverpool og Manchester
United í undanúrslitum
bikarkeppninnar á Main
Road í Manchester. Rush er
meiddur í hné og var það
honum til trafala í fyrri leik
félaganna á Goodison Park í
Liverpool á laugardaginn var
- þó ekki þegar hann skallaði
á mark undir lok leiksins.
Enskir punktar:
Dalglish
og Rush
meiddir
Dalglish er meiddur á ökkla
en líklegt er að hægt verði að
lappa uppá hann fyrir leik-
inn. Steve Nicol er einnig að
losna úr meiðslum og gæti
komið inn í stað Sammy
Lee...
...BILL ASPREY, fram-
kvæmdastjóri Stoke, hefur
verið leystur frá störfum frá
félaginu sern falla mun í 2.
deild eftir þetta keppnis-
tímabil. Stjórn félagsins
sagðist hafa tekið þessa
ákvörðun vegna atburða inn-
an vallar sem utan. Stol(e
hefur aðeins unnið þrisvar
þessu keppnistímabili og fé-
lagið á þar að auki í miklum
fjárhagslegum erfiðleikum.
Það hefur verið mikið álag á
Asprey og fyrr á árinu þá
þurfti hann að leita læknisað-
stoðar vegna „tapveikinda".
Þjálfari unglingaliðs Stoke,
Tony Lacey, hefur tekið að
sér framkvæmdastjórn til
bráðabirgða...
■ Fernando Gomes skoraði
sitt 33. mark í portúgölsku 1.
deildinni í knattspyrnu í gær, er
lið hans, Porto, bar sigurorð af
Varzim á útivelli 2-1. Gomes er
nú langefstur í keppninni um
gullskóinn, sem veittur er
markahæsta leikmanni í 1. deild
í Evrópu hverju sinni.
Önnur úrslit í Portúgal voru
þessi.
Academica-Beníica
Sporting-Vizela
F aronse-Boavista
Guimarae s - Setubal
Belenenses-Portimonense
Penaíiel-Braga
Salgueiros-Rio Ave
1-2
4-0
0-1
3-1
2-0
1-0
2-0
Staða efstu liða er þessi þegar
sex umferðum er ólokið.
Porto .......... 24 22 1 1 65 10 45
Sporting ....... 24 17 6 1 63 20 40
Benfica ........ 24 13 7 4 45 23 33
Portimonense .... 24 12 5 7 44 34 29
Boavista ....... 24 10 9 5 31 22 29
Spánska knattspyrnan:
Real missti af
Evrópusætinu
Frjálsíþróttir:
Kingdom með
besta tímann
i
- í 100 metra grindahlaupi á árinu
■ Real Madrid sem einokaði
evrópska knattspyrnu í lok
sjötta og upphafí sjöunda ára-
tugarins og var þá nánast ósigr-
andi, tapaði á sunnudaginn fyrir
Valencia í spönsku 1. deildinni
0-1. Liðið missti þar með af
sæti í UEFA keppninni næsta
keppnistímabil. Eina von þess
til að halda langri Evrópuhefð
sinni lifandi er að vinna UEFA-
bikarinn nú í ár. En til þess að
svo geti orðið verður liðið að
vinna upp tveggja marka tap
gegn Inter Mílanó í seinni leik
liðanna sem fram fer í undanúr-
slitum keppninnar 24. apríl.
Valencia stöðvaði eigin öfug-
þróun með þessum sigri, liðið
hafði tapað sjö leikjum í röð
fyrir þessa umferð. Það var
varnarmaðurinn Angel Castell-
anos sem skoraði eina mark
leiksins með góðu skoti fyrir
utan vítateig eftir tuttugu mín-
útna leik. Tap Real tryggði
liðunum fyrir ofan Evrópusætið
og Sporting Gijon sem er í
þriðja sæti gerði engin mistök
og vann Sevilla 2-0 á heimavelli.
Það var Enrico Castro sem skor-
aði fyrra markið úr víti eftir-12
mínútur og spánski landsliðs-
maðurinn Antonio Maceda
bætti hinu við fjórum mínútum
fyrir leikslok. Atletico de Bil-
bao náði markalausu jafntefli
gegn nýbökuðum meisturum frá
Barcelona, þrátt fyrir að leika í
47 mínútur með aðeins 10
menn.
Sigurganga Atletico Mardid
sem er í öðru sæti deildarinnar
var stöðvuð nú um helgina.
Atletico hafði unnið sjö leiki í
röð en nú tapaði liðið á heima-
velli 0-1 fyrir Real Zaragoza
Síðasta umferð á Spáni verður
um næstu helgi.
■ Chris Evert-Lloyd sigraði, en þurfti að hafa fyrir hlutunum í
úrslitunum gegn Sabatini frá Argentínu.
Fjórtán ára
í úrslitum
- í Hilton-keppninni - Uoyd vann
■ Bandaríkjamaðurinn Roger
Kingdom náði besta tíma ársins
í 110 metra grindahlaupi á al-
þjóðlegu frjálsíþróttamóti í
Trinidad í gær. Tími Kingdoms
var 13,32 sekúndur en annar
varð félagi hans Nate Page á
14,22. Finninn Arto Bryggare
varð síðan þriðji aðeins broti á
eftir Pagea á 14,23 sek.
Kenýabúar einokuðu 800
metrana og Edwin Koech sigr-
aði á 1:45,88. Annar varð
Sammy Koskei á 1:45,99 og
þriðji Billy Kenchellah á
1:48,58.
Meistari Edwin Moses hætti
við þátttöku í 400 metra hlaup-
inu en stangarstökksstjarnan
Thierry Vigneron sigraði í sinni
grein, stökk 5,70 metra.
Diane Dixon sigraði í 100
metra hlaupi kvenna á 11,50
sek. en Grace Jackson varð'
önnur á 11,56 og kúbanska
stúlkan Luisa Ferrer varð þriðja
á 11,65. Grace Jackson vann
liins vegar Dixon í 200 metra
hlaupinu í fyrradag.
■ Chris Evert Lloyd sigraði í
áttunda sinn á Hilton tennis-
keppninni í fyrradag. Er þetta í
þrettánda sinn sem keppnin er
haldin. Það sem vakti þó meiri
athygli var að hún lék til úrslita
gegn 14 ára gamalli argentínskri
stúlku, Gabrielu Sabatini að
nafni. Úrslitin í leiknum urðu
6-4 og 6-0.
Liðið til þjálfarans
- Vopnfirðingar fóru til þjálfarans í Eyjum
■ Það þykir ekki tíðindum
sæta hjá mörgum liðum í neðri
deildum kanttspyrnunnar á Is-
landi að þurfa að æfa nánast án
þjálfara framundir mót. Mörg
lið ráða þjálfara frá öðrum
landshlutum sem ekki geta
fengið sig lausa frá vjnnu fyrr
en í maí og verða að stjórna
liðum sínum í hálfgerðum
bréfaskóalstíl.
Einherja-menn á Vopnafirði
réðu til sín þjálfara frá Vest-
mannaeyjum fyrir þetta
keppnistímabil. Sá er kennari
í Eyjum og hefur ekki komist
til Vopnafjarðar á hverjum
degi — skiljanlega. Umpáskana
þá klikktu þeir Einherja-menn
út með því að fara til þjálfarans
í Eyjum í stað þess að fá hann
til Vopnafjarðar. Var því æft
grimmt og spilað í Eyjum.
Margir leikmanna Einherja-
liðsins eru við nám í Reykjavík
svo þeir slógu nánast tvær
flugur í einu höggi. Völlurinn
á Vopnafirði stendur víst varla
undir nafni.
Sabatini hafði unnið frægar
stjörnur til að komast í úrslit.
Meðal þeirra var Manuela
Maleeva frá Búlgaríu (6-1, 7-6)
og Pam Shriver frá USA (5-7,
7-5, 6-4).
Vegna rigningar varð að festa
mörgum leikjum á föstudegin-
um og laugardeginum svo kepp-
endur urðu að leika fleiri leiki á
sunnudeginum. Úrslitaleikur-
inn var sá þriðji í röðinni hjá
Sabatini á sunnudag. Hún sagði
eftir keppnina: „Eg var orðin
þreytt og í seinni hrinunni var
ég of sein í boltann vegna
þreytu“.
Landsliðakeppnin í goifi:
Frakkland, írland
og Wales í
■ Wales sigraði í undan-
keppninni í Evrópu fyrir
hina nýju landsliðakeppni
í golfi sem haldin verður á
St. Andrews í Skotlandi í
október. Wales vann ír-
land með tveimur vinning-
um gegn einum og Frakkar
urðu í þriðja sæti eftir sigur
á Hollendingum með sömu
tölum. Frakkar tryggðu sér
þar með rétt til þátttöku á
mótinu í október sem er
einskonar heimsmeistara-
keppni landsliða í golfi og
er fyrsta keppni sinnar teg-
undar.
Borðtennis:
Fjarhitunin best
■ Fyrirtækjakeppni borð-
tennisdeildar Víkings var haldin
fyrir nokkru. 14 fyrirtæki og
Getraunir:
ENGINN MED TÓLF
■ í 32. leikviku Getrauna kom
enginn seðill fram með 12
réttum, en 32 seðlar reyndust
vera með 11 réttum og var
vinningur fyrir röðina kr.
12.365.00 Með 10 rétta voru 446
raðir og vinningur fyrir hverja
röð kr. 380.00.
stofnanir tóku þátt í mótinu
Var keppt í 3 riðlum og fór eit
lið úr hverjum í úrslit.
Svo fór að lið Fjarhitunar h/
sigraði en fyrir það fyrirtæk
spiluðu Ragnar Ragnarsson o:
Jón Örn Sigurjónsson. í öðri
sæti var lið frá Söluturninun
Hrísatorgi, Garðabæ en þa<
skipuðu þeir Gunnar Valssoi
og Sigurður Guðmundsson
Þriðja í röðinni var svo lið fr;
Brimborg en þar spiluðu Bjark
Harðarson og Höskuldur Erl
ingsson.